Morgunblaðið - 23.12.2011, Blaðsíða 10
Nú fer hver að verða síðastur að
skrifa jólakortin, pakka inn gjöfunum
og setja merkimiða. Og um að gera
fyrir þá ástföngnu að skrifa eitthvað
dásamlegt á kort eða merkimiða.
Auðvitað er alltaf skemmtilegast að
skrifa eitthvað beint frá hjartanu en
stundum er hugmyndaflugið í lág-
marki, sérstaklega þegar álagið er
mikið og þá getur verið gott að skella
sér á netið og velja ástarljóð eða til-
vitnanir sem þar er að finna. Vefsíðan
lovepoemsandquotes.com er, eins og
nafnið bendir til, stútfull af ástar-
ljóðum og tilvitnunum. Á síðunni er
líka að finna ástarstjörnuspá, ástar-
ráð fyrir karlmenn, hægt er að spyrja
sambandssérfræðing ráða og svo
mætti lengi telja. Tilvalið fyrir alla
sem eru með hausinn stútfullan af
ást. Svo klikkar að sjálfsögðu aldrei
að vitna í gullfalleg íslensk ástarljóð,
nóg er nú til af þeim.
Vefsíðan www.lovepoemsandquotes.com
Ástarljóð og tilvitnanir
Stúlkurnar sem valdar voru í
sex manna street dans hóp
heita: Linda Sjöfn Alexdóttir,
Maria Monica Luisa, Thelma
Christel Kristjánsdóttir, Elva
Margrét Sigurbjörnsdóttir,
Nína Björg Arnarsdóttir og
Sara Dís Gunnarsdóttir. Þær
munu sækja sex vikna street
dans námskeið þar sem þær
læra ólíka stíla dansins frá
grunni og fræðast um sögu
hans.
Í danstímum Brynju er
dansað allan tímann og hitað
upp með dansi til að kynnast
rytmanum og stílnum enn
betur. Í boði eru tímar jafnt
fyrir byrjendur sem lengra
komna.
Dansað allan
tímann
STREET DANS HÓPUR
Danshópur Þessar sex stúlkur voru valdar eftir áheyrnarprufur.
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
Það var líf og fjör í Árbæj-arþreki nýverið þar sem50 stelpur voru mættar íáheyrnarprufur fyrir nýj-
an street-dans hóp. Brynja Péturs-
dóttir danskennari stóð fyrir pruf-
unum en hún hefur lengi dansað
street-dans.
Þekking á dansinum
„Hjá mér eru flottir dansarar á
öllum aldri en með þessu vildi ég ná
til unglinga og breiðari aldurshóps.
Ég byrjaði að kenna street-dans ár-
ið 2004 og er komin með góðan hóp
en nú ætla ég mér að stækka
street-dans senuna á Íslandi enn
meira. Í kjölfarið á þessu vonast ég
til að fleiri byrji að æfa dansinn og
að almenn þekking á street-
stílunum verði meiri. Mér finnst
mikilvægt að þekkja vel til þess um
hvað þetta snýst allt saman. Sjálf
féll ég fyrir hipp-hoppi þegar ég var
11 ára og hef síðan þá drukkið í mig
alla þá þekkingu sem fyrirfinnst um
street-dans. Ég hef meðal annars
sótt reglulega danstíma og nám-
skeið erlendis, aðallega í New York.
Þar hef ég meðal annars lært hjá
dönsurum sem eru frumkvöðlar
stílanna eða hafa haft áhrif á þá.
Þessi þekking er ómetanleg og
henni reyni ég að miðla í gegnum
mína danskennslu,“ segir Brynja.
Hún kynntist fyrst hipp-hoppi hjá
Natöshu sem lengi hefur kennt í
Kramhúsinu og kennir nú einnig
með Brynju.
Myndband og sýningar
Brynja valdi sex unga og upp-
rennandi dansara á aldrinum 13 til
Dýnamískir
dansstílar
Danskennarinn Brynja Pétursdóttir féll ung fyrir hipp-
hoppi sem er ákveðinn stíll í street-dansi. Hún hefur nú
sett saman street-dans hóp sex ungra dansara.
Stemning Óĺíkir stíl-
ar eru dansaðir í
street dansi, t.d. hip-
hop og waacking.
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. DESEMBER 2011
Það er alltaf gaman að fara í bæinn á
Þorláksmessu og um að gera að líta
inn á Gauknum, en þar munu í dag kl.
17 koma fram nokkrir tónlistarmenn
sem eru að gefa út tónlist fyrir jólin.
Fram koma: Vicky, Toggi, Ragnheiður
Gröndal, Guðmundur Pétursson,
Blússveit Þollýjar, Eldar og GRM
(Gylfi Ægis, Rúnar Þór & Megas).
Fleiri listamenn munu bætast við
dagskrána. Einnig er hægt að kaupa
diska beint af tónlistarfólkinu og fá
gripina áritaða, tilvalið í jólapakkann.
Jólaöl og piparkökur verða í boði og
frítt er inn. Börn yngri en 18 ára þurfa
að vera í fylgd með fullorðnum.
Endilega …
… njótið tóna
á Gauknum
Morgunblaðið/Ómar
Kemur fram Ragnheiður Gröndal.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Stjörnumerki og spár hafa ekki vakið áhuga minnsíðan ég var ástsjúkur unglingur og lét stjörnu-spár um að ákveða örlög mín í sambandi við ung-lingspilt. Alla jafna þorði ég ekki að gefa mig á tal
við þennan dreng en segði stjörnuspáin að ástalíf mitt og
allra annarra í meyjarmerkinu myndi glæðast á næstunni
létti það lund mína og blés í brjóst mér von um að pilturinn
yrði kærastinn minn að nokkrum dögum liðnum. Það er
skemmst frá því að segja að ég afsannaði að stjörnuspár
væru marktækar. Við urðum aldrei kærustupar.
Að einhverju leyti hef ég líka skammast mín fyrir
stjörnumerki mitt þegar ég er í kringum sérfróða ein-
staklinga á dulræna sviðinu. Meyjur eru með fullkomn-
unaráráttu og svolítið stífar og akkúrat. Ég fór reyndar að
gráta ef ég fékk ekki 10 á prófum í grunnskóla. Ég bjó
til lista yfir bangsana mína og merkti við hver mætti
kúra hjá mér á næturnar svo ég myndi ekki gera
upp á milli tuskudýranna. Ég skrifaði niður um-
sagnir um allar bækur sem ég las og flokkaði þær
niður. Ég fór aldrei í sömu fötin tvo daga í röð (og
geri reyndar ekki enn). Ætli ég verði ekki að
viðurkenna að ég hafi verið með einhverja full-
komnunaráráttu.
Þegar stjörnumerkin bar á góma í vinnunni
um daginn ræddi ég við samstarfskonu
mína um hvernig ég hefði lagt fullkomn-
unaráráttuna á hilluna. Hvernig ég
hefði smám saman orðið kærulausari í
skóla og að ég færi ekki í mínus lengur
ef ég sendi eitthvað mistækt frá mér.
Hún sannfærði mig um að stjörnu-
merkið sem við fæðumst í þurfi ekki
að vera ríkjandi merki okkar. Ég
var því nokkuð sátt við að vera
ekkert svo mikil meyja, því ef það
er eitthvað að marka þessi fræði
þá er meyjarmerkið það merki sem
ég vil síst tilheyra.
Eftir umræðuna í vinnunni fór ég heim.
Ég stóð mig að því að láta það fara í taug-
arnar á mér hvernig maðurinn minn rað-
aði í fataskápinn. Beið eftir því að hann færi út úr herberg-
inu svo að ég gæti lagað til eftir hann. Nálægt þvottinum
kemur enginn á mínu heimili. Það er einfaldlega þannig að
það kann enginn að hengja þvott upp á snúru nema ég og
hvað þá að brjóta hann saman. Það er ekki aðeins einræði
hvað varðar þvottinn á mínu heimili, einræðið er yfir og
allt um kring þegar kemur að heimilishaldinu. Mér varð
skyndilega ljóst að fullkomnunaráráttan er eflaust
ekki stöðug á hillunni sem ég taldi hana vera á.
Það var því með nokkrum trega sem ég þáði
hjálp frá börnum mínum, fimm og átta ára. Þau
vildu gjarnan fá að pakka inn jólagjöfunum í
ár, aaaalveg ein. Ég þurfti að kyngja nokkr-
um sinnum og sleppa taumnum lausum. Í
fyrstu var ekkert hornrétt og gjafirnar dingl-
uðu inni í oflímdum gjafapappírnum. Ég sat á
mér með að rífa gjafirnar upp þegar þau voru
sofnuð og pakka þeim inn aftur. Daginn eftir
héldu þau áfram og stóðu sig vonum framar.
Framfarirnar voru svo stórkostlegar að
mér stóð ekki á sama. Nú gætu þiggjendur
haldið að ég hefði pakkað gjöfunum inn.
Meyjunni mér hefði samt aldrei dottið í
hug að pakka inn í rauðan jólapappír, setja
á hann grænan borða, gullslaufu og hvítt
glimmerskraut. Meyjan hefði heldur
ekki skrifað á merkimiðann með blek-
klessum. En Meyjan er stolt af þessum
pökkum sem endurspegla ást. Meyjan gætir
þess þó að allir sem gjafirnar fá viti að það
voru börnin sem pökkuðu þeim inn.
»Það er ekki aðeins einræði hvaðvarðar þvottinn á mínu heimili,
einræðið er yfir og allt um kring þegar
kemur að heimilishaldinu.
Heimur Signýjar
Signý Gunnarsdóttir signy@mbl.is