Morgunblaðið - 23.12.2011, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. DESEMBER 2011
Í MIÐBORGINNI Á ÞORLÁKSMESSU
til kl.23.00
Leiftrandi
Jólabragur
Því verður seint haldið fram aðgengið hafi verið hart að Össuri
Skarphéðinssyni í viðtali Kastljóss-
ins í fyrradag. Össur fékk þarna
notalegt tækifæri til að reyna að
endursemja söguna, sem er gott
þeim sem hafa margt á samviskunni.
Hann var spurð-ur út í hvernig
mundi ganga að
klára stór mál á borð
við fiskveiðistjórn-
armálið og sagði þá
að það hefðu verið
miklir gallar á stóra
fiskveiðistjórn-
arfrumvarpinu og að
framlagning þess
hefði verið eins og
að lenda í bílslysi.
Spurður að þvíhvort boðlegt væri að leggja
fram slíkt frumvarp sagði Össur:
„Mér finnst það nú ekki boðlegt,
enda lagði ég það ekki fram.“
Nú vill svo til að Össur hefur réttfyrir sér um að frumvarpið var
ekki boðlegt, en spyrillinn hefði að
ósekju mátt minna hann á að frum-
varpið var stjórnarfrumvarp og að
svo vill til að Össur var í ríkisstjórn-
inni.
Og það sem meira er, frumvarpiðvar afrakstur sérstaks vinnu-
hóps fjögurra ráðherra; forsætisráð-
herra, fjármálaráðherra, velferð-
arráðherra og sjávarútvegs-
ráðherra, auk þess sem fleiri
þingmenn stjórnarflokkanna komu
að því.
Hvað er Össur að segja með þvíað frumvarpið hafi ekki verið
boðlegt enda hafi hann ekki lagt það
fram?
Hvaða samráðherra eða samráð-herrum var ætluð sú kveðja?
Össur
Skarphéðinsson
Kveðja Össurar
STAKSTEINAR
Jóhanna
Sigurðardóttir
Veður víða um heim 22.12., kl. 18.00
Reykjavík 2 skýjað
Bolungarvík -1 skýjað
Akureyri -1 alskýjað
Kirkjubæjarkl. 2 skýjað
Vestmannaeyjar 2 slydda
Nuuk -3 snjóél
Þórshöfn 10 súld
Ósló -3 skýjað
Kaupmannahöfn 5 skýjað
Stokkhólmur 0 skýjað
Helsinki -2 þoka
Lúxemborg 8 skýjað
Brussel 10 skýjað
Dublin 12 skýjað
Glasgow 11 alskýjað
London 12 léttskýjað
París 11 skýjað
Amsterdam 8 skýjað
Hamborg 7 súld
Berlín 5 skýjað
Vín 4 skýjað
Moskva -1 snjókoma
Algarve 17 heiðskírt
Madríd 15 heiðskírt
Barcelona 16 heiðskírt
Mallorca 18 léttskýjað
Róm 8 léttskýjað
Aþena 10 skúrir
Winnipeg -7 skýjað
Montreal 1 léttskýjað
New York 12 heiðskírt
Chicago 3 alskýjað
Orlando 23 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
23. desember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 11:23 15:31
ÍSAFJÖRÐUR 12:10 14:54
SIGLUFJÖRÐUR 11:55 14:35
DJÚPIVOGUR 11:02 14:51
Einar Olgeirsson, fyrr-
verandi hótelstjóri,
andaðist á sjúkrahús-
inu í Volda í Noregi 21.
desember sl., 77 ára að
aldri.
Einar fæddist í
Reykjavík 2. desember
1934 og var sonur
hjónanna Hólmfríðar
Sigurðardóttur hús-
móður og Olgeirs Sig-
urðssonar húsasmíða-
meistara.
Hann útskrifaðist
sem framreiðslumaður
árið 1953 frá Iðnskól-
anum í Reykjavík og sótti ótal nám-
skeið og starfsþjálfun hérlendis og
erlendis.
Einar starfaði sem fram-
reiðslumaður í ráðherrabústaðnum,
Sjálfstæðishúsinu, Þórscafé, Breið-
firðingabúð, Hótel Borg og ms. Gull-
fossi á árunum 1953-1960. Hann var
yfirframreiðslumaður á ms. Gull-
fossi 1960-1962 og yfirfram-
reiðslumaður í Veitingahúsinu
Klúbbnum 1962-1965. Hann starfaði
sem aðstoðarhótelstjóri á Hótel
Sögu í 10 ár eða til 1975 þegar hann
fluttist til Húsavíkur og starfaði sem
hótelstjóri á Hótel Húsavík frá 1975-
1980. Hann starfaði sem starfs-
mannastjóri á Hótel Sögu 1980-1981.
Á árunum 1981-1987 starfaði Ein-
ar sem hótelstjóri á Flugleiðahót-
elunum, fyrst á Hótel Esju og seinna
á Hótel Loftleiðum.
Frá árinu 1987 starfaði
hann sem hótelstjóri á
Hótel Esju og Hótel
Loftleiðum eða þangað
til hann settist í helgan
stein árið 1999.
Einar gegndi fjöl-
mörgum trún-
aðarstörfum um ævina
fyrir sín fagfélög og
var bæði í stjórn og for-
maður Sambands hót-
ela og veitingahúsa.
Hann var forseti Hótel-
og veitingasambands
Norðurlanda, formað-
ur skólanefndar Hótel- og veitinga-
skóla Íslands og í nefnd veitingahúsa
frá árinu 1989.
Einar hlaut fjölda viðurkenninga á
sínum starfsferli, þar má nefna heið-
ursmerki Margrétar Danadrottn-
ingar árið 1973, gullmerki Ólafs V.
Noregskonungs 1974, silfurorðu
Karls Gústafs Svíakonungs 1987 og
Lúxemborgarorðuna Chevalier de
l’ordre de Mérite 1986. Hann fékk
einnig viðurkenningarskjöl frá Ron-
ald Reagan Bandaríkjaforseta, 1986,
og George P. Shultz, utanrík-
isráðherra Bandaríkjanna, 1987.
Eftirlifandi eiginkona Einars er
Emilía Sigurjónsdóttir. Börn þeirra
eru Septína Selma, Rannveig Eir,
Óskar og Sveinn Geir. Börn Einars
frá fyrra hjónabandi eru Kristinn
Maríus, Hólmfríður og Olgeir.
Andlát
Einar Olgeirsson
Um 1.000 umsóknir hafa verið af-
greiddar í jólaaðstoð Hjálparstarfs
kirkjunnar nú í desember. Ætla má
að um 2.800 einstaklingar um allt
land njóti góðs af.
Í frétt frá Hjálparstarfinu segir að
markhópurinn hafi verið einstak-
lingar og barnafjölskyldur um allt
land nema í Reykjavík, þar sem fleiri
hjálparsamtök starfa. Afhent voru
ný inneignarkort í matvöruverslun-
um og lagt inn á eldri kort og fór
upphæð eftir fjölskyldustærð og
fjárhagsstöðu.
Jólaaðstoðin gekk mjög vel enda
lögðu margir sjálfboðaliðar lið. Ein-
staklingar, fyrirtæki og samtök hafa
lagt fram fé til jólaaðstoðarinnar og
vill Hjálparstarfið þakka þann góða
stuðning.
„Hjálparstarfið átti gott samstarf
við Rauða krossinn í Reykjavík sem
hefur lagt lið með fjármunum og
sjálfboðaliðum. Einnig höfðu Hjálp-
arstarfið, mæðrastyrksnefndir og
Rauða kross-deildir í Reykjavík,
Hafnarfirði, Kópavogi, Garðabæ og
Mosfellsbæ sameiginlega skráningu
umsækjenda sem skipti miklu máli
til að nýta aðstoðina sem best og ná
til allra sem þurfa hjálp. Hjálpar-
starfið og ofangreind samtök hafa
þannig afgreitt um 1.400 jólaum-
sóknir samtals,“ segir í fréttinni.
Afgreiddu 1.000
umsóknir fyrir jólin
2.800 einstaklingar um allt land nutu
góðs af jólaaðstoð Hjálparstarfsins
Raftæki hafa selst vel fyrir þessi jól
og er velta raftækjaverslana um
10% meiri það sem af er desember
en á sama tímabili í fyrra. Rann-
sóknasetur verslunarinnar gerði
könnun á jólaverslun hjá nokkrum
stórum smásöluverslunum.
Matarinnkaup landsmanna fyrir
þessi jól reyndust svipuð og í fyrra.
Þótt neytendur hafi varið um 5%
fleiri krónum til kaupa á mat og ann-
arri dagvöru fyrsta 21 dag desember
er samdráttur að magni til um 1%
þegar leiðrétt hefur verið fyrir verð-
hækkunum.
Velta raftækja-
verslana er um
10% meiri það
sem af er mán-
uðinum heldur en
á sama tímabili í
fyrra. Ef leiðrétt
er fyrir verð-
breytingum nem-
ur raunaukning í
raftækjaverslun
um 14%.
Velta fataverslana dróst hins veg-
ar saman um 7% í krónum talið.
kjon@mbl.is
Selja meira af raftækjum
Sala Þvottavélar
eru vinsælar.