Morgunblaðið - 23.12.2011, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. DESEMBER 2011
KORTIÐ GILDIR TIL
31.01.2012
MOGGAKLÚBBURINN
– MEIRA FYRIR ÁSKRIFENDUR
Allir fastir áskrifendur Morgunblaðsins eru sjálfkrafa félagar í Moggaklúbbnum og njóta ýmissa fríðinda og tilboða.
Hægt er að fylgjast með hvað er í boði hverju sinni á mbl.is/moggaklubburinn.
Hafðu samband í síma 569 1122 hafi Moggaklúbbskortið ekki borist þér.
FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á MBL.IS/ASKRIFT
EÐA Í SÍMA 569 1122
30% AFSLÁTTUR Á „JÓL“
MEÐ MÓTETTUKÓR
HALLGRÍMSKIRKJU OG
ÞÓRU EINARSDÓTTUR SÓPRAN
28. OG 29. DES. KL. 20
MOGGAKLÚBBUR
Á sínum eftirsóttu jólatónleikum, sem nú eru haldnir í
30. sinn, býður Mótettukórinn áheyrendum sínum upp á
hugljúfa tónlist frá ýmsum löndum.
Erlendir kórfélagar leggja til jólalög frá sínum heimalönd-
um og er sungið á móðurmáli þeirra. Flutt verður íslensk
jólatónlist eftir Áskel Jónsson, Sigvalda Kaldalóns og
Hörð Áskelsson og frumflutt tvö jólalög eftir Hreiðar Inga
Þorsteinsson og Halldór Hauksson.
Stjórnandi: Hörður Áskelsson.
Framvísið Moggaklúbbskortinu í miðasölu Hallgrímskirkju.
Miðasalan er opin kl. 9-17 alla daga. Sími 510 1000.
Almennt miðaverð 3.900 kr.
Moggaklúbbsverð 2.700 kr.
Jólatónlistarhátíð Hallgrímskirkju 2011
LISTVINAFELAG.IS
Tíu ungum starfsmönnum Land-
spítala, sem stunda klínískar rann-
sóknir á spítalanum, voru afhentir
styrkir úr Vísindasjóði LSH í vik-
unni. Þetta er í fyrsta sinn sem slík-
ir styrkir eru veittir, en hver styrk-
ur nemur einni milljón króna.
Markmið styrkjanna er að efla klín-
ískar rannsóknir á Landspítala og
styðja rannsóknarvirkni ungra
starfsmanna. Guðbjartur Hannes-
son velferðarráðherra og Katrín
Jakobsdóttir mennta- og menning-
armálaráðherra voru við afhend-
inguna.
Styrkþegar og rannsóknir: Ása
Guðrún Kristjánsdóttir næringar-
fræðingur: Fæðuvenjur kvenna með
lotugræðgi og ótilgreinda átröskun.
Ásbjörg Geirsdóttir læknir: Súrefn-
isbúskapur í aldursbundinni hrörn-
un í augnbotnum. Brynja Björk
Magnúsdóttir sálfræðingur: Áhrif
eintakabreytileika í erfðamenginu á
frammistöðu á taugasálfræðiprófum
í þýði sjúklinga með geðklofa og
stöðlun sömu taugasálfræðiprófa.
Erna Sif Arnarsdóttir náttúrufræð-
ingur: Svefn- og öndunartruflanir
hjá almennu þýði – Evrópukönn-
unin lungu og heilsa og eftirfylgd.
Freyja Valsdóttir lífeindafræðingur:
Sameindalíffræðileg rannsókn á
ónæmum bakteríum úr faraldri á
Landspítala 2002-2011: Magnús Jó-
hannsson sálfræðingur: Tengsl
heilarita, hugrænnar færni og líf-
fræðilegra skilmerkja í greiningu
Alzheimersjúkdóms. Martin Ingi
Sigurðsson læknir: Erfðaþættir
bráðra líffærabilana. Ómar Sigurvin
Gunnarsson læknir: Meðgöngusyk-
ursýki á Íslandi. Ragnar Pálsson
læknir: Þáttur lungnaþekju í
lungnatrefjun. Sandra Dís Stein-
þórsdóttir læknir: Blóðþrýstingur í
9-10 ára börnum á Íslandi. Algengi
háþrýstings, ástæður og fylgikvillar.
Tíu ungir vísinda-
menn hljóta styrki
Markmið styrkjanna er að efla klín-
ískar rannsóknir á Landspítalanum
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Það gengur ágætlega að selja
norðurljósin,“ sagði Friðrik Páls-
son, hótelhaldari sem á og rekur
Hótel Rangá, Hótel Skóga, Hótel
Háland og Hrauneyjar á Suður-
landi. Friðrik hefur lengi bent á
þann möguleika að selja útlend-
ingum norðurljósin.
„Það er gríðarlega mikið af
Bretum og Bandaríkjamönnum hjá
mér núna og meira og minna allir
í norðurljósaferðum,“ sagði Frið-
rik. „Norðurljósaferðir eru gríð-
arlega vinsælar.“ Hann sagði það
vera býsna þekkt að selja ferða-
mönnum norðurljósin. Íslendingar
væru nú að feta í fótspor Kan-
adamanna, Alaskabúa, Finna, Svía
og jafnvel Norðmanna sem hafi
selt norðurljósaferðir í fjölda ára.
„Ég byrjaði á þessu veturinn
2004 og þetta hefur verið mjög
vaxandi allan tímann. Í byrjun
komu mikið Japanir en svo hafa
Mið- og Norður-Evrópubúar og
Bandaríkjamenn tekið við, alla-
vega hjá mér,“ sagði Friðrik.
Hann taldi að Íslendingar hefðu
lengi verið feimnir við að selja
norðurljósin.
„Ég veit ekki hvort sagan af
Einari Ben. hafði eitthvað með
það að gera. Málið er að þú þarft
að afhenda allt sem þú selur –
ekki satt? Afhendingin er ekki
okkur háð nema að litlu leyti. Við
getum passað að hafa ekki ljós-
mengun þar sem við seljum norð-
urljós,“ sagði Friðrik. „Mín
reynsla er sú að þetta sé af-
skaplega ánægjuleg leið til að
selja útlendingum Ísland. Þeir
koma og njóta margra skemmti-
legra stunda við alls kyns afþrey-
ingu. Svo eru norðurljósin kaup-
auki þegar þau sjást og það er alls
ekki sjaldan.“
Engin ljósmengun er frá byggð
í kringum Hótel Rangá og eru úti-
ljósin einfaldlega slökkt þegar von
er á norðurljósum. Gestir, sem
langar að sjá norðurljós, láta vita
af því í gestamóttökunni. Næt-
urvörður hótelsins er alla nóttina
á útkíkki eftir norðurljósum. Þeg-
ar þeirra verður vart eru gestirnir
vaktir. „Það er afar skemmtilegt
að sjá fullt af fólki á náttfötunum
úti á hlaði um miðjar nætur að
skoða norðurljósin,“ sagði Friðrik.
„Það er afar gaman að sjá hvað
þetta hefur aukist.“
Í haust hafa nokkrir hópar
ferðamanna gist uppi á Hraun-
eyjum til að skoða norðurljós,
enda er oft minni skýja-
hula inn til landsins en
nær ströndinni.
Hótel Háland, sem er í
næsta nágrenni við
Hrauneyjar, verður opnað
1. febrúar næstkomandi
og verður opið fram á vor.
Það er gert vegna mik-
illar eftirspurnar eftir
norðurljósaferðum, að
sögn Friðriks Páls-
sonar.
Gengur ágætlega að selja norðurljós
Ferðamenn koma víða að úr heiminum til að sjá norðurljósin Aðsóknin að norðurljósaferðunum
hefur vaxið ár frá ári Gestir vilja láta vekja sig um miðjar nætur þegar sést til norðurljósanna
Morgunblaðið/hag
Norðurljós Útlendingar flykkjast hingað til lands í þeiri von að sjá ljósin dansa í heiðríkju heimskautamyrkursins.
„Það þarf þrennt að ganga upp
til þess að það sjáist norður-
ljós,“ sagði Friðrik Pálsson,
ferðafrömuður og hótelhaldari.
„Það þarf að vera rétt sólvirkni,
sæmilega heiðskírt og myrkur.
Við þurfum ekki að kvarta und-
an skorti á myrkri á þessum
árstíma.“
Hann sagði þann vanda fylgja
norðurljósasölu að maður þurfi
að geta afhent vöruna sem boð-
in er.
Íslandsstofa hélt ráðstefnu 1.
desember síðastliðinn, „Norð-
urljós – vannýtt auðlind“, um
hvernig ætti að selja norður-
ljósin. Endurtaka á fundinn á
Norðurlandi í næsta mánuði, að
sögn Friðriks.
Hann sagði þetta vera hluta
af átaksverkefninu „Ísland allt
árið“ sem unnið verður að
næstu þrjú árin. Friðrik kvaðst
binda miklar vonir við að verk-
efnið skilaði miklum árangri í að
auka ferðamannastraum-
inn þannig að hingað
streymdu ferðamenn
árið um kring.
Vannýtt auð-
lind á himni
NORÐURLJÓSIN
Friðrik Pálsson