Morgunblaðið - 23.12.2011, Page 21
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. DESEMBER 2011
BAKSVIÐ
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Mannskæðar sprengjuárásir sem
gerðar voru í Bagdad í gær beindu
athyglinni að vaxandi togstreitu milli
súnníta og sjíta í Írak og deilum sem
gætu orðið til þess að landið liðaðist í
sundur.
Yfirvöld sögðu að 63 manns hefðu
beðið bana og 185 særst í tíu
sprengjuárásum sem beindust eink-
um að hverfum sjíta í Bagdad. For-
seti íraska þingsins, Osama al-Nuj-
aifi, fordæmdi tilræðin og sagði þau
„ógna einingu ríkisins“.
Það sama má reyndar segja um
pólitísku togstreituna því hún hefur
orðið til þess að þjóðstjórnin í Írak
virðist riða til falls, um ári eftir að
hún var mynduð með það að mark-
miði að tryggja einingu landsins.
Varaforseti á flótta
Deilurnar í stjórninni eru orðnar
svo harðvítugar að áhrifamesti
stjórnmálamaður súnníta, Tariq al-
Hashemi varaforseti, hefur flúið frá
höfuðborginni og dvelur nú á sjálf-
stjórnarsvæði Kúrda. Hashemi flúði
eftir að gefin var út handtökutilskip-
un á hendur honum vegna ásakana
um að hann hefði fyrirskipað lífvörð-
um sínum að myrða pólitíska and-
stæðinga hans og staðið fyrir nýlegri
sprengjuárás í Bagdad.
Hashemi neitar þessu og segir
ásakanirnar lið í valdabrölti for-
sætisráðherrans Nuris al-Malikis,
sem er sjíti og sakaður um að hafa
ýtt fulltrúum súnníta til hliðar og
fært öll völdin í hendur sjíta.
Maliki hefur krafist þess að yfir-
völd á sjálfstjórnarsvæði Kúrda
framselji Hashemi. Hann krefst
einnig þess að aðstoðarforsætisráð-
herranum og súnnítanum Saleh al-
Mutlak verði vikið frá vegna þess að
hann lýsti Írak sem „einræðisríki“.
Flokkur súnnítanna tveggja, Ira-
qiya, er með 91 þingmenn af alls 325
og margir þeirra eru hættir að sitja
þingfundi, auk þess sem níu ráð-
herrar flokksins neita að mæta á
fundi þjóðstjórnarinnar.
Mutlak aðstoðarforsætisráðherra
sakaði Maliki um valdaeinokun og
skírskotaði m.a. til þess að forsætis-
ráðherrann stjórnar sjálfur ráðu-
neytum varnar- og innanríkismála
og ræður þar með yfir öllum öryggis-
sveitum landsins. „Pólitíska ferlið
sem átti að leiða til lýðræðis í Írak
hefur í raun orðið til þess að einn
flokkur er við völd og einn maður
stjórnar landinu,“ sagði Mutlaq í við-
tali við breska ríkisútvarpið. „Ég ótt-
ast að tómarúmið vegna skortsins á
pólitískri einingu verði til þess að
landið liðist í sundur, klofningurinn
verði eftir að stríð blossi upp og hon-
um fylgi stríð vegna deilna um landa-
mæri og náttúruauðlindir.“
Þrjú héruð súnníta hafa lýst yfir
stofnun heimastjórnar og margir
íbúanna vilja að þau verði sameinuð
líkt og sjálfstjórnarsvæði Kúrda. Að-
skilnaðarsinnaðir súnnítar við landa-
mærin að Sýrlandi hafa sótt í sig
veðrið á síðustu vikum og hvatt til
vopnaðrar baráttu gegn stjórninni í
Bagdad.
Óttast að Írak liðist í sundur
Togstreita milli súnníta og sjíta gæti
leitt til pólitískrar upplausnar og stríðs
Reuters
Blóðbað Her- og lögreglumenn á
vettvangi sprengjuárásar í Bagdad.
ÞJÓÐERNISSKIPTINGIN Í ÍRAK
M
j ö
g
s t r j á l b ý l t
ÞJÓÐERNIS- OG
TRÚARHÓPAR
Íbúafjöldi:
26.074.906
(áætlaður í júlí 2005)
Trúarhópar
Sjítar
60% - 65%
Súnnítar
32% - 37%
Aðrir 3%
Þjóðernishópar
Arabar
75% - 80%
Kúrdar
15% - 20%
Aðrir* 5%
Heimildir: Global Security,
CIA World Factbook
Tikrit
Svæði Kúrda
Svæði sjíta
Svæði súnníta
Helgur staður sjíta
Borg með fleiri
en 500.000
íbúa
Höfuðstaður
héraðs
Kerbala
Najaf
Basra
SÁDI-ARABÍA
100 km
SÝRLAND
Mosul
Arbil
Kirkuk
Bagdad
ÍRAN
TYRKLAND
KÚVEIT
Konur skreyttar gömlum happdrættismiðum
fylgjast með drætti í El Gordo, „Hinum feita“,
árlegu happdrætti á Spáni. Vinningarnir námu
alls 2,5 milljörðum evra, eða 400 milljörðum
króna. Aðalvinningurinn skiptist á 1.800 miða og
hver þeirra fær andvirði 60 milljóna króna.
Reuters
Vinningar að andvirði 400 milljarða dregnir út
Nefnd réttarlækna í Noregi hefur staðfest þá
niðurstöðu tveggja réttargeðlækna að fjölda-
morðinginn, sem varð alls 77 manns að bana 22.
júlí, væri ósakhæfur vegna ofsóknargeðklofa sem
hann hefði lengi verið haldinn, að sögn norskra
fjölmiðla í gær.
Norska fréttastofan NTB hafði eftir formanni
nefndarinnar, Karl Heinrik Melle, að hún hefði
ekki andmælt neinum veigamiklum atriðum í
skýrslu sem réttargeðlæknarnir afhentu héraðs-
dómi í Osló 29. nóvember. Dómstóllinn hefur loka-
orðið um sakhæfi hins ákærða og getur komist að
þeirri niðurstöðu að hann sé sakhæfur. Norskir
dómstólar hafa þó yfirleitt farið eftir mati réttar-
geðlækna.
Norska ríkisútvarpið hafði eftir Mette Yvonne
Larsen, lögmanni fórnarlamba fjöldamorðingjans
eða fjölskyldna þeirra, að hún hygðist óska eftir
því að dómstóllinn fæli öðrum réttargeðlæknum
að meta hvort fjöldamorðinginn væri sakhæfur.
Hún sagði að niðurstaða nefndarinnar væri „tor-
skilin“. Ríkissaksóknarinn Svein Holden kvaðst
ekki hafa tekið afstöðu til niðurstöðu nefndarinn-
ar. bogi@mbl.is
Norskir sérfræðingar telja
fjöldamorðingjann ósakhæfan
Lögmaður fórnarlamba vill að dómstóll óski eftir nýju mati sálfræðinga
Nefndin sögð hafa klofnað
» Norska ríkisútvarpið kvaðst hafa heimildir
fyrir því að þrír af sjö nefndarmönnum hefðu
efasemdir um þá niðurstöðu að fjöldamorð-
inginn væri ósakhæfur.
» Formaður nefndar réttarlæknanna vildi
ekki svara því hvort ágreiningur hefði verið
um þetta í nefndinni. Íbúum Norður-Kóreu hefur verið
sagt að votta minningu Kims Jong-
Ils virðingu sína að minnsta kosti
þrisvar sinnum á dag opinberlega,
að sögn suðurkóresks sérfræðings í
málefnum landsins. Þegar faðir
leiðtogans, Kim Il-Sung, dó árið
1994 dugði ein ferð á dag til að sýna
sorgarviðbrögð.
„Norður-Kóreumenn eru mjög
meðvitaðir um að þeir þurfa að láta
í ljós sorg sína þegar æðsti leiðtogi
þeirra deyr, til að komast hjá því að
grunsemdir vakni um hollustu
þeirra,“ sagði Kim Young-Soo, pró-
fessor við Sogang-háskóla í Seúl.
„Þeir hafa lært af reynslunni að því
sterkari sem sorgarviðbrögðin eru
því betra.“
Reuters
Viðbrögð N-Kóreumenn gráta.
Harmað
þrisvar á dag
Norður-Kórea
Kona ól tveggja
höfða sveinbarn
á sjúkrahúsi í
bænum Anajas í
Brasilíu nýlega
og læknar segja
að hann virðist
við góða heilsu.
Konan hafði
haldið að hún
gengi með tvíbura. Þegar læknar
sáu að barnið var með tvö höfuð var
ákveðið að taka það með keis-
araskurði. Barnið er með tvo heila,
tvo hryggi en eitt hjarta, að sögn
fréttaveitunnar Reuters.
Fæddist með
tvö höfuð
Brasilía