Morgunblaðið - 23.12.2011, Síða 24
24 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. DESEMBER 2011
Nú fer að höndum hátíð sú,
er heimi færði von og trú.
Frelsari heimsins fæddur var,
í fullvissu Guðs um bænasvar.
Á jólanótt þá bárust mönnum boð,
um barn í jötu,
sonur Guðs hann var.
Í litlu hreysi vafinn inn í voð,
er vöktu englar yfir honum þar.
Og fjárhirðarnir komu á hans fund,
er fréttin barst, og gleðin ríkti nú.
Við fögnuð þann var friðsæl þessi stund,
og fullkomnaðist von í þeirra trú.
Hér hafði ræst, sem ritað var um það,
er raddir spáðu; lýðnum glæddist von.
Að sjálfur Guð á góðri stund og stað,
af stofni Ísai fæðast léti son.
Í Betlehem var barnið fætt er nú,
bárust engla raddir út um geim.
Af kvisti þessum kærleikans og trú,
kemur Guð með frið um allan heim.
Lofsyngið Drottni, lofið nafnið hans,
úr lindum ausið, fagnið öll með honum.
Því máttur Guðs með fæðing frelsarans,
færir mönnum ljós í nýjum vonum.
Nú ljómar yfir Drottins mikla dýrð,
og dásamlegur söngur engla hljómar.
Þér berast jólin, þangað sem þú býrð,
því fögnuður um Jesú endurljómar.
Á jólanótt
Eftir Sigurð Rúnar
Ragnarsson
Sigurður Rúnar
Ragnarsson
Höfundur er sókn-
arprestur í Norð-
fjarðarprestakalli.
V i n n i n g a s k r á
34. útdráttur 22. desember 2011
A ð a l v i n n i n g u r
Toyota Avensis Toyota Land Cruiser
Kr. 5.000.000 kr. 10.000.000 (tvöfaldur)
6 0 0 7 6
V i n n i n g u r
Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur)
8 7 5 2 4 9 0 4 3 5 6 4 5 6 5 9 3 6 8
V i n n i n g u r
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
3407 22581 36861 47104 53519 73577
13202 24881 42165 51067 60714 77715
V i n n i n g u r
Kr. 15.000 Kr. 30.000 (tvöfaldur)
1 5 1 8 9 6 8 6 1 7 6 9 4 2 8 6 3 3 3 6 6 4 8 4 4 9 5 3 5 4 5 4 2 6 3 5 8 6
2 0 5 6 9 9 3 9 1 8 3 2 1 2 8 6 7 5 3 8 3 9 5 4 6 0 2 2 5 7 4 5 1 6 6 1 4 5
2 5 6 6 1 0 4 1 2 1 8 5 2 8 2 9 7 1 2 3 9 8 6 5 4 9 3 5 2 5 8 1 3 2 6 7 2 6 0
3 5 4 7 1 1 7 9 8 1 9 0 4 9 3 0 0 2 0 4 1 7 4 5 4 9 5 1 1 5 8 3 8 4 6 7 8 9 3
3 9 2 8 1 2 2 0 1 1 9 4 6 9 3 1 7 2 7 4 1 8 9 9 5 0 0 6 8 5 8 6 7 3 7 2 2 3 8
4 7 9 1 1 3 6 2 4 2 1 2 3 9 3 2 1 3 0 4 2 1 2 8 5 1 1 0 6 6 0 2 7 7 7 2 3 2 9
5 3 2 7 1 4 2 9 4 2 2 5 4 4 3 3 4 2 2 4 2 6 6 9 5 1 5 3 6 6 0 7 7 1 7 2 7 1 4
7 2 9 1 1 4 6 7 3 2 3 2 7 5 3 4 3 4 3 4 3 7 1 7 5 2 4 1 1 6 1 7 6 3 7 3 0 8 2
7 8 0 7 1 5 1 5 1 2 7 2 8 0 3 5 5 8 6 4 3 7 5 8 5 2 9 7 7 6 1 8 7 1 7 6 0 8 1
8 0 5 3 1 7 0 5 8 2 8 2 8 7 3 5 6 7 8 4 4 9 4 7 5 3 5 8 4 6 2 1 6 7 7 9 3 1 8
V i n n i n g u r
Kr. 9.000 Kr. 18.000 (tvöfaldur)
8 2 5 1 1 0 9 9 2 0 0 1 7 3 1 3 8 9 4 1 0 1 3 5 1 0 8 0 6 3 2 6 6 6 9 9 9 8
1 0 8 1 1 1 1 6 5 2 0 4 8 1 3 1 7 0 2 4 1 4 4 6 5 1 5 2 3 6 3 3 2 6 7 0 1 8 9
1 2 2 7 1 1 5 0 0 2 0 9 2 2 3 1 8 4 1 4 1 8 3 8 5 2 0 7 1 6 3 3 7 0 7 0 6 2 2
1 6 6 0 1 1 9 8 9 2 1 1 1 8 3 1 9 6 1 4 1 9 7 7 5 2 7 5 7 6 3 5 7 3 7 1 7 6 6
1 7 5 7 1 2 0 4 4 2 1 6 1 3 3 2 2 6 9 4 2 0 5 8 5 2 9 7 4 6 3 6 8 2 7 2 1 7 9
1 9 2 7 1 2 8 2 9 2 2 2 6 5 3 2 4 2 7 4 2 8 9 3 5 3 2 5 6 6 3 8 2 9 7 2 6 7 4
2 0 3 6 1 2 9 9 1 2 2 3 1 0 3 2 7 3 3 4 3 3 0 3 5 3 6 3 0 6 3 8 3 0 7 3 0 3 2
2 2 2 8 1 3 1 6 5 2 2 3 8 6 3 2 9 9 4 4 3 3 9 9 5 3 9 6 3 6 3 8 9 8 7 3 6 6 3
2 3 0 9 1 3 4 9 9 2 2 9 1 2 3 3 0 5 7 4 3 6 9 3 5 5 7 6 4 6 4 2 5 0 7 4 4 9 0
2 4 5 6 1 3 5 3 0 2 2 9 5 3 3 3 6 2 9 4 3 7 1 6 5 5 8 3 3 6 4 3 0 3 7 4 7 1 6
2 8 2 0 1 3 6 2 3 2 3 0 4 9 3 3 7 6 7 4 4 5 1 8 5 6 0 0 9 6 4 3 6 3 7 4 7 1 7
3 1 3 9 1 3 6 2 9 2 3 0 9 1 3 4 5 3 5 4 5 3 0 9 5 6 6 8 0 6 4 7 5 6 7 5 3 0 5
3 2 1 3 1 3 7 8 6 2 3 1 1 3 3 4 5 3 9 4 5 4 0 2 5 6 9 0 7 6 5 1 5 6 7 5 4 4 6
3 4 1 9 1 4 6 2 2 2 3 4 7 2 3 4 7 8 7 4 5 5 6 3 5 7 3 0 3 6 5 3 2 9 7 5 4 5 3
4 7 3 6 1 5 0 8 4 2 3 6 6 2 3 5 1 9 7 4 6 1 6 8 5 7 3 4 1 6 5 3 5 2 7 5 4 9 2
5 0 4 7 1 5 0 9 2 2 3 6 7 7 3 5 6 9 5 4 6 6 6 0 5 7 5 5 3 6 5 3 9 2 7 6 4 8 9
5 3 5 1 1 5 2 1 7 2 3 7 4 7 3 5 9 4 5 4 7 0 3 7 5 7 5 9 2 6 5 6 0 3 7 6 6 3 5
5 9 0 5 1 5 2 9 0 2 4 0 9 0 3 6 0 0 3 4 7 2 2 2 5 7 6 4 2 6 5 6 8 1 7 6 9 5 2
6 9 0 4 1 5 6 4 6 2 4 2 0 6 3 6 0 0 8 4 7 2 3 7 5 8 0 0 0 6 6 0 4 2 7 7 2 7 6
6 9 3 0 1 5 8 9 2 2 4 2 1 0 3 6 0 2 7 4 7 4 3 8 5 8 4 2 1 6 6 2 9 4 7 7 4 4 3
7 3 0 1 1 6 2 1 7 2 4 2 6 2 3 6 2 1 7 4 7 5 0 7 5 8 9 5 9 6 6 9 6 6 7 7 9 5 3
8 3 8 7 1 6 3 3 5 2 4 3 1 5 3 6 2 4 5 4 7 7 2 2 5 9 2 8 2 6 7 2 6 4 7 8 6 8 6
9 0 4 4 1 6 4 2 5 2 4 5 6 2 3 6 2 5 4 4 8 0 9 1 5 9 4 4 2 6 7 8 2 7 7 8 7 1 5
9 1 5 5 1 7 0 7 6 2 6 6 8 3 3 7 5 7 7 4 8 8 6 6 5 9 6 3 8 6 8 2 5 7 7 9 1 3 2
9 3 8 7 1 7 3 8 9 2 6 9 1 1 3 7 8 3 8 4 8 8 8 8 5 9 8 2 2 6 8 3 0 2 7 9 6 0 0
9 4 8 1 1 7 4 9 9 2 7 5 4 2 3 8 6 7 6 4 8 9 2 8 5 9 9 0 7 6 8 4 1 1 7 9 6 8 6
9 8 5 6 1 7 5 9 5 2 9 4 0 7 3 8 7 2 2 4 9 2 8 7 6 0 3 6 7 6 8 7 2 1
1 0 0 5 6 1 8 1 2 3 2 9 8 2 6 3 9 0 0 8 4 9 7 6 7 6 0 7 9 7 6 9 2 6 6
1 0 1 3 6 1 8 6 0 4 2 9 9 2 2 3 9 5 4 5 4 9 9 9 0 6 1 2 6 4 6 9 3 9 1
1 0 3 0 3 1 8 6 0 7 2 9 9 6 9 4 0 3 7 6 5 0 0 4 1 6 2 0 0 1 6 9 6 9 1
1 0 7 0 1 1 9 0 1 0 3 1 0 0 0 4 0 5 0 5 5 0 1 9 8 6 3 0 3 5 6 9 7 8 3
1 0 9 4 3 1 9 4 8 4 3 1 0 1 4 4 0 8 6 3 5 0 2 3 7 6 3 1 5 0 6 9 7 9 8
Næsti útdráttur fer fram 29. desember 2011
Heimasíða á Interneti: www.das.is
Í dag, á útfarardegi Vac-
lavs Havels, verður minnt á
tengsl hans við Ísland með
lítilli athöfn í Lýðveldisgarð-
inum. Sjálfsagt verður þess
ánægjulega viðburðar
minnst þegar hann, þá orð-
inn þjóðhöfðingi lands síns,
var viðstaddur fyrstu frum-
sýningu á verki eftir sig ut-
an Tékklands. Það var í
Þjóðleikhúsinu 1990. Leik-
ritið nefndist á íslensku Endurbygging og
leikstjóri var Brynja Benediktsdóttir.
En ekki er síður ánægjulegt að rifja upp
af þessu tilefni önnur tengsl Havels við ís-
lenskt leikhús. Þannig er nefnilega mál með
vexti, að mörgum árum fyrr, árið 1981 í leik-
hússtjóratíð undiritaðs, hafði Þjóðleikhúsð
sýnt annað leikrit eftir Havel. Um var að
ræða einþáttunginn Mótmæli
sem sýndur var ásamt öðru tékk-
nesku leikriti,Vottorði, eftir Pa-
vel Kohout undir samheitinu Vor
í Prag. Sýningar voru á Litla
sviði Þjóðleikhússins. Leikstjóri
var Helgi Skúlason. En aðstæður Havels
voru allmiklu öðruvísu en þegar hann kom í
seinna skiptið; þá var hann í fangelsi hjá þá-
verandi valdhöfum.
Havel á Íslandi
Eftir Svein
Einarsson »En aðstæður
Havels voru all-
miklu öðruvísu en
þegar hann kom í
seinna skiptið ...
Höfundur er fyrrverandi
þjóðleikhússtjóri.
Sveinn Einarsson
Nú er tími jólahlað-
borðanna í algleym-
ingi. Margir skjótast í
hádeginu og fara oft
á bílnum því vinnan
bíður þegar gómsæt-
um veitingum jóla-
hlaðborðsins hafa
verið gerð góð skil.
Og það er í raun allt í
lagi að fara á bílnum
en þá verðum við að
velja réttu drykkina með matnum,
hafa þá óáfenga. Það er nefnilega
ekki rétt að það sé í lagi að fá sér
einn léttan og aka til baka eftir
jólahlaðborðið. Margir halda að
það sé í lagi þar sem hans er
neytt með mat.
Þótt áfengisáhrifin séu minni
vegna matarins, þá breytir það
ekki hlutfalli áfengisins í blóði.
Sumir telja að leyfilegt sé að hafa
smááfengismagn í blóði þar sem
refsimörkin eru 0,5
prómill. En umferð-
arlögin eru skýr: ekki
má aka eftir að hafa
neytt áfengis. Lög-
reglan mun ekki
heimila akstur þótt
prómillmagnið sé 0,3
eða 0,4 því það er
einnig brot á umferð-
arlögunum.
Við getum flokkað
ökumenn sem aka
undir áhrifum í
nokkra flokka. Meðal
þeirra eru þeir sem gera það
vegna þess að þeir telja að lög-
reglan nái þeim ekki, sér í lagi þar
sem þeim tókst það síðast, og svo
eru þeir sem telja sig yfir umferð-
arlögin hafna og mega brjóta þau
að vild, bæði hvað hraða og ölvun
varðar.
Í báðum tilfellum erum við hin
sem í umferðinni ökum í hættu ef
við mætum þeim. Þeir hugsa bara
um sig og sínar þarfir. Myndu
þeir leyfa sér að aka í þessu
ástandi eftir þeirri götu sem barn-
ið þeirra leikur sér við? – Líklega
ekki, því þá snertir það þeirra eig-
in hagsmuni.
Ég vona að þú, lesandi góður,
sért ekki í þessum hópi. Hafirðu
hins vegar ekið undir áhrifum
áfengis eða annarra vímuefna er
ekki of seint að snúa blaðinu við.
Það er ákvörðun okkar sjálfra
hvernig við hegðum okkur í um-
ferðinni. Sýnum þá ábyrgð að aka
ekki undir áhrifum áfengis eða
annarra vímuefna og gefum okkur
það í jólagjöf.
Fórstu á jólahlaðborðið á
bílnum?
Eftir Einar
Guðmundsson »En umferðarlögin
eru skýr: ekki má
aka eftir að hafa neytt
áfengis.
Einar Guðmundsson
Höfundur er varaformaður Braut-
arinnar – bindindisfélags ökumanna.
Ég stari upp í him-
ininn, allt svo kyrrt
og hljótt, svo ólýs-
anlega heilagt. Það er
jólanótt.
Kyrrð og helgi fylla
loftið með kærleiks-
ríkri nærveru þinni,
Jesús Kristur. Ég
finn fyrir þér, þótt ég
sjái þig ekki og geti
ekki snert þig. Hjálp-
aðu mér að bjóða þig velkominn á
mitt heimili og í hjarta mitt, sem
stundum slær með erfiðismunum
af því áhyggjur hversdagsins vilja
taka völdin og ráða för. Gefðu mér
friðinn þinn. Hinn himneska frið,
sem enginn getur gefið nema þú
og enginn og ekkert megnar frá
mér að taka.
Ég þakka þér fyrir fólkið mitt.
Alla þá sem ég elska og þá sem
mig elska. Það er ómetanlegt að
eiga góða að. Þakka þér fyrir allar
góðu gjafirnar sem ég fékk í
kvöld, sem mér voru færðar af svo
miklum kærleika af ómetanlegum
ástvinum. Hjálpaðu mér að vera
þakklátur og glaður og kunna að
meta allt hið góða sem ég hef þeg-
ið og allan þann kærleika sem býr
að baki. Hjálpaðu mér að kunna
að meta fólkið mitt, elska það og
virða. Hjálpaðu okkur að njóta
þess að fá vera saman og þakka
fyrir það.
Blessaðu mér og
okkur öllum minn-
ingarnar um ástvin-
ina sem settu svip
sinn á jólahaldið okk-
ar hér áður fyrr en
eru nú horfin okkur
sjónum og komin inn
í hina eilífu jóladýrð
hjá þér. Blessaðu
okkur minningarnar
sem jólahaldinu
tengjast. Jafnt þær
ljúfu, sem vonandi
standa upp úr, en
einnig hinar sáru, sem skilið hafa
eftir ör vegna einhverskonar von-
brigða. Hjálpaðu okkur að lifa
með þeim og vinna úr tilfinning-
unum sem þeim tengjast.
Viltu gefa að sú staðreynd að
þú ert mætti fylla hjarta mitt og
móta göngu mína í gegnum lífið.
Hjálpaðu mér að nema staðar,
njóta kyrrðar og hlusta á þig.
Hjálpaðu mér að meta stefnu
mína í lífinu og afstöðu mína til
þess, til þín og samferðamanna
minna.
Vitjaðu þeirra sem eru ein-
mana á þessari helgu nótt. Allra
þeirra sem líður illa og þeirra
sem upplifa sig yfirgefna á ein-
hvern hátt. Já, þeirra sem lífið
virðist ekki leika við. Þú átt ein-
mitt erindi við slíka. Erindi sem
sýnir skilning og veitir samstöðu.
Erindi sem glæðir von og gefur
lífinu tilgang. Fagnaðarerindi,
þrátt fyrir allt.
Gefðu fólki að upplifa þig og
finna að það sé elskað raunveru-
legri og falslausri elsku þinni.
Leyfðu okkur að upplifa fyrirgefn-
ingu þína og huggun, frið og
hvatningu.
Leyfðu mér að vera farvegur
kærleika þíns, þótt í veikum mætti
sé. Láttu mátt þinn fullkomnast í
mínum veikleika.
Ég þakka þér, kæri Jesús, að ég
má opna mig fyrir þér og biðja
svona, á þessari helgu nótt, jafnt
sem allar aðrar stundir. Ég þakka
þér að ég skuli fá að eiga þig að
sem vin og bróður, sem frelsara
og eilífan lífgjafa. Raunverulegan
vin sem yfirgefur mig ekki, heldur
stendur með mér og er með mér
allar stundir, alla daga, allt til
enda veraldar.
Helgaðu þessa nótt og líf mitt
allt með eilífri nærveru þinni.
Bæn á jólanótt
Eftir Sigurbjörn
Þorkelsson » Gefðu mér friðinn
þinn. Hinn him-
neska frið, sem enginn
getur gefið nema þú og
enginn og ekkert megn-
ar frá mér að taka.
Sigurbjörn Þorkelsson
Höfundur er ljóðskáld
og rithöfundur.