Morgunblaðið - 23.12.2011, Síða 36
36 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. DESEMBER 2011
Í lok næstu viku lýkur sýningunum
Samræmi og Hamskiptum í Hafn-
arborg í Hafnarfirði og af því til-
efni verður sýningarstjóraspjall
næstkomandi fimmtudag. Á Sam-
ræmi eru aðallega ný verk eftir
Hildi Bjarnadóttur og Guðjón Ket-
ilsson, en Hamskipti byggist á hug-
myndum úr tískuheiminum eftir
þær Hildi Yeoman fatahönnuð og
Sögu Sigurðardóttur ljósmyndara.
Ólöf K. Sigurðardóttir verður
með sýningarstjóraspjall um Sam-
ræmi á fimmtudag, 29. desember,
kl. 20 og þau Hildur og Guðjón
verða með í spjallinu. Hildur vinnur
út frá handverkshefð kvenna en
efniskennd og nálgun Guðjóns
tengjast timbri og öllu karlmann-
legri vinnuaðferðum um leið og þau
fást bæði við hefðbundin listræn
viðfangsefni. Þau eiga bæði langan
feril að baki í myndlist.
Sýningalok
og sýningar-
stjóraspjall
Samræmi rætt í
Hafnarborg
Timbur Brot úr Spýtusafni eftir
Guðjón Ketilsson.
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Þetta er dramatísk og örlaga-
þrungin spennusaga,“ segir Stefán
Máni um nýjustu bók sína Feigð
sem fjallar um lögreglumanninn
Hörð Grímsson. Aðspurður segist
hann heillast mest af því að skrifa
spennusögur sem eru fagur-
fræðilegar og bókmenntalegar
samtímis því sem þær hafa ein-
hvern tilgang. „Ég er svo heim-
spekilega sinnaður að það er óhjá-
kvæmilegt að bækur mínar séu
fullar af vangaveltum, pælingum
og heimspeki,“ segir Stefán Máni
og tekur fram að hann sé stöðugt
að velta fyrir sér stórum spurn-
ingum á borð við hver tilgang-
urinn með lífinu sé og hvort guð
sé til. „Hörður er mikill efa-
hyggjumaður og er í stöðugri bar-
áttu við spurningar um tilganginn
og guð.“
Spennandi en jafnframt kvíð-
vænlegt að skrifa um snjóflóðið
Að sögn Stefáns Mána hefur
Feigð verið í smíðum sl. tvö ár.
Spurður hvernig sagan hafi komið
til hans svarar Stefán Máni því til
að fyrst hafi persóna lögreglu-
mannsins Harðar Grímssonar
komið til hans þegar hann var að
skrifa síðustu bók sína Hyldýpi.
„Á einhverjum tímapunkti spratt
þessi persóna fram ljóslifandi,
þessi risastóri rauðhærði Vestfirð-
ingur. Það kom bara allur pakk-
inn,“ segir Stefán Máni og tekur
fram að hann hafi strax heillast af
persónunni. „Ég hef lent í þessu
áður að það kom til mín persóna
frá a til ö. Hörður hreinlega sótti
á mig. Miðað við aldur hans var
augljóst að hann hefði verið í
Súðavík þegar snjóflóðið féll og ég
fór að velta honum sífellt meira
fyrir mér. Það endaði með því að
saga hans varð svo stór að það
kallaði á heila bók. Fljótlega sá ég
að ég kæmist ekki hjá því að
skrifa um snjóflóðið. Mér fannst
það spennandi en kveið því sam-
tímis, enda var erfitt að skrifa um
það,“ segir Stefán Máni.
Aðspurður segist hann hafa
lagst í töluverða heimildavinnu
fyrir bók sína. Þannig fór hann
vestur til Súðavíkur til að kynnast
umhverfinu, taka viðtöl við íbúa og
vinna undirbúningsvinnu. „Það var
mjög gefandi fyrir mig að skrifa
þessa bók,“ segir Stefán Máni og
tekur fram að hann sé afar þakk-
látur fyrir góðar viðtökur heima-
manna við bókinni sem séu bestu
meðmælin sem hugsast geti.
En hvað er það við Hörð sem
heillar höfundinn? „Það eru and-
stæðurnar í honum og öfgarnar.
Hann er heljarmenni, risastór og
sterkur, og langar til að vera hetja
en er samtímis mjög lítill í sér og
að berjast við mikla minnimátt-
arkennd þar sem honum finnst
hann ómögulegur. Hann er mjög
jarðbundinn, nánast eins og Vest-
firðir holdi klæddur, á sama tíma
og hann er skyggn og á erfitt með
að höndla það, því hann trúir ekki
á neitt sem hann getur ekki fest
hönd á. Í gegnum skyggnigáfuna
og drauma upplifir hann skrýtna
hluti sem honum finnst óþægilegir
og ógnvekjandi.“
Neyðist til að draga úr til að
skapa trúverðugleika
Líkt og í fyrri bókum Stefáns
Mána er skyggnst inn í undirheim-
ana. Spurður hvort hann sé að
draga upp raunsæja mynd af und-
irheiminum segir Stefán Máni
ekkert í bókum hans sem hafi ekki
gerst í raunveruleikanum. „Ég veit
og heyri ýmislegt,“ segir Stefán
Máni og tekur fram að hann sé í
miklum og góðum samskiptum við
menn í lögreglunni í rannsókn-
arvinnu sinni auk þess sem hann
þekki menn sem þekki menn.
„Hins vegar er það svo að sann-
leikurinn um undirheimana er
þannig að ég verð alltaf að draga
úr honum til að gera hann trú-
verðugan fyrir hinn almenna les-
anda, því viðbjóðurinn er slíkur að
það er varla hægt að trúa honum.“
Ekki er hægt að sleppa Stefáni
Mána án þess að grennslast fyrir
um hvort framhald verði á per-
sónu Harðar. „Ég er ekki alveg
búinn að afgreiða Hörð og hann er
ekki búinn með sig. Hann er ansi
fyrirferðarmikill í höfðinu á mér
og ég get ekki hunsað hann. Það
er ekki í boði,“ segir Stefán Máni
og er að öðru leyti mjög leynd-
ardómsfullur og vill lítið sem ekk-
ert gefa upp um komandi bók.
Hann fæst þó til að ljóstra því upp
að hann stefni að útgáfu fram-
haldsbókarinnar strax á næsta ári.
Og hvað á bókin að heita? „Nafnið
á henni leynist í Feigð. Ég segi
ekki meir.“
Örlagaþrungin spennusaga
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Pælingar „Ég er svo heimspekilega sinnaður að það er óhjákvæmilegt að
bækur mínar séu fullar af vangaveltum og heimspeki,“ segir Stefán Máni.
Stefán Máni boðar framhald um helj-
armennið Hörð Grímsson á næsta ári
Út er komin ný
bók eftir Krist-
ínu Ómarsdóttur
og ber titilinn
Við tilheyrum
sama myrkrinu –
Af vináttu: Mari-
lyn Monroe og
Greta Garbo. Í
bókinni eru sex
smásögur, ljóð
eftir Marilyn
Monroe og tuttugu og tvær blýants-
og vatnslitateikningar. Bókaútgáf-
an Stella gefur bókina út.
Kristín les upp úr bókinni í dag
kl. 17:30 í verslun Útúrdúrs við
Hverfisgötu 42.
Ný bók Krist-
ínar Ómars
Kristín
Ómarsdóttir
en nýja og ítarlega
bók hefur vantað
eftir að þjóðgarð-
urinn komst á
Heimsminjaskrá
UNESCO.
Höfundurinn
hefur sett saman
handbók sem er
margt í senn; veitt-
ar eru upplýsingar um gönguleiðir á
þessu undurfagra og fallega svæði, og
fjallað um örnefni og margbreytilega
náttúruna. Sagan er viðamikill þáttur
bókarinnar, saga ábúenda en ekki síst
saga Alþingis og minjanna sem eftir
standa, og saga þjóðgarðsins. Það
hvað þungi sögunnar er mikill á Þing-
völlum gerir sögulega slagsíðu verks-
ins nokkuð mikla, þar sem þetta er
handbók, en erfitt er að sjá að höf-
undur hefði komist hjá því. Í bókinni
er fjöldi vandaðra ljósmynda, með ít-
arlegum myndatextum, sem styðja
við textann, fræða og skreyta. Und-
irritaður hefur gengið um þjóðgarð-
inn með bók Björns Th. og hlakkar til
að fara um Þingvallaskóg og þing-
helgina með þessa í höndunum, en
þar er umkvörtunarefnið þó eitt: það
vantar fleiri og ítarlegri kort í bókina.
Með hverjum kafla þyrfti að sýna
hvar hver einasta forna búð er stað-
sett, hvert einasta örnefni. Laust
gönguleiðakort er vandað en fleiri ör-
nefni hefði einnig þurft á það. Þá
sakna ég þess að hafa ítarlegri kafla
um nálgun listamanna; það hefði
þurft að sýna nokkur lykilverk gömlu
meistaranna og hvar þeir unnu.
Fjallamjólk Kjarvals vantar – slík
verk eru hluti af sögu Þingvalla. En
að því slepptu þá er ástæða til að
hrósa höfundinum fyrir þetta vand-
aða og yfirgripsmikla rit. Sigrún
þekkir svæðið vel og liggur ekki á
skoðunum sínum um hvað þurfi að
gera í þjóðgarðinum, eins og að draga
úr umferð og fjarlæga barrtré. Rökin
eru sannfærandi og úthugsuð, eins og
önnur skrif í bókinni.
Ný bók Sigrúnar Helgadótt-ur, Þingvellir – Þjóðgarð-ur og heimsminjar, erönnur bók hennar í rit-
röðinni Friðlýst svæði á Íslandi. Sú
fyrsta, um Jökulsárgljúfur, kom út
2009 og hlaut verðskuldaða athygli og
hrós.
Það var löngu tímabært að gefa út
rit sem þetta um Þingvelli. Árið 1984
kom út vönduð og vel stíluð bók
Björns Th. Björnssonar um Þingvelli,
Frá Þingvöllum Ástæða er „til að hrósa höfundinum fyrir þetta vandaða og
yfirgripsmikla rit“ um þjóðgarðssvæðið og sögu þess.
Efnismikið verk
um Þingvelli
Þingvellir – Þjóðgarður
og heimsminjar
bbbbn
Eftir Sigrúnu Helgadóttur.
Opna 2011. 320 bls og gönguleiðakort.
EINAR FALUR
INGÓLFSSON
BÆKUR
Morgunblaðið/Golli
„Hörður er að stórum hluta byggð-
ur á dularfullum manni sem Þór-
hallur miðill lýsti fyrir mér. Hann
sagði mér að það fylgdi mér maður
sem væri mikið karlmenni, stór og
í síðum frakka,“ segir Stefán Máni
um tilurð Harðar Grímssonar,
söguhetju Feigðar. Spurður hvort
hann hafi kannast við manninn
svarar Stefán Máni því neitandi og
rifjar upp að Þórhallur hafi einnig
lýst því fyrir sér hvernig maðurinn
hafi hulið andlit sitt og haldið sig í
það mikilli fjarlægð að miðillinn
gæti ekki séð framan í hann.
„Þetta fannst mér magnað og
hafði mikil áhrif á mig. Ég er alltaf
opinn fyrir svona stórkostlegum
hliðum lífsins,“ segir Stefán Máni
og rifjar upp að atvikið hafi átt sér
stað 2008 eða nokkru áður en
hann byrjaði að skrifa bókina.
Lýsing miðils hafði mikil áhrif
AÐALPERSÓNAN BYGGÐ Á MANNI SEM FYLGIR HÖFUNDINUM
Á nýju vefsetri, www.reykvelin.is
er vefrit helgað íslenskri sviðsl-
ist. Tilgangur útgáfunnar er að
skapa opinn grundvöll fyrir
frjálsa og faglega umfjöllun um
íslenska sviðslist og efla með því
íslenska sviðlistaumræðu. Öllum
er frjálst að senda inn greinar og
hugleiðingar um sviðslistir á
reykvelin@gmail.com, en rit-
stjórn skipa Heiðar Sum-
arliðason, Leifur Þór Þorvalds-
son, Árni Kristjánsson, Símon
Birgisson, Vala Höskuldsdóttir
og Sigríður Eir Zophanías-
ardóttir.
Vefrit helgað
íslenskri
sviðslist