SunnudagsMogginn - 25.12.2011, Síða 2
2 25. desember 2011
Við mælum með
27. & 28. desember
Jólagestir Gó eða Jóla Gó er
tveggja daga jólatónlistarveisla
sem verður á Café Rósenberg
milli jóla og nýárs kl. 21. Í far-
arbroddi hljómsveitarinnar er
Guðmundur Óskar Guðmunds-
son á bassa og á meðal gesta-
söngvara eru Sigríður Thorlac-
ius, Sigurður Guðmundsson og
Högni Egilsson. Miðaverð 2.000
kr. við hurð, enginn posi.
Jóla Gó
6 Malar gull löngu eftir dauðann
Charles Dickens aldrei vinsælli en á 200 ára afmælinu
11 Jólasálmar í samtíma
Desember er mánuður jólasálmanna. Þeir hljóma á fjölmennum jóla-
tónleikum í fínum sölum, á aðventusamkomum, á heimilum, í bílum.
28 Varð fyrir köllun
Séra Halldór Gunnarsson í Holti ætlaði sér ekki að verða prestur en
varð fyrir köllun sem hann gat ekki annað en hlýtt.
32 Litlu jólin eru auðvitað stórmál
Litlu jólin eru haldin hátíðleg í grunnskólum víða um land, áður en
börnin halda í frí í tilefni „stóru“ jólanna. Gleðin er þar við völd.
36 Hin ljúfa lögg eftir
matinn
Þorri Hringsson, listmálari og vínþekkjari,
féllst á að gefa lesendum Sunnudagsmogg-
ans góð ráð varðandi val á veigum með eft-
irmatnum.
38 Systur með stíl
Vogue leggur áherslu á systur í blaði sem er tileinkað best klæddu
konum ársins 2011. Mary-Kate og Ashley Olsen tróna á toppnum.
Lesbók
42 Laun erfiðis verkamannsins
Fyrir 145 árum var Jón Sigurðsson tekinn inn í vísindaakademíu Bæj-
aralands, sem þótti þá og þykir enn mikil heiður.
47 Óvæntir kraftar á Kjarvalsstöðum
Til áramóta stendur yfir á Kjarvalsstöðum sýningin Kjarval snertir mig:
ungt fólk kynnist Kjarval.
32
Efnisyfirlit
Forsíðumyndina tók Einar Falur Ingólfsson.
Umsjón Sunnudagsmoggans: Pétur Blöndal, pebl@mbl.is Umsjón Lesbókar: Einar Falur Ingólfsson, efi@mbl.is Ritstjórn Sunnudagsmoggans:
Arnar Eggert Thoroddsen, Árni Matthíasson,Börkur Gunnarsson, Helgi Snær Sigurðsson, Inga Rún Sigurðardóttir, Kolbrún Bergþórsdóttir,
Kristín Heiða Kristinsdóttir, María Ólafsdóttir, Orri Páll Ormarsson, Signý Gunnarsdóttir, Silja Björk Huldudóttir, Skapti Hallgrímsson.
Morgunblaðið/Golli
34
Augnablikið
Tíundi áratugurinn er kominn aftur. Ogþá er ég ekki að tala um Dr. Martens, síðpils eða tónlistarminni 2 Unlimited. Efþað vantaði staðfestingu á því að tíundi
áratugurinn væri rækilega búinn að snúa aftur þá
fékkst hún endanlega um síðustu helgi. „Þú kemst
hærra með Skýjum ofar“ sagði í útvarpsþættinum
forðum og það er alveg ljóst að það er ekki hægt að
komast miklu hærra en á Barböru (gamli 22) síð-
astliðið laugardagskvöld þar sem haldið var upp á
fimmtán ára afmæli útvarpsþáttarins og dans-
kvölda kenndra við Skýjum ofar.
Áður en stuðið hófst þar fór fyrsti þátturinn í tíu
ár af Skýjum ofar í loftið á X-inu. Þáttastjórnend-
urnir Addi og Eldar voru með mjög góðan upphit-
unar- og upprifjunarþátt sem kom ábyggilega
mörgum í stuð en vert er að nefna að hægt er að
hlusta á þáttinn á breakbeat.is.
Þátturinn var tileinkaður „drum&bass“-tónlist
og þar af leiðandi kvöldið á Barböru líka en þetta
er einfaldlega besta tónlistin til að dansa við (af-
sakið þetta Party Zone). Stemningin á dansgólfinu
var frábær og það var bros á hverju einasta andliti.
(Reykjavík þarf líka endilega meiri dans og minni
drykkju á börunum.) Þarna var náungakærleik-
urinn við völd, hippakynslóðin hvað?
Það eru forréttindi hverrar kynslóðar að segja að
allt hafi verið best þegar hún var ung. Og ég ætla
óhindrað að segja það núna að það var allt best á
tíunda áratugnum. Árið 1996 var til dæmis mjög
gott ár, ’68 kynslóðin getur bara gleymt þessu.
Það er komin ný nostalgía sem hefur miklu meiri
áhrif á það sem er að gerast núna.
Það var oft sagt hérna áður fyrr um þessa tónlist
að þetta væri tónlist 21. aldarinnar og ég held það
hafi verið sannað um síðustu helgi.
Gleðileg trommu- og bassajól!
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Það voru flugeldasprengingar á gólfinu á Barböru um síðustu helgi og mikið dansað.
Ljósmynd/Alísa Ugla
Alveg í skýjunum
Apar eru líka í jólaskapi eins og við hin. Þessi simpansi er að leita að
mat í jólasokki í dýragarðinum í Buenos Aires í Argentínu.
Veröld
Reuters
Jólaapi
27. desember
Solaris Sun
Glaze þeytir
skífum á Kaffi-
barnum á
þriðja í jólum milli 21 og 1. Sol-
aris Sun Glaze er einnig þekkt-
ur sem Allenheimer og Atli
Bollason.
28. & 29. des-
ember
Jólatónleikar
Mótettukórs
Hallgríms-
kirkju og Þóru Einarsdóttur
sóprans verða haldir á mið-
vikudag og fimmtudag kl. 20. Á
tónleikunum flytur Mót-
ettukórinn alþjóðlega efnisskrá
á átta tungumálum, þ.á m. hið
pólska „Dzisiaj w Betlejem“ og
hið hollenska „Nu zijt welle-
kome“ í glænýjum útsetn-
ingum.