SunnudagsMogginn - 25.12.2011, Side 10
10 25. desember 2011
Löng hefð er fyrir að leikir í ensku deildarkeppninni fari fram yfir há-tíðarnar, og líklega óhugsandi að því verði breytt á þessari öld. Hvaðeftir annað fer reyndar af stað umræða um að nauðsynlegt sé að leik-menn fái frí í kringum jól og áramót og jafnvel eitthvað fram í janúar,
með stórmót landsliða að sumri í huga. Að annars verði þeir langþreyttir og
sýni ekki sitt rétta andlit þegar flautað er til leiks á EM eða HM.
Regla er í flestum öðrum löndum álfunnar, frekar en undantekning, að hlé sé
gert á deildakeppni á þessum árstíma en Bleik yrði brugðið ef Englendingar, sú
íhaldssama þjóð, tækju upp á því að
gera sparkhlé á jólum. Það yrði eins og
að verslunum á Íslandi yrði öllum lok-
að klukkan 18 á Þorláksmessu eða rík-
isstjórnin samþykkti að bannað yrði að
borða rjúpu á aðfangadagskvöld.
Eftir á að hyggja er þetta með rjúp-
urnar líklega sennilegra en breyting á
leikjaniðurröðun í Englandi …
Hefðir eru til að halda í þær, segir
Tjallinn. Íslendingar eru sama sinnis og
syngja þess vegna með börnunum á
hverjum jólum kvæðið feminíska, sem
allir kunna:
Nú skal segja, nú skal segja
hvernig litlar telpur gera:
Vagga brúðu, vagga brúðu
– og svo snúa þær sér í hring.
Nú skal segja, nú skal segja
hvernig litlir drengir gera:
Sparka bolta, sparka bolta
– og svo snúa þeir sér í hring.
Þannig er nú það …
Í fyrsta skipti síðan 1929 er Man-
chester City á toppi efstu deildar í Eng-
landi um jólin. Keppnin um enska
meistaratitilinn er á góðri leið með að
þróast í bæjarkeppni Manchester-
liðanna tveggja, og „háværi nágrann-
inn“ eins og Sir Alex Ferguson, stjóri
United, kallaði City fyrir nokkrum
mánuðum, er orðið annað og meira en
hávær nágranni. City hefur einfaldlega
á að skipa besta liði Englands í dag, en
svo er annað mál hvort það dugar til
meistaratignar. Fyrir því er ekkert gar-
antí. Og enginn afskrifar Ferguson og
hans menn fyrr en ekki einu sinni von-
in ein er eftir.
Auðvitað gætu fleiri lið blandað sér í
baráttu um titilinn; Tottenham,
Chelsea, Arsenal, jafnvel Liverpool, en
mikið má breytast til þess og erfitt að
ímynda sér að bæði Manchester-liðin
gefi nógu mikið eftir til þess hin komist
fram úr.
Nú þegar við hér uppi á Íslandi
hlökkum til að taka upp pakkana, hugsum um Jesúbarnið og góða matinn og
gæðastundirnar með fjölskyldunni, hlakka enskir knattspyrnuáhugamenn ekki
síður til þeirra gómsætu rétta sem í boði verða á grasvöllum landsins.
Við getum reyndar hlakkað til þeirra líka; frá öðrum degi jóla er leikur í
beinni útsendingu á íþróttarásum Stöðvar 2 hvern einasta dag nema einn – sem
hljóta bara að vera mistök í niðurröðun! – þangað til 4. janúar. Þá verður gert
tveggja daga hlé og svo skellur á þriggja daga veisla til viðbótar, þar á meðal
viðureign Manchester-risanna tveggja í bikarkeppni enska knattspyrnu-
sambands.
Í lokin verð ég að nefna lið ársins í Evrópu og besta lið heims, Barcelona. Það
slátraði helsta keppinautnum á Spáni, Real Madrid, á útivelli á dögunum og
varð svo heimsmeistari félagsliða í síðustu viku með slíkum yfirburðum að
nánast var grátbroslegt. Manni dettur allaf jólin í hug þegar leikmenn Barca
ganga inn á völl. Þá er von á fallegum pakka.
Um leið og ég þakka dyggum pistilslesendum samfylgdina óska ég þeim, og
öðrum Íslendingum, gleðilegra jóla.
Æsispennandi
bæjarkeppni
Meira en
bara leikur
Skapti Hallgrímsson
skapti@mbl.is
’
Það er jafn óhugs-
andi að ekki verði
leikið á Englandi
um jólin og að versl-
unum á Íslandi verði
lokað snemma á Þor-
láksmessu
Sir Alex Ferguson þjálfari Englands-
meistara Manchester United.
Roberto Mancini aðalþjálfari „háværu
nágrannanna“ í Manchester City.
Reuters
Reuters
M argaret Saue Marti frá Nor-egi, majór í Hjálpræð-ishernum, hefur haft ínógu að snúast undanfarna
daga við að undirbúa árlega jólaveislu
sem verður í kvöld, aðfangadagskvöld.
Þangað mætir aðallega fólk sem á enga
að eða getur ekki haldið jól heima af
einhverjum ástæðum. Margaret segir frá
fimmtudeginum.
06:30 Klukkan hringir á sama tíma
og venjulega. Við Paul-William Marti,
maðurinn minn, skiptumst á að taka til
morgunmat, sem við borðum saman í
rúminu. Þar förum við líka með bæn,
spjöllum saman og eigum góða stund.
07:00 Ég kíki í blöðin á netinu og
skoða Facebook.
08:15 Fer út að hlaupa. Ég er vana-
föst og hleyp alltaf í kringum tjörnina.
09:15 Komin heim á ný og bý til
brauðdeig sem ég ætla að baka úr í dag.
10:00 Fer út í bæ að kaupa jólakort.
Við sendum alltaf viðskiptavinum okkar
og þeim sem hafa hjálpað okkur, og
vantaði nokkur í viðbót. Keypti líka
konfektkassa til að gefa.
10:30 Morgunstund hefst í gistihúsi
Hjálpræðishersins, á sama tíma og aðra
daga. Við á skrifstofunni og starfsfólk
gistihússins hittumst þar í um það bil
hálftíma alla daga ársins og oft eru ein-
hverjir fleiri með okkur.
11:00 Fer aftur heim og í bæinn með
annarri dóttur okkar til þess að kaupa
síðustu jólagjafirnar. Dætur okkar búa
báðar í Noregi en eru komnar til okkar.
Sonur okkar og tengdadóttir, sem líka
búa í Noregi, koma hins vegar ekki fyrr
en annan í jólum.
13:00 Smápása heima. Við fáum
okkur að borða og förum í gegnum jóla-
söngva með dóttur okkar. Hún leikur á
píanó, ætlar að spila í veislunni á að-
fangadagskvöld og við verðum að stilla
saman strengi; velja lög sem hún þekkir
og okkur langar til að syngja.
13:45 Fer út með eldri dótturinni,
keyrum konfekt til konu sem hefur
hjálpað mér mjög mikið.
14:00 Baka brauðið, strauja og gaf
mér góðan tíma til að spjalla við dætur
mínar. Þetta er hálfgerður millibils-
dagur; við erum búin að gera allt sem
hægt er svona snemma fyrir veisluna en
aftur verður mikið að gera á morgun
[Þorláksmessu] við að raða borðum og
leggja lokahönd á undirbúninginn.
17:15 Við eldri dóttir okkar förum í
göngutúr í kringum tjörnina. Maðurinn
minn og yngri dóttir standa við jólapott
Hjálpræðishersins í Kringlunni.
18:30 Við borðum alltaf heita máltíð
á kvöldin. Ég er nýbyrjuð að elda þegar
þýskur strákur, sem vinnur í dagsetrinu
okkar fyrir útigangsfólk á Eyjaslóð,
hringir og segir að mikill afgangur sé af
brauðtertum sem voru þar í boði. Ég
hætti því að elda og við ákveðum að
borða afgangana.
20:00 Fjölskyldan dundar sér við að
skreyta jólatréð heima hjá okkur. Reyn-
um að taka það rólega því við vitum að
mikið verður að gera næstu tvo daga.
21:00 Förum í Dómkirkjuna og
hlýðum á kammertónlist. Það var mjög
góð stund. Okkur líkar klassísk tónlist
vel, það er mikil músík í fjölskyldunni;
maðurinn minn spilar t.d. á lágfiðlu og
leikur í Sinfóníuhljómsveit áhuga-
manna.
22:15 Komin heim eftir tónleikana.
Ég set jólaplötu á fóninn, önnur stelpan
les í bók en hin situr hjá mér og við töl-
um saman. Paul-William ryksugar.
23:15 Við förum að sofa, ánægð með
þægilegan dag. Það hefur verið mikið að
gera undanfarið en þessi vika hefur ver-
ið frekar róleg. En ég veit að það verður
dálítið mikið að gera næstu tvo daga.
Búast má við 130-150 manns í jólaveisl-
una okkar. Þetta er í fyrsta skipti sem ég
sé um veisluna en fæ aðstoð frá mörgum
svo allt á eftir að ganga vel.
skapti@mbl.is
Dagur í lífi Margaret Saue Marti hjá Hjálpræðishernum
Margaret Saue Marti, majór í Hjálpræðishernum á Íslandi: „Þessi vika hefur verið frekar ró-
leg hjá mér. En ég veit að það verður dálítið mikið að gera næstu tvo daga.“
Morgunblaðið/Golli
Undirbýr árlega
jólaveislu hersins