SunnudagsMogginn - 25.12.2011, Page 18

SunnudagsMogginn - 25.12.2011, Page 18
18 25. desember 2011 Hæ,“ segir Noomi Rapace vina-lega í símann. Hún talar fráStokkhólmi. „Ég er búin aðvinna hrikalega mikið og ferðast út um allt,“ svarar hún. „En ég er að fara til Skáns á morgun að heimsækja mömmu og hef hlakkað mikið til að kom- ast í frí. Annars segi ég bara allt fínt!“ – Þú ert þá varla komin í jólaskap? „Nei, ekki enn. Ég vona að það verði bráðlega. Annars er ég ekki mikil jóla- manneskja. Ég læt aðra um það og reyni bara að slaka á í nokkra daga.“ Noomi talar ljómandi íslensku, enda bjó hún á Íslandi frá fimm til átta ára aldurs. Og eftir það kom hún með farfuglunum á vorin fram á unglingsár og var í sveit hjá afa og ömmu á Flúðum. Stjúpfaðir hennar og uppeldisfaðir er Hrafnkell Karlsson, sem rekur búgarð með íslenskum hestum á Skáni, og móðir hennar er sænsk leik- kona, Nina Norén, sem raunar lék móður hennar í fyrstu mynd þríleiksins eftir sög- um Stiegs Larssons, en þar var Noomi í eftirminnilegu hlutverki Lísbetar Saland- er. Um þessar mundir eru þættir byggðir á myndunum sýndir á RÚV. Faðir meðal sígauna En Noomi skiptir fljótlega yfir í ensku og afsakar það, segist hafa talað ensku við- stöðulaust undanfarið og það sé erfitt að stökkva yfir í annað tungumál. „Er þér sama?“ spyr hún. Ljúfari viðmælandi er vandfundinn; það skín í gegn að frægðin hefur ekki stigið Noomi til höfuðs. Noomi er komin á kortið í kvikmynda- smiðjunni vestra og fer með aðalkven- hlutverkið í nýrri mynd um Sherlock Holmes, Skuggaleik eða „A Game of Shadows“. En hún segist ekki hafa verið neitt sérlega kunnug söguheimi Arthurs Conans Doyles. „Ég var ómögulegur nemandi sem ung- lingur og tók lítið eftir í skólanum þegar aðrir lásu um hann. Fyrstu nánu kynni mín af honum voru þegar ég horfði á fyrri myndina, en auðvitað vissi ég alveg hver Sherlock Holmes var.“ – Hvernig bjóstu þig undir hlutverk sígaunakonunnar Simzu Heron? „Ég hafði miklar ráðagerðir um það, bjó til langan lista,“ segir hún. „Ég vildi búa í sígaunabúðum, tileinka mér tungumálið, læra dansinn og sönginn, og kynnast mat- argerðinni. En ég hafði ekki tíma til þess. Þetta gerðist allt svo hratt. Ég hafði bara þrjár vikur til að undirbúa mig. Ég var í Los Angeles í ágúst fyrir ári og eftir marga fundi hitti ég Susan Downey, eiginkonu Roberts Downeys, í höfuð- stöðvum Warner Brothers. Hún vildi ná tali af mér og svo kom Robert á fundinn. Ég sat með þeim drjúga stund og ræddi um kvikmyndir og drauma, og eins skrítið og það var ræddum við ekkert um Sher- lock Holmes. Þegar ég fór af fundinum hugsaði ég með mér: „Vá, þetta var virki- lega svalt. Það væri gaman að vinna með þeim.“ Viku síðar var ég beðin að hitta Guy Ritchie í London. Þá var komið fram í september og viku síðar var mér boðið að- alkvenhlutverkið í myndinni. Ég varð himinlifandi og mér fannst það alveg brjálæðisleg tilhugsun! Undirbúningstíminn fór að mestu í æf- ingar fyrir áhættuatriðin, svo las ég mér til fram á nætur og um helgar. En ég gerði annað, ég fékk konu til að búa með mér í London sem hafði búið með sígaunum í Transilvaníu og Ungverjalandi. Hún hjálpaði mér með tungumálið, kenndi mér dansinn og sönginn, en ég hafði því miður aldrei tíma til að fara í sígaunabúð- ir.“ – Ég hef lesið að pabbi þinn hafi verið viðloðandi sígaunamenninguna? „Hann var spænskur flamengósöngvari og ég heyrði af því að hann hefði verið hálfur sígauni, en er ekki viss um að það sé rétt. Það var ekki fyrr en þremur árum eftir að hann lést og ég gat því ekki borið það undir hann. Ég vissi bara að hann hefði búið með þeim og mér skilst að á Spáni séu það helst sígaunar sem leggja flamengósöng fyrir sig. Hann tilheyrði því samfélagi og ég hef alltaf haft sterkar taugar til þeirrar menn- ingar; þeir standa þétt saman og fjöl- skyldurnar eru samheldnar. Það má segja að ég hafi beðið eftir tækifæri til að kynn- ast þeim nánar, nú kom það upp í hend- urnar á mér og það var kærkomin gjöf.“ – Ég las í viðtali við þig að þið faðir þinn hefðuð átt lítið saman að sælda, en náð að hittast og sættast áður en hann féll frá? „Ég hitti hann þremur mánuðum áður en hann dó. Svo settumst við og ræddum saman nokkrum sinnum og náðum góðri lendingu.“ – En trúir þú á spádóma, til dæmis ta- rot-spil sem Simza virðist hafa vald á? „Já,“ segir hún hikandi. „Ég trúi á að það séu kraftar að verki og að sumir séu næmari fyrir þeim en aðrir. Langamma mín á Íslandi sagði ömmu að hún hefði séð álfa og ýmsar vættir á fjöllum. Ég held að sumir geti séð inn í aðra vídd og numið myndir sem lúta að framtíðinni. En ég trúi ekki á spilin. Ég held þau séu fyrst og fremst dramatísk, það er dulúð yfir þeim og fólk borgar fyrir leikræn tilþrif. Síga- unarnir nota þau til að byggja upp stemn- ingu, en það eru aðrir kraftar að verki þegar kemur að spádómum.“ Ég geri það sem þarf – Stendur til að þú gerir mynd með Jude Law, The Last Voyage of Demeter? „Við ætluðum að leika saman í mynd fyrir ári, en ekkert varð úr því. Ég fór í tökurnar á Prometheus og hann í eitthvað annað. En það væri gaman að vinna með honum aftur, hann er algjör ljúflingur og við skemmtum okkur vel.“ – En hvernig var að vinna með Robert Downey jr.? „Hann er stórkostlegur, það kraumar í honum sköpunarkrafturinn og brýst oft út í sprengigosi. Ég hef gaman af því að umgangast fólk sem er ástríðufullt um líf sitt og vinnu. Hann er skapandi, stöðugt að leita að nýrra leiða og gefinn fyrir spunavinnu. Fyrir vikið verður starfið skapandi og allt hægt. Það á líka við um aðra á tökustaðnum en hann, því hann kann að vinna í hópi. Ég hvíslaði kannski að honum hugmynd og þá kallaði hann á mannskapinn: „Hlustið allir, prófum þetta!““ – Og svo vannstu með leikstjóranum Guy Ritchie! „Hann er …“ segir hún og hlær við til- hugsunina. „Ég varð svolítið undrandi yfir því hvað hann gaf mér mikið frelsi. Hann hefur grófan breskan húmor og við hlóg- um mikið, en hann er líka með brennandi ákafa og það er sem hann klippi myndina í höfðinu um leið og tökurnar fara fram. Hann á það til að stöðva tökur, jafnvel eft- ir fyrsta rennsli. Maður sagði kannski við hann: „En við vorum ekki búin!?“ Og þá svaraði hann bara: „Þetta er nóg, ég klippi þetta inn í annað atriði.““ – Það er óhætt að segja að útlit þitt hafi breyst frá því þú lékst Lísbet Salander. Það er mikilvægt fyrir leikkonu að fest- ast ekki í hlutverki erkitýpunnar! Fer ekki fram af hengifluginu, en heldur sig nálægt brúninni Noomi Rapace er í aðalkvenhlutverki nýju myndarinnar um Sherlock Holmes, en Íslend- ingar ættu að vera farnir að kannast við hana. Rætur hennar liggja á Íslandi, hún sló í gegn sem Lísbet Salander í þríleik Stiegs Larssons og hún var á Íslandi í sumar við tökur á Prometheus, stórmynd Ridleys Scotts. Pétur Blöndal pebl@mbl.is Noomi Rapace í hlutverki sígaunakonunnar Simza, sem lendir í háskalegum ævintýrum með Sherlock Holmes. Noomi Rapace og Robert Downey Jr. í nýju myndinni um Sherlock Holmes. Daniel Smith Hin goðsagnakennda Lísbet Salander vakn- aði til lífsins á hvíta tjaldinu, ómótstæðileg í meðförum Noomi Rapace.

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.