SunnudagsMogginn - 25.12.2011, Side 32

SunnudagsMogginn - 25.12.2011, Side 32
32 25. desember 2011 Jólafrumsýning Þjóðleikhússins í árer engin önnur en Heimsljós eftirþjóðskáldið Halldór Laxness. Þettaer ein ástsælasta saga nóbels- skáldsins og eins og segir í tilkynningu frá leikhúsinu, „heillandi verk um fegurð- arþrána, veraldlega fátækt og andleg auð- æfi“. Verkið verður frumsýnt á annan í jólum og er nú sett á svið í nýrri leikgerð Kjart- ans Ragnarssonar leikstjóra, en leikgerð- inni til grundvallar liggur skáldsagan í heild sinni. Fátækur, smáður og utanveltu Heimsljós, sem kom út í fjórum hlutum á árunum 1937 til 1940, er saga fátæka al- þýðuskáldsins Ólafs Kárasonar Ljósvík- ings. Í æsku er hann niðursetningur á bænum Fæti undir Fótarfæti en síðar flyt- ur hann til þorpsins Sviðinsvíkur. „Alla ævi er hann fátækur, smáður og utanveltu. En engu að síður er skáldið „tilfinníng heimsins, og það er í skáldinu sem allir aðrir menn eiga bágt,“ segir í til- kynningu. Í sýningunni munu þeir Hilmir Snær Guðnason og Björn Thors túlka persónu Ljósvíkingsins samtímis. Aðrir leikarar eru Arnar Jónsson, Guðrún Snæfríður Gísladóttir, Jóhannes Haukur Jóhann- esson, Lára Sveinsdóttir, Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Ólafur Egill Egilsson, Pálmi Gestsson, Stefán Hallur Stefánsson, Svandís Dóra Einarsdóttir, Vigdís Hrefna Pálsdóttir, Þorsteinn Bachmann, Þórunn Arna Krist- jánsdóttir og Ævar Þór Benediktsson. Um leikmynd sér Gretar Reynisson en skapari búninganna er Helga I. Stefánsdóttir. Um tónlistina sér Kjartan Sveinsson og um lýsingu Halldór Örn Óskarsson. Eins og fyrr segir er leikstjórn og leik- gerð í höndum Kjartans Ragnarssonar. Í leikhúsinu hjálpast allir að. Jóhannes Haukur, Ævar Þór og Ólafur Egill skipta um búninga, enda flest- ir leikarar sýningarinnar með fleiri en eitt hlutverk. Úlfhildur Ragna Arnardóttir, yngsta leikkona sýningarinnar, og Lára Sveinsdóttir í græna herberginu, þar sem leikararnir bíða milli atriða. Þorsteinn Bachmann ásamt lærimeisturunum. Búningarnir eru vel merktir hverjum leikara. Oft er fjöldi nafna í einni flík en þessa buxur eru merktar bæði Flosa og Agli Ólafssyni. Guðrún Erla Sigurbjarnadóttir setur rúllur í Vigdísi Hrefnu leikkonu eftir kúnstarinnar reglum. Alla búninga þarf að flokka vel og vandlega til að forðast rugling. Dísa sminka fylgist með því að allt fari vel fram. Björn Thors er í stólnum. Í forgrunni má sjá brot af þeim fjölda gerva sem notuð eru í sýningunni. Saga fátæka alþýðuskáldsins Bak við tjöldin Heimsljós verður frumsýnt í Þjóðleikhúsinu á annan í jólum og er nú sett á svið í nýrri leikgerð Kjartans Ragnarssonar leikstjóra. Sunnudags- mogginn fékk að fylgjast með baksviðs. Texti: Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Myndir: Kjartan Þorbjörnsson golli@mbl.is

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.