SunnudagsMogginn - 25.12.2011, Blaðsíða 37
25. desember 2011 37
hitastigið. „Það getur stundum verið
vandamál fyrir munnholið, það er að
segja þegar blandast saman vín og ís“
segir Þorri. „Annars eru styrkt vín svo
sem Pedro Ximenes sérrí eða freyðandi
og sæt vín, eins og til dæmis Asti oftast
bestu förunautar ísa og annarra frosinna
eftirrétta þótt óneitanlega sé einnig gott
að fá sér lögg af sterku áfengi með sum-
um þeirra, t.d. dökkt romm með
súkkulaðiís.“
Fyrir lengra komna
Ef það er stemning fyrir því að fá sér
eitthvað sparilegt að bragða á eftir
málsverðinn kemur margt til greina, að
sögn Þorra. „Fátt jafnast á við 40 ára
Tawny-púrtvín seint á aðfangadags-
kvöld svo ég tali nú ekki um árgangs-
púrtvín, lumi menn á slíkum gersem-
um.“ Og hann heldur áfram:
„Árgangsromm frá Martinique eru
dýrðleg, og margslungin og reykmikil
maltviskí frá Islay, svo sem Lagavulin
eða Laphroaig eru svo sem ekki fyrir
alla, en þeir sem kunna að meta það fá
sér gjarnan botnfylli í glas og láta það
kitla nef og góm.“
Að endingu kemur Þorri inn á koní-
akið, sem margir kjósa eftir matinn með
kaffinu. „Íslendingar eru upp til hópa
hrifnir af koníaki, sem sannarlega getur
verið gæðadrykkur, en af hverju ekki að
reyna að verða sér út um hið karakt-
ermikla armaníak sem er ekki síður
jólalegt? Þroskað eplabrandí, eins og
Calvados, nýtur reyndar mun meiri
vinsælda í heimalandi sínu, Frakklandi,
en koníak og er sérlega gott til að bæta
meltinguna að þeirra mati. Svo er það
fátt sem jafnast á við gott Grappa frá
Ítalíu eftir þunga máltíð. Frá góðum
framleiðanda eins og Poli verður þessi
annars sveitalegi spíri hreinasti un-
aður.“
að austurlenskir ávextir eins og mangó
eða passíuavöxtur koma við sögu gæti
verið gaman að hafa sæt hvítvín frá Al-
sace eins og t.d. Gewurztraminer Vend-
anges Tardive, en það ber einmitt keim af
þesskonar ávöxtum.“
Búðingar
„Búðingar geta verið einfaldir og mjúkir,
svo sem Crème Brûlée, og þá er gott að
hafa ljúft sætvín eins og Sauternes eða
Monbazillac með. Triffli er mun bragð-
meiri og flóknari samsetning og þar sem
oftast er bætt sérrí út í það er tilvalið að
hafa einnig sérrí með því þótt sumum
finnist alveg nóg að hafa það blandað í
sjálft trifflið“ segir Þorri. „Tawny-
púrtvín er einnig gott með triffli en þegar
aðrir matarlímsbúðingar eru bornir fram
verður að horfa svolítið á hvaða bragð er
ríkjandi í búðingnum. Og eins og oftast er
þumalputtareglan sú að sé bragðið sýru-
ríkt þá er sýruríkt og freyðandi vín
heppilegt en sé bragðið sætt og þungt eru
hefðbundin sætvín betri og janfvel styrkt
vín eins og sérrí og púrtvín. Tiramisú og
aðrir ostabúðingar með áleitnu kaffi-
bragði fara vel við ítalska sætvínið Vin
Santo en það vín er einnig gott með eft-
irréttum sem innihalda ákveðið bragð af
hnetum og þurrkuðum ávöxtum.“
Rjómaís
Ís getur verið margskonar á bragðið en
það sem sameinar alla ísa er væntanlega
’
Þumalputtareglan er
venjulega sú að því
ferskari og sýruríkari
sem eftirmaturinn er því
sýruríkari og ferskari vín
ganga með honum.
Barnabarnið mitt, sem sækir sunnudagaskóla í Grensáskirkju, var aðsegja mér frá Jesú og pabba hans sem er Guð. Í huga hennar er Jesúsljóslifandi og hún vissi að jólin eru afmæli hans. Jólin eru spennanditími fyrir börnin, jólaböll, gjafir í skóinn, jólasveinar, skreytingarnar
og svo allar gjafirnar. Fyrir hver jól veltum við því fyrir okkur hvort hinn raun-
verulegi boðskapur jólanna gleymist í öllu umstanginu. Upp í hugann kemur
erindi úr kvæðinu Aðventa eftir skáldið góða Hákon Aðalsteinsson:
En nú virðist fegurðin flúin burt
friðurinn spennu hlaðinn,
lífsgæðakapphlaup og kauphallarskraut
er komið til okkar í staðinn.
Nú um jólin er full ástæða til að leiða hugann að stöðu kristni og kirkju í sam-
félaginu. Það hafa blásið naprir vindar um þjóðkirkjuna á árinu, margir skráð
sig úr kirkjunni og prestar hafa ekki sama aðgang að skólum borgarinnar og áð-
ur. Þjóðkirkjan hefur orðið að glíma við afar erfið mál að undanförnu og svo
virðist sem margir Íslendingar séu ósáttir við
hvernig stjórn kirkjunnar hefur tekist á við þessi
vandamál. Ekki verður annað séð en að stjórn
kirkjunnar hafi ekki verið í stakk búin til að vinna
úr þeim erfiðu málum sem upp hafa komið.
Þetta á raunar ekki aðeins við um þjóðkirkjuna
heldur einnig kirkjur í öðrum löndum og í því sam-
bandi mætti nefna kaþólsku kirkjuna í Hollandi.
Það verður að segjast eins og er að gagnrýni á stofn-
un eins og þjóðkirkjuna er af hinu góða, hins vegar
verður þessi gagnrýni að vera málefnaleg og frjó en
því miður hefur af og til nokkuð skort á það. Við
skulum hafa það í huga að prestar landsins og annað starfsfólk kirkjunnar vinn-
ur fórnfúst og þýðingarmikið starf í þágu þjóðarinnar, oft á erfiðum stundum í
lífi okkar. Á ögurstundu er kirkjan iðulega bjargvættur fólks semer í neyð og í
sorg.
Kristnisaga Íslendinga er afar merkileg. Ákvörðunin um hvort þjóðin ætti að
taka kristna trú var rædd á Alþingi og samþykkt þar, hér var því um lýðræð-
islega ákvörðun að ræða sem er einstakt í trúarbragðasögu heimsins. Halldór
Laxness sagði að á kaþólskum tíma hefðu Íslendingar verið ein mesta bók-
menntaþjóð heimsins. Kristin viðhorf hafa því frá upphafi haft sterk og mót-
andi áhrif á sögu þjóðarinnar og menningu.
Þess vegna er það furðuleg ákvörðun og sorgleg að nú skuli fjallað um kristni
og kristinsögu eins og hver önnur trúarbrögð í skólum höfuðborgarinnar. Í
huga flestra er kristnin ekki eins og „hver önnur trúarbrögð“ heldur er hér um
að ræða trú þjóðarinnar. Við skulum ekki gleyma því að jólin eru kristin
trúarhátíð. Margir Íslendingar munu fara í kirkju nú um jólin og á komandi ári
og njóta þjónustu kirkjunnar, einnig þeir sem hafa gagnrýnt kirkjuna og jafnvel
sagt sig úr henni. Trúarleg reynsla og tilfinning manna er mjög persónubundin
og eigum við flest erfitt með að útskýra hana í orðum. Í bók Josefs Ratzingers,
nú Benedikts páfa, Salz der Erde eða Salt jarðar, segir meðal annars: „Ef mað-
urinn trúir aðeins því sem augu hans sjá er hann í raun blindur. Eigum við ekki
að nota tímann nú um jólin og leiða hugann að því sem skiptir máli, um það,
hvaða hlutverki trúin gegnir í lífi okkar og hvernig kirkju við viljum hafa í land-
inu. Ég vil að lokum grípa niður í kvæðið Aðventu eftir Hákon Aðalsteinsson:
Láttu svo kertið þitt lýsa um geim
loga í sérhverjum glugga,
þá getur þú búið til bjartari heim
og bægt frá þér vonleysisskugga.
Paragvæinn Esteban Sabate undirbýr árlega sýningu sem tileinkuð er Jesúbarninu.
Reuters
Jesús og pabbi hans
Jól
Sigmar B. Hauksson
’
Nú um jól-
in er full
ástæða til
að leiða hugann
að stöðu kristni
og kirkju í sam-
félaginu.