Morgunblaðið - 13.02.2012, Blaðsíða 23
DAGBÓK 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. FEBRÚAR 2012
Sudoku
Frumstig
6 5 4 1
8 7 4
4 6 5 2
2 1 6
6 3 5
1 7 3
3 5
8 7
1 5
4 6
1 5 3 4
6 9 2
5 2
6
9 3
7 4
1 2 4
6 5 1 7
5 3 4 8
2 6
7 2 3
3 6 2 5
8 5 9
7 8
6 9
8 7
2 7
4 6 8 3 9 1 2 5 7
3 7 5 4 8 2 9 6 1
9 2 1 7 6 5 4 8 3
6 3 2 5 1 9 8 7 4
7 8 9 2 3 4 6 1 5
1 5 4 8 7 6 3 9 2
5 9 3 6 4 7 1 2 8
8 1 7 9 2 3 5 4 6
2 4 6 1 5 8 7 3 9
9 3 4 5 2 1 8 6 7
7 6 8 3 4 9 1 2 5
2 1 5 6 7 8 4 9 3
1 4 9 8 3 5 6 7 2
3 5 7 2 6 4 9 1 8
6 8 2 1 9 7 5 3 4
4 7 1 9 5 2 3 8 6
8 2 3 4 1 6 7 5 9
5 9 6 7 8 3 2 4 1
9 3 6 1 8 7 5 4 2
2 7 4 6 5 3 8 9 1
5 8 1 4 2 9 3 7 6
1 5 2 7 6 4 9 3 8
3 9 8 2 1 5 4 6 7
6 4 7 9 3 8 2 1 5
4 6 9 8 7 2 1 5 3
7 2 5 3 9 1 6 8 4
8 1 3 5 4 6 7 2 9
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er mánudagur 13. febrúar,
44. dagur ársins 2012
Orð dagsins: Á þeim degi munuð þér
skilja, að ég er í föður mínum og þér í
mér og ég í yður. (Jóh. 14, 20.)
Í Sunnudagsmogga nýliðna helgilas Víkverji viðtal við Eyþór Arn-
alds, formann bæjarráðs Árborgar.
Meðal þess sem Eyþór talaði um í
viðtalinu var fyrirhuguð færsla Suð-
urlandsvegar, norður fyrir byggðina
á Selfossi.
x x x
Eyþór sagði að við færslu vegar-ins, sem enginn veit reyndar
hvenær verður ráðist í, mynduðust
bæði áskoranir og ný tækifæri fyrir
Selfyssinga. Í mjólkurbænum á
bökkum Ölfusár byggir fólk afkomu
sína meðal annars á þjónustu við
ferðamenn og sumarhúsanotendur,
enda eru Flóinn og nærsveitir með
fallegustu landsvæðum á Íslandi.
Sérstaklega ef fólk er lítið fyrir há
fjöll og djúpa dali.
x x x
Ótti Eyþórs og annarra Selfyss-inga, um að færsla vegarins
geti þýtt minni viðskipti við fyrr-
nefnda ferðalanga, er án efa á rökum
reistur. Þó mátti skilja að þar á bæ
væri hugur í fólki og engin áform um
annað en að snúa vörn í sókn.
x x x
Fyrir rúmum fimmtán árum satVíkverji borgarafund á Sel-
fossi, vegna kosninga sem þá voru á
næsta leiti. Meðal umræðuefna var
fyrrnefnd hugmynd um að færa téð
vegstæði, þá frekar nýtilkomin. Til-
gangurinn var fyrst og fremst að
losna við þungaflutninga úr miðju
bæjarins, ekki síst langar lestir vik-
urflutningabíla. Aðrir óttuðust að
missa ferðamannastrauminn úr
bænum, og þær tekjur sem honum
fylgdu.
x x x
Þá var það sem einn bæjarfulltrúiframsóknarmanna, sem var
fylgjandi flutningi vegarins, steig í
pontu og sagði ótta fundargesta ill-
skiljanlegan. Það sæi það hver heil-
vita maður að ef vegurinn yrði færð-
ur myndi byggðin færast líka.
x x x
Er þá kannski betur heima setiðen af stað farið? víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 ræma, 8 hæsti, 9
hvefsin kona, 10 að, 11 ota
fram, 13 að baki, 15 stólpi,
18 ritæfing, 21 greinir, 22
samkoman, 23 sýni, 24 pés-
ar.
Lóðrétt | 2 unna, 3 hafna, 4
planta, 5 rask, 6 loforð, 7
þráður, 12 tölustafur, 14 út-
lim, 15 heiður, 16 komi í veg
fyrir, 17 flokk, 18 undin, 19
magakeis, 20 slagbrandur.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 hitta, 4 lunti, 7 eldis, 8 nísku, 9 and, 11 iðin, 13 fann, 14
yddar, 15 fant, 17 Írak, 20 eim, 22 logni, 23 ufsir, 24 klaga, 25
draga.
Lóðrétt: 1 hleri, 2 tuddi, 3 assa, 4 lund, 5 naska, 6 Iðunn, 10
næddi, 12 nyt, 13 frí, 15 fölsk, 16 nægja, 18 rista, 19 karpa, 20
eira, 21 mund.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Ólíkar kokkabækur.
Norður
♠ÁD54
♥Á53
♦KD975
♣10
Vestur Austur
♠K73 ♠G10862
♥G1096 ♥D
♦832 ♦G6
♣962 ♣KDG54
Suður
♠9
♥K8742
♦Á104
♣Á873
Suður spilar 6♥.
„Fyrirgefðu að ég spyr – hvernig er
hægt að vinna slemmu þar sem annar
varnarspilarinn er með G109x í trompi
á móti stakri drottningu? Í mínum
kokkabókum eru þetta tveir tapslagir.“
Þér er fyrirgefið. En ekki eru allar
kokkabækur eins. Í þessari bók kemur
vestur út með ♥G. Þannig var það í
reynd á Evrópumótinu 1987. Suður var
Norðmaðurinn Jon Stövneng. Hann
drap á ♥Á og horfði hissa og lengi á
drottningu austurs. Að lokum tók hann
til starfa: Lagði fyrst niður ♣Á og
trompaði lauf. Spilaði tígli á ásinn og
svínaði ♠D. Tók næst ♠Á og stakk
spaða, trompaði svo lauf í þriðja sinn.
Þegar tígulhjónin héldu velli í fram-
haldinu voru úrslitin svo gott sem ráð-
in. Stövneng trompaði tígul með sjö-
unni heima frá ♥K87 og vestur …
„harmaði hlutinn sinn“.
13. febrúar 1693
Heklugos hófst. Það stóð fram
á haust og olli miklu tjóni,
jarðir lögðust í auðn og hall-
æri ríkti á Suðurlandi. Sænsk-
ur vísindamaður telur að
mengun frá þessu gosi hafi
spillt gróðri í Svíþjóð og valdið
hungursneyð.
13. febrúar 1942
Átján breskir hermenn
drukknuðu á Hrútafirði,
skammt frá Borðeyri, þegar
tveir prammar sukku. Sex
mönnum var bjargað.
13. febrúar 1945
Jóhannes S. Kjarval opnaði
málverkasýningu í Lista-
mannaskálanum í Reykjavík.
Það þótti tíðindum sæta að
flestar myndanna seldust á
fyrstu klukkustundinni.
13. febrúar 1983
Loftsteinn féll í sjóinn austur
af landinu á níunda tímanum
um kvöldið. Birti víða um aust-
anvert landið þegar steinninn
þaut með miklum hraða um
himinhvolfið.
13. febrúar 2001
Lag Bjarkar, Sjón og Lars von
Trier „I’ve seen it all“ úr
Myrkradansaranum var til-
nefnt til Óskarsverðlauna sem
besta sönglag í kvikmynd.
Björk flutti lagið á hátíðinni
en hlaut ekki verðlaunin.
13. febrúar 2010
Við höfuðstöðvar KSÍ í Laug-
ardal var afhjúpuð stytta af
Albert Guðmundssyni, fyrsta
atvinnumanni Íslendinga í
knattspyrnu.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson
Þetta gerðist…
„Ég hélt upp á tímamótin með vinum mínum á
föstudagskvöldið en í dag verður það kannski
kaffiboð með fjölskyldunni,“ segir Sólrún Ósk
Unnsteinsdóttir, nemi í Menntaskólanum við
Hamrahlíð, sem verður tvítug í dag, 13. febrúar.
Sólrún er á félagsfræðibraut og tekur stúdents-
próf þaðan í vor ef allt gengur upp eins að er
stefnt. Hún nýtir tíma sinn vel og vinnur flestar
helgar með náminu, enda er stefnan tekin á ferða-
lag um Evrópu með vinkonum sínum í sumar. Sól-
rún vinnur bæði á veitingastaðnum Horninu í
Hafnarstræti og kaffihúsinu Adesso í Smáralind.
„Það er draumurinn að geta farið í ferðalag eftir stúdentspróf, læra
tungumál og skoða hvað er í boði áður en maður sest á skólabekk í há-
skóla,“ segir Sólrún, sem ekki hefur ákveðið hvaða framhaldsnám
verður fyrir valinu. Það gæti jafnvel orðið ljósmyndun, sem í dag er
eitt af hennar helstu áhugamálum.
Hún segir áhugann á ljósmyndun hafa kviknað fyrir alvöru árið
2008 þegar hún eignaðist góða myndavél. „Ég tek myndavélina alltaf
með mér út þegar er flott veður og góð skilyrði til að taka myndir,“
segir afmælisbarnið að endingu.
Sólrún Ósk Unnsteinsdóttir tvítug í dag
Stefnir á Evrópureisu
Nýbakaðir foreldrar?
Sendið mynd af barninu til birtingar
í Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda
mynd af barninu með upplýsingum
um fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig
má senda tölvupóst á barn@mbl.is
Flóðogfjara
13. febrúar Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 3.56 0,5 10.05 3,7 16.18 0,6 22.36 3,6 9.32 17.53
Ísafjörður 6.04 0,2 12.01 2,0 18.26 0,2 9.48 17.47
Siglufjörður 2.26 1,2 8.19 0,1 14.47 1,1 20.46 0,2 9.31 17.30
Djúpivogur 1.07 0,1 7.08 1,9 13.21 0,2 19.33 1,9 9.04 17.20
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Ef þú ert óánægður með svarið sem
þú færð, leitaðu þá að betra svari. Vertu op-
inn fyrir nýjum tækifærum.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Það er hætt við að samræður þínar við
maka þinn og nána vini verði eitthvað rugl-
ingslegar í dag. Byggðu þig frekar upp fyrir
framtíðina.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú græðir lítið á því að láta alla
hluti fara í taugarnar á þér. Lífið krefst þess
að þú gerir þitt besta, en ekki eitthvað
ómögulegt.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Nú ertu kominn með lausn á vanda-
málinu sem hefur verið að naga þig að und-
anförnu. Hafðu léttleikann í fyrirrúmi.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Nú er komið að því að þú uppskerir eins
og þú sáðir til. Gakktu þó ekki fram af þér,
það er allt í lagi að verkið taki tvo daga.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú hefur byrinn með þér til að klára
þau verkefni sem setið hafa á hakanum.
Sinntu þeim sem næst þér standa af kost-
gæfni.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þótt menn sameinist um að vinna
ákveðnum málum fylgi er alltaf hætta á að
valdabarátta fylgi í kjölfarið. Sýndu sveigj-
anleika og þá mun rætast úr öllu saman.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Láttu ekki fagurgala annarra
villa þér sýn. Reyndu að verja þig betur og
hafa skipulag á hlutunum, þannig að þú getir
sinnt þeim sem þú vilt.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Það getur tekið á að þurfa stöð-
ugt að sýna einbeitni gagnvart öðrum. Hik-
aðu ekki við að segja hvernig þér líður. Sýndu
fjölskyldumeðlimum þolinmæði fyrripart
dagsins.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Steingeitin lumar á safaríku leynd-
armáli og blóðlangar til þess að kjafta af sér.
Láttu það ekki angra þig.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þú átt ekki að þurfa að standa í
einhverri valdabaráttu, sem gerir ekkert
nema að skemma út frá sér.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Flýttu þér að læra að skilja á milli þess
sem skiptir máli og hins, sem hrein tímasóun
er að sinna. Þú ert að velta fyrir þér flutn-
ingum eða breytingum í vinnu.
Stjörnuspá
1. d4 Rf6 2. Bg5 Re4 3. h4 Rxg5 4. hxg5
c5 5. c3 cxd4 6. cxd4 e5 7. dxe5 Da5+ 8.
Rc3 Dxe5 9. Hh4 Dxg5 10. He4+ Kd8
11. Rf3 Df6 12. Db3 Rc6 13. Rd5 Dg6
14. Dd3 d6 15. De3 Bd7 16. g4 Re5 17.
Rf4 Rxf3+ 18. exf3 Df6 19. O-O-O b6
Staðan kom upp á Skákþingi
Reykjavíkur, Kornax-mótinu, sem lauk
fyrir skömmu í húsakynnum Taflfélags
Reykjavíkur. Jóhann H. Ragnarsson
(2103) hafði hvítt gegn Hallgerði H.
Þorsteinsdóttur (1969). 20. g5! Df5
Svartur hefði einnig tapað eftir 20…
Dxg5 21. Re6+. 21. Hd5 og svartur
gafst upp. Reykjavíkurmót grunn-
skólasveita fer fram í dag í húsakynn-
um Taflfélags Reykjavíkur og á sama
stað verður haldin Skákkeppni vinnu-
staða 17. febrúar næstkomandi. Nán-
ari upplýsingar á www.skak.is.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik.