Morgunblaðið - 24.02.2012, Síða 8

Morgunblaðið - 24.02.2012, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2012 ÁAlþingi í gær sagði Jóhanna Sig-urðardóttir frá því að hún hefði „spurnir af því eftir samtöl við“ Stein- grím J. Sigfússon að hann ætti í „sam- ráði við ýmsa aðila“ um fiskveiðistjórn- armálið. Steingrímur sjálfur hafði talað með sama hætti í við- tali og nefnt sér- staklega LÍÚ, sjó- mannasamtökin, Starfsgreina- sambandið og fleiri.    Mikið samráðsem sagt, eða hvað?    Þegar Morg-unblaðið leitaði nánari upplýsinga um samráðið kom í ljós að það hefði ekki farið fram.    Við höfum enga aðkomu að þessarivinnu,“ sagði Friðrik J. Arn- grímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ. Hann sagði aðeins hafa verið um að ræða stuttan fund með ráðherra en ekkert raunverulegt samráð þó að eftir því hefði verið óskað.    Sævar Gunnarsson, formaður Sjó-mannasambands Íslands, hafði sömu sögu að segja, Sjómanna- sambandið hefði ekkert komið að vinnu við gerð frumvarpsins sem Steingrímur vinnur nú að.    Við höfum ekki komið að þessumeð einum eða neinum hætti,“ sagði Björn Snæbjörnsson, formaður Starfsgreinasambandsins, sem sagði fund með ráðherra ekki hafa snúist um samráð.    Hvað gerir forsætisráðherra nú,þegar fram er komið að alls- herjarráðherrann sagði henni ósatt um að hann ætti í „samráði við ýmsa aðila“? Jóhanna Sigurðardóttir Forsætisráðherra gabbaður STAKSTEINAR Steingrímur J. Sigfússon Veður víða um heim 23.2., kl. 18.00 Reykjavík 4 rigning Bolungarvík 2 rigning Akureyri 2 snjókoma Kirkjubæjarkl. 2 rigning Vestmannaeyjar 5 skýjað Nuuk -7 skýjað Þórshöfn 8 skúrir Ósló 7 heiðskírt Kaupmannahöfn 7 skýjað Stokkhólmur 6 heiðskírt Helsinki 2 skýjað Lúxemborg 5 skýjað Brussel 10 skýjað Dublin 12 skýjað Glasgow 11 alskýjað London 17 heiðskírt París 11 alskýjað Amsterdam 11 skýjað Hamborg 10 skýjað Berlín 11 skýjað Vín 7 alskýjað Moskva 0 snjókoma Algarve 18 heiðskírt Madríd 17 heiðskírt Barcelona 17 heiðskírt Mallorca 17 heiðskírt Róm 16 léttskýjað Aþena 10 skýjað Winnipeg -5 snjókoma Montreal 2 skýjað New York 12 heiðskírt Chicago 2 alskýjað Orlando 22 alskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 24. febrúar Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 8:54 18:29 ÍSAFJÖRÐUR 9:07 18:26 SIGLUFJÖRÐUR 8:50 18:09 DJÚPIVOGUR 8:26 17:56 Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Aðgerðir til að fjarlægja PIP-brjósta- púða úr konum hófust á Landspítal- anum síðastliðinn mánudag. Í gær var búið að fjarlægja púðana úr sex konum. „Það sem hefur komið í ljós í þess- um aðgerðum er að það er til í dæm- inu að púðar sem eru ekki taldir vera sprungnir í ómskoðun geta samt sem áður verið það. Það hefur komið í ljós að púði sem ekki var talinn sprunginn í ómskoðun reyndist leka þegar kon- an var skorin upp. Þá hafði lekur púði greinst í hinu brjóstinu en þessi virst heill,“ segir Ólafur Baldursson, fram- kvæmdastjóri lækninga á Landspít- ala. Aðgerðirnar hafa annars gengið vel. „Þær aðgerðir sem eru búnar hafa gengið mjög vel og snurðulaust fyrir sig. Nú er verið að meta hvernig flæðið er og verður í framhaldinu. Það kemur hugsanlega til greina síðar að gera meira átak í að fá konurnar í að- gerð, eftir því hver fjöldinn verður,“ segir Ólafur. Öllum konum, sem eru með PIP-brjóstapúða og eru sjúkra- tryggðar hér á landi, stendur til boða að fá púðana fjarlægða á Landspít- alanum. Konurnar sex sem hafa kom- ið í aðgerð voru allar með sprungna púða. Ólafur segir að bókað sé jafnt og þétt í aðgerðirnar og passað upp á að þær konur, sem þurfi að vera í for- gangi, komist að. „Við munum al- mennt setja í forgang þær konur sem eru með sprungna púða samkvæmt ómskoðun. Við stefnum að því að halda þessum dampi áfram, að púð- arnir verði fjarlægðir úr sex til átta konum á viku að minnsta kosti. Ef það er þörf á að gera meira skoðum við það.“ Í sprungnum púðum getur sílikonið farið að leka út í nærliggjandi vefi. Segir Ólafur að aðgerðin sé þá svolítið snúnari en ef verið er að taka út heila púða. „Samkvæmt því sem skurð- læknarnir okkar segja þarf að skola og hreinsa töluvert mikið ef sílikonið er farið að leka. Það er mun snúnari aðgerð en að taka heilan púða úr.“ Leki kemur í ljós í aðgerð  Sex konur með PIP-brjóstapúða hafa farið í aðgerð á Landspítalanum  Púði sem var ekki talinn sprunginn í ómskoðun reyndist leka þegar hann var tekinn út Reuters Í aðgerð Kona í Argentínu að nafni Claudia Rolon heldur á poka með sprungnum PIP-brjóstapúða sem hefur verið fjarlægður úr henni. Stjórn Fjármálaeftirlitsins hefur samþykkt að veita Gunnari And- ersen, forstjóra FME, lengri frest til þess að andmæla fyrirhugaðri uppsögn. Aðalsteinn Leifsson, stjórnarformaður FME, segir að Gunnar fái frest til klukkan 16 næstkomandi þriðjudag. Gunnari var tilkynnt með bréfi síðasta föstu- dag að til stæði að segja honum upp og var honum gefinn frestur til mánudags til andmæla. Lögmaður Gunnars krafðist þess hins vegar með bréfi þann dag að sá frestur yrði lengdur enda væri aðeins um einn virkan dag að ræða síðan upp- sögnin var tilkynnt. Stjórn FME samþykkti að veita honum frest þar til í gær en nú hefur sá frestur verið lengdur til þriðjudags. Gunnar fær lengri frest til andmæla Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is Opið virka daga 10–18, laugard. kl. 11–16, sunnud. 14–16 Vaxtalaus kaupleiga Hjalti Parelius Gallerí Fold í 20 ár 1992–2012 Síðasta sýningarhelgi LiStamannaSpjaLL ræðir við gesti um sýningu sína í dag 10–18 laugardag 11–16 á listaverkum til allt að 36 mánaða Kynntu þér málið á www.myndlist.is Erum að taka á móti verkum á næsta uppboð

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.