Morgunblaðið - 24.02.2012, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 24.02.2012, Blaðsíða 11
teygja og franskur rennilás til að hægt sé að festa hana um hálsinn. Camilla segir hönnunina hafa vakið lukku og í raun er eftir- spurnin orðin það mikil að þær hafa ekki undan og ætla sér því að ráða saumakonu. Annars hefur saumaskapurin gengið vel en sú sem ekki er þaulvön saumaskap sér um að fylla slaufurnar og þannig gengur þetta eins og á færibandi. Til styrktar góðu málefni „Við vorum búnar að gera í kringum 50 slaufur en á miðviku- daginn settum við upp söluborð og seldum helminginn í skólanum. Það er nefnilega árshátíð hjá okk- ur í kvöld (fimmtudag) og við höfð- um lofað krökkunum í skólanum að hafa motturnar til sölu svo þau gætu skartað þeim á árshátíðinni. Pantanir voru því settar á bið á meðan og nú er næst að vinna okkur í gegnum þær og búa til fleiri slaufur. Við höfum ekki feng- ið neitt nema jákvæð viðbrögð sem er frábært og hvetur mann áfram. Við bjuggumst við að selja kannski tíu á mann, koma út á núlli og klára áfangann. En svo fórum við á Facebook og þá fór allt af stað,“ segir Camilla Rut. Hönnunina má finna undir Arcos á Facebook en Arcos þýðir slaufa á spænsku. „Við vorum ákveðnar í því frá byrjun að gera eitthvað töff. Það er alltaf hægt að bæta við nýjum fylgihlutum og sú hönnun því mjög skemmtileg. Einna skemmtilegast er þó og mikilvægast að vekja at- hygli á góðu málefni eins og Mottumars,“ segir Camilla Rut en ágóði af slaufusölunni rennur til styrktar átakinu.Mottur Skeggið er skemmtilegur fylgihlutur fyrir stelpur og stráka. Hönnun Frumkvöðlanámið snýst um að hanna hlut frá upphafi til enda. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2012 Á vefsíðunni bored.com eru óteljandi tölvuleikir sem hægt er að spila frítt. Þetta eru allskonar leikir, krúttlegir kisuleikir, skotleikir, púslleikir, fyndn- ir leikir, spennuleikir, Stickman-leikir, skóleikur og svo mætti lengi telja. Stjarnan Justin Bieber er greinilega efni í tölvuleiki því einn leikurinn inni á þessari síðu heitir til dæmis Bieber Date og gengur út á það að geta svar- að sem flestum spurningum um Just- in Bieber og með því komast mögu- lega á deit með stjörnunni. Sannarlega forvitnilegt fyrir þá sem eru hrifnir af piltinum þeim, en hann á jú milljónir aðdáenda um heim allan sem flestir munu vera unglings- stúlkur. Reyndar er annar leikur inni á síðunni sem heitir Throw Bieber eða kastaðu Bieber og er ekki eins vinsamlegur í garð prúða piltsins því hann gengur út á það kasta brúðum sem líkjast honum í ruslið. Þetta er væntanlega leið fyrir þá sem þola ekki unglingastjörnuna til að fá ein- hverskonar útrás fyrir reiði sína. Allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi, þarna er meira að segja leikur fyrir golfarana sem ku vera mjög raunverulegur. Um að gera að prófa. Vefsíðan www.bored.com Reuters Stjarna Justin Bieber heillar marga stúlkuna og virðist vera efni í tölvuleiki. Kastaðu Bieber og fleiri leikir Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.