Morgunblaðið - 24.02.2012, Side 16

Morgunblaðið - 24.02.2012, Side 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2012 Guðni Einarsson gudni@mbl.is Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrver- andi utanríkisráðherra og sendi- herra, var kærður fyrir meint kyn- ferðisbrot 6. september 2005. Kærandi var Guðrún Harðardóttir, en hún er systurdóttir eiginkonu Jóns Baldvins og 45 árum yngri en hann. Greint er frá málinu og sam- skiptum Jóns Baldvins við Guðrúnu á árunum 1994-2001 í tímaritinu Nýju lífi sem kom út í gær. Þóra Tóm- asdóttir, ritstjóri Nýs lífs, rekur þar bréfaskriftir Jóns Baldvins til Guð- rúnar á árunum 1998 til 2001 og birt- ir myndir af sumum bréfanna. Saga málsmeðferðarinnar er rakin og birt viðtal við Guðrúnu. Hún segir þar m.a. að bréf Jóns Baldvins hafi valdið sér hræðslu. Þá sé fjölskyldan splundruð vegna málsins. „Reglulega kemur upp hjá mér reiði, sorg eða biturð yfir þessu máli og nú langar mig að koma því frá mér,“ segir Guðrún við Nýtt líf. Hún segist vilja að fólk geti lesið bréfin og séð hvað í þeim stendur. Guðrún lagði fram átta bréf frá Jóni Baldvini. Fimm þeirra voru send 1998, þegar Guðrún var 14 ára, og þrjú 2001 þegar Guðrún var 16-17 ára. Eitt bréfanna frá 1998 var sent til Guðrúnar í Hagaskóla þar sem hún var í 8. bekk. Þar segir að Jón Baldvin hafi sent bréfið í skólann því henni þætti ef til vill óþægilegt að fá þessi bréf heim til sín. Í bréfi sem Jón Baldvin skrifaði 15. nóvember 1998 bað hann Guð- rúnu að „halda þessum bréfaskrift- um leyndum, þangað til 50 árum eftir okkar dag?“ Ríkissaksóknari tók ekki afstöðu til þess hvort efni bréf- anna frá 1998 og háttsemi Jóns Bald- vins bryti gegn hegningarlögum því meint eða ætluð brot væru fyrnd. Öðru máli gegndi með bréfin frá 2001 og er gerð ítarleg grein fyrir efni þeirra í Nýju lífi. Fram kemur að í ákvörðun ríkissaksóknara um að fella málið niður hafi sérstaklega ver- ið fjallað um tvö bréf sem Jón Bald- vin skrifaði og sendi Guðrúnu 2001. Það fyrra var skrifað í Tallinn í Eist- landi 16. apríl 2001. Nýtt líf segir að Jón Baldvin hafi verið þar í opinber- um erindagjörðum. Í samtali við mbl.is í gær sagði Jón Baldvin það ekki rétt, í þetta skipti hefði hann verið í Tallinn í einkaerindum. Í bréfinu frá Tallinn lýsir Jón Baldvin því að hann hafi hitt vænd- iskonur á veitingahúsi í borginni. Þær voru á aldur við Guðrúnu og minntu hann á hana. Jón Baldvin lýsti samskiptum sínum við vænd- iskonurnar og heimspekilegum sam- ræðum við þær um nóttina. Í bréfinu hvatti Jón Baldvin Guðrúnu til að skrifa sér í sendiráðið í Washington en bað hana að merkja bréfin „PRI- VAT“. Guðrún segir í viðtali við Nýtt líf að hún hafi orðið hrædd við lestur þessa bréfs. Hitt bréfið var sent frá Wash- ington D.C. í júní 2001 og greindi Jón Baldvin Guðrúnu frá því að hann sendi henni í hraðpósti „ljúfa lofn- arsögu“, bókina „In Praise of the Stepmother“ eftir Mario Vargas Llosa. Jón Baldvin rekur efni bók- arinnar og fer svo að lýsa kynlífi sínu með eiginkonu sinni. Um áhrifin af lestri þessa bréfs segir Guðrún: „Ég varð brjálæðislega hrædd og áttaði mig á því að þetta væri alls ekki í lagi.“ Í eftirskrift greinir Jón Baldvin Guðrúnu frá því að hann verði „aleinn og yfirgefinn“ um tíma þá um sumarið og hvetur hann hana til að koma við í „höfuðborg heimsins – gegnum Baltimore – og stytta mér stundir. Nóg er plássið í höllinni“. Jón Baldvin játaði það við yf- irheyrslu hjá lögreglunni 15. febrúar 2006 að hafa skrifað bréfin frá 2001. Ríkissaksóknari sagði að ætlað brot hefði verið framið erlendis. Þar eð brotið var ekki refsivert í Vene- súela, þar sem Guðrún opnaði bréfið, var málið fellt niður 2007. Baðst afsökunar Jón Baldvin sagði í samtali við mbl.is í gær að um væri að ræða tólf ára gamalt mál og að hann hefði beð- ist afsökunar fyrir tólf árum. Hann sagði að málið hefði tvisvar verið kært og lögreglan rannsakað það. Því hefði verið vísað frá á þeirri for- sendu að kæran væri tilefnislaus. Þá vitnaði hann til afsökunarbréfs síns í Fréttablaðinu í gær. Bað um að bréfunum yrði haldið leyndum Einkabréfin opinberuð Nýtt líf birtir kafla úr bréfum Jóns Baldvins sem hann skrifaði Guðrúnu Harðardóttur.  Ung kona greinir frá berorðum bréfum fyrrverandi sendiherra til sín og segir bréfin hafa vakið sér ótta Einkabréf sendiherrans » Jón Baldvin Hannibalsson er fæddur 1939. Guðrún Harð- ardóttir er fædd 1984. » Guðrún er systurdóttir eiginkonu Jóns Baldvins. Hún sakar hann um að hafa sýnt sér óeðlilegan áhuga og að hafa verið áleitinn við sig. » Máli sínu til stuðnings lagði Guðrún fram átta bréf frá Jóni Baldvini sem hann sendi henni á árunum 1998 til 2001. 6.9. 2005 Guðrún Harðardóttir kærir Jón Baldvin Hanni- balsson fyrir ætluð kynferðisbrot á árunum 1994-2001. 13.12. 2005 Lögreglustjórinn í Reykjavík telur ekki tilefni til að hefja lögreglurannsókn í málinu. 19.12. 2005 Guðrún kærir frávísun lögreglunnar til rík- issaksóknara. 20.1. 2006 Ríkissaksóknari fellir frávísun málsins úr gildi og fyrirskipar lögreglurannsókn. 14.2. 2006 Lögreglustjóri skrifar dómsmálaráðuneytinu og spyr hvort ákvæði um hátterni sem særir blygð- unarsemi og eru samhljóða íslenskum lögum sé að finna í lögum í Venesúela og Washington D.C. 15.2. 2006 Jón Baldvin yfirheyrður hjá lögreglustjóra- embættinu í Reykjavík. 7.3. 2006 Dómsmálaráðuneytið sendir beiðni lög- reglustjóra áfram til utanríkisráðuneytisins. 30.1. 2007 Utanríkisráðuneytið svarar varðandi refsilög- gjöf í Washington D.C. 21.3. 2007 Utanríkisráðuneytið svarar varðandi refsilög- gjöf í Venesúela. 29.3. 2007 Ríkissaksóknara berast gögn frá lög- reglustjóra varðandi refsilöggjöf í Venesúela. 29.3. 2007 Ríkissaksóknari fellir málið niður. Í rökstuðn- ingi segir að samkvæmt lögum í Venesúela sé skilyrði að brotið sé framið á almannafæri. „Sú háttsemi [Jóns Baldvins] að senda kæranda sendibréf, stílað á [Guð- rúnu], getur ekki talist háttsemi viðhöfð á almannafæri. Eru því ekki efni til frekari aðgerða í málinu.“ Einnig kom fram hjá ríkissaksóknara að samfaralýsing í bréfi Jóns til Guðrúnar kunni að falla undir verknaðarlýsingu 209 gr. almennra hegningarlaga. Heimild: Nýtt líf Málið var fellt niður vegna laga í Venesúela KÆRÐI JÓN BALDVIN FYRIR ÆTLUÐ KYNFERÐISBROT Á ÁRUNUM 1994-2001 –– Meira fyrir lesendur PÖNTUN AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 16, mánudaginn 5. mars. FERMINGAR Fermin g SÉRBLAÐ Föstudaginn 9. mars kemur út hið árlega Fermingarblað Morgunblaðsins. Fermingarblaðið hefur verið eitt af vin- sælustu sérblöðumMorgunblaðsins í gegnum árin og verður blaðið í ár sérstaklega glæsilegt. NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is MEÐAL EFNIS: Veitingar í veisluna. Mismunandi fermingar. Fermingartíska. Hárgreiðslan. Myndatakan. Fermingargjafir. Fermingar erlendis. Hvað þýðir fermingin? Viðtöl við fermingarbörn. Nöfn fermingarbarna. Eftirminnilegar fermingargjafir. Fermingarskeytin. Boðskort. Ásamt fullt af spennandi efni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.