Morgunblaðið - 24.02.2012, Síða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2012
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrver-
andi utanríkisráðherra og sendi-
herra, var kærður fyrir meint kyn-
ferðisbrot 6. september 2005.
Kærandi var Guðrún Harðardóttir,
en hún er systurdóttir eiginkonu
Jóns Baldvins og 45 árum yngri en
hann. Greint er frá málinu og sam-
skiptum Jóns Baldvins við Guðrúnu á
árunum 1994-2001 í tímaritinu Nýju
lífi sem kom út í gær. Þóra Tóm-
asdóttir, ritstjóri Nýs lífs, rekur þar
bréfaskriftir Jóns Baldvins til Guð-
rúnar á árunum 1998 til 2001 og birt-
ir myndir af sumum bréfanna. Saga
málsmeðferðarinnar er rakin og birt
viðtal við Guðrúnu. Hún segir þar
m.a. að bréf Jóns Baldvins hafi valdið
sér hræðslu. Þá sé fjölskyldan
splundruð vegna málsins.
„Reglulega kemur upp hjá mér
reiði, sorg eða biturð yfir þessu máli
og nú langar mig að koma því frá
mér,“ segir Guðrún við Nýtt líf. Hún
segist vilja að fólk geti lesið bréfin og
séð hvað í þeim stendur.
Guðrún lagði fram átta bréf frá
Jóni Baldvini. Fimm þeirra voru
send 1998, þegar Guðrún var 14 ára,
og þrjú 2001 þegar Guðrún var 16-17
ára. Eitt bréfanna frá 1998 var sent
til Guðrúnar í Hagaskóla þar sem
hún var í 8. bekk. Þar segir að Jón
Baldvin hafi sent bréfið í skólann því
henni þætti ef til vill óþægilegt að fá
þessi bréf heim til sín.
Í bréfi sem Jón Baldvin skrifaði
15. nóvember 1998 bað hann Guð-
rúnu að „halda þessum bréfaskrift-
um leyndum, þangað til 50 árum eftir
okkar dag?“ Ríkissaksóknari tók
ekki afstöðu til þess hvort efni bréf-
anna frá 1998 og háttsemi Jóns Bald-
vins bryti gegn hegningarlögum því
meint eða ætluð brot væru fyrnd.
Öðru máli gegndi með bréfin frá
2001 og er gerð ítarleg grein fyrir
efni þeirra í Nýju lífi. Fram kemur að
í ákvörðun ríkissaksóknara um að
fella málið niður hafi sérstaklega ver-
ið fjallað um tvö bréf sem Jón Bald-
vin skrifaði og sendi Guðrúnu 2001.
Það fyrra var skrifað í Tallinn í Eist-
landi 16. apríl 2001. Nýtt líf segir að
Jón Baldvin hafi verið þar í opinber-
um erindagjörðum. Í samtali við
mbl.is í gær sagði Jón Baldvin það
ekki rétt, í þetta skipti hefði hann
verið í Tallinn í einkaerindum.
Í bréfinu frá Tallinn lýsir Jón
Baldvin því að hann hafi hitt vænd-
iskonur á veitingahúsi í borginni.
Þær voru á aldur við Guðrúnu og
minntu hann á hana. Jón Baldvin
lýsti samskiptum sínum við vænd-
iskonurnar og heimspekilegum sam-
ræðum við þær um nóttina. Í bréfinu
hvatti Jón Baldvin Guðrúnu til að
skrifa sér í sendiráðið í Washington
en bað hana að merkja bréfin „PRI-
VAT“. Guðrún segir í viðtali við Nýtt
líf að hún hafi orðið hrædd við lestur
þessa bréfs.
Hitt bréfið var sent frá Wash-
ington D.C. í júní 2001 og greindi Jón
Baldvin Guðrúnu frá því að hann
sendi henni í hraðpósti „ljúfa lofn-
arsögu“, bókina „In Praise of the
Stepmother“ eftir Mario Vargas
Llosa. Jón Baldvin rekur efni bók-
arinnar og fer svo að lýsa kynlífi sínu
með eiginkonu sinni. Um áhrifin af
lestri þessa bréfs segir Guðrún:
„Ég varð brjálæðislega hrædd
og áttaði mig á því að þetta væri alls
ekki í lagi.“
Í eftirskrift greinir Jón Baldvin
Guðrúnu frá því að hann verði
„aleinn og yfirgefinn“ um tíma þá um
sumarið og hvetur hann hana til að
koma við í „höfuðborg heimsins –
gegnum Baltimore – og stytta mér
stundir. Nóg er plássið í höllinni“.
Jón Baldvin játaði það við yf-
irheyrslu hjá lögreglunni 15. febrúar
2006 að hafa skrifað bréfin frá 2001.
Ríkissaksóknari sagði að ætlað
brot hefði verið framið erlendis. Þar
eð brotið var ekki refsivert í Vene-
súela, þar sem Guðrún opnaði bréfið,
var málið fellt niður 2007.
Baðst afsökunar
Jón Baldvin sagði í samtali við
mbl.is í gær að um væri að ræða tólf
ára gamalt mál og að hann hefði beð-
ist afsökunar fyrir tólf árum. Hann
sagði að málið hefði tvisvar verið
kært og lögreglan rannsakað það.
Því hefði verið vísað frá á þeirri for-
sendu að kæran væri tilefnislaus. Þá
vitnaði hann til afsökunarbréfs síns í
Fréttablaðinu í gær.
Bað um að bréfunum
yrði haldið leyndum
Einkabréfin opinberuð Nýtt líf birtir kafla úr bréfum Jóns Baldvins sem hann skrifaði Guðrúnu Harðardóttur.
Ung kona greinir frá berorðum bréfum fyrrverandi
sendiherra til sín og segir bréfin hafa vakið sér ótta
Einkabréf sendiherrans
» Jón Baldvin Hannibalsson
er fæddur 1939. Guðrún Harð-
ardóttir er fædd 1984.
» Guðrún er systurdóttir
eiginkonu Jóns Baldvins. Hún
sakar hann um að hafa sýnt
sér óeðlilegan áhuga og að
hafa verið áleitinn við sig.
» Máli sínu til stuðnings
lagði Guðrún fram átta bréf frá
Jóni Baldvini sem hann sendi
henni á árunum 1998 til 2001.
6.9. 2005 Guðrún Harðardóttir kærir Jón Baldvin Hanni-
balsson fyrir ætluð kynferðisbrot á árunum 1994-2001.
13.12. 2005 Lögreglustjórinn í Reykjavík telur ekki tilefni
til að hefja lögreglurannsókn í málinu.
19.12. 2005 Guðrún kærir frávísun lögreglunnar til rík-
issaksóknara.
20.1. 2006 Ríkissaksóknari fellir frávísun málsins úr gildi
og fyrirskipar lögreglurannsókn.
14.2. 2006 Lögreglustjóri skrifar dómsmálaráðuneytinu
og spyr hvort ákvæði um hátterni sem særir blygð-
unarsemi og eru samhljóða íslenskum lögum sé að finna
í lögum í Venesúela og Washington D.C.
15.2. 2006 Jón Baldvin yfirheyrður hjá lögreglustjóra-
embættinu í Reykjavík.
7.3. 2006 Dómsmálaráðuneytið sendir beiðni lög-
reglustjóra áfram til utanríkisráðuneytisins.
30.1. 2007 Utanríkisráðuneytið svarar varðandi refsilög-
gjöf í Washington D.C.
21.3. 2007 Utanríkisráðuneytið svarar varðandi refsilög-
gjöf í Venesúela.
29.3. 2007 Ríkissaksóknara berast gögn frá lög-
reglustjóra varðandi refsilöggjöf í Venesúela.
29.3. 2007 Ríkissaksóknari fellir málið niður. Í rökstuðn-
ingi segir að samkvæmt lögum í Venesúela sé skilyrði að
brotið sé framið á almannafæri. „Sú háttsemi [Jóns
Baldvins] að senda kæranda sendibréf, stílað á [Guð-
rúnu], getur ekki talist háttsemi viðhöfð á almannafæri.
Eru því ekki efni til frekari aðgerða í málinu.“ Einnig kom
fram hjá ríkissaksóknara að samfaralýsing í bréfi Jóns til
Guðrúnar kunni að falla undir verknaðarlýsingu 209 gr.
almennra hegningarlaga.
Heimild: Nýtt líf
Málið var fellt niður vegna laga í Venesúela
KÆRÐI JÓN BALDVIN FYRIR ÆTLUÐ KYNFERÐISBROT Á ÁRUNUM 1994-2001
–– Meira fyrir lesendur
PÖNTUN AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 16, mánudaginn 5. mars.
FERMINGAR
Fermin
g
SÉRBLAÐ
Föstudaginn 9. mars kemur út
hið árlega Fermingarblað
Morgunblaðsins.
Fermingarblaðið hefur verið eitt af vin-
sælustu sérblöðumMorgunblaðsins
í gegnum árin og verður blaðið í ár
sérstaklega glæsilegt.
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
MEÐAL EFNIS:
Veitingar í veisluna.
Mismunandi fermingar.
Fermingartíska.
Hárgreiðslan.
Myndatakan.
Fermingargjafir.
Fermingar erlendis.
Hvað þýðir fermingin?
Viðtöl við fermingarbörn.
Nöfn fermingarbarna.
Eftirminnilegar fermingargjafir.
Fermingarskeytin.
Boðskort.
Ásamt fullt af spennandi efni.