Morgunblaðið - 24.02.2012, Side 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2012
Olli Rehn á blaðamannafundi í gær.
● Framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins hefur endurskoðað hagvaxt-
arspá sína fyrir evrusvæðið árið 2012
og spáir nú 0,3% samdrætti, en spá
hennar í nóvember hljóðaði upp á 0,5%
hagvöxt á svæðinu á þessu ári.
„Óvænt ágjöf á seinnihluta ársins
2011, mun vara áfram á fyrri helmingi
þessa árs,“ segir í yfirlýsingu frá fram-
kvæmdastjórn ESB. Þar kemur fram að
stjórnin telji að evruþjóðirnar 17 sýni
ákveðin merki um stöðugleika.
Framkvæmdastjórn ESB
breytir hagvaxtarspá
BAKSVIÐ
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
Flugrekstur skilar 102,2 milljörðum
króna til vergrar landsframleiðslu
(VLF) og er um 6,6% af henni en það
er hæsta hlutfall meðal landa heims.
Þetta kom fram á fundi á Hótel Nor-
dica í gær, þar sem kynnt var skýrsla
um áhrif flugstarfsemi á íslenskt
efnahagslíf sem unnin hefur verið af
Oxford Economics.
Julie Perovic, yfirhagfræðingur
hjá Alþjóðasambandi flugfélaga
(IATA), kynnti skýrsluna en samtök-
in hafa látið gera slíka skýrslu um
áhrif flugstarfsemi hjá einum 55
þjóðum.
Ísland er einstakt hvað þetta varð-
ar og þegar skoðað var hversu hátt
hlutfall flugreksturs var af VLF hjá
hinum Norðurlöndunum komu í ljós
mun lægri tölur en Finnland var
næst okkur, þar var hlutfallið 3,2%.
Með óbeinum ábata koma um
200 milljarðar í hagkerfið
Heildartalan, 102,2 milljarðar
króna, felur í sér 43,3 milljarða króna
sem koma beint úr flugrekstrinum
sjálfum það er flugfélög, flugvellir og
þjónusta á jörðu niðri. 36,4 milljarðar
króna koma úr aðfangakeðju flug-
rekstrarins og 22,4 milljarðar króna
stafa frá neyslu starfsmanna í flug-
rekstri og aðfangakeðju hans. Ef
einnig væri tekinn inn í jöfnuna
óbeinn ábati af afleiddum áhrifum á
ferðaþjónustu mundu bætast við 95,7
milljarðar króna sem myndi hækka
heildarframlagið í 197,9 milljarða eða
12,9% af VLF.
Risastór vinnuveitandi
Flugrekstur stendur undir 9200
störfum á Íslandi. Þar af eru 2800
störf sem tilheyra flugrekstri með
beinum hætti, 4000 störf
sem studd eru óbeint
af aðfangakeðju
flugrekstrarins og 2400 störf sem
leiða af neyslu starfsmanna flug-
rekstrarins og aðfangakeðju hans, en
þetta gerir samtals 9200. En til við-
bótar eru einnig 11400 manns sem
starfa við afleidd störf, það er í ferða-
þjónustunni. Meðalstarfsmaður við
flugsamgöngur skapar 16 milljónir
króna í árlegri verðmætasköpun á ári
sem er um 1,7 sinnum meðalfram-
leiðni á Íslandi.
Þrefalt meira hjá flugrekstr-
inum en sjávarútveginum
Flugrekstur hefur í gegnum tíðina
náð að skapa miklar tekjur fyrir þjóð-
arbúið og minnast menn þá gjarnan
eins stærsta ævintýris á Íslandi þeg-
ar Loftleiðir voru og hétu. Eins og
segir á bls. 236 í Alfreðs sögu og Loft-
leiða eftir Jakob F. Ásgeirsson: „Árið
1968 var aflaverðmæti alls togara-
flota Íslendinga um 480 milljónir
króna, en sama ár öfluðu Loftleiðir
sem næst þrefalt meiri tekna, eða 1,4
milljarða. Og gjaldeyristekjur Loft-
leiða voru ekki síður mikilvægar en
þær sem fiskveiðarnar færðu okkur.
Á tíu ára tímabili 1962-72 skiluðu
Loftleiðir um 50 milljónum dollara til
bankanna, eftir að hafa greitt allar
erlendar afborganir og rekstrar-
kostnað félagsins erlendis.“
Það er vöxtur í flugrekstrinum á
Íslandi í dag og fram kom í kynning-
unni að árlega er flutt 2,1 milljón far-
þega til og frá landinu og 35000 tonn
af flugfrakt.
Hægt að auka hagvöxtinn
Í pallborðsumræðunum sem voru
á eftir kynningunni sagði Pétur
Maack, flugmálastjóri, svo frá að
menn hefðu fengið í magann þegar
Eyjafjallajökull fór að gjósa en hann
hefði á endanum reynst landinu hin
besta landkynning og fólk í flug-
bransanum hefði tekið eftir mun
meiri áhuga á landinu eftir gosið en
var fyrir það.
Auk Péturs tóku þátt í pallborðs-
umræðunum Björgólfur Jóhannsson,
forstjóri Icelandair Group, Björn Óli
Hauksson forstjóri Isavia, og Stein-
grímur J. Sigfússon, efnahags- og
viðskiptaráðherra, en Þóra Arnórs-
dóttir stýrði þeim.
Í skýrslunni var bent á hvernig
hægt væri að auka hagvöxt til langs
tíma en þar segir meðal annars:
„Áætlað er að bættar tengingar sem
næmu 10% miðað við VLF myndu til
lengri tíma litið leiða til árlegrar
aukningar á VLF á Íslandi upp á 983
milljónir króna til langs tíma.“
Björgólfur fagnaði skýrslunni og
sagði ljóst að flugrekstur væri einn af
undirstöðuatvinnuvegum þjóðarinn-
ar.
Pétur benti á að það þyrfti að hlúa
að menntun í þessum bransa eða eins
og hann orðaði það: „Það vill enginn
fara upp í flugvél hjá manni sem kann
ekki á hana.“ Hann benti einnig á að
Air Atlanta væri ekki í þessum tölum
en þeir flyttu um milljón farþega ár-
lega í Asíu. Hann sagði að allar að-
stæður á Íslandi væru það góðar að
þeir gætu tekið á móti miklu meira
flugi en þeir gera í dag. Lokaorð hans
voru: „Íslendingar eru flugþjóð.“
Íslendingar eru orðnir að flugþjóð
Morgunblaðið/Sigurgeir S. Morgunblaðið
Kynning Vel var mætt á fundinn á Hótel Nordica í gær þar sem skýrsla Oxford Economics var kynnt.
Flugrekstur orðinn undirstöðuatvinnuvegur á Íslandi Í nýrri skýrslu sem IATA lét gera kemur
fram að Ísland er einstakt á meðal landa hvað varðar góðar flugsamgöngur og mikilvægi flugreksturs
Þrátt fyrir að matsfyrirtæki hafi
lækkað lánshæfiseinkunnir margra
evruríkja þá eru einungis þrjú evru-
ríki af 17 með verra lánshæfismat en
Ísland, þ.e. Grikkland, Portúgal og
Kýpur. Þetta kemur fram í Morg-
unkorni Greiningar Íslands í gær.
Þar kemur fram að Kýpur er með
lægri lánshæfiseinkunn en Ísland
hjá S&P en með sömu einkunn hjá
Moodýs og Fitch, og er lánshæfis-
mat þess þar með aðeins verra sé
tekið mið af meðaltali. Greining Ís-
landsbanka telur að áhugavert verði
að fylgjast með framvindu mála á
lánshæfismati evruríkja, enda séu
lánshæfiseinkunnir þeirra meira og
minna í neikvæðum horfum. Í raun
sé einungis eitt ríki með bæði ein-
kunnir og horfur um þær óbreyttar
frá því fyrir kreppu, en það er
Þýskaland sem er með hæstu ein-
kunn í bókum allra fyrirtækjanna,
og stöðugar horfur.
Skuldatryggingarálag á Ísland til
5 ára hefur haldist undir 300 punkt-
um frá því 20. janúar síðastliðinn
samkvæmt gögnum Bloomberg
gagnaveitunnar, en álagið nú er um
250 punktar. Bloomberg greinir frá
því að álagið sé hærra á sjö evru-
ríkjum en Íslandi. Þau eru: Grikk-
land, Portúgal (1.128 punktar), Ír-
land (583 punktar), Slóvenía (405
punktar), Ítalía (394 punktar),
Spánn (375 punktar) og Slóvakía
(283 punktar).
Þrjú evruríki
með verra
mat en Ísland
Álag Grikklands og Portúgals er
meira en fjórfalt álag Íslands.
Sjö með hærra skuldatryggingaálag
● Álit Moody’s á lánshæfi íslenska rík-
isins er óbreytt, samkvæmt tilkynningu
frá matsfyrirtækinu í gær. Lánshæf-
iseinkunnir ríkissjóðs eru óbreyttar,
Baa3 fyrir langtímaskuldbindingar og
P-3 fyrir skammtímaskuldbindingar.
Horfur eru áfram neikvæðar.
Matsfyrirtækið Fitch hækkaði þann
17. febrúar sl. lánshæfiseinkunn Íslands
fyrir langtímaskuldbindingar í erlendri
mynt í BBB- úr BB+.
Mat Moody’s óbreytt
● Ávöxtun íslenskra lífeyrissjóða var
umtalsvert verri á árunum 2008-
2010 en annarra lífeyrissjóða í OECD.
Á þessu árabili skiluðu íslenskir líf-
eyrissjóðir 8,4% neikvæðri ávöxtun,
en lífeyrissjóðir í OECD skiluðu að
meðaltali 1,4% neikvæðri ávöxtun.
Þetta kom fram í fréttaskýringu
Egils Ólafssonar á mbl.is í gær.
Þar kemur fram að raunávöxtun ís-
lenskra lífeyrissjóða var -22,9% árið
2008 en var -23,0% í 23 OECD-
ríkjum og að ávöxtun var best 2009
og 2010 best í Hollandi, Nýja-
Sjálandi, Síle og Finnlandi.
Léleg ávöxtun
STUTTAR FRÉTTIR
Greiningardeild Ar-
ion banka gerir ráð
fyrir umtalsvert
meiri verðbólgu en
spá Seðlabankans
gerir ráð fyrir.
Deildin spáir 6,5%
verðbólgu að með-
altali á fyrsta árs-
fjórðungi en Seðla-
bankinn spáir 6,1%. Í
Markaðspunktum Arion banka í
gær kemur fram að útlit sé fyrir
að verðbólgan verði þrálátari en
vonir stóðu tilm þar sem fá merki
séu um að veiking krónunnar
gangi til baka á næstu mánuðum.
Þó svo að krónan myndi styrkjast
yfir sumarmánuðina, og veikjast
svo á ný með haustinu, þá hafi það
sýnt sig að styrking hennar skili
sér að litlu leyti í lækkandi verð-
lagi.
Gangi spáin fyrir næstu mánuði
eftir telur Greiningardeild Arion
banka flest hníga í þá átt að meiri-
hluti peningastefnunefndar muni
vilja hækka vexti á næsta og/eða
þarnæsta fundi.
Verðbólgu-
horfur
versna
Auka þrýsting
á vaxtahækkun
!"# $% " &'( )* '$*
+,-./,
+/0.10
+,0.21
,,.+3/
,,.23-
+4.34+
+-3.13
+.503+
+/+.4
+30./
+,0.,,
+/5.,+
+,0.0-
,,.,-0
,,.+,4
+4.1-3
+-1.+0
+.5523
+/,.-1
+35.-3
,,3.-313
+,0.5,
+/5.34
+,0.1/
,,.,//
,,.+/-
+4.1/+
+-1.5,
+.555+
+/,./0
+35.4,
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
Með bættum flugrekstri á Íslandi
hefur ríkið aukið skattheimtuna í
þeim geira og hefur meira að segja
komið til umræðu að leggja komu-
gjöld á farþega sem koma til
landsins. Aðilar frá flugrekstrinum
báðust undan meiri skatti á fund-
inum og varð Björgólfi Jóhanns-
syni einnig tíðrætt um kolefn-
isgjaldið sem þeir þurfa að greiða
og taldi að Íslendingar hefðu átt
að biðja um undanþágu
frá þessum út-
gjöldum. Stein-
grímur J. Sigfússon,
fyrrverandi fjár-
málaráðherra, afsak-
aði aukna skatt-
heimtu með því að
aukinn flaumur
ferðamanna ylli
líka útgjöldum fyrir ríkið. Hann
benti einnig á að ríkið hefði ekki
bara tekið heldur einnig gefið og
minnti á auglýsingaherferðina
Inspired by Iceland og tók Björg-
ólfur undir það með orðunum: „Já,
ég held að þið hafið fengið þá fjár-
festingu margfalt til baka.“
Svo vitnað sé til hins gamla en
magnaða ævintýris Loftleiða þá
fóru þeir á sínum tíma með 15 þús-
und dollara til að kynna Loftleiðir
og Ísland í einu tilteknu ríki
Bandaríkjanna, Wisconsin. Það var
talið að sú herferð hefði skilað fé-
laginu hið minnsta 20 þúsund doll-
urum. Inspired by Iceland herferð-
in hefur örugglega hjálpað til við
þá aukningu ferðamanna sem orð-
ið hefur, þótt Eyjafjallajökull eigi
kannski skilið mesta hrósið.
Ríkið bæði gefur og tekur
SKATTHEIMTAN
Björgólfur
Jóhannsson