Morgunblaðið - 24.02.2012, Side 23

Morgunblaðið - 24.02.2012, Side 23
23 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2012 Annríki í höfninni Sjávarútvegur er mikilvæg atvinnugrein í Reykjavíkurborg og ófá skipin fá þar þjónustu. Þessi verklagni og einbeitti maður dyttaði að togara í Reykjavíkurhöfn í gær. Árni Sæberg Fyrir nokkru tók gildi ný byggingarreglugerð sem „gildir um öll mannvirki sem reist eru á landi, ofan jarðar eða neðan, inn- an landhelginnar og efnahags- lögsögunnar“ með nokkrum und- antekningum þó. Þetta er töluvert ritverk sem telur nú 178 blaðsíður, en byggingarreglu- gerð frá 1998 komst fyrir á ein- ungis 94 blaðsíðum. Hér er líka um alvörumál að ræða því „brot á reglugerð þessari varða sektum eða fangelsi allt að tveimur árum nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðr- um lögum.“ Nú hefði mátt ætla að þessi nýja bygging- arreglugerð tæki fullt tillit til íslensks raun- veruleika og íslenskra rannsókna sem hafa farið fram undanfarin ár en fjallaði ekki ein- göngu um nýjar kvaðir á hönnuði og bygging- araðila, aukinn kostnað og samþjöppun valds í Mannvirkjastofnun. Þessi orð eru ekki sett á blað til þess að gagnrýna reglugerðina í heild, þótt hún beri það með sér að hafa verið um- talsverð fljótaskrift, heldur einungis að fjalla um áhrif hennar á hönnun lítilla íbúða sem venjulegt fátækt fólk á Íslandi gæti hugs- anlega látið sig dreyma um að geta einhvern- tíma eignast. Í marga áratugi hafa ýmis ákvæði íslenskr- ar byggingarreglugerðar verið gagnrýnd, sem hafa komið í veg fyrir hönnun og smíði lítilla, hagkvæmra íbúða sem henta vel t.d. bæði ungu fólki og öldruðum; þeim sem vilja ekki hafa mikið umhendis og fara með peningana sína og lífið í eitthvað annað en steinsteypu. Þessi ákvæði lúta t.d. að lágmarksstærð á geymslu, þvottahúsi, baðherbergi, svölum og eldhúsi og virðast ekki taka mikið mið af tækniframförum síðustu 100 ára eða breyt- ingum á lifnaðarháttum fólks, matartilbúningi og fjölskyldustærð. í íbúðum sem eru stærri en 55 m2, þarf þannig að vera a.m.k. 7 m2 stórt eldhús. Í þannig íbúðum þarf líka að vera eitt 14 m2 svefnherbergi auk stofu a.m.k. 18 m2 að stærð. Í íbúðum sem eru stærri en 110 m2 þarf líka að vera sérstök snyrting, auk baðher- bergis, sem rúmar handlaug og salerni. Þvottaherbergi verður að fylgja öllum íbúðum og skal lágmarksstærð þess, innan íbúðar vera 1,8 m x 1,8 m, en a.m.k. 5 m2 ef íbúðin er hönn- uð á „grundvelli algildrar hönnunar“. Sér- geymsla skal fylgja öllum íbúðum og skal lág- marksstærð hennar vera 2,5 m2 í íbúðum sem eru minni en 45 m2 og a.m.k. 7 m2 í íbúðum sem eru 70 m2 og stærri. Geymsla má ekki vera sameiginleg þvottaherbergi og í fjölbýlis- húsum skal 2 m2 sameiginleg geymsla að auki fylgja hverri íbúð. Svalir skulu vera a.m.k. 4 m2 að stærð og ekki mjórri en 1,60 m. Einnig er nú skylt að hanna allar íbúðir á 1. hæð á „grundvelli algildrar hönnunar“ þannig að þær henti m.a. fyrir hreyfihamlaða. Allt eru þetta ákvæði sem hafa umtalsverð áhrif á mögulega gerð og byggingarkostnað nýrra íbúða. Nú er það kannski skiljanlegt að fólk, sem er í vinnu hjá okkur hinum í op- inberum stofnunum og ráðu- neytum og fær launin sín reglu- lega um hver mánaðamót, hafi ekki miklar áhyggjur af þeim reglugerðum sem það setur byggingariðnaðinum til þess að fara eftir. Við sem hins vegar höfum atvinnu af því að hanna og byggja íbúðir þurfum að geta bú- ið til íbúðir sem fólk bæði hefur efni á og vill kaupa. Annars fáum við engin laun og fólk ekki þær íbúðir sem það vill og hefur efni á. Margar rannsóknir eru til sem sýna fram á að hægt sé að hanna mjög góðar litlar, ódýrar íbúðir án þess að dregið sé úr tæknilegum kröfum eða að þær séu á nokkurn hátt heilsu- spillandi enda hafa átt sér stað miklar framfar- ir á mörgum sviðum íbúðarbygginga und- anfarin ár. Þvottavélar eru t.d. í dag orðnar mjög fullkomnar og ekkert að því að þær séu nálægt eldunarsvæði eins og uppþvottavélar. Svokallaðar „franskar svalir“ hafa dugað vel víða um heim og við hljótum að kalla eftir ís- lenskri rannsókn á notkun svala hér á landi ef á að krefjast a.m.k. 1,60 m breiðra svala á öllum íbúðum. Auðvitað eiga hönnuðir og fólk líka að ráða því sjálft hvar og hvernig geymslurými er háttað. Í febrúar 2004 skiluðu Batteríið og VSO- ráðgjöf ágætri skýrslu til Íbúðalánasjóðs sem bar heitið „Félagslegar leiguíbúðir – lækkun byggingarkostnaðar.“ Í þessari skýrslu eru mismunandi kröfur Norðurlandanna til íbúða m.a. bornar saman, enda eru þær talsvert mis- munandi. Ein niðurstaða höfunda skýrslunnar var sú að það væri „tímabært að ákvæði bygg- ingarreglugerðar um lágmarksstærðir rýma væru lagðar af en í stað þess kæmi skilgreining á þeirri starfsemi og búnaði sem í viðkomandi rými ætti að rúmast.“ Einn höfunda skýrsl- unnar, Jón Ólafur Ólafsson arkitekt, sem var verkefnisstjóri, lét þess líka getið í viðtali að minnka mætti íbúðastærð hér á landi um 11- 19% án þess að minnka kröfur um þægindi eða notagildi, ef stærðarkröfum bygging- arreglugerðarinnar væri breytt. Ekkert virðist samt hafa verið tekið tillit til þessara ábend- inga við ofangreinda endurskoðun. Nú er það mikið alvörumál ef fólkið í op- inbera geiranum er að koma í veg fyrir að hér sé hægt að byggja ódýrar, hagkvæmar íbúðir á sama tíma og margir sjá ekki fram á að geta nokkurn tíma eignast eigin íbúð. Í öllu falli finnst mér það skulda okkur hinum einhverja skýringu. Eftir Gest Ólafsson » Íslenskur byggingariðn- aður þarf að geta fram- leitt þær íbúðir sem fólk vill kaupa og hefur efni á. Gestur Ólafsson Höfundur er sjálfstætt starfandi arkitekt og skipulagsfræðingur. Hagkvæmar íbúðir fyrir venjulega Íslendinga Viðræður um aðild Íslands að ESB hafa nú staðið hátt á annað ár en aðildarumsókn var lögð inn um miðjan júlí 2009. Viðræðunum er skipt í 33 kafla. Alls hafa verið opnaðir 11 kaflar og þar af er samningum lokið um 8 þeirra og þeim því lokað tímabundið. Í hin- um þremur hefur ESB sett fram skilyrði fyrir lúkningu viðræðna. Þessir kaflar eiga það sameig- inlegt að efni þeirra fellur undir EES-samninginn. Til viðbótar eru 10 kaflar sem falla undir EES en þeir eru allir enn í óvissu ásamt öðrum samn- ingsköflum sem eftir standa. ESB er búið að senda frá sér rýniskýrslur [1] um 11 kafla til viðbótar þeim 11 sem viðræður eru hafnar um. Í þeim hópi er að finna þá kafla sem flest helstu hagsmunamál Bændasamtaka Íslands falla undir. Í tveimur þessara kafla hafa verið sett skilyrði af hálfu ESB fyrir því að hefja samningaviðræður; í landbúnaði og byggða- málum. Af öðrum mikilvægum málaflokkum sem viðræður eru ekki hafnar um má nefna matvælaöryggi, sem dýraheilbrigði fellur undir, umhverfismál, tollamál, sjávarútvegsmál og fjármálaþjónustu. Fyrir tvo þá síðasttöldu er enn ekki komin rýniskýrsla frá ESB. Í Morgunblaðinu þann 21. febrúar sl. segir Stefán Haukur Jóhannesson, formaður íslensku samninganefndarinnar, að ekki liggi fyrir hve- nær erfiðu kaflarnir í samningaviðræðunum verða opnaðir. Hann vonast þar til að fimm kafl- ar verði opnaðir á ríkjaráðstefnu í lok mars en ekki er tilgreint hvaða kafla þar er um að ræða. Orðrétt segir síðan: „Við höfum lagt á það áherslu að opna þessa svokölluðu erfiðu kafla eins fljótt og auðið er en Evrópusambandið hef- ur sitt verklag“. Íslensk stjórnvöld hafa lengi verið óspör á yf- irlýsingar um að erfiðu kaflana þurfi að opna sem fyrst. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráð- herra og Össur Skarphéðinsson utanrík- isráðherra lögðu t.d. hart að dönskum jafn- aðarmönnum þegar þeir mynduðu ríkisstjórn í Danmörku að þeir opnuðu alla viðræðukafla gagnvart Íslandi á meðan þeir gegna for- mennsku innan ESB fyrstu sex mánuði ársins 2012. Loksins nú eru forystumenn viðræðnanna af Íslands hálfu hins vegar farnir að viðurkenna að ESB viðhefur sitt verklag og að viðræðuferlið lúti lögmálum þess, ekki Íslands. Allt tal um að „kíkja í pakkann“ og sjá hvað stendur til boða er sannarlega blekking. Heimavinnu Íslendinga vegna opnunarskilyrða í landbúnaðar- og byggðamálum er ólokið og ekkert hefur frést af undirbúningi samningsmarkmiða fyrir við- ræður um landbúnað. ESB vill heldur ekki ræða sjávarútvegsmál fyrr en það hefur lokið sinni heimavinnu, en endurskoðun sjávarútvegsstefn- unnar stendur þar yfir. Það hefur því reynst enn ein blekkingin að Ísland fengi aðild að endur- skoðun hennar með því að sækja um aðild að ESB eins og haldið var fram á fyrri stigum. Opið og lýðræðislegt ferli? Í upphafi aðildarviðræðnanna var af hálfu stjórnvalda ítrekað rætt um nauðsyn þess að ferlið væri opið og fulltrúar hags- munaaðila ættu breiða aðkomu að því. Þegar frá líður er ekki laust við að þetta sé farið að taka á sig aðra mynd. Einn fundur hefur sem dæmi verið haldinn í samn- ingahópi um landbúnað síðan ESB kynnti opnunarskilyrði sín þann 5. september í fyrra. Stjórnvöld reyndu enn að klóra í bakkann með því að setja á fót samráðshóp undir forystu Salvarar Nordal. Leitað var eftir tilnefningum ýmissa hags- munaaðila til þess starfs. Nú hefur komið fram að tilnefningum hagsmunaaðila var hafnað. Á sama hátt skipaði utanríkisráðherra 6 manns í samstarfsnefnd sem af hálfu ESB er skipuð fulltrúum hagsmuna- og félagasamtaka í Evr- ópu. Samráðsnefndinni er ætlað ráðgefandi hlutverk í viðræðunum. Þrátt fyrir þá miklu hagsmuni sem eru undir fyrir sjávarútveg og að 40% af fjárlögum ESB renna til landbúnaðar er enginn fulltrúi þessara aðila í nefndinni og ekki var leitað til samtaka þessara atvinnuvega við tilnefninguna. Þá heyrir til algerra undantekninga að efni sem kemur frá ESB tengt viðræðunum sé þýtt á íslensku. Hvernig á almenningur að geta sett sig inn í flókið ferli þegar stærstur hluti þeirra gagna sem ESB leggur fram er aðeins til á ensku? Hvað er framundan? Það er sífellt að koma betur í ljós að ESB fylgir ákveðnu verklagi í viðræðunum við Ís- land, verklagi sem er þekkt úr fyrri stækk- unarviðræðum. Í framvinduskýrslu ESB frá síðastliðnu hausti [2] er víða minnst á að Ísland hafi ekki innleitt löggjöf ESB á tilteknum svið- um. Dæmið um stöðuna í viðræðunum nú varð- andi sjávarútveg sýnir hins vegar glöggt að Ís- land á ekki að vera gerandi í að móta löggjöf ESB í þessum viðræðum, slíkt hefur aldrei staðið til. [1]Skýrsla sem felur í sér greiningu ESB á mun á löggjöf ESB og Íslands í einstökum málaflokkum. [2]http://ec.europa.eu/enlargement/pdf/key_docu- ments/2011/package/is_rapport_2011_en.pdf Eftir Ernu Bjarnadóttur » Forystumenn viðræðnanna af Íslands hálfu viðurkenna að ESB viðhafi sitt verklag og viðræðuferlið lúti lögmálum þess, ekki Íslands. Erna Bjarnadóttir Höfundur er hagfræðingur Bændasamtaka Íslands. Er sannleikurinn um ESB-aðildarviðræðurn- ar að koma í ljós?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.