Morgunblaðið - 24.02.2012, Page 29

Morgunblaðið - 24.02.2012, Page 29
MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2012 ✝ Ólafur Odd-geirsson fædd- ist að Eyvindarholti 2. október 1929. Hann lést á heimili sínu, Stapaseli 13, Reykjavík, 15. febr- úar 2012. For- eldrar hans voru Oddgeir Ólafsson, f. 24.5. 1891, d. 31.10. 1977 og Þór- unn Einarsdóttir, f. 24.10. 1889, d. 11.12. 1968. Bræður Ólafs eru Einar Odd- geirsson, f. 20.6. 1924, d. 21.8. 1997, Símon Oddgeirsson, f. 5.4. 1926, d. 25.6. 1927 og Símon Oddgeirsson, f. 2.12. 1927. Ólafur kvæntist 4. ágúst 1957 eftirlifandi eiginkonu sinni Dóru Ingvarsdóttur, f. 30.10. 1936. Foreldrar hennar voru Ingvar Þórðarson, f. 4.10. 1907, d. 27.12. 1998 og Ingibjörg Svava Helgadóttir, f. 31.12. 1912, d. 31.5. 2004. Dóttir Ólafs er Þórunn Ólafsdóttir, f. 20.1. 1964. Hún er gift Marteini Sig- urðssyni, f. 18.3.1966. Börn þeirra eru Berglind Marteins- dóttir, f. 26.6. 1986 og Ólafur Marteinsson, f. 6.8. 1989. Ólafur ólst upp að Eyvind- arholti, Vestur-Eyjafjöllum, og vann þar við al- menn sveitastörf og fór á vertíð til Vest- mannaeyja. Árið 1954 fluttist hann að Dalsseli, Vestur- Eyjafjöllum, ásamt fjölskyldu sinni. Hann keypti ásamt bræðrum sínum vörubíl og vann meðal annars við gerð varnargarða Markarfljóts og Þverár. Eftir að Ólafur kvæntist Dóru fluttu þau til Reykjavíkur þar sem þau bjuggu alla sína búskapartíð. Hann vann hjá Mjólkursamsöl- unni í Reykjavík og Stræt- isvögnum Reykjavíkur. Frá árinu 1966 stundaði hann leigu- bílaaktstur hjá BSR og síðar hjá Hreyfli. Ólafur var mjög virkur í félagsmálum leigubílsjóra og var meðal annars í stjórn Bif- reiðastjórafélagsins Frama. Ólafur var mjög músíkalskur og lék á orgel, harmóniku og píanó. Hann söng í kirkjukór Stóra- Dalssóknar, kór Rangæing- afélagsins í Reykjavík og Karla- kór sama félags. Útför Ólafs fer fram frá Selja- kirkju í dag, 24. febrúar 2012, og hefst athöfnin kl. 11. Oft er sagt að maður velji sér vini en ekki fjölskyldu. Eitt er víst að ég hefði ekki valið betur þó að ég hefði mátt ráða. Pabbi var mín stoð og stytta í gegnum öll árin. Það eru ótal minningar sem koma upp í hugann þegar ég horfi til baka. Þegar ég var barn vorum við pabbi mikið saman. Hann sá um mig alla morgna meðan mamma vann. Ég man vel eftir því hversu umhyggjusamur pabbi var þeg- ar ég var veik en það kom í hans hlut að vera heima hjá mér á þeim stundum. Kannski fór honum það svona vel úr hendi þar sem hann þekkti of vel af eigin raun að vera veikur. Pabbi var einskaklega mikið snyrtimenni. Hann lagði metn- að sinn í að halda öllu snyrti- legu í kringum sig og alla hans leigubílstjóratíð vann hann í jakkafötum með hálsbindi og leigubíllinn fór aldrei skítugur inn í skúr. Bestu ár pabba voru árin sem hann og mamma ákváðu að byggja Stapaselið. Pabbi var þá handlangari á daginn en keyrði leigubílinn á kvöldin og um helgar en mamma sá um fjár- málin. Hann lagði metnað sinn í þessa framkvæmd en oft leið pabba best þegar eitthvað var verið að framkvæma. Þetta var góður tími, hann var nokkuð heilsuhraustur enda tók það ekki nema þrettán mánuði að reisa húsið í kapphlaupi við verðbólguna og tímann. Þegar ég og Matti standsett- um íbúðina á jarðhæðinni í Stapaselinu var pabbi ráðgjafi okkar í framkvæmdum. Það hefur verið okkur mikill stuðn- ingur í gegnum lífið að hafa for- eldra mína við hlið okkar, sér- staklega þegar börnin voru lítil. Pabbi var stór hluti af lífi barnanna minna. Þegar ég ákvað að fara í nám í Kenn- araháskólanum fór hann aftur í sitt gamla hlutverk og tók á móti Berglindi og Óla þegar þau voru búin í skólanum. Ég hefði aldrei klárað þetta nám nema með hans hjálp. Þannig var það alla tíð, alltaf var hægt að hlaupa upp á efri hæðina eft- ir ráðlegginum eða öðru sem með þurfti og hann var alltaf tilbúinn til aðstoðar. Pabbi var mjög músíkalskur, söng og hafði gaman af því að spila á orgel og harmóniku. Hann og mamma tóku á móti Karlakór Rangæingafélagsins í Stapaselinu einu sinni í viku í nokkra vetur og þá hljómaði söngur um allt næsta nágrenni. Pabbi naut þess að taka vel á móti fólki og þetta voru ánægjulegar stundir í lífi hans. Foreldrar mínir eiga hús á Hvolsvelli og hafa þau dvalið þar öðru hverju eftir því sem heilsan leyfði. Þegar þau voru þar fengu þau heimsóknir frændfólks og vina sem pabbi mat mjög mikils, en pabbi var með eindæmum gestrisinn. Síðustu ár pabba einkennd- ust af veikindum hans en mamma var alltaf hans stoð og stytta. Pabbi var þakklátur öllu því góða fólki hjá heimahlynn- ingunni og líknardeild Land- spítalans á Landakoti sem að- stoðaði hann í veikindum hans og taldi hann það forréttindi að hafa notið aðstoðar þeirra og talaði oft fallega um það. Ég kveð pabba minn með miklum söknuði og í þeirri vissu að nú sé þjáningum hans lokið. Við höfum misst mikið en efst í huga mér er þakklæti í hans garð fyrir alla umhyggjuna í gegnum tíðina. Þórunn Ólafsdóttir. Í dag verður borinn til grafar hann Óli tengdafaðir minn. Ég kynntist Óla þegar ég var 12 ára gamall og vann hjá bræðr- um hans í Dalseli. Þá vann hann sem leigubílstjóri í Reykjavík og þá sá maður strax, eins og ég átti svo eftir að kynnast síðar að hann var mikið snyrti- og prúðmenni. Ekki grunaði mig þá að okkar kynni ættu eftir að standa næstu 34 árin en þannig æxl- aðist það nú samt og allir vita af hverju það stafaði. Starfsævi Óla fór í að aka stórum sem smáum farartækjum, allt frá vörubílum að leigubílum. Óli var mikil aðdáandi Mercedes- Benz bifreiða og átti í fórum sínum viðurkenningu frá Mercedes-Benz þess efnis að hafa ekið 1.000.000 km á bílum frá þeim. Í ljóðinu „Minning um mann“ koma fyrir orðin „Börnum var hann góður“ og það átti svo sannarlega við Óla og því fengu barnabörnin hans, Berglind og Óli, að kynnast. Mér er eitt skipti minnis- stætt þegar við fórum austur á Hvolsvöll og vorum nýkomin í Gilsbakka þegar dyrabjöllunni er hringt og fyrir utan stendur lítill snáði, úr næsta húsi, í gúmmístígvélum og spyr um nafna sinn og hvort hann eigi ekki sælgæti. Þó svo að heim- sóknirnar hafi kannski snúist um nammið þá voru þetta mik- ilvægar og kærkomnar heim- sóknir fyrir Óla. Þó svo að okkar áhugamál hafi ekki legið saman þá var hann alltaf áhugasamur um það sem ég tók mér fyrir hendur og vildi fræðast um þessar dellur og alltaf voru lokaorðin hjá honum þau að ég ætti að fara varlega í þessum áhugamálum. Síðustu árin fór heilsu hans hrakandi og á stundum dvaldi hann á Líknardeild Landakots og rómaði hann þá þjónustu og umönnun sem hann fékk þar. En Óli vildi helst vera heima og lét það ekki aftra sér þó um brattan stiga væri að fara. Ég hafði orð á því að hann færi stigann létt sem fjallageit væri og ég er ekki frá því að það hafi hvatt hann til dáða í glímunni við stigann. En nú hefur Óli stigið síð- ustu glímuna. Það er mikil eft- irsjá og söknuður eftir góðum manni og ég er þakklátur Óla fyrir okkar kynni. Kveðja, Marteinn. Elsku Óli afi minn, mikið finnst mér erfitt að þurfa að kveðja þig, afa sem alltaf var til staðar fyrir mig og vildi allt fyrir mig gera. Ég er svo hepp- in að eiga svona sérstakt og ná- ið samband við ykkur ömmu, að þurfa bara að fara upp til að komast til ykkar er eitthvað sem ég mun alltaf búa að og vera þakklát fyrir. Þið veittuð mér tækifæri til að gera svo margt bæði með ykkur og seinna sjálf með ykkar stuðn- ingi. Ég á alltaf eftir að muna eftir þér fínum í blárri skyrtu og fallegt bindi við, hlutirnir áttu að vera snyrtilegir og það sást svo vel á þér og í kringum þig. Það voru forréttindi að vera barnabarnið þitt og ég sakna þín svo sárt þó að ég finni líka að þú ert ennþá hjá mér. Ég passa ömmu fyrir þig, afi minn. Þín, Berglind. Mig langar í örfáum orðum til að minnast Ólafs Oddgeirs- sonar, Óla frænda eins og hann var alltaf kallaður í fjölskyld- unni, og síðan afi Óli af mínum börnum. Fyrsta minningin mín af Óla tengist því þegar hann og Dóra voru að koma í heim- sókn til okkar á Sólheima. Þá biðum við systkinin full eftir- væntingar við stofugluggann og síðan var kallað „Dóra og Óli eru að koma“, en það var alltaf mikil gleði þegar þau komu í heimsókn. Þau hjónin umvöfðu okkur með brosi, hlýju og um- hyggju. Óli hafði gaman af ferðalög- um og fórum við stórfjölskyldan í margar fjölskylduferðir yfir sumarið. Þetta voru yndislegar ferðir þar sem margt var brall- að. Það þótti spennandi hjá okkur krökkunum að fara milli bíla og ósjaldan fékk ég að vera með Óla og Dóru, þá var mikið spáð í umhverfið, náttúruna og einnig var Óli duglegur að segja okkur sögur úr sveitinni. Sem barn þurfti ég að fara oft til Reykjavíkur vegna tann- réttinga. Kom það í hlut Óla að taka á móti mér úr rútunni og fylgja mér til læknisins. Þessar ferðir voru oft ekki auðveldar fyrir unga stúlku og því þótti mér gott að vita af Óla sem beið eftir mér og fylgdi mér til læknisins. Seinna þegar ég fór í framhaldsskóla bjó ég hjá Óla og Dóru og naut gestrisni þeirra og stuðnings. Þessa tíma minnist ég með miklu þakklæti. Mörgu skemmtilegu kynntist ég hjá þeim, en Óli var ein- staklega tónelskur og lék á harmonikku, orgel og söng í kór. Sem dæmi þá buðu þau húsið sitt einu sinni í viku til kóræfinga fyrir Rangæingakór- inn. Stofunni var breytt í tón- leikahús og kóræfingar fóru fram. Þá ómaði um allt hverfið kórsöngur og virtust nágrannar kunna því vel. Gestrisni Óla og velvilji við alla voru eftirtekt- arverð og til eftirbreytni. Ég mun aldrei gleyma hve ljúfur hann var alla tíð við afa Ingvar og ömmu Svövu. Hann var allt- af tilbúinn að aðstoða þau við alla hluti. Óli var bifreiðastjóri allt sitt líf og var virkur í bar- áttumálum fyrir sína stétt. Hann tók þátt í samningavið- ræðum varðandi kaup og kjör og önnur baráttumál. Oft rædd- um við þessi mál en Óli var mikill réttlætissinni. Óli tengdist sveitinni sinni, Dalseli og Eyjafjöllum sterkum böndum. Þegar árin færðust yf- ir og þau voru hætt að vinna voru Óli og Dóra dugleg að fara austur í sveit, dvöldu hjá Sím- oni, bróður Óla og síðar var fjárfest í húsi á Hvolsvelli. Þar naut Óli sín vel, endurnýjaði kynni við sveitunga og kynntist nýjum vinum. Elsku Óli, nú er komið að leiðarlokum. Ég þakka þér góð- ar stundir sem voru mér og fjölskyldu minni, foreldrum og systkinum dýrmætar og minn- ingarnar eru ómetanlegar. Ég votta Dóru, Þórunni, Matta, Berglindi, Óla og Símoni og öðrum aðstandendum samúð og bið ykkur öllum Guðs blessun- ar. Hrafnhildur Helgadóttir. Elsku besti vinur minn. Nú hefur algóður Guð hvatt þig til fundar við sig. Það varð mikil sorg í mínu hjarta þegar mér var tilkynnt um andlát þitt. Elsku Óli, þú varst svo góður og það var alltaf gaman að koma til ykkar Dóru. Sum kvöldin gátum við setið inni í stofu og spjallað um allt milli himins og jarðar, bæði nýja og gamla tíma, æskuminningar og skemmtileg uppátæki. Það var svo gott að ræða við þig um marga hluti og svo varstu líka svo góður sögumaður og marg- ar góðar sögur af fólki hefur þú sagt mér. Góðleiki þinn og vilji til að hjálpa öðrum var alltaf til staðar og ráðagóður varstu með eindæmum. Þú kenndir mér góðar reglur til þess að aka eft- ir í Reykjavík og aldrei mun ég gleyma fyrstu ökuferðinni með þér á Bensanum þínum. Þú ákvaðst að nú skyldi ég keyra í Reykjavík og ég man svo hvað ég var stressuð en yfirvegun þín hafði afslappandi áhrif á mig og gekk þessi ökuferð von- um framar. Margar eru minningarnar og marga hluti höfum við gert saman. Þú varst svo góður trúss þegar við Dóra fórum í langa reiðtúra og minnist ég oft ferðar okkar inn í Þórsmörk. Þegar ég hugsa til baka man ég eftir því að þú gast verið stríð- inn og orðheppinn gastu verið. Man ég þegar þú hittir afa minn við eldhúsborðið í Stóra- Dal og þú spurðir hann að því hvort hann væri sjálfstæðis- maður? Afi minn reisti sig upp og sagði skýrt: „Nei, það hef ég aldrei verið.“ Þú vissir alveg hvaða flokk hann studdi. Sjald- an sá ég þig verða hissa eða orða vant en mikið gat ég nú hlegið að orðleysi þínu þegar Berglind kom einhverju sinni upp stigann og spurði: „afi, áttu kaffi?“ Þessu áttir þú síst von á. Ég á þér og Dóru svo margt að þakka og ekki síst fyrir að standa með mér og fylgjast með mér keppa á hestum. Þú hvattir mig áfram í söngnámi og mikið þótti mér vænt um þegar þið komuð á skólatón- leika hjá mér. Þú spurðir mig líka oft hvort það væri ekki kominn tími til þess að spila smá og þá settist ég stundum við píanóið ykkar Dóru og spil- aði nokkur lög. Þú leyfðir mér aldrei að efast um sjálfa mig og varst sannur vinur þegar mig vantaði ráðleggingar eða bara vin að spjalla við. Ég veit að hún Píla á eftir að sakna þín mikið því þið voruð svo miklir vinir félagar. Elsku Dóra, Þórunn, Matti, Berglind og Óli. Ég votta ykkur mína dýpstu samúð og megi al- góður Guð vera með ykkur, styrkja og leiða. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Takk fyrir allt, Óli minn. Kær kveðja, Sigurrós Lilja. Lækkar lífdaga sól. Löng er orðin mín ferð. Fauk í faranda skjól, fegin hvíldinni verð. Guð minn, gefðu þinn frið, gleddu og blessaðu þá, sem að lögðu mér lið. Ljósið kveiktu mér hjá. (Herdís Andrésdóttir.) Það víkur sér enginn undan því kalli almættisins sem við verðum öll að hlýða. Ólafur Oddgeirsson var brott kallaður 15. febrúar 2012. Eftir langvar- andi heilsuleysi og veikindi. Þrotinn að líkamlegum kröft- um, en viljinn og hugurinn óbugaður. Minningarnar streyma fram. Vinátta okkar hjóna við þau hjónin hefur stað- ið í áratugi. Vinátta sem mynd- aðist fyrir löngu vegna tengsla okkar Dóru frá æskustöðvunum í Fljótshlíð, Rangárvallasýslu. Og þeir Ólafur og Einar Ein- arsson minn (d. 29.7. 2010) Vestur- Eyfellingar að ætt og uppruna. Ólafur var framúr- skarandi snyrtimenni, smekk- legur, umhyggjusamur, prúður og vandaður maður. Hann var farsæll í starfi sem atvinnubíl- stjóri. Bílarnir hans alltaf í topplagi, hreinir og gljáandi. Framkoma hans einkenndist af háttvísi og öryggi. Gæfa Ólafs og stóri vinningurinn í lífi hans var fjölskyldan. Dóra, eigin- kona hans, dóttirin Þórunn, Marteinn, hennar eiginmaður og sólargeislarnir þeirra Berg- lind og Ólafur. Það sýndi sig best eftir að heilsu hans hrak- aði hve þétt þau stóðu öll sam- an og umvöfðu hann umhyggju. Hann uppskar eins og hann sáði. Við Dóra höfum frá því við fluttum til Reykjavíkur verið saman í ómetanlegum vin- kvennahópi „Átthagaklúbbn- um“. Þegar við vorum í þessum samkvæmum fóru þeir stundum eitthvað saman Einar og Ólaf- ur, jafnvel austur undir Eyja- fjöll. Fór Einar Magnússon frá Hvammi stundum með þeim. Þangað þótti þeim aldrei langt að fara. Þangað höfðu þeir sterkar taugar. Fyrir tuttugu árum áttum við Dóra þess kost að vera um tíma í námi hjá Barclays Bank í London. Þá fórum við öll fjögur saman og deildum þar saman íbúð. Á hverjum degi ákváðu þeir hvert þeir skyldu fara og hvað þeir ætluðu að skoða næsta dag. Þeir notuðu tímann vel, fóru víða og sáu margt sér til fróðleiks og skemmtunar. En okkur Dóru var boðið af Barcla- ys að sjá margt meiriháttar og áhugavert, og stundum voru þeir boðnir með okkur. Þessi tími var okkur öllum einstök lífsreynsla og ánægjulegur í alla staði. Oft síðan voru rifj- aðar upp minningar frá þessum tíma. Það var alltaf notalegt að koma til þeirra á þeirra fallega heimili í Stapaseli, sem þau höfðu byggt upp frá grunni, af miklum myndarskap og smekk- vísi, og eiga með þeim góða stund. Að lokum þakka ég þeim Ólafi og Dóru fyrir órjúfandi tryggð og vináttu í öll þessi ár. Ég kveð Ólaf Oddgeirsson með þakklæti fyrir liðnar samveru- stundir og bið Guð að blessa minningu hans. Fjölskyldu hans og vinum votta ég mína dýpstu samúð og virðingu við þessi leiðarlok, í þeirri trú að þau séu þrátt fyrir allt lausn frá þraut- um. Margrét Sigurðardóttir. Látinn er góður vinur og söngfélagi Ólafur Oddgeirsson. Fyrstu minningar um vinskap við hann tengjast áhuga hans á tónlist og söng. Ég var ungur strákur, innan við fermingu og nýfluttur með foreldrum og systkinum austur í Seljalands- skóla undir Eyjafjöllum, sem þá var nýbyggður. Þar var faðir minn kennari og skólabílstjóri. Eftir að hafa ekið skólakrökk- unum heim einn daginn á þess- um fyrsta vetri okkar undir Fjöllum, kom pabbi heim með hljóðfæri sem hann hafði fengið að láni hjá Ólafi í Eyvindar- holti. Það var ítölsk harmón- ikka og glæsilegt hljóðfæri. Ég hreifst mjög af því að heyra föður minn spila á þetta und- urfagra hljóðfæri og fékk brátt að prófa það sjálfur. Við þetta kviknaði áhugi minn á harm- ónikkuspili, sem haldist hefur upp frá því. Þessar minningar koma nú aftur upp í hugann og þær bár- ust í tal milli okkar Ólafs fyrir nokkrum árum, er ég heimsótti hann og fékk að sjá og heyra í nikkunni góðu. Hann lék sjálfur ágætlega vel á harmónikku og sýndi mér aðra, þá glænýja sem hann hafði eignast. Og mig minnir að við höfum tekið lagið saman, hann á þá nýju og ég á þá gömlu. Heimsóknir á heimili Ólafs og Dóru hér í Reykjavík, sem til komu vegna áhuga þeirra á söng og tónlist, voru þó miklu fleiri. Um árabil starfaði innan Rangæingafélagsins í Reykja- vík karlakór sem ég æfði og stjórnaði. Ólafur var einn af stofnendum þessa karlakórs og öll starfsár hans fóru æfingar fram á glæsilegu heimili þeirra Ólafs og Dóru. Af einstakri ljúf- mennsku og glæsilegri gestrisni opnuðu þau hjónin heimili sitt fyrir 12-15 manna kór sem æfði þar í stofunni einu sinni í viku, flesta vetrarmánuðina. Æfingar drógust oft nokkuð fram eftir kvöldi og á hverri æfingu var gert hlé, sem einnig gat orðið drjúglangt. Þá buðu þau Dóra og Ólafur öllum hópnum til veg- legs kaffisamsætis og þar var ætíð vel veitt. Þessi æfinga- kvöld heima í stofu hjá Ólafi og Dóru urðu vettvangur ánægju- legs söngstarfs og ógleyman- legs kunningsskapar og vináttu. Við hjónin þökkum Ólafi fyr- ir margar góðar samverustund- ir við söng, hljóðfæraslátt, á vinafundum og skemmtisam- komum af ýmsum tilefnum. Dóru og fjölskyldunni sendum við innilegar samúðarkveðjur. Minningar um einstakan öðling og heiðursmann munu lengi lifa í hjarta okkar. Njáll og Svanfríður. Ólafur Oddgeirsson  Fleiri minningargreinar um Ólaf Oddgeirsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.