Morgunblaðið - 24.02.2012, Qupperneq 34
34 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2012
✝ María Jóns-dóttir fæddist
á Akureyri 26.
ágúst 1941. Hún
lést á öldr-
unarheimili Ak-
ureyrar, Hlíð, 17.
febrúar 2012.
Foreldrar henn-
ar voru hjónin Jón
Forberg Jónsson,
verkstjóri á Ak-
ureyri, f. 12.12.
1909, d. 12.2. 1990, og Helga
Stefánsdóttir húsmóðir, iðn-
verkakona og verslunarmaður,
f. 18.5. 1918, d. 28.6. 2007.
Heimili þeirra var nær alltaf á
Akureyri. María var önnur í
röð fjögurra systkina. Þau eru
Stefán Karl, f. 1938, d. 1999,
Dómhildur Rúna, f. 12.2. 1944,
Ingunn Björk, f. 26.11. 1951.
María giftist 19. janúar 1963
Birgi Aðalsteinssyni, loft-
skeytamanni og rafeinda-
og Sigríðar Evu Rafnsdóttur,
f. 16.7. 1973, eru: María Katrín
Einarsdóttir, f. 30.9. 2001, og
Einar Rafn Einarsson, f. 16.2.
2003. Birgir Karl Birgisson, f.
13.6. 1970, rafeindavirki og
sölumaður. Börn Birgis og El-
ínborgar Sigríðar Freysdóttur,
f. 30.8. 1975, eru: Arnheiður
Birgisdóttir, f. 25.5. 2004,
Auður Birgisdóttir, f. 5.5.
2007, Brimir Birgisson, f.
22.12. 2008. Sonur Elínborgar:
Ýmir Ingimarsson, f. 29.5.
1996.
María lauk gagnfræðaprófi
frá Gagnfræðaskólanum á Ak-
ureyri. Eftir að hún giftist og
eignaðist börn sá hún um
heimilið af stakri prýði sjó-
mannskonunnar. Þegar börnin
voru komin á legg fór hún út á
vinnumarkaðinn, vann m.a. hjá
Niðursuðuverksmiðjunni og
lengi hjá Brauðgerð Kristjáns
hér í bæ.
Útför Maríu verður gerð frá
Akureyrarkirkju í dag, 24.
febrúar 2012, og hefst athöfn-
in klukkan 10.30.
virkjameistara, f.
11. ágúst 1939.
Foreldrar hans
voru Aðalsteinn
Einar Einarsson,
sjómaður og vél-
stjóri, f. 5.12. 1907
í Tálknafirði, d.
1.2. 1984, og Ingi-
björg Þorsteins-
dóttir, f. 24.10.
1912, húsmóðir í
Tálknafirði, d.
26.2. 2009. María og Birgir
eignuðust þrjú börn, þau eru:
Ingibjörg Helga Birgisdóttir,
f. 14.10. 1962. Börn hennar
með Jónasi Róbertssyni, f.
12.7. 1961, eru: Róbert Þór
Jónasson, f. 10.1. 1986, versl-
unarmaður og Arnar Dofri
Jónasson, f. 23.1. 1992 nemi.
Sambýlismaður Ingibjargar er
Birgir Óli Sveinsson. Einar
Þór Birgisson, f. 8.9. 1964,
símsmíðameistari. Börn Einars
Merkilegt hvernig lífið er. Þú
ert farin, og smám saman fer ég
að skilja að við munum ekki
sjást aftur. Ég sagði við Ellu
mína eftir að þú lést að ég gæti
ekki munað neitt. Lá uppi í rúmi
og hugsaði. Ekkert. Ég var dof-
inn. Dagar liðu. Nú eru liðnir 4
dagar og minningarnar koma
hraðar en ég ræð við.
Nú rifjast upp litlir atburðir,
eins og þegar ég strunsaði út
um vaskahúsdyrnar í Norður-
byggð með kústskaft á lofti og
braut ljósakrónuna í útiljósinu.
Og þegar þú læstir búrinu, því
við vorum of dugleg í smákök-
unum. Og svo náttúrulega þeg-
ar ég fékk gat á hausinn. Það
gerðist oft. Eins og þegar ég
hljóp á snúrustaurinn í Norð-
urbyggð. Við notuðum hann oft
sem mark í okkar fótboltaleikj-
um. Þú hefur áreiðanlega verið
mjög ánægð með öll boltaförin á
þvottinum þínum. Og þegar við
Árni Þór vorum að smíða kofa
við Víðilund og ég slengdi klauf-
inni á hamrinum í hnakkann á
mér. Ég var í kuldagalla og mér
leið ekki vel og hringdi dyra-
bjöllunni hjá Ingunni systur
þinni þar sem þú varst í kaffi.
Þú komst út og þreifaðir á
hausnum á mér og hafðir
áhyggjur af hvað ég væri sveitt-
ur. Þú varst við hlið mér í hvert
skipti sem spor var tekið uppi á
sjúkrahúsi. Þú hugsaðir um mig
og okkur öll.
Fannst alltaf gott að fara
með þér og pabba í Borgarfjörð-
inn. Til Dommu systur þinnar.
Einnig fórum við þangað stund-
um bara tvö og Daddi bróðir
þinn keyrði okkur á flutninga-
bílnum. Það voru góð ferðalög.
Fengum okkur svið á leiðinni.
Og „Bigga Kalla köku“ hjá
Dommu, súkkulaðitertu sem
toppar allt. Þetta voru alvöru
„road trip“. Sakna oft Dadda
bróður þíns. Ógleymanlegt þeg-
ar við fórum til hans og Lillu
mágkonu í Skarðshlíðinni og
horfðum saman á Prúðuleikar-
ana í lit. Eru ekki mörg ljósár
síðan þetta var?
Man líka eftir þegar þú gerðir
að sárum mínum eftir að ég spil-
aði á moldarvellinum, við aðal-
völlinn, gegn Þór í sjötta flokki.
Ég skoraði 3 mörk í C-liði KA.
Leið vel, en samt illa. Grét í baði
þegar þú þreifst moldina af lær-
unum á mér. Er með ör eftir
þennan leik. Skipti yfir í Þór. Þú
hélst áfram að koma á leiki. Upp
alla flokka og kynntist mínum
vinum í fótboltanum og oft
þeirra foreldrum.
Ég var svo heppinn að fá að
vinna með þér eitt sumar í bak-
aríinu. Við vorum samt ekki á
sömu vakt. Ég var á næturvakt
og þú á dagvakt. Náði samt
nokkuð oft að vinna með fólkinu
sem þú vannst með, og stundum
með þér. Þar kom mjög greini-
lega í ljós hvernig manneskja þú
varst. Allir töluðu svo vel um þig
og þú varst svo vel liðin. Ég man
líka hvað þú lagðir mikla áherslu
á það við mig að ég stæði mig vel
í þessari vinnu sem þú útvegaðir
mér. Stundvísi, samviskusemi
og heiðarleiki eru orð sem eiga
vel við þig. Er algjörlega sann-
færður um að þú varst frábær
starfsmaður. Það sagði þitt sam-
starfsfólk.
Þegar ég hugsa til baka þá
finnst mér líf okkar allra breyt-
ast þegar þú fékkst fyrst áfall.
Þá bjó ég í Reykjavík. Þegar ég
hitti þig eftir þessi veikindi þá
fann ég mikla breytingu. Auðvit-
að breyttist þróttur þinn en
einnig frumkvæði. Hlutir sem
áður voru þér svo mikilvægir
misstu aðeins vægi. En eftir að
ég kynntist Ellu þá fannst mér
ég kynnast þér aðeins betur,
svona upp á nýtt. Enda fannst
mér þinn persónuleiki breytast
við þessi veikindi. Ég fann og
upplifði mikla gleði með þér
þegar við Ella eignuðumst okk-
ar börn. Þú elskaðir barnabörn-
in þín öll og þau veittu þér gleði.
Það er gott. Þau hefðu viljað
meiri tíma með þér. Við hefðum
öll viljað meiri tíma með þér.
Birgir Karl.
Meira: mbl.is/minningar
Nú er María systir farin í
hinsta ferðalag. Maja var fædd
og uppalin á Akureyri og bjó þar
alla sína tíð. Nú horfi ég aftur
um liðna tíð og finn fyrir sökn-
uði og tómleika. Maja og Biggi
voru mér mjög kær eftir að ég
flutti í Borgarfjörðinn. Sam-
skipti okkar voru mjög góð alla
tíð, en voru þó mest eftir að ég
fór að búa með Sigga í Borg-
arnesi og komu oft til mín á
hverju sumri, áttum við mjög
góðar stundir saman. Við Maja
töluðum saman í síma á næstum
hverjum degi síðastliðin rúm
tuttugu ár þar sem langt var á
milli okkar systra. Ferðalög
okkar voru sérstök, fórum við
margar ferðir um landið. Besta
ferðin og eftirminnilegast var
þegar við fórum um Vestfirði og
komum við í öllum þorpum þar.
Ferðin var farin á gamla mátann
með tjöld og nesti. Eftirminni-
legast er þegar við komum að
safninu á Hnjóti, Biggi hafði þar
margt að skoða, Maju þótti
stoppið vera orðið fulllangt og
hafði á orði að best væri bara að
gefa safninu Bigga þá gætum
við haldið áfram. Biggi var far-
arstjóri í þessari ferð, enda á
heimavelli. Einnig fórum við í
ferðalag um Austfirði og vorum
við þá í sumarbústöðum. Ekki
má gleyma ferðunum í Reyk-
holt, Biggi hafði gaman af að
skoða sinn gamla skóla. Þegar
ég spurði Maju er hún fór að
nálgast sextíu ára afmælið hvað
hún ætlaði að gera í tilefni dags-
ins svaraði hún þá að hún ætlaði
að fara af landi brott. Enduðum
við fjögur á afmælinu í Vest-
mannaeyjum og áttum við þar
góðan tíma og skemmtum við
okkur vel. Síðast komu þau í
Borgarnes síðastliðið sumar, var
Maja þá hress, en þrotin að
kröftum eftir hennar erfiðu
veikindi.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Elsku Biggi, Inga Helga, Ein-
ar Þór, Biggi Kalli og fjölskyld-
ur.
Guð gefi ykkur styrk í ykkar
sorgum.
Dómhildur og Sigurður
(Domma og Siggi).
María Jónsdóttir
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Gisting
AKUREYRI
Höfum til leigu ýmsar gerðir sumar-
húsa við Akureyri og á Akureyri.
Upplýsingar á www.orlofshus.is.
Leó, sími 897 5300.
Hvataferðir, fyrirtækjahittingur,
óvissuferðir, ættarmót
Frábær aðstaða fyrir alla hópa.
Líka fjölskyldur. Heitir pottar og grill.
Opið allt árið.
Minniborgir.is
Gisting á góðum stað.
Upplýsingar í síma 868 3592.
Sumarhús
Sumarhús - Gestahús
- Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla -
Endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892 3742 og 483 3693,
www.tresmidjan.is Rafvirkjun
Raflagnir, dyrasímar - S. 6630746
Bjóðum hagstætt verð í töfluskipti.
Úttekt á raflögnum í eldra húsnæði,
án endurgjalds.
Straumblik ehf.
löggilltur rafverktaki
straumblik@gmail.com
Óska eftir
Kaupi silfur
Vantar silfur til bræðslu og
endurvinnslu.
Fannar verðlaunagripir, Smiðju-
vegi 6, rauð gata, Kópavogi.
fannar@fannar.is - s. 551 6488.
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum allt gull. Kaupum silfur-
borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar-
leg viðskipti. Aðeins í verslun okk-
ar Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Skattframtöl
Skattframtal 2012
Framtalsþjónusta fyrir einstaklinga
og rekstraraðila. Mikil reynsla -
hagstætt verð.
Uppl. í síma 517-3977.
www.fob.is. netf. info@fob.is.
Bílar óskast
Bílalíf • Kletthálsi 2 • www.bilalif.is
bílasala
...í bílum erum við sterkir!
☎ 562 1717
Skráðu bílinn
þinn frítt hjá
bilalif.is
Bílaþjónusta
Bílavarahlutir
VW og Skoda varahlutir
s. 534 1045
Eigum til notaða varahluti í VW,
Skoda, Audi og Pajero frá '02. Kaup-
um bíla til niðurrifs og uppgerðar.
Bílabúið Kaplahrauni 11, s. 534 1045.
Húsviðhald
Hreinsa þakrennur
og tek að mér ýmis smærri
verkefni
Sími 847 8704,
manninn@hotmail.com
Stigateppi
Strönd ehf. Suðurlandsbraut 10,
108 Reykjavík, s. 533 5800.
www.strond.is
Kaupi gamla mynt og seðla
Kaupi gömul mynt- og seðlasöfn.
Met og geri tilboð á staðnum.
Áralöng reynsla. Kaupi einnig minnis-
peninga og orður. Gull- og silfur-
peninga. Sigurður 821 5991.
- nýr auglýsingamiðill
Ég kynntist hjónunum í Hólma-
tungu fyrst þegar ég var 14 ára.
Þau opnuðu heimili sitt og hjarta
upp á gátt fyrir náttúrubarninu
sem óskaði einskis annars en að
komast í sveit og vera í sauðburði.
Þar sem ég kunni best við útiverk-
in fékk ég að fylgja Eiríki eins og
skugginn, taka á móti lömbum,
dýfa höndunum í kar, dreifa heyi á
garðana, moka skít og svo lengi
mætti áfram telja.
Eiríkur og ég áttum margar
skemmtilegar samræður gegnum
tíðina, en hann var maður vel les-
inn. Hann svaraði ætíð öllum
spurningum mínum af greiðvikni,
þó að honum væri stundum
skemmt. „Ef þú værir rolla, Eirík-
ur, heldur þú að þú værir forystu-
rolla?“ Við spjölluðum um draum-
farir, hann kenndi mér ný orð yfir
veðurfar, hvenær fuglarnir svæfu
og það kom fyrir alveg spari að við
gáfum rollunum pínu neftóbak og
hlógum svo eins og vitleysingar við
viðbrögðum þeirra.
Eitt sinn vorum við Eiríkur í
fjárhúsunum. Ég hélt að ég hefði
fundið kettling, og rak andlitið al-
veg upp að hvæsandi kvikindinu
sem hafði falið sig milli fóðurtunna.
Svo brá mér við. Þetta var minkur
og varð uppi fótur og fit hjá okkur
Eiríki að ná honum. Minkurinn
hlaut síðan snöggan dauðdaga með
hjálp heykvíslar og snarræðis Ei-
ríks. Var honum sennilega ansi
Helgi Eiríkur
Magnússon
✝ Helgi EiríkurMagnússon
fæddist í Másseli í
Jökulsárhlíð 15.
ágúst 1928. Hann
lést í Árskógum 1,
Egilsstöðum, 10.
janúar 2012.
Eiríkur var jarð-
sunginn frá Egils-
staðakirkju 21. jan-
úar 2012.
skemmt yfir að ég
hafi rekið andlitið al-
veg framan í varginn
og sagt „kisa, kisa,
kis“ blíðum rómi,
sem og uppnám mitt
yfir þessu en ég var
smástund að ná mér
niður eftir þennan
æsispennandi elt-
ingaleik.
Þegar ég kom
fyrst í sauðburðinn,
tók ég ævi og örlög lambanna afar
nærri mér, en ef svo bar undir beið
mín ætíð hlýr faðmur Gunnþór-
unnar. Ég komst ekki upp með
annað en að vera föðmuð og gráta
fögrum tárum á öxl hennar. Gunn-
þórunn elskaði að gera vel við mig,
og er hún sannur snillingur í ís-
lenskri matargerð eins og hún ger-
ist best. Það fer enginn svangur frá
Hólmatungu. Ber þar helst að
nefna frosnu lifrarkæfuna – en það
fór þannig að ég hringdi í útvarps-
þáttinn „Toppurinn á tilverunni“,
meðan sá þáttur var og hét, og
sagði að ég teldi að heimagerða lifr-
arkæfan hennar væri toppurinn,
Gunnþórunni til mikillar gleði. Mér
eru mjög minnisstæð nokkur skipti
þegar hún var að stríða Eiríki og
við reyndum leynt og ljóst að fela
hláturinn, en það endaði oftast
þannig að við hlógum svo mikið að
við komum upp um okkur.
Gunnþórunn, Eiríkur og börn
þeirra tóku alltaf vel á móti mér og
hef ég aldrei fundið fyrir öðru en
hlýju og að ég væri velkomin í ár-
anna rás. Náttúran í Jökulsárhlíð-
inni er stórbrotin og fólkið sem
hana byggir ekki minna merkilegt.
Það eru forréttindi að fá að dvelja í
svo fögrum fjallasal og ekki síst að
vera í svo góðum félagsskap. Ég
mun ævinlega vera þakklát fyrir
kynni mín af þessu góða fólki, en
vinátta og væntumþykja hafa
myndast sem munu alltaf halda.
Það er með sorg í lund sem ég
kveð vin minn Eirík um leið og ég
votta fjölskyldu hans mína dýpstu
samúð.
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama;
en orðstír
deyr aldregi,
hveim er sér góðan getur.
(Úr Hávamálum.)
Heiðdís Anna
Þórðardóttir.
Myndir | Hafi mynd birst í til-
kynningu er hún sjálfkrafa notuð
með minningargrein nema beðið
sé um annað. Ef nota á nýja
mynd skal senda hana með æviá-
gripi í innsendikerfinu. Hafi
æviágrip þegar verið sent má
senda myndina á netfangið minn-
ing@mbl.is og gera umsjónar-
fólki minningargreina viðvart.
Minningargreinar