Morgunblaðið - 24.02.2012, Page 43

Morgunblaðið - 24.02.2012, Page 43
MENNING 43 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2012 Leikkonan Helena Bonham Carter var í vikunni heiðruð af Elísabetu II Bretadrottningu í Buckingham-höll, meðal annars fyrir leik sinn í kvik- myndinni „King’s Speech“ eða Kon- ungsræðunni eins og hún nefnist á ís- lensku. Þar lék Bonham Carter móður núverandi drottningar eftirminnilega en leikur hennar og Colins Firths, sem lék sjálfan konunginn, Georg VI, þótti með eindæmum góður. Þá þekkja yngri kynslóðir hana ef- laust úr Harry Potter-myndunum þar sem hún lék illskeyttu nornina Bella- trix Lestrange. Þegar leikkonan frétti af því að til stæði að heiðra hana sagð- ist hún vilja tileinka viðurkenninguna föður sínum Raymond, en hann dó árið 2004. „Ég veiti þessum verðlaunum við- töku til heiðurs föður mínum sem þjáðist af langvarandi fötlun. Mér er mikill heiður að því að taka við þessum verðlaunum í hans minningu,“ sagði Helena Bonham Carter eftir að hafa verið heiðruð af drottningunni. Drottningin heiðrar Helenu Bonham Carter  Athöfnin fór fram í Buckinghamhöll Heiðruð Leikonan Helena Bonham Carte ásamt drottningu Bretlands. Leikonan Jennifer Aniston sem flestir þekkja úr gamanþáttunum Friends og myndum á borð við Of- fice Space, Bruce Almighty, Along Came Polly, The Break-Up o.fl. þekktum gamanmyndum fékk núna að setja nafn sitt á gangstéttina ásamt stjörnu nýverið. Leikonan hefur verið í sviðsljósinu í minnst 20 ár en hún skaust upp á stjörnu- himininn með leik sínum í þátt- unum Friends. Hún hefur bæði unn- ið til Golden Globe og Emmy verðlauna á ferli sínum. Auk þess náði hún ásamt hinum stjörnunum í Friends að verða launahæsta sjón- varpstjarna til þessa. Aniston fær stjörnu Á stéttinni Jennifer Aniston við stjörn- una sína á Hollywood Walk of Fame. Grínistinn góðkunni Frank Car- son dó í gær, 85 ára að aldri. Carson, sem fæddist í Belfast árið 1926, fór í fyrra í aðgerð vegna magakrabbameins sem heppn- aðist vel en heilsu hans hrakaði þrátt fyrir það. Hann varð fyrst frægur fyrir skrítlur sínar og gamanleik árið 1960 þegar hann sigraði þrisvar í röð í hæfi- leikaþættinum Opportunity Knocks. Hann gegndi herþjón- ustu í þrjú ár í Mið-Austurlöndum á sjötta áratug síðustu aldar en sneri sér svo að skemmtanaiðn- aðnum eftir það. Hann var nokk- uð vinsæll uppistandari á Írlandi áður en hann reyndi fyrir sér á Englandi þar sem hann kom fram með mönnum eins og Charlie Williams, Bernard Manning, Mike Reid og Jim Bowen. Árið 1987 var Frank Carson tekinn inn í reglu heilags Greg- oríusar, af Jóhannesi Páli páfa II., fyrir góðgerðarstörf sín á Norður-Írlandi. Hann gerði grín að athöfninni, eins og öllu öðru, í gamanleiknum var honum fátt heilagt. „Páfinn kyssti mig og sagði að ég væri yndislegur mað- ur,“ lét Carson hafa eftir sér í Daily Mail. Þá sagði hann að at- höfnin hefði tekið 17 mínútur en Ronald Reagan, þá forseti Banda- ríkjanna, hefði aðeins fengið 11 mínútur með páfanum. Fjölskylda Carsons segir að hann hafi fengið tækifæri til að kveðja sína mestu aðdáendur áður en hann skildi við, það er að segja fjölskyldu sína og vini. Grínistinn Frank Car- son látinn Grínisti Frank Carson í sínu fín- asta með bros á vör að vanda.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.