Morgunblaðið - 28.02.2012, Blaðsíða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 2 8. F E B R Ú A R 2 0 1 2
Stofnað 1913 49. tölublað 100. árgangur
STÓRMEISTARA-
JAFNTEFLI Á
ÓSKARSHÁTÍÐINNI
ÞÚSUNDIR
KEPPENDA Í
SKÓLAHREYSTI
EINN ALLSHERJAR
SPENNANDI
SUÐUPUNKTUR
TÓLF SÍÐNA BLAÐAUKI TÓNLISTARVEISLA Í ÞRJÁ DAGA 34TVÆR MYNDIR SKÖRUÐU FRAM ÚR 36
Ljósmynd/Börkur
Á veiðum Faxi RE 9 á loðnumiðunum.
„Ætli við þurfum ekki þokkalegt
veður og þrjár vikur áður en loðnan
hrygnir, þá ætti þetta að hafast
þokkalega,“ sagði Vilhjálmur Vil-
hjálmsson, deildarstjóri uppsjávar-
deildar HB Granda, um loðnu-
vertíðina. Nú hafa veiðst um 400
þúsund tonn af 590 þúsund tonna
kvóta. Vilhjálmur reiknar með að
hrognataka fyrir Japansmarkað
hefjist upp úr miðri vikunni.
Loðnan er komin fyrir Reykjanes
og var mikið líf á miðunum þar í
gær. „Það er líflegt hér við Reykja-
nesið, um tugur loðnuskipa og svo
önnur fiskiskip af öllum stærðum
og gerðum með alls konar veið-
arfæri í sjó,“ sagði Sturla Ein-
arsson, skipstjóri á Guðmundi VE,
síðdegis í gær. »12
Hrognataka fyrir
Japansmarkað
hefst í þessari viku
Morgunblaðið/Ómar
Beðið eftir túr Hækkandi eldsneyt-
isverð hefur komið þungt niður.
Leigubílstjórar eru margir hverjir
að kikna undan kostnaðarhækkun-
um og þar vega þyngst verðhækk-
anir á dísilolíu og bensíni að undan-
förnu.
Þetta segir Eysteinn Georgsson,
formaður Freys, félags leigubíl-
stjóra í Reykjanesbæ. „Ástandið er
orðið mjög alvarlegt. Olían hækkar
stanslaust og við fáum engar niður-
greiðslur af neinu tagi,“ segir Ey-
steinn. „Um leið og verðið fer upp í
300 krónur er ég hættur,“ bætir
hann við og gerir fastlega ráð fyrir
að fjöldi annarra bílstjóra muni gera
slíkt hið sama. Hann segir að elds-
neytið sé ekki það eina sem hafi
hækkað, kostnaður við tryggingar
og dekkjaskipti sé einnig mjög þung-
ur.
Eysteinn segir að enginn geti í
dag endurnýjað bíl. „Það er gjör-
samlega út úr kortinu og þarf ekki
einu sinni að láta sér detta í hug að
reyna það. Bíllinn sem ég ek í dag er
kominn yfir 557 þúsund kílómetra.
Mér finnst skelfilegt að horfa upp á
að það eru komnir 15 og upp í 20 ára
gamlir bílar í þessa vinnu,“ segir Ey-
steinn. »6
Leigubílstjórar að kikna
„Um leið og verðið fer upp í 300 krónur er ég hættur“
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Orðrómur um að dýr hafi horfallið á
Mýrunum vegna harðæris passar
ekki alveg,“ sagði Skarphéðinn G.
Þórisson, hreindýrasérfræðingur á
Náttúrustofu Austurlands. Hrein-
dýr hafa haldið sig mikið á láglendi
frá Hamarsfirði og suður á Mýrar.
Frá Hvalnesi og suður úr var mikill
klaki yfir öllu í desember og janúar.
Fólk óttaðist að hreindýr hefðu fallið
mikið vegna jarðbanna. Skarphéð-
inn fór og skoðaði nokkur hræ.
„Það hafa allmörg dýr drepist
þar,“ sagði Skarphéðinn. Skoðunin
sýndi að nokkuð mörg dýr höfðu
orðið fyrir bílum. Skarphéðinn taldi
að sum þeirra hefðu slasast við
ákeyrslu en komist í burt og drepist.
Tveir dauðir tarfar voru neðan við
Flatey á Mýrum, báðir mjög full-
orðnir og horaðir. „Þeir fara með sig
á fengitímanum. Þegar þrengir að
eins og nú þá þola dýr sem eru veil
fyrir það síst og hrökkva upp af,“
sagði Skarphéðinn. Hann sagði ekki
hægt að tala um horfelli hreindýra
en segja mætti að í einhverjum til-
fellum hefðu svellalögin flýtt fyrir
dauða lélegra dýra. Þá hefðu dýrin
hangið lengi niðri í byggð und-
anfarna vetur og yrðu þá frekar fyr-
ir bílum, einkum í skammdeginu.
Skarphéðinn sagði að hreindýr
hefðu varla sést uppi á Héraði í vet-
ur. „Þau hafa lítið komið niður og
maður aðeins hitt á hópa á Jökul-
dalsheiði út undir Vopnafirði og allt
gott um þau að segja,“ sagði Skarp-
héðinn. Dýrin þar eru í mjög góðum
holdum. Hreindýrin yfirgáfu Fljóts-
dalsheiðina að mestu fyrir um tveim-
ur árum og er fátt um dýr þar. Dýrin
hafa flutt sig austar og eru mikið
inni á Öxi, inn af Skriðdal, í Breiðdal,
á Fossárfelli og í Hamarsdal.
Talsverður hreindýrafellir
Morgunblaðið/RAX
Hreindýr hafa haldið sig á láglendi á sunnanverðum Austfjörðum Klaki var
þar yfir öllu í desember og janúar Nokkuð um að dýr drepist eftir ákeyrslur bíla
Orsakir dauða dýranna
» Tæpur þriðjungur 35 dauðra
dýra í vetur drapst af ókunnri
ástæðu. Tíu drápust sannar-
lega eftir að hafa orðið fyrir bíl.
Sex drápust eftir að flækjast í
girðingum við Flatey á Mýrum.
» Tveir ellimóðir tarfar dráp-
ust eftir fengitímann. Tvö dýr
voru líklega skotin ólöglega og
eitt hrapaði.
Hreindýr Nokkur hreindýr voru að krafsa og bíta undir Hlíðarfjalli í Lóni um síðustu helgi. Kýrin fyrir miðri mynd hafði ekki augun af ljósmyndaranum.
Árið í ár er al-
veg sérstakt fyr-
ir 208 Íslendinga
en á morgun fá
þeir að halda upp
á „alvöru“ af-
mæli, hlaupárs-
daginn 29. febr-
úar.
Samkvæmt
þjóðskrá búa 208 einstaklingar á Ís-
landi sem fæddir eru þennan sér-
staka dag, sem rennur upp á fjög-
urra ára fresti til að samræma
lengd almanaksársins og árstíð-
arársins. »14
208 Íslendingar
eiga „alvöru“
afmæli á morgun
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ís-
lands, mun á næstu dögum tilkynna
hvort hann verði við áskorun um að
bjóða sig fram á ný eður ei. Hann
hafi ætlað að hætta en hljóti nú að
taka þá ákvörðun til endurmats.
„Ég geri mér hins vegar alveg
grein fyrir því að þunginn frá ykkur
og þunginn frá fólkinu í landinu er
þess eðlis að ég hef því miður ekki
haft tíma til þess að komast að
niðurstöðu um það, vegna þess að ég
virði líka vilja þjóðarinnar til þess að
þurfa að skoða þessi mál.
Þess vegna tel ég að ég hljóti fljót-
lega, síðar í þess-
ari viku eða í
næstu viku, að
gera upp við mig
endanlegan hvort
ég held við fyrri
ákvörðun – og við
í fjölskyldunni,
við Dorrit – eða
hvort ég svara því
kalli og þeim
áskorunum sem
mér voru birtar hér í dag,“ sagði for-
setinn og undirstrikaði að hann virti
vilja þjóðarinnar. »2
Forsetinn undir feld
Ólafur Ragnar
Grímsson
Hefur ekki unnist tími til ákvörðunar