Morgunblaðið - 28.02.2012, Blaðsíða 34
34 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 2012
Brúðkaupsblað
Föstudaginn 16. mars kemur út hið árlega
BrúðkaupsblaðMorgunblaðsins.
–– Meira fyrir lesendur
SÉ
R
B
LA
Ð
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16, mánudaginn 12. mars
Brúðkaupsblaðið hefur verið eitt af vinsælustu sérblöðum Morgunblaðsins
í gegnum árin og verður blaðið í ár sérstaklega glæsilegt.
Látið þetta glæsilega Brúðkaupsblað ekki framhjá ykkur fara ...
það verður stútfullt af spennandi efni.
Sigríður Hvönn Karlsdóttir
sigridurh@mbl.is
Sími: 569-1134
Brú
ðka
up
MEÐAL EFNIS:
Fatnaður fyrir brúðhjónin.
Förðun og hárgreiðsla
fyrir brúðina.
Veislumatur
Brúðkaupsferðin.
Undirbúningur fyrir
brúðkaupið.
Giftingahringir.
Brúðargjafir
Brúðarvöndurinn.
Brúðarvalsinn.
Brúðkaupsmyndir.
Veislusalir.
Veislustjórnun.
Gjafalistar.
Og margt fleira skemmtilegt
og forvitnilegt efni.
Innbyrðis andúð er
hér blönduð ást sem
gerir átökin margfalt harm-
rænni og flóknari 35
»
Í samkeppni hins alþjóðlega ferða-
tímarits Travel & Leisure um svo-
kölluð hönnunarverðlaun ritsins var
Harpa valin besta listviðburðahús
ársins (Best Performance Space).
Hópur virtra dómara velur fyrir
tímaritið þær byggingar, söfn, veit-
ingastaði, almenningsrými og hótel
sem þeir telja skara fram úr og er öll
jarðarkringlan undir í valinu. Í um-
sögn dómnefndar um tónlistar- og
ráðstefnuhúsið Hörpu er talað um
einstakt samstarf arkitekta við
myndlistarmanninn Ólaf Elíasson.
Sköpuð hafi verið bygging sem líkir
eftir risavaxinni kviksjá að kvöldlagi
og varpi hún bæði fram ljósum og
endurspegli þau með stórfenglegum
hætti. „Harpa minnir á vatn í sínu
æðsta formi – litadýrð glersins end-
urspeglar bæði ský og ís,“ segir í
umsögninni.
Hjá arkitektavefsíðunni Arch-
Daily hefur Harpa verið tilnefnd
sem ein af fimm menningarbygg-
ingum ársins. Einnig hefur bygg-
ingin verið tilnefnd til hinna bresku
Civic Trust Awards-verðlauna. Úr-
slit úr báðum þessum samkeppnum
liggja fyrir í byrjun mars.
Bók væntanleg um Hörpu
Í apríl gefur þýska listbóka-
forlagið Hetja Cantz út bók er nefn-
ist Harpa. Á 160 síðum er fjallað um
samstarf Henning Larsen arkitekta-
stofunnar í Kaupmannahöfn, arki-
tekta Batterísins hér á landi og
Ólafs Elíassonar, og er hönnunar- og
byggingarsagan rakin.
Morgunblaðið/Júlíus
Birtuspil Glerhjúpnum um Hörpu
er líkt við risavaxna kviksjá.
Valið besta
húsið fyrir
listviðburði
Harpa tilnefnd til
arkitektúrverðlauna
Ágústa Kristófersdóttir, fag-
stjóri sýninga við Þjóðminja-
safn Íslands, fjallar í dag kl.
12.05 um Hjálmar R. Bárð-
arson ljósmyndara og sýningu
á svarthvítum ljósmyndum
hans sem nú stendur yfir í
safninu. Í fyrirlestrinum verð-
ur sjónum beint að fjölbreyti-
legum viðfangsefnum Hjálm-
ars og sýn hans á bæði
hversdagslegt og frumlegt
myndefni skoðuð.
Hjálmar starfaði sem siglingamálastjóri en var
afkastamikill áhugaljósmyndari og gaf út fjölda
bóka með myndum af landi og þjóð.
Ljósmyndir
Svarthvítar
myndir Hjálmars
Ein af myndum
Hjálmars.
Leikhús listamanna stendur
fyrir þöglu kvöldi í Þjóðleik-
húskjallaranum í kvöld kl. 21.
Atriði kvöldsins verða öll þögul
og þótt þau geti verið hávær í
huga fólks munu þau öll eiga
það sameiginlegt að engin
hljóð verða leyfð. Í tilkynningu
frá skipuleggjendum kemur
fram að ekki sé gert ráð fyrir
að áhorfendur gefi frá sér nein
hljóð allt heila kvöldið. Sökum
þessa verða gerðar ráðstafanir í miðasölu og á
barnum svo ekki þurfi að nota talað mál við að
panta sér veitingar. Einnig verður stranglega
bannað að tala saman, t.d. á salernunum.
Leiklist
Kvöldið er
helgað þögninni
Þögnin er
vanmetin.
Kvikmyndasafnið sýnir Wut-
hering Heights eða Fýkur yfir
hæðir í leikstjórn William Wy-
ler í Bæjarbíói í kvöld kl. 20.
Myndin sem er frá árinu 1939
byggist á samnefndri skáldsögu
Emily Brontë. Hún var á sínum
tíma tilnefnd til átta Ósk-
arsverðlauna, m.a. sem besta
myndin og fyrir besta leikara í
aðalhlutverki, en þurfti að lúta í
lægra haldi fyrir Gone With
The Wind sem sópaði til sín helstu verðlaunum um-
rætt ár. Myndin hreppti þó Óskar fyrir bestu kvik-
myndatökuna hjá Gregg Toland sem er hvað fræg-
astur fyrir kvikmyndatöku sína í Citizen Kane.
Kvikmyndir
Fýkur yfir hæðir
í Bæjarbíói
Laurence Olivier
leikur Heathcliff.
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Við munum nýta Hörpu til fullnustu
þessa þrjá daga sem hátíðin stendur
og leika í hinum ýmsu rýmum húss-
ins, þar með taldir
allir salir sem og
anddyrið,“ segir
Sigurður Nordal,
framkvæmdastjóri
Sinfóníuhljóm-
sveitar Íslands, um
tónlistarhátíðina
Tectonics sem
hefst nk. fimmtu-
dag og stendur í
þrjá daga. Þetta er
í fyrsta sinn sem hátíðin er haldin, en
Ilan Volkov, aðalhljómsveitarstjóri SÍ
og listrænn stjórnandi hátíðarinnar,
hefur látið hafa eftir sér að ætlunin sé
að gera hátíðina að árlegum viðburði
hér eftir. Nú þegar liggur ljóst fyrir
að vorið 2013 verður hátíðin haldin
bæði í Reykjavík og í Glasgow í sam-
vinnu við BBC Scottish Symphony
Orchestra.
„Það er að mörgu leyti einstakt hjá
sinfóníuhljómsveit að fara þessa leið,
þ.e. að halda tónlistarhátíð þar sem
við köllum til tónlistarmenn úr ýms-
um geirum tónlistar, s.s. raf- og
spunageiranum,“ segir Sigurður og
tekur fram að Sinfóníuhljómsveitin
verði auðvitað í miðpunkti á hátíðinni.
„Með þessu erum við bæði að tengja
hljómsveitina inn í það nýjasta sem er
að gerast í tónlist óháð tónlist-
arstefnu og jafnframt er þetta hátíð
þar sem ný íslensk tónlist er sett inn í
alþjóðlegt samhengi. Við fáum þannig
erlenda tónlistarmenn til að koma
fram ásamt fjöldanum öllum af ís-
lenskum tónlistarmönnum, auk þess
sem við köllum til listamenn úr öðrum
listgreinum, s.s. dansi og myndlist.
Þetta verður því einn allsherjar
spennandi suðupottur,“ segir Sig-
urður, en meðal þeirra sem koma
fram á hátíðinni eru breski píanóleik-
arinn John Tilbury, ástralski gít-
arleikarinn Oren Ambarchi, hljóm-
sveitirnar Slowblow, Stilluppsteypa
og Reptilicus, Kristín Anna Valtýs-
dóttir og myndlistarmaðurinn Ragn-
ar Kjartansson.
Að sögn Sigurðar verða tvö tón-
skáld í sérstökum brennidepli á hátíð-
inni, annars vegar Bandaríkjamað-
urinn John Cage sem hefði orðið 100
ára í ár, hefði hann lifað, og hins veg-
ar Magnús Blöndal Jóhannsson sem
er einn helsti frumkvöðull íslenskrar
raftónlistar. „Þeir eru tveir af frum-
legustu tónhugsuðum seinni hluta 20.
aldar. Báðir þessir menn fóru nýjar
leiðir í sinni tónlist og tengdu tónlist
sína öðrum listgreinum, m.a. mynd-
list og heimspeki. Þetta er tónlist sem
er enn fersk og ný og verður gaman
að heyra í samhengi við það sem er
nýjast að gerast í listum,“ segir Sig-
urður og bendir í því samhengi á að
þrennir tónleikar verða helgaðir tón-
list Magnúsar, þar af einir þar sem
tónlist hans verður sett í nýtt sam-
hengi en þá hljóma fjögur ný verk,
innblásin af tónlist hans sem pöntuð
voru sérstaklega fyrir tilefnið.
Einn allsherjar spennandi
suðupottur á Tectonics
Þriggja daga
tónlistarveisla
hefst á fimmtudag
Morgunblaðið/Eggert
Frumkvöðull Ilan Volkov aðalstjórnandi SÍ og listrænn stjórnandi Tectonics, mun stjórna SÍ á fimm tónleikum á hátíðinni.
Sigurður Nordal