Morgunblaðið - 28.02.2012, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 2012
Evrópustofa, upplýsingamiðstöð
ESB á Íslandi, efnir til opins fundar
um Evrópumál á Akureyri, miðviku-
daginn 29. febrúar, kl. 17-18 á Hótel
KEA.
Á fundinum fjalla Morten Jung,
yfirmaður Íslandsmála hjá stækk-
unarskrifstofu ESB, og Timo
Summa, sendiherra ESB á Íslandi,
um stöðu mála innan Evrópusam-
bandsins og gang aðildarviðræðna
sambandsins við Ísland. Jafnframt
kynnir framkvæmdastýra Evr-
ópustofu, Birna Þórarinsdóttir,
starfsemi upplýsingamiðstöðvar
ESB á Íslandi. Að framsögum lokn-
um verður efnt til umræðna. Erindi
Mortens Jungs og Timo Summa fara
fram á ensku. Fundurinn á Akureyri
er liður í áformum Evrópustofu að
stuðla að aukinni umræðu, þekkingu
og skilningi á eðli og starfsemi ESB,
segir í tilkynningu frá Evrópustofu.
Evrópustofa
heldur fund
á Akureyri
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn
hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæð-
inu, segir að orð sín um að tilteknir
þingmenn hafi haft áhrif á staðsetn-
ingu mótmælenda og harðan fram-
gang, hafi eingöngu átt við mótmæl-
in í miðborg Reykjavíkur 20. og 21.
janúar 2009, en þá var mikil harka í
mótmælunum. Geir Jón segir að það
hafi verið upplifun lögreglunnar að
það hafi orðið einhver hreyfing og
breyting á mótmælunum sem menn
hafi sett í samband við að einhver
skilaboð og ábendingar hafi farið á
milli. Ekki hefði verið hvatt til of-
beldis. „Það hef ég aldrei sagt,“ sagði
Geir Jón í samtali við Morgunblaðið.
Geir Jón vinnur nú að skýrslu um
mótmæli undanfarin ár, að beiðni
lögreglustjóra, og mun skila henni í
vor. Geir Jón segir að í skýrslunni
verði að finna staðreyndir um mót-
mælin, s.s. um fjölda lögreglumanna
að störfum, skipulag, hvað hafi kom-
ið upp á og umsagnir og upplifun lög-
reglumanna. „Ég er að vinna upp úr
lögreglukerfunum til að hafa þetta
allt á einum stað,“ sagði hann. Í um-
sögnum lögreglumanna liggi fyrir
ákveðnar upplýsingar um þátt þing-
manna og þar komi nöfn þeirra fram.
Hann vildi ekki segja hvort margir
þingmenn væru nefndir. Þetta væri
ekki rannsókn og enginn hefði verið
yfirheyrður.
Í Morgunblaðinu í gær sagði Geir
Jón að ljóst væri að þingmennirnir
hefðu haft áhrif „bæði á staðsetningu
mótmælenda og harðan framgang“.
Aðspurður hvað hann ætti við með
hörðum framgangi sagði Geir Jón að
þau orð vísuðu til mótmælanna 20.
og 21. janúar. Þá hefðu orðið
ákveðnar breytingar á mótmælun-
um. „Það varð hreyfing og einhver
breyting á sem menn upplifðu og
settu í samband við að einhverjar
ábendingar hefðu farið fram,“ sagði
hann. Þær hefðu lotið að því að færa
sig til á Austurvelli. Lögregla hefði á
þeim tíma ekki vitað hvað hefði farið
á milli þingmanna og mótmælenda
en upplýsingar um það hefðu síðar
komið fram, m.a. á opinberum vett-
vangi. „Það sem við héldum fyrst að
hefði verið upplifun hefur verið stað-
fest í okkar eyru,“ sagði Geir Jón,
bæði með samtölum og því sem hefði
komið fram opinberlega.
Geir Jón sagði að skýrslan væri
vinnugagn og það væri lögreglu-
stjóra að ákveða hvort hún yrði birt.
Lögreglustjóri ræður
birtingu skýrslunnar
Settu breytingar á mótmælum í samhengi við samskipti
Morgunblaðið/Golli
Vörn Lögregla átti oft undir högg
að sækja í janúar 2009.
Fallegir toppar
Str. S-XXL
Verð 9.900 kr.
Ríta Tískuverslun
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Eddufelli 2, sími 557 1730
www.rita.is
Sundbolir
Tankini
Bikini
Náttföt
Undirföt
Sloppar
YÜØ f|zâÜÄtâz
Mjóddin s. 774-7377
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
0
4
9
1
Hagsýnir heimilisbílar
Suðurlandsbraut 14 > sími 440 4400 > www.ergo.is > ergo@ergo.is
Árgerð 20052
sjálfskiptur · bensín
Árgerð 20122
beinskiptur · dísil
Sparnaður
á ári
228.240 kr.Eyðsla1 228.600 kr.
4,5 l
456.840 kr.
9,4 l
- =
24.780 kr.Bifreiðagjöld 9.460 kr.34.240 kr. - =
2.100 kgCO2 útblástur 2.380 kg
119 g/km
4.480 kg
224 g/km
- =
Kannaðu kosti grænna bílalána og reiknaðu dæmið til enda á ergo.is
1Blönduð eyðsla á hverja 100 km
2Rekstur í eitt ár á meðalstórum fólksbíl m.v. að bensínverð sé 243 kr., dísilverð 254 kr. og akstur á ári 20.000 km.
- nýr auglýsingamiðill
569-1100
finnur@mbl.is
Steingrímur
J. Sigfússon,
formaður
VG, sagði á
Alþingi í gær
að það væri
mjög alvar-
legt að halda
því fram að
einhverjir til-
teknir þing-
menn, sem
ekki væru nafngreindir, hefðu
fjarstýrt mótmælunum. Það
væri fjarstæðukennd hugmynd.
Annað og öllu alvarlegra væri ef
menn létu að því liggja að þess-
ir þingmenn hefðu reynt að hafa
áhrif á hvernig mótmælin færu
fram þannig að það gerði lög-
reglu erfiðara um vik eða stofn-
aði henni í hættu. „Ef svona
ásakanir verða uppi eða dylgjur
sem ég kýs að kalla það þá skul-
um við rannsaka það og þá líka
allt saman. Og við þurfum þá
væntanlega að rannsaka mót-
mælin sem héldu áfram og urðu
hér við þingsetningu í fyrra og
hittifyrra og hverjir tengdust
þeim,“ sagði Steingrímur m.a.
Fjarstæða og
alvarlegt mál
RANNSAKI ALLT SAMAN
Steingrímur J.
Sigfússon