Morgunblaðið - 28.02.2012, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 2012
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Leigubílstjórar eru margir hverjir
að kikna undan kostnaðarhækkun-
um og þar vega þyngst verðhækk-
anir á dísilolíu og bensíni að und-
anförnu. „Ástandið er orðið mjög
alvarlegt. Olían hækkar stanslaust
og við fáum engar niðurgreiðslur af
neinu tagi,“ segir Eysteinn
Georgsson, leigubílstjóri í Reykja-
nesbæ, í samtali við Morgunblaðið.
„Um leið og verðið fer upp í 300
krónur er ég hættur,“ bætir hann
við og gerir fastlega ráð fyrir að
fjöldi annarra bílstjóra muni gera
slíkt hið sama.
Hærri kostnaður en ekki er
svigrúm til að hækka fargjöld
Kostnaður við rekstur leigubif-
reiðar hefur hækkað gríðarlega að
sögn Eysteins og hann telur ekki
svigrúm til að hækka fargjöldin
meira en orðið er.
„Það eru á bilinu 700-800 bíl-
stjórar á landinu,“ segir Eysteinn,
sem telur lífsnauðsynlegt að ríkið
komi til móts við þessa atvinnu-
grein svo hún geti borið sig við nú-
verandi aðstæður, t.d. með því að
lækka álögur á eldsneyti eða að
leigubílar fái að kaupa litaða olíu.
Fólksflutningarútur njóti niður-
greiðslna á olíukostnaði en aldrei
hafi fengist neitt fyrir leigubíla.
„Þetta er deyjandi atvinnuvegur ef
fram heldur sem horfir,“ segir
hann.
Eysteinn sem er formaður Freys,
félags leigubílstjóra, segir að akstur
með farþega frá Leifsstöð til
Reykjavíkur hafi skipt miklu máli
fyrir leigubílana á Suðurnesjum en
hlutur þeirra í akstri flugfarþega
hafi minnkað verulega og sé kom-
inn niður í 2%. „Það eru kannski 20
til 30 bílar að berjast um þetta að
jafnaði yfir sumarið. Oft kemur það
fyrir að maður hefur ekki nema um
2.000 kall upp úr þessu á dag.“
Dýrar tryggingar
og varahlutir
Eysteinn er á dísilbíl og segir að
80 lítra tankur dugi í 6 til 7 ferðir
til Reykjavíkur. Lítraverðið er
komið yfir 260 kr., sem þýðir að
eldsneytiskostnaður er ríflega 3.000
á ferð milli Reykjavíkur og Leifs-
stöðvar.
Að sögn Eysteins er kostnaður
við tryggingar leigubíla einnig mjög
þungur. Tryggingafélögin flokki
leigubíla með bílaleigubílum, þar
sem mestu tjónin eru yfir heildina.
„Það er náttúrlega langt út úr kort-
inu því iðgjöldin hlaupa á fleiri
hundruð þúsunda fyrir einn bíl.“
Hann nefnir fleiri dæmi. Þannig
hafi t.d. kostnaður hans vegna
dekkjaskipta hækkað um 40 þúsund
á milli ára. Og varahlutaverðið sé
orðið helmingi hærra en það var
fyrir tveimur árum.
Hætta þegar verð-
ið fer í 300 krónur
Leigubílaakstur deyjandi atvinnugrein vegna olíuverðs
Morgunblaðið/Jim Smart
Taxi Eldsneytiskostnaður og annar rekstrarkostnaður leigubíla hefur rokið upp úr öllu valdi.
Sigrún Rósa Björnsdóttir
sigrunrosa@mbl.is
Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) til-
kynnti lögreglu í gær meint brot Sím-
ans og starfsmanns hans gegn fjar-
skiptalögum. „Við tilkynntum
lögreglunni að starfsmaður Símans
hefði skoðað þessi gögn. Við báðum
lögregluna líka um það, tækju þeir
mál starfsmannsins til rannsóknar að
taka þá einnig þátt Símans, sjálfs í
málinu til skoðunar,“ segir Björn
Geirsson, forstöðumaður lögfræði-
deildar PFS. Það sé hins vegar ekki
þeirra að kæra í málinu.
PFS telur Símann hafa gert sig
sekan um ámælisvert athafnaleysi og
brotið gegn fjarskiptalögum, með því
að rannsaka ekki kvörtun frá konu
um hugsanlega ólögmæta hlerun
fyrrverandi eigimanns hennar, sem
starfar hjá félaginu, fyrr en um ári
eftir að kvörtunin barst því. Einnig að
upplýsa konuna ekki um að maðurinn
hafi með ólögmætum hætti kynnt sér
upplýsingar um símnotkun hennar.
Telur PFS að Símanum hafi borið að
tilkynna lögreglu að starfsmaðurinn
hafi nýtt sér ólögmætan aðgang að
upplýsingum um símtöl fyrrverandi
konu sinnar.
Tvö aðskilin mál
Í raun hér um að ræða tvö aðskilin
mál. Annars vegar er PFS að tilkynna
viðbrögð Símans til lögreglu þ.e. at-
hafnaleysi í þeirri stöðu sem upp var
komin. Ákvörðun stofnunarinnar sem
birt var í gær sneri að skyldum fjar-
skiptafyrirtækisins. Hins vegar er um
að ræða brot starfsmannsins gegn
einkalífi konunnar og kemur fram að
Síminn segist hafa leiðbeint konunni
að leita til lögreglu vegna málsins.
Væntanlega er það konunnar sem
brotaþola að kæra ef hún vill. Síminn
hefur sent starfsmanninn í ótíma-
bundið leyfi.
Brot gegn 47. gr. fjarskiptalaga,
þar sem kveðið er á um öryggi og
þagnarskyldu geta varðað sektum
eða allt að tveggja ára fangelsi, teljist
brotin mikil eða ítrekuð.
Síminn virðist hafa túlkað beiðni
PFS og konunnar um málið þannig að
þar væri eingöngu verið að tala um
hlerun. Maðurinn hafi ekki haft að-
gang til að getað hlerað í rauntíma.
Heldur að hann hafi skoðað upplýs-
ingar um fjarskiptaumferð. Það virð-
ist þýða að hann hafi getað séð í
hverja var hringt, hvenær og hve sím-
tölin stóðu lengi. Í raun að hann virð-
ist hafa vitað allt, nema hvað henni og
fólkinu sem hún talaði við fór á milli.
PFS vísar til þessa og segir svör
fyrirtækisins hafa verið misvísandi og
til þess fallin að villa um fyrir stofn-
uninni.
Síminn viðurkennir í yfirlýsingu
sem send var í gær að fyrirtækið hafi
gert mistök. Í síðustu viku hafi fyrir-
tækið fundað með lögreglu og þar hafi
komið skýrt fram af hálfu lögreglu að
því hafi verið óheimilt að afhenda öðr-
um en lögreglu eða ákæruvaldi um-
beðnar upplýsingar.
Síminn segir málið þýða að farið
verði yfir ferla og vinnubrögð innan-
húss til að tryggja að slíkt endurtaki
sig ekki og staðinn verði vörður um
einkalíf viðskiptavina.
PFS tilkynnti
meint brot Sím-
ans til lögreglu
Skoði einnig þátt starfsmannsins
Morgunblaðið/Kristinn
Síminn Starfsmaður sendur í leyfi
vegna hlerunarmáls.
Njósnaði um fyrrverandi
» Konan sendi fyrirspurn til
Símans haustið 2008 vegna
gruns um að fyrrverandi eigin-
maður hleraði símtöl hennar.
» Eftir ítrekun barst konunni
svar ári seinna. Maðurinn hefði
ekki hlerað síma hennar. Var
henni vísað á lögreglu.
» Konan sendi PFS kvörtun
vegna svarsins í júní 2010.
» Niðurstaða PFS er að bæði
Síminn og starfsmaðurinn hafi
brotið gegn fjarskiptalögum.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Nýliðanámskeið sem Hestamanna-
félagið Fákur er að undirbúa eru
ætluð til að opna leið fyrir unglinga
inn í hestamennskuna. Unglingarnir
fá aðgang að hesti með öllum búnaði
og reiðkennara.
„Hestamennskan er dýrt sport
og reynslan sýnir að ekki eru margir
krakkar að byrja sem eru ótengdir
hestafólki,“ segir Rúnar Sigurðsson,
varaformaður Fáks, um ástæðu þess
að félagið er að hefja nýliða-
námskeið með stuðningi ÍTR.
„Markhópurinn er krakkar með
brennandi áhuga á hestum, hafa
jafnvel sótt námskeið að sumri til, en
eiga erfitt með að komast áfram.“
Nýliðanámskeiðin eru fyrir
unglinga á aldrinum 14 til 17 ára og
standa yfir í 3 til 4 mánuði. Ungling-
arnir hafa aðgang að hesti tvo daga í
viku, þannig að hver hestur nýtist
þremur krökkum. Fákur útvegar
hnakk og beisli og ungmennin hafa
aðgang að kennara í þrjá tíma á dag.
„Þetta er fyrsta skrefið, að gefa
börnunum kost á að komast inn í
hestamennskuna. Þau sem eru dug-
leg og áhugasöm geta haldið áfram
og fyrirhugað er að vera með fram-
haldsnámskeið næsta haust. Þau
geta síðan orðið að fullgildum Fáks-
mönnum með tíð og tíma, fengið
leigða aðstöðu hjá hestamanni og
jafnvel hjálpað til við hirðingu. Ég
veit að margir Fáksmenn myndu
þiggja slíka hjálp,“ segir Rúnar.
ÍTR styður Fák fjárhagslega í
þessari tilraun. Námskeiðsgjald er
15 þúsund kr. á mánuði. Frí-
stundakort ÍTR getur gengið upp í
gjaldið. Fákur á hesthús sem félagið
getur nýtt og hyggst byggja stærra
hús og skapa betri aðstöðu ef verk-
efnið þróast eins og vonir standa til.
Til samanburðar má geta þess að
það kostar nokkur hundruð þúsund
að byrja í hestamennsku og rekst-
urinn kostar tugi þúsunda á mánuði.
Hjálpa unglingum að
byrja í hestamennsku
Morgunblaðið/Ernir
Námskeið Frá barnanámskeiði á
félagssvæði Fáks í Víðidal.
Fákur heldur
nýliðanámskeið
„Ég hef
reiknað þetta
á ársgrund-
velli og þá
kemur í ljós
að eins og
ástandið er
núna þá
borgum við
ekki undir
fimm til sex
milljónum kr.
á ári að meðtöldum tryggingum
og öðrum kostnaði,“ segir Ey-
steinn Georgsson leigubílstjóri.
„Það endurnýjar enginn bíl í
dag. Það er gjörsamlega út úr
kortinu og þarf ekki einu sinni að
láta sér detta í hug að reyna það.
Bíllinn sem ég ek í dag er kominn
yfir 557 þúsund kílómetra. Mér
finnst skelfilegt að horfa upp á
að það eru komnir 15 og upp í 20
ára gamlir bílar í þessa vinnu,“
segir hann. Að sögn Eysteins
getur mánaðarreksturinn verið í
mínus ef viðbótarkostnaður
bætist við vegna viðgerða og
viðhalds á bílnum.
Kostar 5-6
milljónir á ári
REKSTURINN ÞYNGIST
Eysteinn
Georgsson
– fyrst og
fremst
ódýr!
593kr.stk.
Verð áður 790 kr. stk.
Momma matardiskur374 kr.stk.
Verð áður 499 kr. stk.
Momma sílikonsmekkur
2243kr.pk.
Verð áður 2990 kr. pk.
Momma startpakki, 4 pelar,
túttur og bursti
Momma
– fyrir þa
u yngstu!
By
593kr.stk.
Verð áður 790 kr. stk.
Momma sogrörakanna
25%afsláttur