Morgunblaðið - 28.02.2012, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 2012
Svo einkennilegasem það hljóm-
ar er það orðið
þingmönnum Sam-
fylkingarinnar sér-
stakt kappsmál að
halda uppi álögum
ríkisins á bensíni. Í
gær fóru fram um-
ræður um þessi
mál á Alþingi og
þar töluðu þrír
þingmenn Sam-
fylkingarinnar
ákaft fyrir því að
álögur á bensín
mættu alls ekki
lækka.
Að mati þing-mannanna var
sérstök röksemd í
málinu að útlit
væri fyrir að elds-
neytisverð mundi
haldast hátt um
langa framtíð og þess vegna
væri óráðlegt að lækka álög-
urnar.
Einhver mundi sjálfsagt álítaað ef útlit væri fyrir að
þetta háa heimsmarkaðsverð
héldist lengi enn væri enn frekar
ástæða til að lækka álögurnar en
ef einungis væri um stund-
arhækkun að ræða.
En ekki þingmenn Samfylk-ingarinnar sem eru heill-
aðir af þessari glæstu framtíð-
arsýn.
Og þó að álögur á lítra séuhærri en gert er ráð fyrir í
fjárlögum skiptir það ekki máli,
því í umræðunum upplýsti fjár-
málaráðherra að hún vissi ekki
við hvað væri miðað í fjárlög-
unum. Hvers vegna skyldi hún
líka vita það þó að málið hefði
verið linnulaust til umræðu frá
því hún tók við?
Oddný G.
Harðardóttir
Barist fyrir háu
bensínverði
STAKSTEINAR
Sigmundur Ernir
Rúnarsson
Mörður
Árnason
Veður víða um heim 27.2., kl. 18.00
Reykjavík 1 snjóél
Bolungarvík 0 snjóél
Akureyri 1 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. 3 skýjað
Vestmannaeyjar 3 skýjað
Nuuk -13 heiðskírt
Þórshöfn 8 þoka
Ósló 7 alskýjað
Kaupmannahöfn 2 súld
Stokkhólmur 1 heiðskírt
Helsinki -6 skýjað
Lúxemborg 7 skýjað
Brussel 7 skýjað
Dublin 11 skýjað
Glasgow 11 skýjað
London 11 léttskýjað
París 12 léttskýjað
Amsterdam 7 alskýjað
Hamborg 6 þoka
Berlín 2 skúrir
Vín 5 léttskýjað
Moskva -2 snjókoma
Algarve 15 heiðskírt
Madríd 18 heiðskírt
Barcelona 15 léttskýjað
Mallorca 17 heiðskírt
Róm 12 heiðskírt
Aþena 7 skýjað
Winnipeg -20 léttskýjað
Montreal -8 skýjað
New York 9 léttskýjað
Chicago 0 skýjað
Orlando 23 alskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
28. febrúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 8:41 18:41
ÍSAFJÖRÐUR 8:51 18:40
SIGLUFJÖRÐUR 8:35 18:23
DJÚPIVOGUR 8:12 18:09
Virðing
RéttlætiVR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Þann 1. febrúar hækkuðu laun samkvæmt kjarasamningum VR.
Almenn launahækkun er 3,5% en þeir sem fá greitt samkvæmt taxta hækka um 11.000 kr.
Þessi hækkun tekur til launa frá og með febrúar og kemur því til útborgunar 1. mars.
Munið
launahækkunina!
Jón Bjarni Þorvarðarson, bóndi á Bergi við vest-
anverðan Grundarfjörð, handsamaði á föstudag
hrakinn örn sem ekki náði að hefja sig til flugs.
Við nánari skoðun sást að hann var grútarblautur,
rétt eins og fálkinn sem náðist við Grundarfjörð
tveim dögum fyrr og dvelur nú í Húsdýragarð-
inum í Reykjavík.
Við álestur merkisins á fótum arnarins kom í
ljós að hér var á ferðinni enginn annar en fjöl-
miðlastjarnan Sigurörn, sem Sigurborg Sandra
Pétursdóttir (þá 12 ára) handsamaði á frækinn
hátt við Grundarfjörð árið 2006. Þá var örninn
bæði grútarblautur og stélbrotinn en náði skjótt
bata og var sleppt á ný. Sigurörn er nú tæplega 12
ára gamall en hann var merktur sem ungi í hreiðri
við sunnanverðan Faxaflóa. Fram kemur á vef
Náttúrustofu Vesturlands að saga hans sé all-
skrautleg og í raun einstök. Hann var handsam-
aður grútarblautur árið 2003 við Selvog, aftur
grútarblautur og jafnframt stélbrotinn árið 2006
við Grundarfjörð og nú náðist hann í þriðja sinn
grútarblautur á svipuðum slóðum. Ekki er vitað
til að hann hafi nokkru sinni parast við kvenfugl.
Sigurörn er nú kominn í Húsdýragarðinn. Þar
mun hann dvelja næstu daga og fá sápuþvott og
æti. Enga áverka var að sjá á Sigurerni og telja
sérfræðingar að hann verði fljótur að ná kröftum
á ný eftir meðhöndlun. sisi@mbl.is
Sigurörn grútarblautur í þriðja sinn
Morgunblaðið/Eggert
Þvottur Sigurörn fær rétta meðhöndlun 2006.
Eignir Lífeyrissjóðs versl-
unarmanna námu í lok síðasta árs
345,5 milljörðum króna sam-
anborið við 309,9 milljarða í lok
árs 2010.
Nafnávöxtun lífeyrissjóðsins á
árinu 2011 var 8,2% og hrein raun-
ávöxtun 2,8%.
Þetta kemur meðal annars fram
í fréttatilkynningu frá sjóðnum en
ársfundur hans fer fram á Grand
Hótel í dag.
Tryggingafræðileg staða lífeyris-
sjóða er gerð upp árlega til að
gæta þess að ákveðið jafnvægi sé á
milli eigna og réttinda sjóðfélaga.
Tryggingafræðileg staða sjóðsins í
árslok 2011 var neikvæð um 2,3%.
Fram kemur í tilkynningunni að
47.915 sjóðsfélagar hafi greitt ið-
gjöld til Lífeyrissjóðs versl-
unarmanna á árinu 2011 og að ið-
gjöldin hafi numið samtals 17.330
milljónum króna. Ennfremur hafi
10.322 lífeyrisþegar notið lífeyris-
greiðslna úr sameignardeild á síð-
asta ári að fjárhæð samtals 6.691
milljón króna samanborið við 6.370
milljónir árið 2010. Hækkunin
nemi 5%.
Séreign í árslok nam 6.570 millj-
ónum króna og lífeyrisgreiðslur úr
séreignardeild 667 milljónum
króna, samanborið við 461 milljón
króna árið 2010.
Raunávöxt-
un LV var
2,8% í fyrra