Morgunblaðið - 28.02.2012, Side 32
32 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 2012
Sudoku
Frumstig
1 5 2 6
7 5 8
2 4 6 1 8
5 1
8 4
7 5 3
4 1 6
1 3 2
8
8 6 5
4
9 8
2 8 6 1 3
5
5 9 2 6 1
1 3 4
5 3 2 6
9 4
3 5 4 6
6 7
8 5 4
7 9 3
3 7
5 1 2
4 6 9
3 2 1
4 8 9 6 3 7 5 2 1
7 2 3 4 1 5 6 8 9
1 5 6 9 8 2 4 7 3
2 7 4 8 6 9 1 3 5
3 9 8 5 2 1 7 4 6
5 6 1 7 4 3 2 9 8
8 4 2 3 5 6 9 1 7
6 1 7 2 9 8 3 5 4
9 3 5 1 7 4 8 6 2
5 9 3 2 7 4 6 1 8
2 1 8 9 6 5 4 3 7
6 4 7 8 3 1 2 5 9
4 6 2 1 5 8 7 9 3
8 3 5 7 9 2 1 4 6
1 7 9 3 4 6 8 2 5
9 2 4 5 8 7 3 6 1
3 8 1 6 2 9 5 7 4
7 5 6 4 1 3 9 8 2
5 9 7 3 2 4 8 6 1
1 4 6 8 5 9 7 2 3
3 2 8 7 6 1 4 5 9
4 1 2 9 7 6 3 8 5
6 5 9 2 8 3 1 4 7
8 7 3 1 4 5 6 9 2
7 8 4 5 1 2 9 3 6
9 6 5 4 3 7 2 1 8
2 3 1 6 9 8 5 7 4
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður
að gerast þannig að hver
níu reita lína bæði lárétt
og lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Í dag er þriðjudagur 28. febrúar,
59. dagur ársins 2012
Orð dagsins: Því að augu Drottins eru
yfir hinum réttlátu og eyru hans
hneigjast að bænum þeirra. En auglit
Drottins er gegn þeim, sem illt gjöra.
(1Pt. 3, 12.)
Áströlsk hjúkrunarkona, BronnieWare, sem hefur áralanga
reynslu af því að líkna deyjandi fólki
hefur ritað merkilega bók, „The Top
Five Regrets of the Dying“, þar sem
hún fjallar um það sem deyjandi fólk
sér mest eftir að hafa ekki gert í lífinu
meðan það hafði tækifæri til.
Efst á lista Ware er: „Ég vildi að ég
hefði haft hugrekki til að lifa lífinu
eins og ég sjálf(ur) vildi gera það,
ekki eins og aðrir ætluðust til.“ Ware
segir þetta óhemju algengt, fólk iðrist
þess gjarnan á lokaspretti lífs síns að
hafa ekki látið á drauma sína reyna.
Í öðru sæti á listanum: „Ég vildi
óska þess að ég hefði ekki unnið
svona mikið.“ Ware segir svo til
hvern einasta karlkyns sjúkling sinn
hafa talað um þetta. Margir þeirra
iðruðust þess að hafa misst af upp-
vexti barna sinna og af mikilvægum
stundum með eiginkonunni. Ware
segir konur einnig hafa nefnt þetta
atriði en í mun minna mæli enda voru
konurnar af þeirri kynslóð, sem hún
hjúkraði mest, margar hverjar aldrei
fyrirvinnur á sínum heimilum.
x x x
Íþriðja sæti á lista Ware: „Ég vildiað ég hefði haft meira hugrekki til
að tjá tilfinningar mínar.“
Ware segir marga hafa bælt til-
finningar sínar til að halda friðinn við
annað fólk. Fyrir vikið hafi þeir gert
sér meðalmennskuna að góðu og
aldrei orðið þær manneskjur sem
þeir höfðu sannarlega burði til.
Í fjórða sæti á lista Ware: „Ég vildi
óska þess að ég hefði haldið betra
sambandi við vini mína.“
Ware segir mjög algengt að fólk
sakni gamalla vina sárt á dánarbeð-
inum og þá séu þeir ýmist fallnir frá
eða erfitt að hafa uppi á þeim. Margir
iðrast þess að hafa verið of uppteknir
af eigin málum og látið vináttuna við
aðra þannig dankast.
Fimmta og síðasta atriðið: „Ég
vildi óska þess að ég hefði leyft mér
að vera hamingjusamari.“ Ware segir
marga átta sig á því á dánarbeðinum
að þeir hafi fyrir langa löngu fest í
viðjum vanans og látið þar við sitja.
Þá sé of seint að skilja að hamingja er
val. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 fjötur, 4 renn-
ingurinn, 7 ilmur, 8 askja,
9 ílát, 11 labba, 13 valda,
14 stíf,15 ró, 17 atlaga, 20
snák, 22 horaður, 23 laun,
24 dreg í efa, 25 togi.
Lóðrétt | 1 klett, 2 ókyrrðin,
3 framkvæma, 4 kná, 5 fiskur,
6 systir, 10 glyrna, 12 væn, 13
starartjörn, 15 efablendni, 16
goð, 18 spjalla, 19 benti á, 20
megni, 21 hönd.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 rótartaug, 8 unaðs, 9 næðið, 10 ann, 11 lútan, 13
aurar, 15 stagl,18 álfur, 21 ugg, 22 ráðin, 23 Óðinn, 24
makalaust.
Lóðrétt: 2 óvart, 3 ausan, 4 tunna, 5 urðar, 6 bull, 7 æður,
12 agg, 14 ull,15 særð, 16 auðna, 17 lunda, 18 ágóða, 19 fliss,
20 röng.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Sulta.
Norður
♠862
♥KG1094
♦Á64
♣D10
Vestur Austur
♠K109 ♠ÁDG754
♥6 ♥2
♦G95 ♦KD873
♣976532 ♣G
Suður
♠3
♥ÁD8753
♦102
♣ÁK84
Suður spilar 6♥.
Hrólfur Hjaltason kom aðvífandi
með rækjusamloku í annarri hendi og
diet kók í hinni. Það var matarhlé í
Valsheimilinu, þar sem Íslandsmótið í
tvímenningi fór fram um helgina: „Við
lentum í ótrúlegri sultu,“ sagði Hrólfur
formálalaust og hafði í huga snotra
hjartaslemmu, sem hann og Ásgeir Ás-
björnsson höfðu meldað eftir harða
sagnbaráttu. Austur hafði sýnt minnst
tíu spil í hörðu litunum og útspilið var
spaði upp á ás og ♦K í öðrum slag. Ás-
geir var við stýrið. Hann drap á ♦Á, af-
trompaði vörnina og spilaði vongóður
laufi á tíuna. Tveir niður.
„Sulta mótsins,“ sagði Hrólfur
svekktur og beit í samlokuna. „Hvað
gerðist á þínu borði?“
„Það sama, nema slemman var dobl-
uð.“
„Núúú – sulta ársins.“
28. febrúar 1941
Belgíska flutningaskipið Per-
sier strandaði á Dynskóga-
fjöru suðaustur af Hjörleifs-
höfða. Skipið, sem var 8200
smálestir, náðist á flot um
miðjan maí og var dregið til
Reykjavíkur. Það var tekið
upp í fjöru við Kleppsvík og
brotnaði þar í tvennt.
28. febrúar 1983
Alþingi samþykkt lög um að
„Ó, Guð vors lands!“ væri
þjóðsöngur Íslendinga og að
hann væri eign íslensku þjóð-
arinnar.
28. febrúar 1998
Stórmarkaður með raftæki
var opnaður í Kópavogi undir
nafninu Elko. Biðraðir mynd-
uðust áður en verslunin var
opnuð.
28. febrúar 2003
Vöruhótelið í Sundahöfn var
opnað. Húsið var stærra að
rúmmáli en Kringlan og meira
en fimm sinnum stærra en
Laugardalshöll. Geymslurými
var þá fyrir 21.000 vörubretti.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
Það er ómögulegt að spjalla við afmælisbarn dags-
ins, Mats Wibe Lund, án þess að enda samtalið
brosandi út að eyrum. Raunar er það Mats sem
endar samtalið því hann á alltaf síðasta orðið en
ljósmyndarinn og lífskúnstnerinn er lífsglaður
með afbrigðum og á að eigin sögn voðalega erfitt
með að halda sig á alvarlegu nótunum.
„Lífið verður miklu skemmtilegra ef maður
slær á létta strengi. Eitt sem mér finnst til dæmis
svakalega skemmtilegt er þegar fólk hringir í mig
í vitlaust númer. Þá reyni ég að stoppa það af og
spyr hvaðan það er og býð því mynd,“ segir Mats
skellihlæjandi og fullyrðir að þannig hafi honum tekist að selja nokkr-
ar myndir. „Þetta er spurning um rétta tóninn,“ segir hann íbygginn.
Mats hefur á löngum ferli tekið þúsundir loftmynda bæði af þéttbýli
og dreifbýli og er alls ekki sestur í helgan stein. „Nú vinn ég að því að
skanna inn og skrásetja en ég á myndir af nánast hverri einustu bú-
jörð á landinu og töluvert af eyðibýlum líka. Og það er ásetningur
minn að skilja eftir heimildasafn af öllum þeim stöðum á Íslandi þar
sem búið hefur verið undanfarin 200 ár eða svo,“ segir afmælisbarnið
stórtæka. holmfridur@mbl.is
Mats Wibe Lund er 75 ára í dag
Langt í frá hættur að mynda
Flóðogfjara
28. febrúar Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 3.55 1,0 10.03 3,2 16.12 1,0 22.28 3,2 8.41 18.41
Ísafjörður 6.00 0,5 12.01 1,6 18.18 0,5 8.51 18.40
Siglufjörður 2.16 1,1 8.24 0,3 14.49 1,0 20.30 0,4 8.35 18.23
Djúpivogur 1.10 0,4 7.01 1,5 13.18 0,4 19.29 1,6 8.12 18.09
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Suma daga er nauðsynlegt að muna
að vinnan snýst ekki um peninga eða við-
urkenningu heldur það góða sem má gera
öðrum. Farðu varlega í spákaupmennsku.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Sýndu þeim leyndarmálum sem þér
hefur verið trúað fyrir fyllstu virðingu og
geymdu þau hjá þér. Reyndu að vinna upp á
framtíðina.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú lætur aðgerðir annarra fara í
taugarnar á þér og þarft að hafa hugfast að
aðrir verða að ráða sínum málum.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Það gengur ekki að blanda saman
léttúð frístundarinnar og alvarleika starfsins.
Hunsaðu ekki ráðleggingar þeirra eldri.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú þarft ekki að vera með nein látalæti í
umgengni við aðra. Safnaðu síðan saman öll-
um tiltækum upplýsingum áður en þú tekur
næsta skref.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú gætir þurft að annast einhvern
annan eða láta þínar þarfir mæta afgangi
vegna þess að einhver þarf á hjálp þinni að
halda.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þú nýtur þess að vera nálægt maka þín-
um eða góðum vini í dag. Enginn er eyland og
vissulega getum við sjálf valið okkur vini.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú ættir að reyna að komast
eitthvað afsíðis og njóta kyrrðar einverunnar
um sinn. Með því ertu einfaldlega að skapa
rúm fyrir nýja hluti.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Nú ert þú tilbúinn til þess að axla
frekari ábyrgð og átt ekki að vera hikandi í því
að bjóða þig fram. Spáðu í hvernig þú gerir
það, hvernig það kemur út.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú lætur af ósið, eins og þeim að
kvarta yfir verkefnum sem aðrir fagna. Ráð-
leggingar þínar geta komið sér vel fyrir sam-
starfsmann þinn.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Veltu fyrir þér nýju sambandi,
helst með einhverjum sem er erfitt að reikna
út. En vertu þolinmóð/ur því sannleikurinn
stendur nær þér en þú heldur.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Gjafmildi þín gæti farið yfir mörkin í
dag. Sumt er bara svona og við því er ekkert
að gera nema viðurkenna staðreyndir.
Stjörnuspá
Árni Rosen-
kjær rafvirkja-
meistari er átt-
ræður í dag, 28.
febrúar. Eigin-
kona hans er
Guðríður Karls-
dóttir handa-
vinnukennari og
eiga þau fjögur börn, sjö barnabörn
og tvö barnabarnabörn. Árni fagn-
ar afmælinu með fjölskyldu sinni og
vinum.
80 ára
1. d4 d5 2. c4 e6 3. Rc3 Be7 4. Rf3 Rf6 5.
Bf4 O-O 6. e3 Rbd7 7. Be2 dxc4 8. O-O
Rb6 9. Dc2 Rh5 10. Be5 f6 11. Rg5 fxg5
12. Bxh5 Bd7 13. Bf3 Hxf3 14. gxf3 Bd6
15. De4 Bc6 16. Dg4 De7 17. Bxd6 cxd6
18. Re4 h6 19. Dg3 d5 20. Rc3 Hf8 21.
Re2 Hf5 22. Kg2 Rd7 23. Hh1 Rf8 24.
h4 Rg6 25. f4 Rxh4+ 26. Kf1 Db4 27.
Hb1 Be8 28. Rc3 De7 29. b4 Hf8 30.
Hb2 Bg6 31. Ke1 Bd3 32. fxg5 Rf3+ 33.
Kd1 hxg5 34. Dh3 Df6 35. Kc1 Bg6 36.
a4 Hd8 37. Re2 e5 38. Dg4 exd4 39.
exd4 He8 40. Dd7 c3 41. Ha2
Staðan kom upp í A-flokki Corus-
skákhátíðarinnar sem lauk fyrir
skömmu í Wijk aan Zee í Hollandi. Le-
von Aronjan (2805) hafði svart gegn
Anish Giri (2715). 41… Re1! 42. Hxe1
Df4+ 43. Kd1 hvítur hefði orðið mát
eftir 43. Rxf4 Hxe1#. 43… De4 og
hvítur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Svartur á leik.
Nýbakaðir foreldrar?
Sendið mynd af barninu til birtingar
í Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda
mynd af barninu með upplýsingum
um fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig
má senda tölvupóst á barn@mbl.is