Morgunblaðið - 28.02.2012, Síða 40
Akureyringurinn Brynjar Leó Krist-
insson gæti orðið fyrsti íslenski
skíðagöngumaðurinn til að keppa á
Ólympíuleikum í 20 ár. Brynjar hefur
tekið miklum framförum, hækkaði
sig um 900 sæti á heimslistanum á
skömmum tíma, og á dögunum
komst hann undir ólympíulágmarkið.
Hann þarf þó að ná því aftur til að
komast á ÓL í Sochi 2014. »3
Skíðagöngumaður á
næstu Ólympíuleika?
ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 59. DAGUR ÁRSINS 2012
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Matthew Perry býr í húsinu
2. Íslendingar sýndu hugrekki
3. Sýslumaður stöðvaði uppboð
4. „Starfsfólkið er alveg miður sín“
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Iceland Airwaves tilkynnti í gær tíu
fyrstu sveitirnar sem munu leika á há-
tíðinni í ár. Í erlendu deildinni eru það
Django Django, Friends, Daughter og
Exitmusic. Í íslensku deildinni eru það
Sóley, Prins Póló, Sykur, Samaris, Úlf-
ur Úlfur og The Vintage Caravan. Opn-
að hefur verið fyrir hljómsveit-
arumsóknir á nýrri heimasíðu.
Airwaves tilkynnir
fyrstu listamenn
Edda Heiðrún
Backman málar
með munninum
og hafa verkin
hennar verið í
sýningu í verslun
og veitingastofu
Þjóðmenningar-
hússins frá 1. des-
ember og vakið
mikla athygli. Öll verkin hennar seld-
ust á nokkrum dögum en nú er búið
að bæta við verkum sem hægt er að
kaupa og lýkur sýningunni á morgun,
29. febrúar. Spóinn er í aðalhlutverki
á sýningu hennar.
Síðustu sýningardag-
ar Spóans eftir Eddu
Tónleikaröðin Kaffi,
kökur & rokk & ról fer
fram í Edrúhöllinni,
Efstaleiti 7, í kvöld. Í
þetta skiptið koma Sól-
stafir fram ásamt
Stafrænum Hákoni.
Húsið verður opnað
kl. 20, það verður
talið í á slaginu
20.30 og tónleikum
lýkur fyrir kl. 22.
Sólstafir og Stafrænn
Hákon í Edrúhöllinni
Á miðvikudag og fimmtudag Suðvestan 5-13 m/s og éljagangur,
en bjart að mestu á Norðaustur- og Austurlandi. Frost yfirleitt 0 til
6 stig, en hiti 0-4 stig við suður- og vesturströndina.
VEÐUR
Ísfirðingar eru komnir aftur í
hóp þeirra bestu í körfubolta
karla en lið KFÍ hefur tryggt
sér öruggan sigur í 1. deild og
sæti í úrvalsdeildinni þó að
mótinu sé ekki lokið. „Við er-
um að byggja upp lið og vitum
að það tekur tíma. Við förum
hægt upp metorðastigann.
Það er búið að ganga vel í vet-
ur en við vitum að það verður
erfitt á næsta tímabili,“ segir
Pétur Már Sigurðsson, þjálfari
Ísfirðinga. »2
Ísfirðingar eru að
byggja upp lið
Handknattleiksmennirnir Ásgeir Örn
Hallgrímsson og Róbert Gunnarsson
flytja sig frá Þýskalandi til Frakk-
lands í sumar og leika næstu þrjú ár
með París Handball. Félagið ætlar sér
stóra hluti en gæti samt verið fallið
úr efstu deild áður en þeir félagar
koma til frönsku höf-
uðborg-
arinnar.
»1
Flytja til Frakklands en
liðið gæti verið fallið
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Margir sem komnir eru yfir miðjan
aldur eiga minningar um skemmt-
anir í veitingahúsinu Silfurtungli,
sem var starfrækt á efri hæð Austur-
bæjarbíós í Reykjavík á árunum
1955 til 1977. Ákveðið hefur verið að
opna Silfurtunglið á ný á sama stað í
lok næsta mánaðar og gefa gestum
kost á að rifja upp gamla tíma.
„Þetta verður létt og skemmtilegt,
ódýr veitingastaður í bistró-stíl með
uppákomum í leiklist og tónlist fyrir
alla,“ segir Steinn Óskar Sigurðsson,
matreiðslumaður og rekstrarstjóri
Silfurtunglsins. Til að byrja með
verður opið á kvöldin frá mið-
vikudegi til sunnudags og rými verð-
ur fyrir um 180-190 manns í sæti.
„Draumur í dós“
Kristján Þorgrímsson, afi Péturs
Péturssonar, byggði húsið, Pétur,
pabbi hans, var sýningarmaður í
bíóinu og Pétur lék sér í húsinu sem
gutti, byrjaði sem dyravörður 14 ára
og var sýningarmaður um árabil.
„Þetta er draumur í dós,“ segir hann
um fyrirhugaða opnun veitingastað-
arins. „Silfurtunglið var einn helsti
staðurinn í bænum frá því að hann
var opnaður og þar til honum var
breytt í Snorrabæ.“
Silfurtunglið var vinsæll dans-
staður um helgar og síðdegis á
sunnudögum voru þar oft unglinga-
dansleikir. Trix var lengi hljómsveit
hússins og Flowers spilaði þar iðu-
lega. Reyndar var Austurbæjarbíó
einn helsti hljómleikastaður landsins
og haft hefur verið á orði að ónefndir
skrækir hafi fyrst heyrst hérlendis,
þegar hljómsveitin Kinks hélt þar
hljómleika 1965.
Eigendur hússins vilja halda sögu
Silfurtunglsins hátt á lofti og margir
hafa brugðist við auglýsingum eftir
myndum eða hlutum sem tengjast
húsinu á umræddu 20 ára tímabili.
Steinn Óskar segir að Almar Al-
ferðsson vöruhönnuður og Jón Ingi-
berg Jónsteinsson, grafískur hönn-
uður, hafi fengið það verkefni að
hanna staðinn með sögu hans í huga.
Innréttingarnar séu í gamla stílnum,
gömul húsgögn í bland við ný hús-
gögn í gömlum stíl. Myndir af stjörn-
um, sem spiluðu í húsinu, koma til
með að prýða veggina og myndbönd
frá tónleikum í húsinu verða látin
rúlla í betri stofu. „Saga hússins
verður sýnd í máli og myndum og
endurspeglar þannig stemninguna
eins og hún var,“ segir Steinn Óskar.
Hann bætir við að reynt verði að
skapa sambærilega stemningu og
var á árum áður. Sviðið með gömlum
hljóðfærum verði til taks hvenær
sem er. „Þetta verður nokkurskonar
Food&Fun. Matarlist, leiklist og tón-
list verða allsráðandi og við ætlum að
reyna að tvinna þetta saman eins
mikið og við getum.“
Matarlist, leiklist og tónlist
Silfurtunglið
opnað í Austurbæ
eftir 37 ára hlé
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Efni Hjónin Sveinn Sveinsson og Margrét Steinunn Nielsen gáfu Silfurtunglinu myndir og úrklippur í fyrradag.
Pétur Pétursson er lengst til vinstri en hönnuðirnir Almar Alfreðsson og Jón Ingiberg Jónsteinsson eru til hægri.
Stuð Sæmundur Pálsson, Sæmi rokk, í sveiflu í Silfurtunglinu.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Gengur í suðvestan 10-15 m/s með slyddu
og síðar rigningu eða skúrum, en heldur hægari og úrkomulítið
norðaustantil. Hlýnar í bili og hiti 2 til 7 stig.