Morgunblaðið - 29.02.2012, Page 1
M I Ð V I K U D A G U R 2 9. F E B R Ú A R 2 0 1 2
Stofnað 1913 50. tölublað 100. árgangur
SLAGSMÁLA-
ATRIÐIN MJÖG
KREFJANDI
HEILLAST AF
FJÖLBREYTNI
HROSSANNA
NÝ MONA LISA
VEKUR MIKLA
ATHYGLI
ÍSLENSKI HESTURINN 10 PRADO-SAFNIÐ Í MADRID 31SVARTUR Á LEIK 32
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Til verða 120 til 200 störf við flug-
vélamálun á Keflavíkurflugvelli, ef
nýsköpunarverkefni sem unnið er að
verður að veruleika. Með áætluðum
afleiddum störfum myndi þessi
vinnustaður skapa mörg hundruð
störf á vinnumarkaði Suðurnesja.
Verkefnið er enn á undirbúnings-
stigi. Unnið er að viðskiptaáætlun og
fjármögnun.
Frumkvöðull fyrirtækisins, Hjalti
Kjartansson bílamálari, hefur lengi
gengið með þá hugmynd í maganum
að koma upp málningarverkstæði
fyrir flugvélar hér á landi. „Flug-
heimurinn stækkar ört og stöðugt
eiga sér stað breytingar. Ég tel að
mikil tækifæri felist í þessari starf-
semi,“ segir Hjalti.
Hugmyndin er að koma verkstæð-
inu upp í flugskýli 885 á Keflavík-
urflugvelli, „stóra flugskýlinu“ sem
svo er nefnt, en það er í eigu ríkisins
og hefur staðið ónotað frá því Varn-
arliðið fór. Ekki hefur verið gengið
frá samningum um notkun á hús-
næðinu.
Verkefni verða sótt til Evrópu og
Ameríku, auk þess sem fellur til inn-
anlands. Frumkvöðullinn telur að
aðdráttarafl Íslands sem ferða-
mannastaðar hjálpi verkefninu því
flugfélögin geti notað ferðina til að
koma með hópa ferðafólks.
200 störf við að mála
Frumkvöðlar undirbúa stofnun verkstæðis til að mála flugvélar í stóra flugskýl-
inu á Keflavíkurflugvelli Verkefni verða sótt á alþjóðlegan flugmarkað
MStór vinnustaður »15
Nýsköpun
» Málun á einni Boeing 757-
þotu tekur 7 til 10 daga.
» Vonir standa til að mála 80
þotur á ári.
» Ekki er krafist fagmennt-
unar og verður starfsfólkið
sótt á almennan vinnumarkað.
Sigurörn unir sér vel í Húsdýragarðinum, að sögn Tómasar Óskars Guðjóns-
sonar forstöðumanns. Hann verður þveginn á morgun og sleppt fljótlega eftir
það í Grundarfirði þar sem hann fannst grútarblautur sl. föstudag. Tómas seg-
ir að sjaldgæft sé að fá örn í garðinn og einstakt að fá sama fuglinn tvisvar.
Hann sé einstaklega spakur og fólk geti skoðað hann á meðan hann sé í garð-
inum. „Þetta er tignarlegur fugl,“ segir Tómas. Grútarblautur fálki fannst í
grennd við Grundarfjörð í vikunni sem leið og Róbert Arnar Stefánsson, for-
stöðumaður Náttúrufræðistofu Vesturlands, segir það mjög óvenjulegt að tveir
grútarblautir ránfuglar skuli finnast með svo skömmu millibili. Ekki sé vitað
um uppruna grútarins en hann tengist hugsanlega síldargengd.
Sigurörn tekur vel á móti gestum
Morgunblaðið/Ómar
„E.t.v. ekki í formlegum skiln-
ingi en a.m.k. pólitískt eru öll
þjóðþingin orðin að Evrópustofn-
unum,“ sagði Herman van
Rompuy, forseti leiðtogaráðs
Evrópusambandsins, á fundi
um efnahagsmál í Brussel í
gær. Hann sagði ástæðuna
þá að ákvarðanir á þjóð-
þingum ESB-ríkja hefðu í
vaxandi mæli þýðingu
fyrir önnur aðildarríki.
Hann sagði þessa þróun
draga úr fullveldi
ríkjanna að nokkru leyti,
að því er fram kemur á frétta-
vefnum Euobserver.com.
„Þjóðþingin halda fullveldi
sínu í ríkisfjármálum, a.m.k. á
meðan stefnumörkunin
ógnar ekki fjármála-
legum stöðugleika heild-
arinnar,“ sagði hann en
bætti við að evruríkin
yrðu að hafa samráð við
framkvæmdastjórn
ESB og önnur aðild-
arríki áður en þau tækju
stærri ákvarðanir sem
gætu haft áhrif á hin ríkin.
Van Rompuy segir þjóðþing ríkja Evrópu-
sambandsins orðin að ESB-stofnunum
Herman Van
Rompuy
Krabbameins-
félag Íslands og
Háskóli Íslands
undirbúa nú
viðamikla rann-
sókn á heilsufari
Íslendinga.
Stefnt er á að
rannsaka lífsstíl
og heilsufar allt
að hundrað þús-
und manns á næstu tíu árum. Af-
raksturinn verður svo lagður inn í
Heilsusögubanka Íslendinga.
„Við ætlum að ná tíu þúsund
manns á ári í tíu ár. Við gerum ráð
fyrir að þetta sé þjónusta sem fólk
vill gefa sér tíma í og stuðla að
aukinni þekkingu á Íslandi um
áhrifaþætti og áhættuþætti á
heilsu,“ segir Unnur Anna Valdi-
marsdóttir, dósent í faraldsfræði
við HÍ. »8
100.000 Íslend-
ingar í rannsókn
Rúmlega tvítug stúlka, sem er
ákærð fyrir að hafa orðið nýfæddu
sveinbarni sínu að bana, segist sann-
færð um að hún hafi aldrei eignast
barn. Hún skilji enn ekki hvað gerðist
daginn sem henni er gefið að sök að
hafa myrt barnið og skilið eftir í
ruslagámi.
Það er álit geðlækna sem mátu
heilsu stúlkunnar að hún sé óþroskuð
eftir aldri og hafi búið við ofverndun
foreldra sinna.
Allt bendi til þess að ekki hafi
hvarflað að stúlkunni að hún væri
barnshafandi. Fæðing barnsins hafi
líklega verið henni gríðarlegt áfall og
hugsanlegt sé að hún hafi upplifað
tímabundið hugrof á einhverjum
tímapunkti við fæðinguna. »12
Telur sig ekki
hafa fætt barn
„Ákæran nýtur ekki meirihluta-
stuðnings. Þá er gripið til þess ráðs
að finna einhverjar nýjar ástæður til
þess að láta málið halda áfram, aðrar
heldur en þá hvort menn telja að
Geir H. Haarde hafi gerst brotlegur
við lög,“ segir Bjarni Benediktsson,
formaður Sjálfstæðisflokksins, í til-
efni af þeirri niðurstöðu meirihluta
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar
að vísa beri frávísunartillögu Bjarna
í landsdómsmálinu frá.
Í nefndaráliti meirihlutans kom
fram sú skoðun að ekki væru komn-
ar fram efnis-
legar ástæður til
þess að afturkalla
ákæruna á hend-
ur Geir fyrir
landsdómi.
Til þess „að
unnt sé að aft-
urkalla ákæru
fyrir landsdómi
þurfi að liggja
fyrir efnislegar
ástæður eða efnisleg sjónarmið sem
réttlæta slíkt,“ segir þar m.a. »4
Gripið til nýrra ástæðna til
að halda máli Geirs áfram
Bjarni
Benediktsson
Gunnar Helgi Kristinsson, pró-
fessor í stjórnmálafræði, telur „að
það þurfi alveg sérstaka trúgirni“
til að fallast á þá skýringu Ólafs
Ragnars Grímssonar, forseta Ís-
lands, að undirskriftir 31.000
stuðningsmanna hans hljóti að
kalla á endurmat á þeirri ákvörðun
að láta af embætti í sumar.
Máli sínu til stuðnings bendir
Gunnar Helgi á að forsetinn hefði
getað stöðvað undirskriftasöfn-
unina í fæðingu ef hann hefði verið
ákveðinn í að hætta. „Þetta hlýtur
að vera eitthvað sem hann hefur
verið að bræða með sér.“ »14
Telur forsetann
hljóta að hafa
íhugað framboð
Áskorun Forsetinn fær afhentar undir-
skriftir á Bessastöðum í vikunni.
Morgunblaðið/Árni Sæberg