Morgunblaðið - 29.02.2012, Blaðsíða 10
Félagar í Textílfélagi Íslands opna
sýningu á opnu húsi í stóra salnum á
2. hæð á Korpúlfsstöðum laugardag-
inn næstkomandi, 3. mars.
Um er að ræða sömu sýningu og
var haldin á þremur stöðum á Lista-
sumri á Akureyri í júlí sl. í Mjólk-
urbúðinni, Ketilhúsinu og Menningar-
húsinu Hofi. Fjölbreytnin er mikil á
sýningunni og gefur góða mynd af
þeirri miklu breidd sem þráðlistir á
Íslandi spanna um þessar mundir.
Á sýningunni má sjá prjónahönn-
un, fatahönnun, veflistaverk, tau-
þrykk, þæfingu, útsaum, pappírsverk,
ljósmyndaverk, ljósahönnun og
Textílfélag Íslands
Fjölbreyttar þráðlistir
Skraut Hönnun Írisar Ólafar Sigurjónsdóttur textílhönnuðar og textílforvarðar.
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. FEBRÚAR 2012
Morgunblaðið/Kristinn
Gæði Fredrik situr hér Sorta frá Dallandi, 7 vetra stóðhest undan Víði frá Prestbakka og Lukku frá Dallandi.
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Hér eru tæplega fimmtíuhross á húsi, þar af tíugraðhestar. Svo er hlutiaf Dallandshrossunum í
Mekka hestamennskunnar norður í
Skagafirði. Á hverju vori kasta um
fimmtán merar hjá okkur,“ segir
sænski byggingarverkfræðingurinn
Fredrik Sandberg sem kýs frekar að
vinna við tamningar á Íslandi en við
verkfræðina heima í Svíþjóð. Hann
hefur frá því árið 2010 haft yfirum-
sjón með tamningum og sölu á
hrossaræktunarbúinu Dallandi í
Mosfellsbæ en það er í eigu Gunnars
Dungal og konu hans Þórdísar Öldu
Sigurðardóttur. „Dalur hestamið-
stöð, sem rekinn er í Dallandi, er
ótrúlegur staður sem býður upp á
marga möguleika og aðstaðan er öll
til fyrirmyndar. Hér líður mér vel og
ég er með þrjá af mínum eigin hest-
um hérna, en heima í Svíþjóð á ég um
tíu aðra íslenska hesta sem fjöl-
skylda mín sér um á meðan ég vinn
hér,“ segir Fredrik sem fékk kær-
ustuna sína, Fridu Dahlén, til að
flytja til sín í síðasta mánuði. „Hún er
í fullu starfi hér sem ein af því
tamningafólki sem sér um að temja
og þjálfa hrossin hér í Dallandi.“
Stóru hestarnir hentuðu ekki
Fredrik er frá Linköping í Sví-
þjóð og ólst upp á bóndabýli þar sem
foreldrar hans voru með kúabúskap.
„Mamma er mikil hestakona og við
áttum alltaf stóra sænska hesta sem
voru of stórir fyrir mig þegar ég var
Íslensku hestarnir
eiga hug hans allan
Hann hefur verið heillaður af íslenska hestinum alveg frá því hann kynntist hryss-
unni Lipurtá þegar hann var lítill strákur heima í Svíþjóð. Fredrik Sandberg er
yfirtamningamaður á ræktunarbúinu Dallandi og honum gengur vel að selja Sví-
um þennan litla hest sem hann dáist svo mjög að fyrir fjölbreytta hæfileika.
Fyrir þá sem vilja fylgjast með því
vinsælasta hverju sinni og vita hvað
helst sé að frétta úr heimi tækni,
tísku og menningar úti í hinum stóra
heimi er vert að kíkja inn á vefsíðuna
coolhunting.com. Að baki vefsíðunni
stendur hópur sem hefur það að
markmiði að veita almenningi inn-
blástur með ýmiskonar skemmti-
legum hlutum. Þarna má til að mynda
finna skondið kort eða veggspjald yf-
ir aleng nöfn rappara og öðruvísi
skartgripa- og skógerð. Fjársjóð af
skemmtilegum hugmyndum er að
finna á cool hunting vefsíðunni.
Vefsíðan www.coolhunting.com
Hjólaplanta Hvers vegna ekki að nýta reiðhjólið til að rækta plöntur?
Í flottri fjársjóðsleit
Umræðufundur um
möguleg tækifæri fyrir ís-
lenska arkitekta og hönn-
uði til að koma að verk-
efnum í Kína verður
haldinn næstkomandi
föstudag 2. mars. Á fund-
inum mun Krishan
Patroo, blaðamaður hjá
alþjóðlega hönn-
unartímaritinu Casa Int-
ernational ræða hvernig
hann metur möguleika ís-
lenskra arkitekta á sam-
starfsverkefnum í Kína.
Með Krishan í för verður Lily Yu, arkitekt og eigandi Ritzarto Architecture og
mun hún ræða við áhugasama að fundi loknum. Þá mun Sigurður Einarsson,
arkitekt hjá Batteríinu arkitektastofu, deila reynslu sinni frá Kína. Fundarstjóri
er Júlíus Hafstein, sendiherra. Að fundinum standa Íslandsstofa og Hönn-
unarmiðstöð Íslands, í samstarfi við utanríkisráðuneytið. Fundurinn fer fram í
Borgartúni 35, 6. hæð kl. 9:00-10:30. Skráning fer fram á islandsstofa-
@islandsstofa.is eða í síma 511 4000.
Endilega…
…sækið umræðufund
Hönnun Ningbo náttúrusafnið í Kína er óvenjuleg
bygging hönnuð af arkitektinum Wang Shu.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Gengislánin- tíminn er dýr í óvissu
Samtök iðnaðarins efna til morgunverðarfundar um áhrif
nýgengins dóms Hæstaréttar um gengislánin
Föstudaginn 2. mars kl. 8.30 - 10.00
Grand Hótel Reykjavík, Hvammi
Dagskrá:
Ragnar H. Hall, hæstaréttarlögmaður
Þorsteinn Einarsson, hæstaréttarlögmaður
Pallborð: Yngvi Örn Kristinsson, hagfræðingur,
Ragnar H. Hall og Þorsteinn Einarsson
Fundarstjóri er Orri Hauksson, framkvæmdastjóri SI
Fundurinn er opinn og aðgangur ókeypis.
Skráning á www.si.is