Morgunblaðið - 29.02.2012, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. FEBRÚAR 2012
SVIÐSLJÓS
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
„Þetta bara sýnir að andstæðingar
tillögu minnar þora ekki að fá efn-
islega niðurstöðu í málið. Þeir ætla
að láta einskis ófreistað að koma í
veg fyrir að þingið, sem fer með
ákæruvaldið í þessu máli, segi hug
sinn allan,“ segir Bjarni Benedikts-
son, formaður Sjálfstæðisflokksins, í
samtali við Morgunblaðið.
Meirihluti stjórnskipunar- og eft-
irlitsnefndar Alþingis ákvað í gær að
leggja til við Alþingi að tillögu
Bjarna um afturköllun ákæru á
hendur Geir H. Haarde, fyrrverandi
forsætisráðherra, yrði vísað frá. Til
vara er lagt til að tillagan verði felld
og ákæran standi, að því er Val-
gerður Bjarnadóttir, formaður
nefndarinnar, sagði við mbl.is í gær.
Eru þeirrar skoðunar í dag að
fella beri ákæruna niður
„Það liggur fyrir að þingmenn,
sem úrslitaáhrif geta haft á það
hvort ákæran nýtur meirihluta-
stuðnings á þinginu, eru þeirrar
skoðunar í dag að fella beri ákæruna
niður,“ segir Bjarni. „Á hinn bóginn
hefur enginn þingmaður sem áður
var mótfallinn ákærunni skipt um
skoðun og lýst því yfir að hann telji
að rétt hafi verið að höfða málið.
Þetta þýðir að í reynd blasir við að
ákæran nýtur ekki meirihlutastuðn-
ings. Þá er gripið til þess ráðs að
finna einhverjar nýjar ástæður til
þess að láta málið halda áfram, aðrar
heldur en þá hvort menn telja að
Geir H. Haarde hafi gerst brotlegur
við lög. En málið á ekki að snúast um
neitt annað en það hvort menn telji
að lögbrot hafi verið framin,“ segir
Bjarni ennfremur. Hann á von á því
að tillagan verði rædd á þingfundi í
dag.
Alþingi hefur formlegt vald til
að afturkalla ákæru
Í nefndaráliti meirihluta nefnd-
arinnar sem dreift var síðdegis er
fjallað um mismunandi skoðanir á
hvort Alþingi hafi heimild til að aft-
urkalla ákæruna. Meirihlutinn
kemst síðan að eftirfarandi nið-
urstöðu um það: „Meirihlutinn telur
að í ljósi þess að ákæruvaldið er í
höndum Alþingis hafi það formlegt
vald til að afturkalla ákæru á hendur
ráðherra fyrir landsdómi en telur
það hins vegar sjálfstætt álitaefni
hvort og á hvaða forsendum Alþingi
geti nýtt það vald.“
Þá fjallar meirihlutinn um hvort
efnisleg skilyrði séu til þess að
ákæran verði afturkölluð. Þar segir
m.a. að komið hafi fram af hálfu sak-
sóknara og aðstoðarsaksóknara að í
flestum tilvikum þar sem mál eru
felld niður hjá ákæruvaldinu sé inn-
an tilsetts tíma, þriggja eða sex
mánaða, höfðað nýtt mál enda séu
algengustu ástæður niðurfellingar
þær að ágallar eða formgallar séu á
málshöfðun. „Meirihlutinn bendir á
að af þessum fresti leiðir að málinu
yrði ekki endanlega lokið með aft-
urköllun ákæru á þessu stigi,“ segir í
nefndarálitinu.
Og meirihlutinn kemst að þeirri
niðurstöðu „að til þess að unnt sé að
afturkalla ákæru fyrir landsdómi
þurfi að liggja fyrir efnislegar
ástæður eða efnisleg sjónarmið sem
réttlæta slíkt. Telur meirihlutinn
engar slíkar fram komnar og jafn-
framt að ekkert það sé fram komið
sem leiða ætti til þess að saksókn
yrði felld niður. Þá telur meirihlut-
inn þá málsmeðferðarreglu gilda við
afturköllun ákæru á hendur ráð-
herra að tillaga um slíkt eigi að ber-
ast frá saksóknara Alþingis að höfðu
samráði við saksóknarnefnd, sbr.
ákvæði 16. gr. laga um landsdóm.
Slík tillaga hefur ekki borist.“
Birgir Ármannsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, sem sæti á í
stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd,
segist ánægður með að meirihlutinn
skuli þó hafa tekið þá ákvörðun að
taka málið út úr nefndinni. „Það
gefst þá kostur á að taka það fyrir í
þingsal. Hins vegar erum við ósam-
mála hinni efnislegu niðurstöðu
meirihlutans og teljum sem fyrr að
þetta mál eigi að fá framgang hér í
þinginu. Það hefur auðvitað ekkert
breyst,“ segir Birgir. „Þá kemur til
með að reyna á hvort meirihlutinn í
nefndinni endurspeglar meirihlut-
ann í þinginu.“
„Þeir ætla að láta einskis ófreistað“
Meirihluti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar leggur til að tillögu Bjarna Benediktssonar verði vísað frá
„Ákæran nýtur ekki meirihlutastuðnings,“ segir Bjarni Kemur væntanlega til umræðu í dag
Morgunblaðið/Ómar
Afgreitt Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd fundaði fyrir hádegi í gær og lauk umfjöllun sinni um tillögu Bjarna
Benediktssonar um afturköllun ákærunnar á hendur Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra.
Í meirihluta stjórnskipunar- og
eftirlitsnefndar sem skrifar
undir nefndarálitið eru Val-
gerður Bjarnadóttir, Álfheiður
Ingadóttir, Mörður Árnason,
Margrét Tryggvadóttir og Lúð-
vík Geirsson. Fram kemur að
Mörður Árnason gerir fyrirvara
við málið hvað varðar tímasetn-
ingu og túlkun þingskapa og
Magnús M. Norðdahl er sam-
þykkur niðurstöðu og tillögu
meirihluta nefndarinnar en kýs
að færa ítarlegri rök fyrir af-
stöðu sinni í sérstöku nefnd-
aráliti.
Mörður setur
fyrirvara
VILJA VÍSA TILLÖGU FRÁ
Viðgerð við varðskipið Þór í Noregi
er á áætlun samkvæmt upplýs-
ingum Landhelgisgæslunnar. Í vik-
unni verður lokið við að fjarlægja
stjórnborðsaðalvél skipsins. Þá
verður hægt að hefjast handa við að
koma fyrir nýrri aðalvél.
Verkáætlun Rolls Royce, fram-
leiðanda vélanna, gerir ráð fyrir að
skipið verði tilbúið til afhendingar
eftir vélaskipti, prófanir og úttektir
flokkunarfélaga hinn 2. apríl.
Þór kom til Noregs til viðgerðar
hinn 8. febrúar en í byrjun desem-
ber hafði mælst óeðlilega mikill
titringur í annarri af tveimur aðal-
vélum varðskipsins án þess að skýr-
ing fyndist á honum. kjartan@mbl.is
Ljúka við að fjarlægja vél
úr Þór í þessari viku
Morgunblaðið/Ómar
Varðskipið Þór í Reykjavíkurhöfn.
– fyrst og fre
mst
ódýr!
399kr.stk.
Palmolive sturtusápa, margar teg.
Áfrýjunarnefnd neytendamála hefur
vísað frá kæru ÁTVR vegna ákvörð-
unar Neytendastofu um að fyrirtæk-
inu sé ekki heimilt að selja sígarettur
sem uppfylla ekki nýja staðla á Evr-
ópska efnahagssvæðinu (EES).
ÁTVR ætlar að bera gildistöku
staðlanna hér á landi undir
innanríkisráðuneytið en fyrirtækið
heldur því fram að ekki hafi verið
rétt staðið að henni hér.
Málið snýst um sígarettur sem
ÁTVR selur en þær uppfylla ekki
nýjan Evrópu-
staðal um að allar
sígarettur sem
seldar eru innan
EES séu sjálfs-
lökkvandi. Í nóv-
ember sl. varð
óheimilt að selja
sígarettur sem
ekki uppfylla
staðalinn en
ÁTVR óskaði eftir að Neytendastofa
veitti fyrirtækinu aðlögunarfrest til
þess að geta selt þær birgðir sem
enn eru til af eldri gerð sígarettna.
Neytendastofa hafnaði því og áfrýj-
aði ÁTVR þá ákvörðuninni til innan-
ríkisráðuneytisins. Ráðuneytið vís-
aði málinu til áfrýjunarnefndar
neytendamála.
Í tilkynningu frá ÁTVR segir að
fyrirtækið vísi málinu aftur til ráðu-
neytisins til að fá efnislega niður-
stöðu í það. Innanríkisráðherra beri
að taka efnislega afstöðu til þess.
kjartan@mbl.is
ÁTVR vill að innanríkisráðherra
taki afstöðu til sígarettustaðla
Framkvæmdir við höfuðstöðvar embættis lög-
reglustjórans á höfuðborgarsvæðinu við Hverf-
isgötu í Reykjavík hafa staðið yfir undanfarna
mánuði og er ráðgert að þeim ljúki í vor.
Helstu verkþættir felast í því að skipta um
glugga í lágbyggingunni, álklæða hana að utan,
byggja upp þakkant og skipta um þakefni, en Fast-
eignir ríkissjóðs sömdu við Atafl ehf. um fram-
kvæmdirnar.
Hilmar Gunnarsson húsvörður segir að veður
hafi tafið framkvæmdir í vetur en stefnt sé að því
að þeim ljúki í maí.
Skipt um glugga og lágbyggingin klædd
Morgunblaðið/Ómar