Morgunblaðið - 29.02.2012, Blaðsíða 33
2008 kom út sérstök útgáfa af
heimsmetabók Guinness og fjallar
hún eingöngu um tölvuleiki. Þar
eiga félaganir Jak & Daxter sam-
tals sjö met, m.a. „fyrsti leikurinn
fyrir leikjatölvur með óaðfinn-
anlegri þrívídd“.
Jak & Daxter Collection er íraun og veru svolítið rangnefni
því að það hafa komið út samtals 6
leikir undir þeirra nafni. Kappakst-
ursleikurinn Jak X hefði sómt sér
vel í þessari útgáfu og að sama
skapi hefði verið gaman að hafa
leikinn um Daxter með, en hann
kom bara út á Playstation Portable
á sínum tíma. En í þessar útgáfu er
þrír tölvuleikir á einum Blue Ray
disk. Þetta eru gamlir Playstation 2
leikir í nýjum umbúðum en samt
má alveg segja að þessi þríleikur sé
afskaplega flottur og skemmtilegur,
og sýnir það og sannar að nýtt er
ekki alltaf best!
Hetjan og hugleysinginn
Hasar Félagarnir Jak & Daxter í kappflugi á götum borgarinnar Haven City.
AF TÖLVULEIKJUM
Friðjón Fannar
Hermannsson
fridjon@mbl.is
Fyrsti tölvuleikurinn um þáfélaga Jak og Daxter komút á Playstation 2 árið 2001
og varð hann gríðarlega vinsæll. Í
kjölfarið komu svo tveir leikir út til
viðbótar, Jak II og Jak 3. Í tilefni
10 ára afmælis þeirra félaga er nú
kominn út sérstök útgáfa af þessum
þremur leikjum á einum Blue-Ray
disk fyrir Playstation 3. Grafíkin er
komin í fulla háskerpu í 720 punkta
upplausn og er útkoman ansi flott.
Leikurinn, sagan og persónurnar
standast tímann tönn og vel það.
Aðalsöguhetjan er Jak, 15 ára
töffari sem getur hoppað, skoppað
og skotið, stýrt bátum, flogið fugl-
um, svifnökkvum og ótal fleiri far-
artækjum sem koma fyrir í þessum
leikjum. Daxter er besti vinur Jak
og hans helsta hjálparhella, kjaftfor
og ansi hreint skemmtileg persóna.
Daxter lendir hins vegar í þeirri
ógæfu að honum er umbreytt í
blöndu af merði (weasel) og otri (ot-
ter). Þeir félagar glíma við alls
kyns verkefni og vandræði á meðan
þeir leita lausna til að breyta Dax-
ter aftur yfir í mennskt form.
Þegar leikirnir eru bornir sam-an stendur þriðji leikurinn
uppi sem sigurvegari. Þar hefur
framleiðendunum tekist að setja
saman helstu kosti hinna leikjanna
og svo lagfært galla fyrri leikja.
Fyrsti leikurinn er nokkuð saklaus
hopp og skopp ævintýraleikur þar
sem safna þarf ákveðnum fjölda
Orkubita (powercell) til að ná fram
sigri. Aðalsöguhetjan Jak segir ekki
eitt aukatekið orð í þeim leik, en er
oft og iðulega truflaður af síblaðr-
andi huglausa vini sínum Daxter. Í
öðrum leiknum eru þeir félagar að
flýja úr borginni Haven City eftir
að Daxter frelsar Jak úr fangelsi. Í
fangelsinu voru framkvæmdar ýms-
ar tilraunir á Jak sem kalla fram
ansi dökka hlið á persónu hans
(Dark Jak) og hægt er að nota það
sér til hagsbóta í þeim leik. Búið er
að bæta við skotvopnum og fleiri
farartækjum sem geta meðal ann-
ars svifið um borgina . Þriðji leik-
urinn er svo gullmolinn í þessari
seríu. Hann gerist stuttu eftir að
Jak & Daxter flúðu borgina
Haven og þar er
kynnt til sög-
unnar ný hlið á
Jak (Light Jak) og
er það mótvægi við
dökku og grimmu
hlið hans í leik
númer 2. Vissulega
má sjá ákveðin lík-
indi með Jak og Loga
Geimgengli úr Star Wars í þessum
sögum, og er það bara gott.
Auðvelt væri að flokka þessa
leiki sem eingöngu fyrir börn og
unglinga, en skemmtanagildið og
persónusköpun er slík að fullorðnir
sitja límdir við skjáinn. Æsispenn-
andi bardagar við stökkbreyttar
eiturplöntur, byssubardagar við
eineygða bergrisa og kappakstur á
svifnökkvum eru meðal þess gerir
leikinn fjölbreyttan og skemmti-
legan. Helsti galli þessa leiks er
hvað stjórnun myndavéla á sögu-
hetjunni í bardagasenum getur ver-
ið óþjál. En að sama skapi er aðdá-
unarvert hvað það fer lítill tími í að
hlaða (loading) leiknum inn þegar
söguhetja missir líf eða kemst á
milli borða.
Forvitnilegt verður að sjá
hvort framleiðendur Jak & Daxters
koma með nýjan leik um þá félaga í
kjölfar þessarar endurútgáfu. Því
það er nánast óskrifuð regla í sögu
PS3 að svona endurútgáfum sé
fylgt eftir með nýjum leik! Árið
»Forvitnilegtverður að sjá hvort
framleiðendur Jak &
Daxters koma með
nýjan leik um þá fé-
laga í kjölfar þess-
arar endurútgáfu.
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. FEBRÚAR 2012
Wikileaks hefur ákveðiðað birta fimm milljónirtölvupósta fyrirtæk-isins Stratfor og varpa
þar með ljósi á innreið einka-
framtaksins í heim njósna og upp-
lýsingaöflunar. Aðalsöguhetja
myndarinnar Haywire, Mallory
Kane, sem Gina Carano leikur, er
málaliði hjá slíku fyrirtæki, sem
vinnur skítverk fyrir ríkisstjórnir og
hefur einnig ýmis önnur járn í eld-
inum. Kane er falleg, en það borgar
sig ekki að lenda upp á kant við hana
því að hún lemur hvern þann, sem
stendur í vegi fyrir henni í spað.
Í upphafi myndar er Kane á flótta
og greinilegt að eitthvað hefur farið
úrskeiðis. Fortíðarleiftrin eru
skammt undan og þar er aðdragand-
inn rakinn, verkefni í Barselónu sem
snerist um að ná kínverskum manni,
sem er vandlega gætt í íbúð einni.
En ekki er allt með felldu og skyndi-
lega á Kane enga bandamenn.
Hugmyndin um ofurkonuna, sem
lætur sér ekki allt fyrir brjósti
brenna, er ekki ný af nálinni. Í Le
Femme Nikita eftir Luc Besson þar
sem Anne Parillaud fer hamförum
og The Long Kiss Goodnight þar
sem Geena Davis rýfur af sér allar
viðjar er róið á sömu mið sem og
vitaskuld annarri hverri mynd með
Angelinu Jolie.
Kane gefur þessum formæðrum
sínum ekkert eftir og eflist við
hverja raun. Söguþráðurinn er hinn
æsilegasti og margt er vel gert í
myndinni. Steven Soderbergh er
einn af athyglisverðari leikstjórum
Hollywood. Ferskur blær fylgdi
hans fyrstu kvikmynd, Sex, Lies,
and Videotape. Hún vakti mikla at-
hygli og leikstjórinn fékk Ósk-
arsverðlaun fyrir besta handrit. So-
derbergh var nýtt undrabarn
Hollywood. Hann hefur verið mis-
tækur, en fáir standast honum snún-
ing þegar vel tekst til. Hápunkt-
urinn var árið 2000 þegar tvær
mynda hans voru samanlagt til-
nefndar til tíu Óskarsverðlauna, Er-
in Brockovich og Traffic, og upp-
skáru fimm styttur.
Contagion, sem fjallar um út-
breiðslu banvænnar farsóttar, var
með athyglisverðari kvikmyndum
liðins árs. Þar rápar Soderbergh
fram og aftur í tíma og sama bragð-
inu beitir hann í Haywire og er það
ágætis leið til að láta draga fram
eina vísbendingu af annarri.
Haywire verður ekki aðsópsmikil í
Óskarsdeildinni, til þess er hún of
losaraleg og klisjukennd, en myndin
er skemmtileg og margt vel gert í
henni auk þess sem einvalalið leik-
ara fær að leika þar lausum hala.
Leikstjóri Ocean’s Eleven kann að
búa til spennu og Haywire er fín
skemmtun, en því miður ekki sér-
lega eftirminnileg.
Þrautgóður málaliði í vanda staddur
Haywire
bbmnn
Leikstjóri: Steven Soderbergh. Leikarar:
Gina Carano, Ewan McGregor, Channing
Tatum, Michael Douglas, Antonio
Banderas og Michael Fassbender.
Bandaríkin, 93 mínútur.
KARL BLÖNDAL
KVIKMYNDIR
Ofurkona Gina Carano er ekkert lamb að leika sér við og vei þeim sem vanmetur hinn vígfima málaliða.
Apparat Organ Quartet sendi frá
sér plötuna Pólýfóníu í lok ársins
2010 á vegum 12 tóna en tæpu ári
síðar kom svo platan út erlendis á
vegum danska útgáfufyrirtækisins
Crunchy Frog. Út er nú komin end-
urhljóðblönduð útgáfa af plötunni
undir heitinu Pólýfónía Remixes.
Platan inniheldur endurhljóðbland-
anir eftir FM Belfast, Bloodgroup,
Dreamtrak, Beta Satan, Reptilicus,
Frederik Schikowski, Flemming
Dalum, Thomas Troelsen og Robo-
taki. Platan er nú fáanleg á öllum
helstu veitum, til að mynda á
iTunes, Amazon og Gogoyoko.
Hrærðir, hristir Meðlimir Apparat Organ Quartet kalla ekki allt ömmu sína.
Endurhljóðblandað Apparat
Morgunblaðið/Kristinn
Þ.Þ., FRÉTTATÍMINN A.E.T., MORGUNBLAÐIÐH.V.A., FRÉTTABLAÐIÐ
TOTAL FILMBOXOFFICE MAGAZINE
SVARTHÖFÐI.IS
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%NÁNAR Á MIÐI.ISGLERAUGU SELD SÉR 5%
HAYWIRE KL. 5.50 - 8 - 10.20 16
HAYWIRE LÚXUS KL. 5.50 - 8 - 10.10 16
GHOST RIDER 3D ÓTEXTUÐ KL. 5.50 - 8 - 10.15 12
THIS MEANS WAR KL. 8 - 10.15 14
STAR WARS EPISODE 1 3D ÓTEXTUÐ KL. 5 10
SAFE HOUSE KL. 10.30 16
SKRÍMSLI Í PARÍS 3D KL. 3.40 L
CHRONICLE KL. 4 - 6 12
ALVIN OG ÍKORNARNIR 3 KL. 3.40 L
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
GHOST RIDER 2 3D ÓTEXTUÐ KL. 8 - 10 12
HAYWIRE KL. 8 - 10 16
THIS MEANS WAR KL.6 14 GLÆPUR OG SAMVISKA KL.5.45
GHOST RIDER 3D ÓTEXTUÐ KL. 8 - 10.15 12
CHRONICLE KL. 6 - 8 - 10 12
THIS MEANS WAR KL. 5.45 - 8 14
STAR WARS EPISODE 1 3D ÓTEXTUÐ KL. 10.15 10
THE DESCENDANTS KL. 5.30 L
LISTAMAÐURINN KL. 6 - 8 - 10 L
FRÁ LEIKSTJÓRUM
CRANK KEMUR
EIN ÖFLUGASTA
SPENNUMYND
ÞESSA ÁRS.
HREIN
RÆKT
UÐ HA
SARM
YND
FBL.