Morgunblaðið - 29.02.2012, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 29.02.2012, Blaðsíða 28
28 DAGBÓK MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. FEBRÚAR 2012 Sudoku Frumstig 2 7 8 1 7 8 5 2 8 5 1 2 6 7 3 7 8 4 5 7 3 6 3 6 2 1 4 2 1 9 7 7 6 1 5 2 7 5 3 1 1 9 4 3 5 2 3 6 4 7 3 2 8 6 2 4 6 5 1 3 8 3 9 7 2 1 8 3 5 7 3 4 2 3 8 1 5 7 2 6 9 4 7 6 5 8 9 4 1 2 3 2 9 4 6 1 3 7 8 5 5 3 8 7 4 1 9 6 2 6 1 9 3 2 5 8 4 7 4 7 2 9 8 6 5 3 1 9 4 7 2 5 8 3 1 6 1 5 3 4 6 9 2 7 8 8 2 6 1 3 7 4 5 9 8 1 3 6 9 2 4 7 5 7 9 5 3 4 8 1 2 6 6 4 2 1 5 7 9 8 3 4 2 7 8 6 1 5 3 9 9 6 1 5 7 3 8 4 2 3 5 8 9 2 4 6 1 7 1 7 6 2 8 5 3 9 4 5 3 4 7 1 9 2 6 8 2 8 9 4 3 6 7 5 1 1 7 6 8 9 5 4 2 3 3 5 2 7 4 1 6 9 8 8 9 4 6 2 3 7 5 1 6 8 9 1 5 2 3 4 7 5 4 7 9 3 8 2 1 6 2 1 3 4 6 7 9 8 5 9 6 8 5 7 4 1 3 2 4 2 1 3 8 6 5 7 9 7 3 5 2 1 9 8 6 4 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig töl- urnar 1-9 og aldrei má tví- taka neina tölu í röðinni. Í dag er miðvikudagur 29. febrúar, 60. dagur ársins 2012 Orð dagsins: Faðir, gjör mig nú dýr- legan hjá þér með þeirri dýrð, sem ég hafði hjá þér, áður en heimur var til. (Jh. 17, 5.) Víkverji verður stundum ráðvillturþegar hann hlustar á misvísandi yfirlýsingar. Ekki er langt síðan út kom skýrsla þar sem sagt var að bankarnir mættu ekki við frekari skakkaföllum. Þessi niðurstaða var notuð til að slá út af borðinu kröfur um að komið yrði til móts við skuld- settan almenning. Skömmu síðar fell- ur dómur um að ekki megi miða við vexti Seðlabanka við útreikning gengistryggðra lána, heldur eigi að notast við upprunalega vexti. Þetta gæti létt byrði lánþeganna verulega. Bankarnir voru hins vegar fljótir að lýsa yfir því að staða þeirra væri það góð að þeir gætu auðveldlega staðið þessi skakkaföll af sér. Víkverji veit ekki til þess að neinir stórkostlegir atburðir hafi átt sér stað á þeim skamma tíma, sem leið frá því að skýrslan kom út þar til dómurinn féll, sem varð til þessa stórkostlega bata á stöðu bankanna. x x x Ólafur Ragnar Grímsson forsetisagði í fyrradag að hann hefði kveðið skýrt og afdráttarlaust á um það í nýársávarpi sínu að hann hygð- ist ekki bjóða sig fram á ný eftir þetta kjörtímabil. Fjölmiðlar hefðu hins vegar kosið að skilja orð hans á annan veg og því væri nú komin upp sú staða að hann þyrfti að endurskoða hug sinn. Víkverji er sammála forset- anum um að hann hafi sagt að hann hygðist láta af embætti í ræðunni. Hann sér hins vegar ekki annað en að forsetanum hefði verið í lófa lagið að slá á fréttaflutning um að ræðan hefði ekki verið afdráttarlaus hefði hann viljað og þá hefði málið verið úr sög- unni. x x x Auðvitað væri það þannig að eftímabilið væri ákveðið í stjórn- arskránni þyrfti hvorki ég né aðrir að standa frammi fyrir þeim vanda sem við erum nú að fjalla um hér í dag,“ sagði forsetinn. Víkverji sér ekki að það að ekki skuli vera takmarkað hvað einstaklingur geti setið lengi á forsetastóli skapi þá kvöð að sitjandi forseti þurfi að bjóða sig fram þvert gegn vilja sínum. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 skelfilegt, 8 veittir eftirför, 9 refsa, 10 ferskur, 11 versna, 13 nabbinn,15 vinnings, 18 karldýr, 21 gruna, 22 tréborð, 23 girð- ing, 24 handíð kvenna. Lóðrétt | 2 rakar, 3 ker, 4 skrifa, 5 vel gefið, 6 starf, 7 fornafn, 12 nægilegt, 14 sefa,15 trufla, 16 vera ólatur við, 17 hnötturinn, 18 handlag- inn, 19 viðburðarás, 20 vond. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 drómi, 4 ræman, 7 angan, 8 skrín, 9 ask, 11 geng, 13 baka, 14 óþjál, 15 værð, 17 árás, 20 orm, 22 magur, 23 umbun, 24 rengi, 25 dragi. Lóðrétt: 1 drang, 2 ólgan, 3 inna, 4 rösk, 5 murta, 6 nunna, 10 skjár, 12 góð,13 blá, 15 vomur, 16 regin, 18 rabba, 19 sýndi, 20 orki, 21 mund. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Stund sannleikans. S-NS. Norður ♠ÁD1074 ♥653 ♦Á62 ♣D7 Vestur Austur ♠K973 ♠G2 ♥KG1092 ♥D4 ♦8 ♦DG10753 ♣632 ♣1083 Suður ♠85 ♥Á87 ♦K94 ♣ÁKG94 Suður spilar 3G. Í miðju Íslandsmótinu í tvímenn- ingi vakti Sigurbjörn (Bessi) Har- aldsson í suður á einu 15-17 punkta grandi. Vestur á lítið, en í ljósi stöð- unnar og góðra millispila í hjarta, ákvað hann þó að bjóða upp á hálit- ina með 2♣. Norður nennti ekki að blaka doblmiðanum gegn hvítum mótherja og stökk einfaldlega í 3G. Útspilið var hjarta. Bessi dúkkaði fyrsta slaginn, tók þann næsta á ♥Á og svínaði ♠10. Austur var inni á ♠G. Nú er stund sannleikans runnin upp í vörninni, en austur hafði engan skilning á því og spilaði sofandi ♦D til baka. Bessi tók báða hátíglana, síðan laufin í botn og þvingaði vestur í hálitunum. Ellefu slagir og toppur. Hvað gat austur gert? Spilað spaða og slitið sambandið við blind- an. 29. febrúar 1948 Efnt var til barnaskemmtana á tíu stöðum á höfuðborgar- svæðinu í tengslum við al- þjóðlega söfnun fyrir Barna- hjálp Sameinuðu þjóðanna. Alls var safnað hér á landi 3 milljónum króna og var það besti árangur á Norður- löndum. 29. febrúar 1952 Ríkissjóður stofnaði lánadeild smáíbúða „til byggingar smárra sérstæðra íbúðarhúsa og einlyftra sambyggðra smá- húsa,“ eins og það var orðað í Morgunblaðinu. Húsbyggj- endur áttu að koma húsunum upp „með eigin vinnu og fjöl- skyldu sinnar“. 29. febrúar 1968 Flóð voru í Ölfusá, með jaka- burði. Milljónatjón varð á Sel- fossi þegar vatn flæddi inn í tugi íbúðarhúsa. „Mestu flóð á þessari öld,“ sagði Morgun- blaðið. 29. febrúar 1992 Haldið var upp á það að íbúar Reykjavíkur voru orðnir eitt hundrað þúsund. Meðal ann- ars var þeim sem voru hund- rað ára og eldri boðið til veislu í Höfða. 29. febrúar 2000 Hreyfill sem tekinn var þenn- an dag úr Svandísi, Boeing 757 þotu Flugleiða, hafði sett heimsmet í endingu. Á níu ár- um hafði hann verið í notkun í 40.530 tíma og 47 mínútur. Fyrra met var um 30.000 tímar. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist… Það kemst víst upp í vana að geta aðeins haldið upp á afmælið á réttum degi fjórða hvert ár. „Það er í raun frábært - ég á stórafmæli á fjögurra ára fresti,“ segir Sumarliði Örn Rúnarsson, yfirmat- reiðslumeistari á Grillhúsinu, en hann fæddist fyr- ir 40 árum og heldur upp á afmælið á réttum degi í 10. sinn í dag. Kona hans er Ísey Gréta Þorgríms- dóttir og eiga þau fjögur börn á aldrinum tveggja til 11 ára. „Dóttir mín verður 12 ára í ár og er því eldri en ég,“ heldur hann áfram en bætir við að á yngri árum hafi sér þótt það undarlegt að afmæl- isdaginn hafi gjarnan vantað á dagatalið. „Í mín- um barnshuga var dagatalið gallað, því það vantaði daginn minn.“ Sumarliði segir að hann hafi yfirleitt haldið upp á afmæli sitt 1. mars og í raun verði ekki breyting á því í ár. „Ég verð í vinnunni á af- mælisdaginn og svo býður konan mér í mat daginn eftir, á Food&Fun í Sjávargrillinu, en afmælisveislan verður á Snæfellsnesi í sumar.“ Ísey segir að Sumarliði hafi átt sér þann draum að brúðkaup þeirra yrði haldið úti í náttúrunni á Snæfellsnesi en hún hafi ekki verið á sama máli. Í sumar fái hann hins vegar draumaveisluna sína. „Þetta verður alvöru með kúreka- og indjánaþema,“ segir drengurinn. Sumarliði Örn Rúnarsson 40 ára í dag Þemað kúrekar og indjánar Flóðogfjara 29. febrúar Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur Reykjavík 4.38 1,3 10.49 2,9 16.57 1,3 23.23 3,0 8.37 18.44 Ísafjörður 0.24 1,6 6.41 0,6 12.43 1,5 19.02 0,6 8.48 18.44 Siglufjörður 3.00 1,1 9.15 0,4 15.38 0,9 21.20 0,5 8.31 18.26 Djúpivogur 1.49 0,6 7.37 1,4 13.59 0,6 20.18 1,5 8.08 18.12 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Mánuðurinn framundan felur í sér rómantík fyrir ykkur flest. Nýtt samband lofar góðu, farðu varlega og taktu eitt skref í einu. (20. apríl - 20. maí)  Naut Þarfir þínar eru mikilvægar og þú ættir að splæsa því á þig sem þig langar í. Hvort það leiðir til einhvers eða ekki er undir báð- um aðilum komið. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Þú þarft að læra að gera þér mat úr þeim tækifærum, sem þér bjóðast. Láttu það ekki fara í taugarnar á þér þótt aðrir viti ekki alltaf hvað þeir vilja. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Nú er kominn tími til þess að gera eitthvað skemmtilegt með fjölskyldunni hvort sem er heima eða heiman. Hertu upp hugann því nú er til mikils að vinna. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Þú finnur löngun hjá þér til að gera eitt- hvað nýtt og gætir fengið tækifæri til þess fyrr en síðar. Hikaðu ekki við að segja ástvin- um þínum hve mikils virði þeir eru þér. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Það getur skipt sköpum fyrir árangur þinn að þú flytjir mál þitt af festu en um leið þannig að allir skilji. Þú heldur áfram að draga fólk að þér og stækka vinahópinn. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Þú munt að öllum líkindum taka farsælar ákvarðanir varðandi vinnuna í dag og á morg- un. Þú vilt búa þér og þínum öryggi í framtíð- inni. Leitaðu ráða ef þess gerist þörf. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Hugmyndirnar streyma til þín svo þú átt í vandræðum með að skrá þær helstu hjá þér. Styrkur þinn mun leiða þig áfram og ryðja öllum hindrunum úr vegi. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Ráðgátur sem best er að láta eiga sig verða á vegi þínum. Ekki láta aðra stjórna þér, heldur stattu ákveðin/n á þínu. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Þótt öllum séu sett einhver tak- mörk myndi fátt gerast ef enginn freistaði þess að komast örlítið lengra. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Þvert á móti því sem margir vilja halda fram þá geturðu haldið kökunni og borðað hana líka. Taktu öllum boðum sem þú færð í dag. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Þú hefur þínar tilfinningar eins og aðr- ir. Vertu með þeim sem skilja að þú ert sér- stakur og koma fram við þig sem slíkan. Stjörnuspá 1. Rf3 c5 2. e4 e6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 a6 5. Bd3 Rf6 6. O-O e5 7. Bg5 h6 8. Bxf6 Dxf6 9. Rf5 g6 10. Re3 Bc5 11. Rc3 d6 12. Rcd5 Dd8 13. Kh1 Rc6 14. Rg4 O-O 15. Rgf6+ Kg7 16. c3 Be6 17. f4 Bxd5 18. Rxd5 exf4 19. Hxf4 Dg5 20. Df1 Re5 21. Hd1 Hae8 22. Bc2 h5 23. Bb3 Rg4 24. g3 Staðan kom upp í A-flokki Corus- skákhátíðarinnar sem lauk fyrir skömmu í Wijk aan Zee í Hollandi. Fabiano Caruana (2736) hafði svart gegn Veselin Topalov (2770). 24… Hxe4! 25. Hxe4 Rf2+ 26. Dxf2 Bxf2 27. Kg2 Bc5 28. h4 Df5 svartur stendur nú til vinnings. 29. He2 Dg4 30. Hde1 g5 31. He4 Df5 32. H1e2 gxh4 33. Rf4 Dg5 34. Kh1 d5 35. Bxd5 hxg3 36. c4 Dh4+ 37. Kg2 Dh2+ 38. Kf3 Dh1+ 39. Kxg3 h4+ og hvítur gafst upp. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is Svartur á leik. Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.