Morgunblaðið - 29.02.2012, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 29.02.2012, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. FEBRÚAR 2012 FRÉTTALJÓS Andri Karl andri@mbl.is Óvíst er með framhald aðalmeðferð- ar í Straumsvíkurmálinu svonefnda sem hófst í gær, eftir að verjendur fóru fram á aðgang að upptökum lög- reglu af hlerunum sakborninga. Einn þeirra var hleraður í hálft ár. Himinn og haf er á milli framburða tveggja aðalmanna í málinu sem báð- ir eru ákærðir fyrir innflutning mik- ils magns fíkniefna. Mönnunum tveimur, Geir Hlöð- veri Ericssyni og Sævari Sverris- syni, er gefið að sök að hafa flutt inn til landsins með vörugámi tæp tíu kíló af amfetamíni, 8.100 e-töflur, rúm tvö hundruð grömm af kókaíni auk steralyfja. Geir Hlöðver neitar alfarið sök en Sævar játar að hluta, þ.e. allt nema að hafa vitað að fíkni- efni væru auk steralyfja í gáminum. Þó svo að fleiri séu nefndir í ákær- unni og önnur brot tilgreind er ofan- greint mál það langstærsta. Því verður látið liggja á milli hluta að geta hinna. Enda er mál umræddra tveggja aðalmanna nokkuð sérstakt. Fyrir dómi í gær kom í ljós að nafn- laus ábending til lögreglu um að Geir Hlöðver hygðist flytja til landsins tíu kíló af fíkniefnum var rót þess að rannsókn hófst. Það var snemma á árinu 2011 og frá vori til hausts voru símar Geirs Hlöðvers hleraðir en einnig húsnæði hans. Nafn kom upp við húsleit „Við töldum okkur alltaf vera að heyra meira og meira sem staðfesti grun okkar um þetta. Á meðan við biðum eftir þessum stóra pakka komu upp svo upp tvö önnur mál, í júní og september. Þar sem þar var um töluvert af fíkniefnum að ræða töldum við okkur nauðbeygða til að fara í þau mál. En við reyndum að gera það þannig, að sakborninga myndi ekki gruna að við vorum að bíða eftir einhverju meira.“ Þetta sagði lögreglumaður sem kom að rannsókninni. Og það var í öðru þessara mála, við húsleit á heimili Geirs Hlöðvers, sem sími fannst sem ekki var hleraður. Honum var um- svifalaust bætt á listann en að öðru leyti látinn kyrr liggja. Var um að ræða símatæki sem aðeins var notað til samskipta milli tveggja manna, Geirs Hlöðvers og Sævars. Fyrir þessa stund hafði nafn Sævars ekki komið upp í rannsókn lögreglunnar. Af fyrsta degi aðalmeðferðar, sem upphaflega átti aðeins að vera tveir dagar, má ráða að Sævar er lykilvitni í málinu. Hann var samvinnuþýður frá því hann var handtekinn og upp- lýsti um allt það sem hann var spurð- ur. Lögreglumenn sem mættu fyrir dóminn sögðu hann meira að segja hafa verið trúverðugan, og það þó að hann neitaði að hafa vitað um fíkni- efnin. Hins vegar kom ekkert fram sem bendlaði Geir Hlöðver með beinum hætti við innflutninginn. Fram kom að ekki hefði verið rætt um hann í síma, þó svo að hann hefði innt greiðslur af hendi til Sævars var það af öðrum sökum, og þó svo að menn hafi greint á um hvaða sakir það voru þurfa þær ekki að tengjast innflutningnum. Eftir stendur að aðalmeðferðinni er ekki lokið og því hugsanlegt að ekki séu öll kurl komin til grafar. Áfram verður haldið á föstudag, og þá verða hljóðupptökur fengnar með hlerunum bornar undir Geir og Sæv- ar. Hverju þær skila verður að koma í ljós. Morgunblaðið/Ómar Í felum Lögmennirnir Jóhannes Árnason, Jóhann Karl Hermannsson og Ómar Örn Bjarnþórsson ásamt tveimur sakborningum sem kusu að hylja andlit sín. Krefjast þess að fá aðgang að sex mánaða upptökum  Nafnlaus ábending varð til þess að upp komst um umfangsmikið fíkniefnasmygl Ragna Árnadótt- ir, fyrrverandi dómsmálaráð- herra, verður að- stoðarforstjóri Landsvirkjunar, samkvæmt til- kynningu frá fyr- irtækinu í gær. Þar kemur fram að skipulagi framkvæmda- stjórnar fyrirtækisins hafi verið breytt og ákveðið að starfs- mannasvið og upplýsingasvið skuli nú tilheyra skrifstofu forstjóra og vera undir stjórn Rögnu. Ragna var ráðin skrifstofustjóri Landsvirkjunar í nóvember 2010. Hún gegndi m.a. áður embætti dómsmálaráðherra frá febrúar 2009 til september 2010. Þá hefur Sturla Jóhann Hreinsson verið ráðinn starfsmannastjóri Landsvirkjunar. Hann hefur und- anfarin tvö ár starfað sem fram- kvæmdastjóri Storðar ehf. og var starfsmannastjóri Nýherja á ár- unum 2003-2010. Ragna að- stoðarfor- stjóri LV  Liður í skipulags- breytingum Ragna Árnadóttir Gunnar Snorri Gunnarsson, sendiherra Ís- lands í Þýska- landi, segir að utanríkis- ráðuneytið hafi í hans tíð enga að- komu haft að máli Jóns Baldvins Hannibalssonar sem hefur verið í fréttum vegna bréfaskrifta hans til ungrar systurdóttur konu hans. Fram hefur komið að um ár tók að fá svör frá ráðuneytinu varðandi refsi- löggjöf í Washington D.C og Ven- esúsela. Gunnar var þá ráðuneytis- stjóri í ráðuneytinu og segir ekkert viðkomandi málinu hafa komið inn á sitt borð. Hann segist, eftir að hafa spurst fyrir, hafa fengið upplýsingar um að borist hafi almennt orðuð fyrirspurn um réttarfar í öðrum löndum en án þess að þar hafi verið vísað til einstaklinga. Sú fyrirspurn hafi farið í almenna meðferð hjá borgaraþjónustu. sigrunrosa@mbl.is Vissi ekki af máli Jóns Baldvins Gunnar Snorri Gunnarsson Alls var fallið frá saksókn eða ákæra afturkölluð í 2.286 málum á árunum 2006 til 2011. Þetta kemur fram í svari ríkissaksóknara til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis sem óskaði eftir upplýsingunum. Ákæra var gef- in út aftur í 232 málum af þeim 676 þar sem ákæra var afturkölluð, eða í um 34 prósentum tilfella. Um ástæður þess að saksókn sé felld niður er kveðið á í lögum um meðferð opinberra mála og lögum um meðferð sakamála. Þar á meðal er ef brot er mjög smávægilegt, ef sakborningur virðist ósakhæfur eða ef sátt hefur náðst í máli. Þá er einnig hægt að fella niður saksókn vegna brota sem ekki eru talin hafa áhrif við ákvörðun við- urlaga ef maður er ákærður fyrir fleiri brot. Þurfa ekki að gefa upp ástæðu Ekki er lögbundið að gefa upp ástæðu þess að kæra sé afturkölluð en í svari ríkissaksóknara kemur fram að nokkrar skýringar séu skráðar við nokkur málanna. Þar hefur ákæra verið afturkölluð vegna þess að ákærði er látinn eða farinn úr landi, sekt hafi verið greidd, málið sé fyrnt eða að kæra hafi verið dregin til baka. Á þriðja þúsund mála verið látin falla niður  Ákært aftur í 34% tilfella þegar ákæra er afturkölluð Fallið frá saksókn og afturkallaðar ákærur 400 350 300 250 200 150 100 50 0 2006 2007 2008 2009 2010 2011 Fjöldi mála þar sem fallið var frá saksókn (samtals 1.610) Fjöldi mála þar sem ákæra var afturkölluð (samtals 676) Tölur frá ríkissaksóknara Meðal þess sem upplýst var um fyrir dómi í gær, er að farið hefur verið fram á að hollensk yfirvöld rétti yfir Íslendingi búsettum í Hol- landi en sá afhenti Sævari Sverr- issyni fíkniefnin sem fóru í vöru- gáminn og fundust 10. október sl. Maðurinn sem er á fimmtugsaldri var yfirheyrður úti í Hollandi og fylgdust íslenskir lögreglumenn með. Þetta er sami maður og verj- andi eins sakborninga hefur kraf- ist að mæti til Íslands og gefi skýrslu fyrir dómi. Tekin verður af- staða til kröfunnar við framhald aðalmeðferðar á föstudag. Einnig viðurkenndi Geir Hlöðver Ericsson að hann þekkti manninn og hefði heimsótt hann á und- anförnum árum. Lögreglumaður sem kom fyrir dóminn tók hins vegar sérstaklega fram að Sævar þekkti manninn ekki, og hefði ver- ið að hitta hann í fyrsta skipti. Réttað yfir einum í Hollandi MAÐUR Í HOLLANDI HEFUR TENGSL VIÐ EINN AÐALMANNA Skannaðu kóð- ann til að lesa umfjöllun mbl.is ELDRI BORGARA FERÐIR um fornar byggðir á Suður-Grænlandi. Ævintýraferð um Suður-Grænland, 9. - 12. júlí 2012 ÍS LE N SK A /S IA .I S /F LU 58 56 7 02 .2 01 2 flugfelag.is GRÆNLAND Nuuk IIulissat Narsarsuaq Reykjavík Ittoqqortoormiit Kulusuk Nánari upplýsingar á www.flugfelag.is og hjá Emil Guðmunds- syni í síma 898 9776 eða emil@flugfelag.is, einnig má senda tölvupóst á hopadeild@flugfelag.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.