Morgunblaðið - 29.02.2012, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. FEBRÚAR 2012
Verð á húsnæði hækkaði hvergi
meira hlutfallslega reiknað en á Ís-
landi á árinu 2011séu verðbreytingar
á fasteignum bornar saman í 23 Evr-
ópulöndum. Greint er frá þessu í vef-
tímaritinu This is Money þar sem
vitnað er til nýrrar skýrslu, Royal
Institution of Chartered Surveyors
um fasteignamarkaði í Evrópu. Þar
segir að Ísland sé sigurvegarinn sem
komi á óvart því nafnverðshækkanir
á húsnæði milli áranna 2010 og 2011
hér á landi séu þær mestu í prósent-
um talið og skipar Ísland sé þar í
flokk með Noregi og Frakklandi.
Íbúðaverð lækkaði í flestum öðr-
um löndum og hvergi meira í pró-
sentum á seinasta ári en á Írlandi og
Spáni í samanburðinum en tekið er
fram að í útreikninginn sé ekki tekið
tillit til verðbólgu í einstökum lönd-
um.
Þróunin á Íslandi komi hins vegar
á óvart í ljósi þess að fjármálakerfi
landsins hafi hrunið á árinu 2008.
Eftir miklar verðlækkanir íbúða-
verðs á Íslandi hafi markaðurinn
tekið við sér í fyrra og íbúðaverð
hækkað að nafnvirði um 10% á milli
áranna 2010 og 2011. En tekið er þó
fram í skýrslunni að þessi uppsveifla
endurspegli tiltölulega litlar verð-
breytingar þegar höfð er í huga sú
mikla lækkun fasteignaverðs sem á
varð á Íslandi í kjölfar bankahruns-
ins.
Í niðurstöðum skýrslunnar er spáð
dökkum horfum á fasteignamörkuð-
um í Evrópu á komandi árum.
Húsnæðisverð – samanburður
Ír
la
nd
Sp
án
n
Ký
pu
r
D
an
m
ör
k
Pó
lla
nd
G
rik
kl
an
d
H
ol
la
nd
Íta
lía
Sv
íþ
jó
ð
Sl
óv
ak
ía
U
ng
ve
rja
la
nd
B
re
tla
nd
Po
rt
úg
al
Fi
nn
la
nd
Sl
óv
en
ía
M
al
ta
B
el
gí
a
Þý
sk
al
an
d
Au
st
ur
rík
i
Sv
is
s
Fr
ak
kl
an
d
N
or
eg
ur
Ís
la
nd
B
re
yt
in
g
m
ill
iá
ra
(%
)
10
5
0
-5
-10
-15
-20
2010 2011
Heimild: This is Money
Fasteignir hækkuðu
hlutfallslega mest hér
Nýr samanburður á íbúðaverði í 23 löndum milli 2010 og 2011
Morgunblaðið/RAX
Dýrara Í kjölfar mikilla verðlækkana tók markaðurinn við sér.
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Þrír karlmenn voru dæmdir í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur í gær fyrir sér-
lega hættulega líkamsárás. Þeir voru
fundnir sekir um að hafa aðfaranótt
7. maí árið 2010 ráðist saman á er-
lendan ferðamann í Þingholtsstræti
og nokkru síðar í Bankastræti til
móts við veitingastaðinn Sólon.
Slógu þeir manninn ítrekað og
spörkuðu víðsvegar í líkama hans,
þar á meðal í höfuð og andlit með
þeim afleiðingum að hann hlaut
tveggja sentímetra langt sár aftan á
höfði, nefbrot, mar og yfirborðsá-
verka á andliti, kvið, bak, mjaðma-
grind og á hendi.
Kröfðust verndargjalds
Í skýrslutöku hjá lögreglu lýsti
ferðamaðurinn atvikum þannig að
hann hefði verið á gangi niður
Laugaveg að fá sér frískt loft og
beygt inn hliðargötu til vinstri. Þar
hefðu þrír karlmenn gengið í veg fyr-
ir hann og neitað að hleypa honum í
gegn nema hann greiddi þeim vernd-
argjald.
Ferðamaðurinn neitaði og reyndi
að halda för sinni áfram en menn-
irnir þrír gengu enn í veg fyrir hann
og byrjaði einn þeirra að ýta við hon-
um. Sá hélt á bjórglasi í hendi og ótt-
aðist brotaþoli að það yrði notað sem
vopn gegn sér. Því hefði hann náð
glasinu af manninum og hent því í
götuna. Við það hefðu mennirnir þrír
ráðist á hann með höggum og spörk-
um.
Ferðamaðurinn lenti í götunni en
árásarmennirnir héldu áfram að
sparka í hann og lemja þar til vegfar-
anda bar að sem hringdi á lögreglu.
Þá hættu mennirnir árásinni og fóru
upp í bifreið. Þeir sneru hins vegar
aftur og héldu áfram á berja og
sparka í fórnarlambið þar sem það lá
í götunni. Hættu þeir ekki fyrr en
fleiri vegfarendur dreif að og komu
þeir sér undan á bifreið.
Komið hefur fram í fréttum RÚV
að ferðamaðurinn sem varð fyrir
árásinni svipti sig lífi á Ítalíu í des-
ember en maðurinn var grískur.
Langur brotaferill
Tveir mannanna sem Héraðsdóm-
ur dæmdi í gær, þeir Guðni Guill-
ermo Gorozpe og Halldór Arnar
Karlsson, fengu tveggja ára fangels-
isdóm en sá þriðji hlaut 16 mánaða
dóm. Fjórði maðurinn var dæmdur í
sex mánaða fangelsi vegna annarrar
líkamsárásar mánudaginn 27. des-
ember 2010 sem þremenningarnir
áttu einnig aðild að en ákærurnar
voru sameinaðar.
Guðni Guillermo á langan brota-
feril að baki sér og hefur m.a. fimm
sinnum verið ákærður fyrir hegning-
arlagabrot frá árinu 1997 til 2007.
Halldór Arnar hefur áður hlotið
dóma fyrir fíkniefnabrot.
Tveggja ára
fangelsi fyrir
líkamsárás
Morgunblaðið/Ernir
Dómsalur Árásarmennirnir voru
dæmdir í Héraðsdómi Reykjavíkur.
Gengu í skrokk
á erlendum ferða-
manni í miðbænum
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
• www.hjahrafnhildi.is
St. 36-52
Fallegir sparikjólar
fyrir fermingarnar
Vertu vinur
okkar á
Facebook
Virðing
Réttlæti
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS
Rafræn allsherjaratkvæðagreiðsla meðal félagsmanna VR vegna kjörs sjö sæta
í stjórn VR, skv. 20. gr. laga félagsins, hefst kl. 09:00 þann 1. mars 2012 og lýkur
kl. 12:00 á hádegi þann 9. mars 2012.
Allar nánari upplýsingar er hægt að nálgast á www.vr.is eða með því að
hringja á skrifstofu félagsins í síma 510 1700.
Kjörstjórn VR
Allsherjar-
atkvæðagreiðsla
Í Tösku- og hanskabúðinni finnur þú
mikið úrval af handtöskum, tölvu- og
skjalatöskum, seðla-og leðurveskjum,
ferðatöskum, leðurhönskum og vönduðum
göngustöfum svo fátt eitt sé nefnt.
Þú getur litið við í verslun okkar eða farið á
slóðina www.th.is þar sem hægt er
að skoða úrvalið og gera góð kaup!
Tösku og hanskabúðin • Skólavörðustíg 7 • 101 Reykjavík • Sími 551 5814 • www.th.is
1.-3. MARS