Morgunblaðið - 29.02.2012, Qupperneq 23
MINNINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. FEBRÚAR 2012
✝ SigtryggurGuðmundsson
fæddist á Akureyri
21. júní 1927. Hann
lést á dvalarheim-
ilinu Grund í
Reykjavík 17. febr-
úar 2012.
Foreldrar hans
voru Guðmundur
Rósant Trjámanns-
son, f. 1892, d. 1980
og Kristín Sig-
tryggsdóttir, f. 1904, d. 1995.
Systkini Sigtryggs, Olga, f. 1925,
d. 1962, Rósa, f. 1929, d. 1995,
Hólmfríður, f. 1931, d. 2002,
Hanna Bryndís, f. 1934, Lilja, f.
1941.
Eftirlifandi eiginkona Sig-
tryggs er Jórunn Thorlacius, f.
1928, og eiga þau saman átta
börn. Kristín, f. 1953, hún á fimm
börn, maki Ágúst Ármann Lár-
usson. Arnkell, f. 1955, maki
Tina Nielsen. Sigurbjörg, f.
1957, hún á þrjú börn. Brynjar, f.
1958, hann á fjögur börn, maki
Sigþóra Oddný Sigþórsdóttir.
Guðmundur, f. 1960, hann á þrjú
börn, maki Anna
Magna Bragadótt-
ir. Guðrún, f. 1963,
hún á tvö börn,
maki Guðmundur
Guðlaugsson. Elva,
f. 1965, hún á þrjú
börn, maki Þórður
Björnsson. Óðinn,
f. 1968, hann á tvö
börn, maki Tipsuda
Param. Fyrir átti
Sigtryggur Hel-
enu, f. 1948, hún á þrjú börn,
maki Eiríkur Rósberg.
Sigtryggur ólst upp á Akur-
eyri og Skagafirði. Hann bjó á
Akureyri til 1960 og flutti þá til
Reykjavíkur. Hann fór ungur á
sjó og vann ýmis störf í landi á
lífsleiðinni. Lengst af var hann
bifreiðastjóri hjá Norðurleið,
var leigubílstjóri, vann hjá Vita-
og hafnarmálastofnun, Vega-
gerðinni, var trillukarl og síðast
vann hann hjá Olís.
Útför Sigtryggs fer fram
frá Fossvogskirkju í dag, 29.
febrúar 2012 og hefst athöfnin
kl. 15.
Elsku pabbi.
Þegar ég var barn hugsaði ég
eins og barn. Í æskuminningunni
varst þú í mínum huga eins kon-
ar hetja. Þú varst rútubílstjóri
hjá Norðurleið og keyrðir far-
þega á milli Reykjavíkur og Ak-
ureyrar. Þú varst í einkennis-
fatnaði og keyrðir nýjustu og
flottustu rútur landsins. Þú lent-
ir í ýmsum ævintýrum, slæmum
veðrum á heiðum þar sem ekið
var fetið á eftir veghefli, margir
rútubílstjórar og flutningabíl-
stjórar í halarófu í þeim tilgangi
að flytja fólk og vörur á áfanga-
stað. Oft voru þið veðurtepptir
og urðuð að gista á hóteli þar til
veðrinu slotaði. Þú varst ekki
mikið heima hjá okkur krökkun-
um og mömmu á þessum árum.
Kannski gerði fjarlægðin þig að
hetju í mínum huga en minningin
er ljúf. Þegar aldur og þroski
færist yfir mann þá sér maður
hlutina í öðru ljósi, þú varst bara
venjulegur maður að vinna vinn-
una sína og hetjan í raun var eig-
inkonan, móðirin sem ól upp
börnin heima.
Um tvítugt fórum ég og þú að
vinna saman hjá Vegagerðinni
við vegmerkingar. Við fórum
saman tveir um allt land. Sá tími
er mér mjög kær því við áttum
góðar stundir saman og mér
finnst eins og að þá hafi ég
kynnst þér best. Þú varst alltaf
svo kátur og frjáls þegar þú
keyrðir um landið, fegurð lands-
ins og saga þess heillaði þig, þú
þekktir hvert fjall, hvern hól og
hafðir alltaf einhverjar sögur á
takteinunum frá hverjum stað.
Lífið heldur áfram og fuglinn
flýgur úr hreiðrinu. Maður eign-
ast konu og börn. Þú varst ávallt
mjög barngóður maður og börn-
in mín eiga mjög góðar minning-
ar um þig. Yndislegar samveru-
stundir með þér og mömmu í
Þjórsárdalnum þar sem þið áttuð
hjólhýsi í sælureit og fallegri
náttúru. Þar vildir þú helst vera
allt sumarið, vakna við fuglasöng
og dvelja með vinum og fjöl-
skyldu.
Síðan veikist mamma og þá
stóðst þú þig vel við hennar hlið,
sinntir heimilisstörfunum og
eldamennsku af alúð. Hundurinn
okkar hann Sámur var mikið í
uppáhaldi hjá þér enda var hann
ávallt spenntur að koma upp á
Hjaltabakka eða í Þjórsárdalinn
til þín.
Nú hefur þú kvatt þennan
heim en minningarnar lifa í
hjarta mínu og fjölskyldu minn-
ar.
Blessuð sé minning þín.
Þinn sonur,
Guðmundur
Sigtryggsson.
Elsku pabbi minn.
Með þessu ljóði vil ég þakka
þér allt sem þú varst mér og mín-
um.
Mér tregt er um orð til að þakka þér,
hvað þú hefur alla tíð verið mér.
Í munann fram myndir streyma.
Hver einasta minning er björt og blíð,
og bros þitt mun fylgja mér alla tíð,
unz hittumst við aftur heima.
Ó, elsku pabbi, ég enn þá er
aðeins barn, sem vill fylgja þér.
Þú heldur í höndina mína.
Til starfanna gekkstu með glaðri lund,
þú gleymdir ei skyldunum eina stund,
að annast um ástvini þína.
Þú farinn ert þangað á undan inn.
Á eftir komum við, pabbi minn.
Það huggar á harmastundum.
Þótt hjörtun titri af trega og þrá,
við trúum, að þig við hittum þá
í alsælu á grónum grundum.
Þú þreyttur varst orðinn og þrekið
smátt,
um þrautir og baráttu ræddir fátt
og kveiðst ekki komandi degi.
(Hugrún)
Þín dóttir,
Guðrún (Badda).
Elsku afi minn.
Þá er komið að kveðjustund.
Þú sem alltaf varst mér svo kær
og góður, svo mikill nagli en á
sama tíma svo mikið ljúfmenni.
Það er sárt að kveðja þig, afi
minn, en minningarnar sem þú
gafst mér er fjársjóður sem ég
mun alla tíð eiga. Sumarið sem
við Jórunn Eva frænka vorum
hjá ykkur ömmu á Arnarstapa,
ferðirnar á trillunni og bíltúrarn-
ir frægu þar sem þú slepptir
höndum á stýrinu og þóttist
keyra með hugaraflinu einu.
Aldrei langt í húmorinn og sprell-
ið. Einnig mun ég alltaf hugsa til
þín er ég smyr mér ristað brauð
með rúllupylsu. Ef einhver hefur
skilið mikið eftir sig í jarðnesku
lífi ert það þú. Börn, barnabörn
og barnabarnabörn í bílförmum,
hver hlaðinn sínum minningum.
Ég vil þakka þér fyrir allt sem þú
gafst mér og kenndir. Þar til við
hittumst aftur, afi minn, kveð ég
þig með söknuði.
Sofðu vinur svefninn langa
skapara þínum hjá
við kveðjum þig með tár á vanga
og tilveran er grá.
En tíminn temur sárasorg
hann sýnir okkur vinninga
skreytir hugans stræti og torg
stormi sælla minninga.
Guðni Jóhann.
Elsku besti afi minn. Að eiga
þig fyrir afa voru forréttindi. Við
eigum svo óendanlega margar
minningar saman, svo margar að
ég gæti skrifað heila bók. Þú hef-
ur verið mér við hlið alla ævi. Frá
því að ná í mig í leikskólann, fara
með mér í sveitaferðir, allar
Kolaportsferðirnar á laugardags-
morgnum, þær ótalmörgu gisti-
nætur þar sem ég kúrði á milli
þín og ömmu (ég man ennþá hvað
það var gott að kúra sér upp að
þér). Þegar ég varð unglingur þá
hringdir þú í mig, jafnvel þó að
klukkan væri tvö, bara til að
tékka á mér og segja mér að
passa mig á strákunum. Þú
komst og horfðir á mig dansa á
æfingum og varst mér alltaf inn-
an handar. Þegar Gola eignaðist
sitt fyrsta folald þá dreymdi þig
svo fallegan draum um það, svo
ég ákvað að nefna það Draum.
Bestu minningarnar okkar sam-
an eru þó án efa þau ótalmörgu
ferðalög um landið, fyrst í hjól-
hýsinu, svo í tjaldvagninum, felli-
hýsinu og að lokum á yndislega
staðnum ykkar ömmu í Þjórsár-
dal. Þú sýndir mér svo marga
staði á Íslandi sem eru og munu
alltaf vera staðirnir okkar, eins
og uppáhalds fossinn minn Para-
dís. Þú kenndir mér líka svo
margt eins og örnefnin á öllum
hólum og hæðum að ógleymdum
öllum sögunum; það voru fáir
jafn góðir í að segja sögur og þú.
Þegar ég var beðin að skrifa rit-
gerð í menntaskóla um áhuga-
verða manneskju þá kom ekki
annað til greina en að taka viðtal
við þig. Eftir að ég skilaði rit-
gerðinni þá kom kennarinn sér-
staklega til mín og sagði við mig
að ég ætti að verða rithöfundur í
framtíðinni því að ritgerðin væri
svo áhugaverð og skemmtileg.
En ég vissi að eina ástæðan fyrir
því var sú að þú varst svo góður
sögumaður.
Mér fannst svo sárt að sjá þig
núna um jólin, því að afi minn,
sem var alltaf svo glaður, syngj-
andi og dansandi var svo fjarlæg-
ur. En sárast finnst mér að hafa
verið í burtu frá þér síðustu
augnablikin og að hafa ekki náð
að kveðja þig, sérstaklega þar
sem það munaði einungis viku að
ég kæmi til þín. Ég vona að þú
sért hamingjusamur í Sumar-
landinu og ég veit að þú munt
taka á móti okkur öllum með opn-
um örmum þegar þar að kemur.
Þú átt stóran hluta í hjartanu
mínu og mér finnst gott að hugsa
til þess að þú munt fylgja mér
alla ævi. Myndin af mér sem
hékk alltaf fyrir ofan rúmið þitt
mun fylgja mér hvert sem er því
þá veit ég að þú ert hjá mér. Ég
vona að börnin mín muni hljóta
þau forréttindi að eiga afa eins og
þig.
Ég elska þig, afi.
Þín dótturdóttir,
Andrea Guðmundsdóttir.
Jæja elsku afi okkar, þá er
þinn tími kominn. Við munum
aldrei gleyma þeim minningum
sem þú hefur gefið okkur og þær
munu lifa með okkur þangað til
við hittumst aftur. Helstu minn-
ingarnar okkar eru frá Hjalta-
bakkanum þar sem þú bjóst
ásamt yndislegu ömmu okkar.
Við sjáum þig ennþá í anda taka
danssporið fyrir okkur og það er
nú ekki langt síðan þú steigst
þinn síðasta dans fyrir okkur
barnabörnin þín. Um leið og við
komum inn til þín lá leiðin alltaf
strax í nammiskápinn þar sem
við vissum að þú myndir gleðja
okkur með góðgæti. Þú lést okk-
ur alltaf bíða eftir namminu og
oft sagðirðu að ekkert væri til en
þá klifruðum við upp í skápinn til
að stelast í nammið þar sem þú
varst sjálfur nammigrís og hafðir
ekkert á móti því að eiga þetta
sjálfur. Í lok heimsóknar settir
þú á þig grímu og hræddir okkur
og á sama tíma skemmtir okkur
með því að vera með nammi í vas-
anum til að gefa okkur. Það var
aldrei langt í gleðina, hrekkju-
svínið og stríðnina hjá þér.
Það var líka alltaf gaman að
gera eitthvað sem maður mátti
ekki á Hjaltabakkanum, til dæm-
is hoppa í rúminu ykkar ömmu,
stela klinki í jakkavasanum þín-
um fyrir nammi, klifra upp í
skápa, gramsa í dótinu inni í
svefnherbergi og fleira.
Kolaportið var þinn uppá-
haldsstaður um helgar og það
gladdi okkur mikið að fá boð
þangað, þá fékk maður alltaf eitt-
hvað lítið dót sem manni þótti
alltaf mjög vænt um.
Það eru líka góðar minningar í
Þjórsárdalnum, þar sem þér leið
best. Bílferðirnar þangað voru
alltaf skemmtilegar og mikið var
hlegið, brandarar og stríðni
endalaust í gangi í þeim ferðum
með harmonikkutónlistina alveg í
fullum gangi. Að vera í Þjórsár-
dal var mikil upplifun fyrir okkur
barnabörnin þín, það var aldrei
neitt bannað þar, þá var hægt að
hlaupa endalaust í sveitinni, vaða
í ám, klifra í trjám og miklu,
miklu fleira.
Elsku afi, svona gæti maður
endalaust haldið áfram að rifja
upp góðar stundir með þér sem fá
okkur til að brosa. Það er rosa-
lega erfitt að þurfa að kveðja þig
núna en við vitum að þú munt
vera með okkur í anda, fylgjast
með okkur og passa upp á okkur
þar til okkar tími kemur. Við
höldum í þessar minningar og
munum sakna þín og hugsa til þín
á hverjum degi.
Hvíldu í friði. Þín barnabörn,
Þórey Rán og
Jóhanna.
Sigtryggur
Guðmundsson
HINSTA KVEÐJA
Til þín, elsku pabbi
minn.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Þín dóttir
Elva og börn.
MOSAIK Hamarshöfða 4 • 110 Rvk • s. 587 1960 • www.mosaik.is
Legsteinar og fylgihlutir
Í tilefni af 60 ára starfsafmæli okkar bjóðum við
fría uppsetningu á höfuðborgarsvæðinu
og fría pökkun á legsteinum sem fara út á land
Mikið úrval - Vönduð vinna - Gott verð
Marmari
Granít
Blágrýti
Gabbró
Líparít
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, afi og
sonur,
EIRÍKUR Ó. ÞORVALDSSON
frá Höfn í Hornafirði,
búsettur í Færeyjum,
lést á krabbameinsdeild Landspítalans
föstudaginn 24. febrúar.
Minningarathöfn verður haldin í Fossvogskapellu miðvikudaginn
29. febrúar kl. 13.00.
Útförin fer fram frá Vestmannakirkju í Færeyjum laugardaginn
3. mars.
Sérstakar þakkir sendum við heimahlynningu Landspítalans,
starfsfólki líknardeildar Landspítalans í Kópavogi, starfsfólki
krabbameinsdeildar 11E og Höllu Skúladóttur fyrir einstaka hlýju
og umönnun.
Rannvá Didriksen,
Anna Eiríksdóttir,
Björgvin Annar Gústavsson,
Rannva Björk Jakobsdóttir,
Sveinbjörg Eiríksdóttir.
✝
Ástkær móðir okkar,
BALDVINA GUNNLAUGSDÓTTIR,
Eiðsvallagötu 26,
Akureyri,
lést á dvalarheimilinu Hlíð þriðjudaginn
21. febrúar.
Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju
föstudaginn 2. mars kl. 13.30.
Fyrir hönd ástvina,
Anton Sölvason,
Margrét Kristín Sölvadóttir,
Gunnlaugur Sölvason,
María Jakobína Sölvadóttir,
Egill Sölvason,
Guðfinna Sölvadóttir.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma,
INGIBJÖRG JÓNSDÓTTIR
frá Glæsibæ,
lést á dvalarheimilinu á Sauðárkróki laugar-
daginn 25. febrúar.
Útförin fer fram frá Sauðárkrókskirkju
laugardaginn 3. mars kl. 14.00.
Gyða Sigrún Stefánsdóttir, Ólafur Guðmundsson,
Friðrik Stefánsson, Ragnheiður E. Björnsdóttir,
Sigurður H. Stefánsson, Sigrún Fanney Jónsdóttir,
Guðríður María Stefánsdóttir, Jón Sigvaldason,
Alda Engilráð Stefánsdóttir,
Jónína Stefánsdóttir, Jón Gunnlaugsson,
ömmubörn, langömmubörn og langalangömmubörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir
og afi okkar,
SÆVAR GEIR SVAVARSSON
í Norma,
til heimilis að Furuási 8,
Garðabæ,
lést á líknardeild Landspítala háskóla-
sjúkrahúss í Kópavogi laugardaginn 25. febrúar.
Hann verður jarðsunginn frá Kálfatjarnarkirkju þriðjudaginn
6. mars kl. 15.00.
Unnur I. Þórðardóttir,
Guðrún A. Sævarsdóttir,
Þórður Magnússon,
Unnur L. Þórðardóttir,
Magnús S. Þórðarson,
Sævar J. Þórðarson.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
FRIÐGERÐUR LAUFEY
ODDMUNDSDÓTTIR,
Bárugötu 9,
Dalvík,
andaðist á Hornbrekku, heimili aldraðra í
Ólafsfirði, sunnudaginn 26. febrúar.
Útförin fer fram frá Dalvíkurkirkju laugardaginn 3. mars kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vildu
minnast hennar er bent á Dalvíkurkirkju.
Sigurlaug Guðrún Sverrisdóttir, Gunnþór Árnason,
Sveinbjörn Sverrisson, Sigrún Sumarliðadóttir,
Guðný Rut Sverrisdóttir, Ólafur Viðar Hauksson,
Sverrir Már, Laufey, Katla Valdís, Eva Björk,
Guðmundur Hagalín og Íris Ósk.