Morgunblaðið - 29.02.2012, Side 30

Morgunblaðið - 29.02.2012, Side 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. FEBRÚAR 2012 auk þess að kenna myndlist og hafa um ára- bil verið listgagnrýnandi Morgunblaðsins. Meginmarkmið höfundar er að gera grein fyrir því hvernig listgildi samtímans er mælt og þannig vill hann skerpa á skilningi lesand- ans á samtímalistinni. Og ekki er vanþörf á. Ransu réttir hér fram lykla sem þeir sem ekki þekkja til eða segjast ekki skilja, geta notað til að opna dyrnar að listinni og öðlast skilning á því hvað skapandi listamenn eru að fást við. Hann ítrekar að hann sé ekki boð- beri ákveðinna kenninga á þessu sviði, heldur vill útskýra hvernig mælikvarðar á mat á myndlist hafa breyst á liðnum áratugum. Höfundur byrjar á að fjalla um svonefndar fagurlistir og forsögu samtímalistar, og fetar Í þessu knappa en þarfa verki fjallar JónB.K.Ransu um samtímamyndlist á Ís-landi, í ljósi alþjóðlegra kenninga umhræringar á þessum vettvangi. Höf- undur er sjálfur starfandi myndlistarmaður, sig síðan í umfjöllun um hugmyndafræði þar sem finna má viðmið sem gefa hlutum merk- ingu sem list. Markaðurinn hefur vissulega áhrif á list- gildið, hagfræðileg og menningarleg verð- mæti listaverka, og stöðu listamanna í lista- sögunni. Höfundur útskýrir það á forvitnilegan hátt, áður en hann fjallar um þrennskonar birtingarmyndir fagurfræði í seinni hluta bókarinnar. Sem gagnrýnandi fjallaði Ransu iðulega um þessa þætti en hefur hér tekið þá saman á þennan forvitnilega og jafnframt aðgengi- lega hátt. Úrval svarthvítra eftirprentana af verkum samtímalistamanna styður vel við umfjöllunina. Það er þörf fyrir bækur sem þessar, sem eru til þess gerðar að útskýra hvað listamenn eru að fást við, og hvaða kraftar eru að verki í listum; listum sem eru mikilvægur þáttar í mótun og endurspeglun samfélagsins. Lyklar að samtímalist Morgunblaðið/Sigurgeir S. Höfundurinn Jón. B.K. Ransu fjallar um við- miðin sem notuð eru við mat á myndlist. Listgildi samtímans bbbmn Listgildi samtímans: Handbók um samtímalist á Íslandi eftir Jón B.K. Ransu. Útgáfa höfundar, 2012. 103 bls. EINAR FALUR INGÓLFSSON BÆKUR Ríkissjóður aug- lýsti nýverið eftir fullbúnu skrif- stofu-, æfinga- og sýningarhúsnæði til leigu fyrir Ís- lenska dans- flokkinn til 7 ára hið minnsta með möguleika á framlengingu til allt að 5 ára. „Staðan er sú að síðsumars renn- ur út 15 ára leigusamningur dans- flokksins við Leikfélag Reykjavík- ur, en fyrir þann tíma vorum við með aðstöðu í Þjóðleikhúsinu. Við erum opinber ríkisstofnun og því ber að auglýsa eftir húsnæði undir þessum kringumstæðum,“ segir Sigrún Lilja Guðbjartsdóttir, fram- kvæmdastjóri Íslenska dansflokks- ins. Bendir hún á að Leikfélag Reykjavíkur geti skilað inn tilboði líkt og allir aðrir. „Það segir sig auðvitað sjálft að það eru ákveðin samlegðaráhrif af því að ÍD sé til húsa í Borgarleikhúsinu auk þess sem samstarfið hefur verið gott.“ Þess má geta að í fyrrgreindri auglýsingu er gerð krafa um stað- setningu húsnæðisins innan póst- númers 103 vegna samvinnu dans- flokksins og Borgarleikhússins. Auglýst eftir hús- næði  15 ára samningur að renna út í sumar Sigrún Lilja Guðbjartsdóttir Kínverski arki- tektinn Wang Shu hlýtur Pritz- ker-arkitekt- úrverðlaun í ár. Þetta eru ein- hver virtustu verðlaun sem veitt eru í þeim geira, en stofnað var til þeirra árið 1979 og hlýtur þau árlega arkitekt sem þykir skara fram úr á sínu sviði. Byggingar eftir Wang Shu hafa vakið umtalsverða athygli í Kína á síðustu árum, en hann notar mikið af endurunnum efnum í þær, um leið og hann gerir tilraunir með ný form og rýmislausnir. Wang, sem er 48 ára gamall, er fyrsti kínverski borgarinn til að hreppa Pritzker-verðlaunin og sá fjórði yngsti. Formaður stjórn- arinnar sem veitir verðlaunin, en þau nema um 15 milljónum króna, segir þau viðurkenningu á því hlut- verki sem Kína muni gegna í þróun bygginga á komandi árum. Hann segir hönnum Wangs tímalausa, byggða á hefðum og alþjóðlega. Wang Shu hreppir verðlaunin Bygging eftir Wang í Jinhua. Í dag, miðvikudag, klukkan 12.15. verða tónleikar í röðinni „Ljáðu okkur eyra“, hádeg- istónleikaröð Fríkirkjunnar. Gerrit Schuil píanóleikari stjórnar tónleikunum að vanda og fær til sín gest eða gesti, snjalla hljóðfæraleikara og flytjendur, en ekki er tilkynnt um efnisskrá fyrirfram. „Mörgum tónleikagestum finnst spennandi að láta koma sér á óvart þegar þeir mæta og komast að því hver er gestur dagsins,“ segir Gerrit. Fastur kjarni gesta leggur leið sína á tónleikana í viku hverri, hvernig sem vindar blása, en aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Tónlist „Ljáðu okkur eyra“ í Fríkirkjunni Gerrit Schuil Í fyrra hófu Gallerí Fold og fornbókaverslunin Bókin sam- starf um uppboð á bókum á vefnum www.uppbod.is. Fimmta slíkt uppboð er hafið, stendur til 18. apríl, og eru 105 bækur boðnar upp. Boðið er upp úrval fágætra myndlistarbóka auk bóka um íslensk og norræn fræði. Þá eru þar athyglisverðir prentgripir, prent frá Viðey, Hólum í Hjaltadal og Hrappsey á Breiðafirði. Af bókum prentuðum á Hólum í Hjaltadal má nefna 7. útgáfu Passíusálma sr. Hallgríms Péturs- sonar prentuð 1745 en Lögþingsbók var prentuð í Hrappsey 1792. Bækur Myndlistarbækur og aðrir prentgripir Gamlar bækur eru boðnar upp. Þessa dagana stendur yfir sýn- ing átta íslenskra myndlist- armanna í Luise Ross Gallery við 25. stræti austanvert í New York, í Chelsea-hverfinu. Þau sem sýna eru Guðbjörg Lind, Guðný Kristmanns, Þór- dís Alda Sigurðardóttir, Gúst- av Geir Bollason, Guðjón Ket- ilsson, Níels Hafstein og Jón Laxdal. Þau sýna verk unnin í ýmsa miðla; teikningar, mál- verk, lágmyndir og skúlptúra. Í texta Aðalsteins Ingólfssonar í sýningarskrá kemur fram að allir hafi listamennirnir sterkar tengingar við landslag og náttúru, sæki þangað skjól eða noti þætti úr því sem efnivið í sköpun. Myndlist Átta listamenn sýna í New York Vow, 2011. Eftir Níels Hafstein. Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Ég reyni í nálgun minni að vera eins hlutlaus og gagn- rýninn og hægt er, þannig að bæði trúlausir og trúaðir geti lesið þessa bók án þess að móðgast. Markmiðið var fyrst og fremst að koma trúarlegri menningu þjóðarinnar til skila, en ekki að búa til eitthvert varnarrit fyrir ís- lensku kirkjuna sem slíka,“ segir Torfi K. Stefánsson Hjaltalín um bókina Íslensk kirkjusaga sem hann sendi nýverið frá sér. Torfi er guðfræðingur að mennt, hefur starfað sem prestur á Íslandi, í Svíþjóð og Noregi, en starfar nú sem fræðimaður og leggur stund á doktorsnám við Háskóla Íslands. Aðspurður segist Torfi hafa fengið hugmyndina að bók- inni þegar hann starfaði sem prestur í Noregi. „Það voru einkum tvær bækur um norska kirkjusögu sem skrifaðar voru fyrir framhaldsskóla í Noregi sem urðu kveikjan að bókinni minni. Mér fannst vanta aðgengilegt yfirlitsrit hérlendis,“ segir Torfi og bendir á að Kristnisaga Íslands hafi verið gefin út í fjórum bindum árið 2000 þegar þús- und ára afmælis kristnitökunnar hérlendis var minnst. „Mér fannst þær bækur ekki nógu mikil kirkjusaga. Ég vildi frekar hafa þetta einnig stofnanasögu í stað þess að vera einungis trúarsaga, en síðasta kirkjusagan sem út kom hérlendis var árið 1925. Það vantaði því svona bók sem spannar tímabilið allt frá heiðni í upphafi Íslands- byggðar og til dagsins í dag. Auk þess fannst mér fyrr- greindar bækur ekki veita nógu handhægt yfirlit yfir sög- una, sem helgast kannski af því hversu margir höfundar bókanna voru.“ Spurður hverjum bók hans sé ætluð segist Torfi fyrst hafa hugsað sér að skrifa bókina sem kennslubók fyrir framhaldsskóla en fljótlega gert sér grein fyrir því að það gengi ekki þar sem ekki er boðið upp á námskeið á þessu sviði í íslenskum framhaldsskólum. „Ég reyndi markvisst að hafa bókina aðgengilega og alþýðlega með fáum neðanmálsgreinum og tilvitn- unum þannig að hún yrði ekki of fræðileg. Þetta er frekar stutt bók, aðeins tæplega 350 bls. með ít- arlegri nafna- og staðarnafnaskrá. Kaflarnir eru stuttir og því auðvelt að rekja sig áfram í efnis- yfirlitinu hafi maður áhuga á tilteknu efni. Markmið mitt var að bókin myndi nýtast jafnt í efri bekkjum grunnskólans sem og í framhalds- og háskólum. Þessi bók ætti að vera til á öllum skólabókasöfnum þannig að nemendur geti gengi í þetta sem uppflettirit.“ Undir lok bókar veltir höfundur fyrir sér stöðu þjóðkirkjunnar í dag og framtíðarhorfum. „Fráfarandi biskup var fulltrúi ákveðins rétttrúnaðar sem faðir hans innleiddi á sínum tíma. Það verða ákveðin tímamót við komandi bisk- upsskipti og ég spái því að frjálslynda guðfræðin verði aftur leiðandi innan þjóðkirkjunnar.“ „Aðgengileg og alþýðleg“  Nýtt yfirlitsverk um íslenska kirkjusögu er afrakstur tveggja ára vinnu  Markmiðið að koma trúarlegri menningu þjóðarinnar skilmerkilega til skila Morgunblaðið/Ómar Guðfræðingur „Markmið mitt var að bókin myndi nýtast jafnt í efri bekkjum grunnskólans sem og í framhalds- og háskólum,“ segir Torfi um bók sína, Íslenska kirkjusögu. „Eitt af því sem kom mér mest á óvart við vinnslu bókarinnar var hversu mik- il áhrif Íslendingar höfðu á kristna trú í Noregi á miðöldum. Menn hafa allt- af vitað að Íslendingar voru hirðskáld konunganna fram undir 1300, en lítið sem ekkert hefur verið fjallað um trúarkvæði Ís- lendinganna og áhrif þeirra,“ segir Torfi og nefnir máli sínu til stuðnings trúarkvæði sem nefnist Geisli og flutt var við vígsluhátíð dóm- kirkjunnar í Niðarósi. Að sögn Torfa er bók hans fyrst og fremst hugsuð sem yfirlitsverk. „Ég reyni að sýna fram á samfellu í sögu íslenskrar kirkju og kristni. Að mínu mati breytist kirkjan furðulít- ið við siðaskiptin, hvort sem litið er til ytra skipulags eða innra starfs,“ segir Torfi og nefnir sem dæmi að prestar hafi fengið að halda jörðum sínum, biskupar hafi tekið laun sín á sama hátt og áður og bókmenntir eftir siðaskiptin hafi áfram sótt mjög mikið í kaþ- ólska arfinn. „Eina breytingin í reynd er að klaustrin tapa sínu og eru lögð af. Við höldum hins vegar áfram að vera „kaþólsk“ alveg fram á 18. öld. Í raun breyttist trúin ekki fyrr en með upplýsingunni.“ Áhrif Íslendinga á trúna í Noregi TELUR ÍSLENDINGA Í REYND HAFA VERIÐ KAÞÓLSKA FRAM Á 18. ÖLD

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.