Morgunblaðið - 29.02.2012, Side 36
MIÐVIKUDAGUR 29. FEBRÚAR 60. DAGUR ÁRSINS 2012
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Eiga von á barni
2. Borgarstjóradóttir í sínu besta…
3. „Starfsfólkið er alveg miður sín“
4. Laug að tengdafjölskyldunni
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Miðasalan hefst kl. 10 í miðasölu
Hörpu, á Harpa.is og Miði.is og í síma
528-5050. Aðeins 1.500 miðar eru í
boði. Sérstök forsala fyrir áskrif-
endur Tónlist.is fer fram daginn áður
en almenn sala hefst.
Miðasala á Tony
Bennett hefst 8. mars
Undankeppni
alþjóðlegu hljóm-
sveitakeppninnar
Global Battle Of
The Bands hefst
13. mars nk. á
Gamla Gauknum.
Skráning er hafin
og eru hljóm-
sveitir hvattar til
að skrá sig til leiks iceland@gbob-
.com. Úrslitin fara fram í Búkarest,
Rúmeníu, hinn 1. til 3. júní. Endless
Dark fór síðast fyrir hönd Íslands.
Global Battle Of
The Bands 2012
Ein magnaðasta
öfgarokkssveit ís-
lenskrar tónlist-
arsögu, Celestine,
snýr aftur á Fak-
torý hinn 22. mars
eftir langt hlé.
Sveitin vinnur nú
hörðum höndum
að þriðju plötu
sinni sem kemur út von bráðar. Einn-
ig koma hljómsveitirnar Muck og
World Narcosis fram en þær eru af
svipuðum toga.
Ofursveitin Celestine
snýr aftur á Faktorý
Á fimmtudag Suðvestan og síðar sunnan 8-13 m/s og éljagangur,
en bjart norðaustantil. Frost víða 0-5 stig. Á föstudag Suðaustan
13-18 og rigning, en úrkomulítið norðaustanlands. Hlýnar í veðri.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðvestan 8-15 m/s og skúrir eða él. Léttir
til um austanvert landið síðdegis, en hvessir heldur með samfelldri
snjókomu eða slyddu vestantil síðdegis og í kvöld. Hiti 1-7 stig.
VEÐUR
Grétar Rafn Steinsson er
kominn aftur í íslenska
landsliðið í knattspyrnu eft-
ir sextán mánaða fjarveru
en það mætir Svartfjalla-
landi í Podgorica í dag.
Hann er ánægður með ungu
strákana í hópnum. „Þessir
strákar eiga framtíðina fyrir
sér og það er mikill heiður
að fá að taka þátt í þeirra
vegferð að bjartri framtíð,“
sagði Grétar við Morgun-
blaðið. »1
Grétar með eftir
16 mánaða hlé
Ísland mætir Evrópumeisturum
Þýskalands í fyrsta leiknum í Alg-
arve-bikarnum í knattspyrnu kvenna í
Portúgal í dag. „Þeir eiga frábæran
mannskap og mikla breidd, þannig að
fyrir okkur er mikil áskorun að mæta
þeim og fá dýrmæta reynslu af því að
mæta einu allra besta liði í heim-
inum,“ segir Sigurður Ragnar lands-
liðsþjálfari. »3
Mikil áskorun að
mæta Þjóðverjum
„Við erum bara sáttir með þessa nið-
urstöðu. Aðalmálið var að sleppa við
að mæta Kielce. Þetta er stutt ferða-
lag og við fáum örugglega fullt af
stuðningsmönnum okkar með til Sví-
þjóðar,“ sagði Arnór Atlason, fyrirliði
danska meistaraliðsins eftir að dreg-
ið var í 16 liða úrslit Meistaradeild-
arinnar í handbolta í gær. AG dróst
gegn Sävehof frá Svíþjóð. »2
Stutt ferðalag og marg-
ir stuðningsmenn
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Samansafnið hefur sprengt utan af
sér húsnæðið og eru hjónin á Sól-
heimum í Hrunamannahreppi að
gera upp fjóshlöðuna til að safnið
fái notið sín betur.
„Það var til svo mikið af gömlu
dóti svo annaðhvort var að henda
því eða gera eitthvað við það. Við
ákváðum að gera eitthvað,“ segir
Esther Guðjónsdóttir, bóndi í Sól-
heimum, en hún og Jóhann Kor-
máksson, maður hennar, hafa ver-
ið að draga saman efni í safnið í
allmörg ár.
„Við vildum koma okkur upp
smáferðaþjónustu til að dunda við
í ellinni, eftir að börnin taka við
búskapnum. Tíminn líður hratt og
það þarf að hugsa fram í tímann,“
bætir Esther við.
Hér ægir öllu saman
Heiti safnsins gefur til kynna
hvað þar er að finna, það er sam-
ansafn af allskonar hlutum. „Við
einskorðum okkur ekki við neina
sérstaka tegund safnmuna, hér
ægir öllu saman og fólki finnst
gaman að skoða munina,“ segir
Esther.
Jóhann og Esther eru með hefð-
bundinn búskap, mjólkurfram-
leiðslu og sauðfjárrækt. Þau eru
þátttakendur í Opnum landbúnaði
og fara gjarnan með gestina í
Samansafnið eftir að búið er að
skoða nýja fjósið.
Samansafnið er í gamla
fjósinu sem gert hefur verið
upp fyrir nýtt hlut-
verk. Þó var haldið
eftir tveimur
básum til að
halda til haga
vinnuaðstöðu í
íslensku fjósi á
seinni hluta tutt-
ugustu aldar.
Nú eru þau að laga og end-
urbyggja fjóshlöðuna. Sett er
milligólf í hlöðuna. Þá er bætt við
kvistum um leið og þakið er lagað,
til að opna rýmið og gera það
bjartara.
Þar fær Samansafnið aukið hús-
pláss enda segir Esther ekki van-
þörf á. Sífellt eru að berast munir.
Á hlöðugólfinu verður hægt að
hafa gamlar dráttarvélar, bíla og
tæki sem þurfa meira pláss.
Jóhann vinnur á fullu við endur-
bæturnar með smiðum frá Flúð-
um. Húsið verður tilbúið að utan í
vor og þau vonast til að geta lokið
innréttingu þess næsta vetur.
Meðan á framkvæmdum stendur
er ekki fast hvenær opið er í
Samansafninu en það er opnað
þegar einhver er heima.
Samansafn allskonar hluta
Gamla fjóshlað-
an í Sólheimum
fær nýtt hlutverk
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Hlöðuloftið Ýmsar framkvæmdir eru að hefjast í Hrunamannahreppi með hækkandi sól. Gamla fjóshlaðan í Sól-
heimum nýtur góðs af framkvæmdagleðinni. Smiðir setja milligólf í hlöðuna og bæta við kvistum.
Esther telur að Kennedy-bíllinn sé verðmætasti safngripurinn í Sólheimum.
Það er eðalvagninn Cadillac Fleetwood árgerð 1958. Þau keyptu bílinn fyrir
rúmum tveimur árum en hann er talinn hafa verið upphaflega í eigu Ken-
nedy-fjölskyldunnar bandarísku.
Fjölskyldan er afar áhugasöm um bíla, ekki síst amerískar drossíur. Hjón-
in eru með fjóra fornbíla á skrá og nota þá reglulega yfir sumarmán-
uðina, en auk þess tvo hefðbundnari fjölskyldubíla. Í allt eru á ann-
að hundrað bílflök á bænum, í kirkjugarði sem er
falinn en gestir geta fengið að skoða ef þeir vilja.
Eitt sérkennilegasta eintakið er Dodge-pallbíll
sem Jóhann hefur smíðað upp úr sjö bílum.
Hann er talinn árgerð 1978 af því að grindin er af
bíl sem þá var framleiddur.
Eðalvagn frá Kennedy
130 BÍLAR Á SÓLHEIMUM