Morgunblaðið - 06.03.2012, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 06.03.2012, Qupperneq 1
Þ R I Ð J U D A G U R 6. M A R S 2 0 1 2  Stofnað 1913  55. tölublað  100. árgangur  SKEMMTILEGIR FÆTUR OG FLUGFREYJUR ESTER EINI NÝLIÐINN Í LANDSLIÐINU KRISTJANA OG TÓNLIST STRÍÐSÁRA HANDBOLTI ÍÞRÓTTIR TÓNLEIKAR Í IÐNÓ 33GÖNGUHÓPUR 10 Guðni Einarsson gudni@mbl.is Karlmaður um sextugt liggur þungt haldinn í önd- unarvél á gjörgæsludeild Landspítalans og er tal- inn vera í lífshættu. Hann er starfsmaður lög- mannsstofunnar Lagastoðar og varð fyrir fólskulegri árás rétt fyrir klukkan tíu í gærmorg- un. Karlmaður á fertugsaldri kom á lögmannsstof- una og vildi hitta lögmann eða starfsmann. Hann fékk fund með einum starfsmannanna en réðst fyr- irvaralaust á hann vopnaður hnífi, stakk margsinn- is og veitti starfsmanninum lífshættulega áverka. Lögmaður á stofunni kom félaga sínum til hjálp- ar og fékk sjálfur stungusár í átökunum. Honum tókst að yfirbuga árásarmanninn. Annar starfs- maður kom til aðstoðar og tókst þeim að halda manninum þar til lögreglan kom og handtók hann. Árásarmaðurinn var yfirheyrður í gær. Hann verður leiddur fyrir dómara í dag og farið fram á gæsluvarðhald yfir honum. Maðurinn var allsgáð- ur þegar hann var handtekinn, að sögn lögregl- unnar. Starfsmenn lögmannsstofunnar sem særðust voru fluttir á Landspítalann. Sá sem var með lífs- hættulega áverka gekkst undir umfangsmikla skurðaðgerð í gær. Hinn sem særðist þegar hann yfirbugaði árásarmanninn fékk að fara af sjúkra- húsinu eftir að gert var að sárum hans. Lögmanns- stofan var lokuð í gær eftir árásina en verður opin í dag, að sögn Brynjars K. Níelssonar hrl. sem starfar á stofunni. Hann vissi ekki til þess að árás- armaðurinn hefði áður haft í hótunum við stofuna. Samkvæmt heimildum mbl.is tók árásarmaður- inn lán hjá fjármögnunarfyrirtæki á sínum tíma til þess að kaupa sér vélhjól. Lánið fór í vanskil og þegar taka átti hjólið af manninum fannst það ekki þrátt fyrir mikla leit. Málið var kært til lögreglu og var Lagastoð falið að innheimta skuldina. MStakk starfsmanninn »4 Í lífshættu eftir fólskulega árás Morgunblaðið/Arnaldur Varðhald Krafist verður gæslu- varðhalds yfir árásarmanninum.  Maður vopnaður hnífi réðst á starfsmann lögmannsstofu í gærmorgun og særði hann lífshættulega  Farið verður fram á gæsluvarðhald yfir árásarmanninum Anna Lilja Þórisdóttir, Hallur Már og Egill Ólafsson Aðdragandi þess að íslenska banka- kerfið fór á hliðina haustið 2008 var rifjaður upp á fyrsta degi aðal- meðferðar landsdómsmálsins í gær. Eina vitnið á fyrsta degi Geir H. Haarde, fv. forsætisráð- herra, var eina vitnið sem kallað var til en þeim á eftir að fjölga. Við yfirheyrsluna svaraði Geir spurningum vegna aðgerða sinna í aðdraganda efnahagshrunsins, þ.e. spurningum sem varða ákæru- atriðin sem eftir standa. Varða þau m.a. meinta vanrækslu vegna starfa samráðshóps um fjármálastöð- ugleika, skort á frumkvæði við að draga úr stærð bankakerfisins og meintan skort á frumkvæði við að flytja Icesave-reikningana úr landi. Geir svaraði spurningum um þessi atriði og kom m.a. fram í máli hans að það land væri „vandfundið“ sem hefði viljað taka við einhverjum íslensku bankanna. Þá hefði um- ræðan aldrei komist á það stig að þeir sem fjölluðu um stöðu banka- kerfisins hefðu tilgreint seljanlegar eignir. Bankarnir sögðust í vari Geir vék einnig að upplýsingum þeim sem bárust úr bankakerfinu og hvernig bankastjórar hefðu full- vissað hann um það um miðjan september 2008 að þeir hefðu tryggt lausafjárstöðu sína fram til ársins 2009. „Það datt auðvitað engum í hug að bankarnir væru annaðhvort að villa um fyrir manni eða að staða þeirra væri svo slæm að þeir áttuðu sig ekki á því,“ sagði Geir. MMálsvörnin hafin »14-15 Morgunblaðið/Kristinn Fyrrverandi forsætisráðherra Geir H. Haarde gengur inn í salinn við upphaf aðalmeðferðar landsdómsmálsins í Þjóðmenningarhúsinu. Bankarnir sögðust traustir dagana fram að hruninu  Mál Geirs H. Haarde fyrir landsdómi hafið  Geir vísar sakaratriðum á bug Á sl. þremur ár- um fór lögregla 539 sinnum fram á það við héraðs- dómstóla að þeir veittu heimild til símhlerana. Í 533 tilvikum, í yfir 99% tilvika, voru kröfur lögreglu teknar til greina. Inni í þessum tölum eru ekki úr- skurðir um leyfi til að koma fyrir hlerunarbúnaði, um leyfi til að fylgj- ast með tölvusamskiptum og fleira. Reyndur verjandi gagnrýnir dóm- stóla fyrir að stimpla einfaldlega kröfugerðir lögreglu. »18 Gáfu 533 sinn- um heimild til símhlerana Þrjú verk eftir íslenska listamenn, Jóhannes Sveinsson Kjarval, Jón Stefánsson og Ólaf Elíasson, verða boðin upp hjá danska uppboðsfyrir- tækinu Bruun Rasmussen í dag. Verk Kjarvals, „Sjómaðurinn og haf- meyjan í Eldhrauninu“, er söluvæn- legra hér heima, segir Tryggvi Páll Friðriksson, eigandi Gallerís Foldar, en of dýrt að flytja það hingað. „Er ekki augljóst að enginn fer að flytja hingað verk sem er metið á þrjár milljónir króna til þess að þurfa svo að greiða af því 750 þúsund krónur í virðisaukaskatt,“ spyr Tryggvi Páll. »6 Morgunblaðið/Ómar List Þetta verk eftir Kjarval er frá 1960 og var boðið upp hér heima. Dýrt að selja verkin heima

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.