Morgunblaðið - 06.03.2012, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 06.03.2012, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 2012 Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Ögmundur Jónasson, innanríkis- ráðherra, hefur kynnt í ríkisstjórn lagafrumvarp þar sem lagt er til að hesthús verði tiltekin í a-lið 3. máls- greinar 3. greinar laga um tekju- stofna sveitarfélaga en þar eru upp taldar þær eignir sem bera allt að 0,5% fasteignaskatt af fasteigna- mati. Þá segir í ákvæði til bráða- birgða að sveitarstjórn sé heimilt að lækka álagningu fasteignaskatts á hesthús á árinu 2012, þannig að álagningarhlutfall þeirra eigna sé það sama og annarra fasteigna skv. a-lið 3. mgr. 3. gr. laganna. Framkvæmd sveitarfélaga varð- andi skattlagningu hesthúsa hefur fram að þessu ekki verið einhlít og hafa hestamenn verið afar ósáttir við að skattur hafi verið innheimtur af hesthúsunum, sem þeir skil- greina sem tómstundahús, í sam- ræmi við c-lið 3.mgr. 3.gr. laganna, sem fjallar um atvinnuhúsnæði og aðrar fasteignir sem ekki eru sér- staklega tilteknar í lögunum. Áttföld hækkun Deilan hefur staðið nokkuð lengi en náði há- marki eftir að yfirfast- eignamatsnefnd úrskurðaði í byrjun síðasta árs að hesthús í hesthúsa- hverfi innan þéttbýlis skyldu falla undir hæsta gjaldflokk þar sem þau væru ekki talin upp í öðrum flokkum. Í kjölfarið hækk- uðu Reykjavíkurborg og Borg- arbyggð álagninguna til samræmis við úrskurðinn fyrir árið 2012 og hækkaði skattur á meðaleign í Reykjavík úr rúmlega 16 þúsund krónum í 134 þúsund krónur á ári. Í prósentum fór álagningin í Reykja- vík úr 0,225% af fasteignamati í 1,35% og í Borgarbyggð úr 0,36% í 1,5%. Innheimtu frestað Hækkanirnar mættu háværum mótmælum hestamanna, sem m.a. sögðu að verið væri að skattleggja hestamennskuna úr þéttbýlinu og gagnrýndu harðlega að flokka ætti húsnæði á skilgreindum frístunda- svæðum sem iðnaðarhúsnæði. Í kjölfarið var gjalddögum fast- eignaskattsins frestað, bæði í höfuð- borginni og í Borgarbyggð, þar til málið fengi umfjöllun í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis, sem komst að þeirri niðurstöðu að innanríkis- ráðuneytið skyldi koma með tillögur að breytingum laganna. Hesthús tiltekin í lægsta gjaldflokki  Nýtt frumvarp ákvarðar og samræmir fasteignaskatt á hesthús Björn Jóhann Björnsson Guðni Einarsson Hallur Már Hallsson Kristján H. Johannessen Ylfa Kristín K. Árnadóttir Maður um sextugt særðist hættulega í fólskulegri líkamsárás sem hann varð fyrir á vinnustað sínum, lög- mannsstofunni Lagastoð við Lág- múla í Reykjavík, í gærmorgun. Mað- urinn gekkst undir umfangsmikla skurðaðgerð á Landspítalanum í gær og lá þungt haldinn á gjörgæsludeild í gærkvöldi. Hann var í öndunarvél og talinn vera í lífshættu. Karlmaður á fertugsaldri réðst að manninum með hnífi og veitti honum lífshættulega áverka með hnífstung- um. Annar karlmaður, lögmaður á fimmtugsaldri, var einnig stunginn, en særðist minna, þegar hann yfir- bugaði árásarmanninn. Annar lög- maður kom til hjálpar og héldu þeir tveir árásarmanninum þar til lög- regla kom á vettvang. Báðir starfs- mennirnir sem særðust í árásinni voru fluttir á bráðamóttöku Land- spítalans. Farið verður fram á það í dag að árásarmaðurinn verði hneppt- ur í gæsluvarðhald. Engin fyrri samskipti Árásarmaðurinn var handtekinn og reyndist hann hvorki vera undir áhrifum áfengis né fíkniefna, að sögn lögreglunnar. Að hennar sögn höfðu engin fyrri samskipti átt sér stað á milli árásarmannsins og þess sem fyrir árásinni varð. Svo virðist sem innheimta minniháttar skuldar hafi verið tilefni árásarinnar, að því er fram kom í tilkynningu lögreglu. Árásarmaðurinn var yfirheyrður í gær. Jón H. B. Snorrason, aðstoðar- lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, sagði að hann yrði leiddur fyrir dóm- ara í dag og krafist gæsluvarðhalds yfir honum. Jón sagði árásarmanninn hafa komið inn á lögmannsstofuna í gær- morgun og honum verið vel tekið. Skömmu eftir komuna réðst hann á starfsmann lögmannsstofunnar og veitti honum lífshættulega áverka. Árásarvopninu er lýst sem stórum og flugbeittum hnífi. Jón sagði starfs- manninn hafa verið stunginn marg- sinnis. „Fyrirvara- og tilefnislaust rífur maðurinn upp hníf og stingur við- mælanda sinn ítrekað án nokkurra hótana eða háttsemi sem gat gefið til kynna að þetta væri í uppsiglingu,“ sagði Jón. Lögreglu barst tilkynning um árásina rétt fyrir klukkan tíu. Samkvæmt heimildum mbl.is er árásarmaðurinn fæddur árið 1977. Hann mun á sínum tíma hafa tekið lán hjá fjármögnunarfyrirtæki til þess að kaupa sér vélhjól. Þegar hann stóð ekki í skilum átti að taka hjólið af honum en það fannst ekki þrátt fyrir mikla leit. Var málið því kært til lög- reglu en Lagastoð sá um innheimtu skuldarinnar. Ekki haft í hótunum áður Starfsfólki lögmannsstofunnar var eðlilega brugðið við atburðinn og fékk það áfallahjálp og stofan var lok- uð í gær. Einn lögmanna stofunnar, Brynjar K. Níelsson hrl., sagði í gær- kvöldi að stofan yrði opin í dag. Að- spurður sagði hann að ekki hefði ver- ið rætt um að grípa til sérstakra öryggisráðstafana vegna árásarinn- ar. Brynjar var í viðtali við Mbl-Sjón- varp í gærdag. Þá sagði hann að árás- armaðurinn hefði sér vitanlega ekki haft í hótunum áður við stofuna. Starfsmaður Lagastoðar, sem fyrir árásinni varð, væri illa særður og í lífshættu. „Maðurinn kom hér inn og vildi hitta einhvern lögmann eða starfs- mann. Síðan vitum við ekkert fyrr en að hann hefur ráðist með hnífi á starfsmann hjá okkur. Svo var hann yfirbugaður af öðrum starfsmönn- um,“ sagði Brynjar. „Þetta er mikið áfall og auðvitað skilur maður þetta ekki. Maður veltir fyrir sér hvernig þetta getur gerst um hábjartan dag, án fyrirvara eða forsögu eða að menn hafi einhvern skilning á þessu. Við er- um að hugsa málið og velta fyrir okk- ur hvernig svona lagað getur gerst.“ Lögmenn harmi slegnir „Allir eru harmi slegnir yfir þessu, við áttum ekki von á að fá að sjá og heyra svona fréttir,“ segir Kristín Edwald, formaður Lögfræðinga- félags Íslands, um árásina. Kristín segist aðeins hafa fengið fregnir af atburðum gegnum fjöl- miðla en því miður sýni þetta mál að lögfræðingastéttin þurfi að taka ör- yggismálin til umfjöllunar og endur- skoðunar. Lögmenn hafi eftir hrunið fengið hótanir frá fólki en þegar farið sé að beita ofbeldi séu málin komin á allt annað og alvarlegra stig. Stakk starfsmanninn ítrekað  Starfsmaður lögmannsstofu særðist alvarlega í fólskulegri árás  Tilefni árásarinnar virðist vera inn- heimta skuldar  Árásarvopnið var stór hnífur  Krafist verður gæsluvarðhalds yfir árásarmanninum Árás Lögmannsstofan Lagastoð var lokuð í gær eftir fólskulega árás á einn starfsmanna hennar. Stofan verður opin í dag. Morgunblaðið/Sigurgeir „Þetta er það sem við hestamenn höfum lagt til frá 2008 þannig að við erum kampakátir með þetta og vonum að þetta fari í gegnum þingið sem fyrst,“ segir Haraldur Þórarinsson, formað- ur Landssambands hestamannafélaga, um frumvarp inn- anríkisráðherra. Hann segist ekki eiga von á öðru en að frumvarpið fái góðan hljóm- grunn á þingi, enda hafi hesta- menn rætt við þingmenn allra flokka um málið fyrir tvennar síðustu kosningar við góðar undirtektir. Haraldur segir málið allt snúast um sanngirni; hestamennska sé fyrst og fremst íþrótt og tóm- stundaiðja og landssambandið þriðja stærsta félagið innan Íþrótta- og Ólympíusambands Ís- lands, með um 11 þúsund félaga á landsvísu. „Ef þú horfir á knattspyrnuvelli, sundlaugar, frjálsíþróttavelli og hvaðeina, þá eru öll þessi mann- virki byggð fyrir tilstuðlan ríkis og sveitarfélaga,“ bendir Haraldur á. Hestamenn hafi hins vegar þurft að byggja sín eigin hús og því sé mikið réttlætismál að þeir séu ekki í ofanálag skattlagðir eins og um iðnaðarstarfsemi væri að ræða. Kampakátir með frumvarpið HESTAMENNSKAN „Við fordæmum þessa árás líkt og aðrar þar sem ráðist er gegn lífi og limum fólks,“ segir Guð- mundur Andri Skúlason, tals- maður Samtaka lánþega, um árásina á lögmannsstofuna Lagastoð. Fara þurfi eftir leik- reglum samfélagsins til að fá lausn sinna mála. Guðmundur Andri segir að margir eigi um sárt að binda vegna fjármála sinna og margir sjái ekki fram úr þeim vanda sem í fljótu bragði kunni að blasa við. „Þau sárindi eru hins vegar ekki til komin vegna starfa lög- manna eða annarra sem sam- kvæmt leikreglum samfélagsins innheimta vangoldnar skuldir. Við búum í samfélagi og förum að þeim leikreglum sem sam- félagið setur okkur. Því beinum við til lánþega, telji þeir rétt sinn fyrir borð borinn, að fara með ágreining eftir leikreglum samfélagsins. Dómstóll götunnar er ekki farveg- urinn og reiðin er ekki lausnin. Ágreining um skuldir leysum við, hér eftir sem hingað til, fyrir þar til bærum dóm- stólum og un- um þeim úr- lausnum sem þaðan koma. Engin lausn er í því fólgin að ráðast gegn lífi og limum fólks sem af samvisku sækir sína vinnu og við ítrekum þá skoðun okkar að enginn einstaklingur á, starfs síns vegna, að þurfa að óttast um öryggi sitt og fjöl- skyldu sinnar,“ segir Guðmundur Andri. Hann sendir, fyrir hönd Sam- taka lánþega, einlægar kveðjur til starfsfólks Lagastoðar með óskum um bata til þeirra sem urðu fyrir árásinni. Fordæma árásina TALSMAÐUR SAMTAKA LÁNÞEGA Guðmundur Andri Skúlason Skannaðu kóðann til að sjá viðtal við Brynjar K. Níelsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.