Morgunblaðið - 06.03.2012, Page 8

Morgunblaðið - 06.03.2012, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 2012 Framboðin skjóta upp kollinumhvert af öðru þessa dagana og eiga það flest sameiginlegt að fram- boðið er langt umfram eftirspurn. En það eru ekki aðeins nýju fram- boðin sem svo háttar til um. Ríkis- stjórnarflokkarnir eru sífellt að rýrna og eru nú orðnir svo rýrir að þeir eru samanlagt með minni stuðning en Sjálfstæðisflokkur- inn.    Þessi smæð Sam-fylkingar og VG er það sem held- ur þessum flokkum saman í ríkisstjórn og mun hugsanlega verða til að þeir þrauki fram á næsta ár. Fátt er meira ógnvekjandi fyrir þessa flokka nú um stundir en kjósendur.    Ekki væri úr vegi fyrir stjórnar-flokkana að velta því fyrir sér hvers vegna fólk vill losna við þá.    Það skyldi ekki vera að fólk sébúið að fá nóg af ríkisstjórn sem alla daga er upptekin af aukaatriðum eða pólitískum hefnd- araðgerðum í stað þess að vinna að þjóðarhag?    Eða gæti verið að fólk vildi aðríkisstjórnin efldi íslenskt at- vinnulíf og stæði vörð um hagsmuni landsins í stað þess að reyna að koma landinu undir erlent vald?    Svo er ekki útilokað að fólk viljiað ríkisstjórnin standi við eitt- hvað af því sem hún lofar.    Einföld atriði af þessu tagi gætuorðið til þess að ríkisstjórnin braggaðist, en hvaða líkur ætli séu á að hún bæti ráð sitt? Jóhanna Sigurðardóttir Einföld ráð STAKSTEINAR Steingrímur J. Sigfússon Veður víða um heim 5.3., kl. 18.00 Reykjavík 4 rigning Bolungarvík 5 skýjað Akureyri 4 skýjað Kirkjubæjarkl. 3 skýjað Vestmannaeyjar 5 rigning Nuuk -20 snjókoma Þórshöfn 5 skýjað Ósló 2 heiðskírt Kaupmannahöfn 2 heiðskírt Stokkhólmur 0 heiðskírt Helsinki -2 heiðskírt Lúxemborg 2 slydda Brussel 2 súld Dublin 7 skýjað Glasgow 8 léttskýjað London 8 skýjað París 7 skýjað Amsterdam 6 alskýjað Hamborg 7 skýjað Berlín 7 heiðskírt Vín 8 léttskýjað Moskva -5 snjókoma Algarve 17 heiðskírt Madríd 13 heiðskírt Barcelona 18 léttskýjað Mallorca 10 skýjað Róm 13 léttskýjað Aþena 11 skýjað Winnipeg -7 alskýjað Montreal -12 skýjað New York 2 heiðskírt Chicago -1 léttskýjað Orlando 19 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 6. mars Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 8:16 19:03 ÍSAFJÖRÐUR 8:25 19:04 SIGLUFJÖRÐUR 8:08 18:47 DJÚPIVOGUR 7:47 18:31 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Við vonumst til að fá út úr þessu efni til að skerpa sýn okkar og efla okkur sem háskóla og sem gott og fjölskylduvænt háskólaþorp,“ segir Bryndís Hlöðversdóttir, rektor Há- skólans á Bifröst. Um helgina komu 100 þátttakendur á framtíðarþing til að ræða framtíð og hlutverk skólans. Framtíðarþingið er liður í stefnu- mótunarvinnu sem nú fer fram á Bif- röst. „Við höfum verið í naflaskoðun, sérstaklega á síðasta ári, þegar við skráðum okkur til þátttöku í átaki til menntunar ábyrgra stjórnenda,“ segir Bryndís. Átakið er unnið á vettvangi alþjóðasáttmála Samein- uðu þjóðanna. Farið er yfir nám skólans og inntak þess með tilliti til góðra stjórnarhátta. „Við teljum okkur aðeins þurfa að endurskoða hlutverk okkar og erindi til framtíðar,“ segir Bryndís um framtíðarþingið. Ákveðið var að bjóða velunnurum skólans, svo sem hollvinum, nemendum, starfsfólki, sveitarstjórnarfólki og nágrönnum skólans í Borgarbyggð. Hún vonast til að krafturinn sem leystist úr læð- ingi á þinginu verði gott veganesti fyrir skólann. Allar hugmyndir sem fram komu eru skráðar og unnið úr þeim í stefnumótunarvinnunni. Endurskipulagningu að ljúka Mikil umræða var um framtíð Há- skólans á Bifröst á seinni hluta árs- ins 2010 vegna viðræðna um samein- ingu við Háskólann í Reykjavík. Ákveðið var að hætta við sameiningu og starfrækja skólann áfram. Þá kom fram að skólinn ætti í lausafjár- erfiðleikum. Bryndís segir að á síð- asta ári hafi verið unnið að fjárhags- legri endurskipulagningu og hagræðingu í rekstri. Þeirri vinnu er að ljúka og telur rektor að skólinn sé vel rekstrarhæf eining. Það hjálpar til að aðsókn að skólanum hefur auk- ist verulega. Bryndís segir að engu að síður sé nauðsynlegt fyrir háskólana að vinna saman. Það samstarf eigi að snúast um að auka gæði háskólastarfsins. Skerpa sýn á framtíðina á Bifröst Vorið er komið að kveða burt snjóinn, ef marka má frétt- ir fuglaáhuga- manna á vefn- um fuglar.is, en þar segir að heyrst hafi í heiðlóu ofan við hesthúsahverfið við Eyrarbakka síð- astliðinn sunnudag. Og það er óhætt að segja að far- fuglarnir séu farnir að tínast til landsins því samkvæmt vefsíðunni hefur talsvert sést til álfta á flugi, m.a. á Höfn, í Almannaskarði, á Fá- skrúðsfirði og rétt utan við Egils- staði. Þá sást fyrsti tjaldur ársins á Heimaey á laugardag og við Höfn hefur stormmáfum og hettumáfum fjölgað síðustu daga. Á Vísindavef Háskóla Íslands má finna skemmtilega samantekt á því hvenær fyrst hefur sést til lóunnar á vorin en þar kemur m.a. fram að „meðaltal“ þeirra dagsetninga þegar hún sást fyrst árin 1998-2005 var 25. mars. Þó koma flestar lóur til lands- ins í apríl og er aðalfartími hennar frá septemberlokum til byrjunar nóvembermánaðar. Er hún einn þeirra farfugla sem dveljast hvað lengst hér á landi. holmfridur@mbl.is Lóan komin til Eyrar- bakka Víða er unnið að vinnslu loðnu- hrogna enda eru hrognin komin í fullan þroska og veiðarnar ganga vel. Skip þurfa þó að bíða löndunar á þeim stöðum sem næstir eru. Veiðisvæðið er nú á miðjum Breiðafirði. Skipin eru fljót að fylla sig og flest á leið til löndunar, við löndun eða á leið aftur á miðin. Loðnan er að nálgast hrygningu og því styttist í vertíðarlok. „Þetta er þegar orðin ágætis vertíð. Vonandi verður náttúran okkur hliðholl og við náum að klára þetta,“ segir Vil- hjálmur Vilhjálmsson, deildarstjóri uppsjávardeildar HB Granda. Fyr- irtækið er með fjögur skip á loðnu og á eftir um 20 þúsund tonna kvóta. Skipin landa í vinnslustöðvum fyr- irtækisins á Akranesi og Vopnafirði og segir Vilhjálmur reynt að halda uppi fullri vinnslu á báðum stöðum. Í gær höfðu verið veidd nærri 450 þúsund tonn, samkvæmt bráða- birgðatölum á vef Fiskistofu, en heildarkvótinn er um 590 þúsund tonn. Hrognavinnslan á fullu  Loðnuskipin fljót að fylla sig og bíða þarf eftir löndun Ljósmynd/Börkur Kjartansson Beðið Örtröð var í Akraneshöfn í fyrradag. Faxi komst að til löndunar þegar Víkingur hélt á miðin á ný og Lundey beið þangað til í gær. Loðnan er að nálgast hrygningu og því styttist í vertíðarlok, 450 þúsund tonn hafa verið veidd.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.