Morgunblaðið - 06.03.2012, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 06.03.2012, Blaðsíða 26
26 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 2012 Elsku pabbi. Ég er svo innilega þakklátur hvernig þú með jákvæðu hugar- fari og dugnaði auðveldaðir okk- ur þessa baráttu. Lífsviljinn var sterkur allt til enda, það var svo margt sem þú hlakkaðir til, en þú varst líka raunsær og tókst á við hlutina eins og þroskaður maður. Þér var umhugað um velferð fjöl- skyldunnar og sérstaklega mömmu sem stóð eins og klettur þér við hlið. Þið elskuðuð hvort annað innilega. Við vorum öll svo glöð þegar þið komust loks heim þó að fljót- lega væri ljóst hvert stefndi. Tíminn á líknardeildinni var góð- ur. Yndislegt starfsfólk gerði allt sem í þess valdi stóð til að líðanin væri sem best og við vorum sam- an öllum stundum. Þegar dró að Þórður Ólafsson ✝ Þórður Ólafs-son fæddist á Núpi í Dýrafirði 26. júlí 1948. Hann lést á líknardeild Land- spítalans í Kópa- vogi að kvöldi þriðjudagsins 21. febrúar. Útför Þórðar fór fram frá Víðistaða- kirkju í Hafnarfirði 2. mars 2012. lokum tókst þér að miðla til okkar kær- leika og mildi og kveðjustundin var falleg. Þú varst allt- af örlátur maður og gafst okkur þína hinstu og bestu gjöf. Þinn Orri. Hinsta kveðja frá Fóstbræðrum Félagi okkar, Þórður Ólafs- son, er fallinn frá langt um aldur fram. Hann starfaði með kórnum á áttunda áratugnum og söng 2. tenór. Vegna fjarveru, erlendis, átti Þórður óhægt um æfingar og hætti eftir vortónleika árið 1973. Fóstbræður minnast góðs fé- laga með virðingu og votta að- standendum samúð sína. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum.) Gunnlaugur V. Snævarr, formaður Fóstbræðra. Hjá ömmu Stellu leið mér alltaf vel, var aldrei skömmuð sem var góð tilbreyting frá heimilum for- eldra minna. Þegar ég kom í heimsókn eftir langan skóla- dag var alltaf eitthvað gott á boðstólum. Það var svo nota- legt að vera hjá ömmu. Ég þurfti aldrei að vera ein, hún lék við mig, horfði á sjónvarpið með mér og þjónaði mér á alla kanta. Við horfðum gjarnan á myndina Stellu í orlofi. Þetta var uppáhaldsmyndin mín um tíma og auðvitað lét amma sig hafa það að horfa á alla mynd- ina með mér. Það var allt á sínum stað hjá ömmu, allt hreint og fínt. Ég mátti gera flest sem mig lang- aði, hún gekk frá eftir mig. Ein af eftirminnilegustu minn- ingum mínum af ömmu er þeg- ar hún fór með mig til Te- nerife. Mamma og hin amma mín ætluðu að vera þar í 2 vik- ur veturinn 2006. Kom upp sú hugmynd að ég og amma Stella myndum koma og vera með þeim seinni vikuna. Ferð- in var mjög skemmtileg þar sem amma naut sín vel og skemmti sér frábærlega. Að- eins var farið að örla á minn- istapi en líkamlegt ástand var gott og hún gat gengið nánast endalaust. „Holy cow“ sagði hún oft á dag þessa viku, oft- ast upp úr þurru og af litlu til- efni. Henni fannst gott að fá sér Irish-coffee með vindlinum sínum á barnum eftir kvöld- matinn. Amma var alltaf snögg til svars og var orðunum ekki pakkað inn í gjafapappír. Ég fann ætíð til mikils öryggis þegar ég var með ömmu. Hún var alltaf tilbúin með sína hjálparhönd þegar á þurfti að halda og hafði óbilandi trú á mér í einu og öllu. Eftirminni- legt er eitt skipti þegar hún kom til að horfa á mig keppa þegar ég var yngri. Í höllina mætti hún í sínum pels, með pelshúfuna í stíl. Sat kapp- klædd allan tímann. Vel til höfð eins og venjulega. Ég var að keppa í hástökki sem var ekki mín sterkasta grein og var tiltölulega fljótt úr leik. Enn voru nokkrar stelpur eftir og áttu eftir að stökkva mun hærra. Heyrist þá hátt í ömmu ofan úr stúku: „Ef hún Arna Stefanía getur ekki farið yfir þetta þá fer það engin.“ Hún hafði alltaf þvílíka trú á sínum. Amma var yndisleg mann- eskja og vildi allt fyrir alla gera. Það var sárt að sjá heilsu hennar hraka svona hratt og mikið. Ég á yndislegar minn- ingar um heimsins bestu ömmu. Hún borðaði alltaf hjá okkur á aðfangadagskvöld. Stefanía Sigrún Þórðardóttir ✝ Stefanía Sig-rún Þórðar- dóttir, ,,Stella“ fæddist í Reykjavík 9. nóvember árið 1930. Hún lést 22. febrúar 2012. Útför Stefaníu fór fram frá Foss- vogskirkju 2. mars 2012. Mætti prúðbúin og fín, gjarnan með Waldorf-salatið sitt góða í skál. Jóladegi eyddum við alltaf á Háa- leitisbrautinni, þar var veisluborðið með sænsku og dönsku ívafi, heilt hlaðborð. Vikan okkar í Gautaborg sumar- ið 2009 var frábær. Amma gekk alla daga á völlinn til að horfa á mig, orðin gömul og rugluð að eigin sögn. Hún tal- aði sænskuna enn eins og inn- fædd. Eitthvað hafði hún rugl- ast þegar hún pakkaði niður, taskan nánast tóm svo við skelltum henni bara í föt af mömmu. Hún var lukkuleg með sig þó að fötin væru í stærra lagi og spásseraði um allt eins og hún ætti lífið að leysa. Enda fór svo að hún var með mikla strengi í leggjunum lengi eftir að við komum heim. Það eru forréttindi að hafa fengið að kynnast þér, elsku amma mín, og eiga svona góð- ar minningar. Takk fyrir allt sem þú hefur gefið mér. Þín, Arna Stefanía. Ég kynnist Stellu þegar ég var unglingur og hún flutti á Sunnubrautina með strákana tvo. Okkur Skúla varð vel til vina og þar með varð ég heimagangur á hennar fallega heimili. Það er einmitt fallegt heimili og reisn sem kemur upp í hugann þegar ég hugsa til baka. Heimilið var í skand- inavískum stíl og svolítið fram- andi fyrir mig, ég man að hún las mikið af dönskum og sænskum blöðum um heimilis- hald og innréttingar og eldaði öðruvísi mat en mamma mín, meira svona mat eins og mað- ur les um í Astrid Lindgren- bókum. Hún var líka alltaf að, heim- ilið í stöðugri endurnýjun og innréttingu og ekki get ég talið skiptin sem ég var kallaður á heimilið til að bera húsgögn fram og til baka, og milli húsa þegar það átti við. Góðar stundir í sumarbú- staðnum koma líka upp í hug- ann, og endalaus gestrisni og gjafmildi. Stella var mikil mamma og ofdekraði náttúr- lega drengina eins og mömmur gera enda var það einhvern veginn alveg skýrt að hún leit á það sem sitt stærsta hlut- verk að koma þeim til manns. Miðað við hvernig það tókst til voru hæfileikar hennar í að innrétta fólk ekki síðri enda leitun að betri mönnum en þeim Skúla og Gumma. Það fékk hún líka sjálf að reyna þegar hún þurfti á halda hin seinni ár. Því miður er ég í út- löndum í dag, því varð ekki breytt, en það hefði verið mér heiður að fá að taka þátt í þessum síðasta flutningi með þér, kæra Stella. Ég skal hafa auga með strákunum, hafðu þökk fyrir allt og góða ferð. Hreinn Hreinsson. Elskuleg tengdamóðir mín Ás- laug Sveinsdóttir hefur nú kvatt hinstu kveðju. Margs er að minnast og fyrir margt ber að þakka. Kynni mín af Ásu einkenndust af kærleika og hlýju, hún var glettin og spaug- söm og afar bóngóð, óspör á að passa barnabörnin sín. Alltaf var gott að koma á Borgarbrautina, þar naut Ása sín í að gefa fólkinu sínu eitthvað gott að borða, enginn fór svangur af hennar fundi. Svo voru það sokkar og vettlingar, sem hún prjónaði, því engum mátti verða kalt. Þegar við Ásberg fórum í hestaferðir komu þau hjón Jón og Ása oft á jeppanum í ein- hvern áningarstaðinn með smurt brauð, pönnukökur og kaffi sem við og samferðamenn okkar feng- um að njóta. Ég finn pönnuköku- ilm við tilhugsunina. Það var óborganleg ferð sem ég komst í með Hrefnu, þegar hún fór með þær systur Ásu og Gunnu í verslunarferð til Reykjavíkur. Áslaug Sveinsdóttir ✝ Áslaug Sveins-dóttir fæddist á Hvítsstöðum í Álftaneshreppi á Mýrum 30. apríl 1923. Hún lést á Dvalarheimili aldr- aðra í Borgarnesi 25. febrúar síðast- liðinn. Áslaug var jarð- sungin frá Borgar- neskirkju 3. mars 2012. Það var mikið mátað og enn meira hlegið. Ása og Jón voru dugleg að fara í úti- legur með tjaldvagn- inn sinn, og seinna var það fellihýsið sem þau tjölduðu í túnfætinum í Hjarð- arholti. Daglega eða alltaf ef veður leyfði fóru þau hjón í gönguferðir út á Sel- eyri sem ugglaust lagði grunn að háum aldri og góðri heilsu. Ása var meðvituð um mikilvægi góðr- ar hreyfingar og holls mataræðis, hún var bæði búin að fara í hjarta- aðgerð og fá krabbamein. Á því vann hún af æðruleysi og dugnaði. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Starfsfólki Dvalarheimilis aldr- aðra í Borgarnesi er þakkað fyrir frábæra umönnun. Og að öllum ólöstuðum vil ég nefna Ólaf mág minn, hann gerði Ásu það kleift að geta búið svo lengi á Borgarbrautinni sinni sem raun bar vitni. Hvíl þú í eilífum friði og hafðu þökk fyrir allt, elsku Áslaug mín. Þín tengdadóttir, Sigríður Jóna. ✝ Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, SVAVARS MAGNÚSSONAR bónda frá Skörðum. Pálína Guðrún Gunnarsdóttir, Sigríður Jóna Svavarsdóttir, Jóhann Eysteinn Pálmason, Gunnar Örn Svavarsson, Guðgeir Svavarsson, Kristín Ármannsdóttir, Sigmar Svavarsson, Valborg Reisenhus, Margrét Svavarsdóttir, Sigurður Helgason, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, JÓNAS HELGFELL MAGNÚSSON frá Uppsölum, Hléskógum 10, Egilsstöðum, lést þriðjudaginn 28. febrúar. Útförin fer fram frá Egilsstaðakirkju laugardaginn 10. mars kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á að láta líknarstofnanir njóta þess. Ásta Þ. Jónsdóttir, Sigurlaug J. Jónasdóttir, Jón M. Einarsson, Hafsteinn Jónasson, Ágústa Björnsdóttir, Ríkharður Jónasson, Guðbjörg M. Sigmundsdóttir, Kári H. Jónasson, Rut S. Hannesdóttir, Jónas Þ. Jónasson, Hilma L. Guðmundsdóttir, Magnús Á. Jónasson, Rósa G. Steinarsdóttir, Ásthildur Jónasdóttir, Grétar U. Karlsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, UNNAR SÆMUNDUR SIGURTRYGGVASON, sem lést þriðjudaginn 28. febrúar, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 9. mars kl. 13.00. Guðmundur Unnarsson, Sigríður Sæmundsdóttir, Emilía Sæmundsdóttir, Heiðbrá Sæmundsdóttir, Tryggvi Sæmundsson, Unnur Sæmundsdóttir, Kristófer Sæmundsson, Guðmundur Sæmundsson, Davíð Brár Unnarsson, Hanna Sigga Unnarsdóttir, tengdabörn, afabörn og langafabörn. ✝ Þökkum innilega öllum þeim sem sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, BERTHU SIGURÐARDÓTTUR, Háaleitisbraut 24. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elsku drengurinn okkar, bróðir, ömmubarn og frændi, GUNNAR ÖRN GUNNARSSON, sem lést af slysförum í Tansaníu laugar- daginn 18. febrúar, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn 7. mars kl. 15.00. Mjöll Helgadóttir, Gunnar Þorsteinsson, Össur Gunnarsson, Eyrún Valsdóttir, Soffía Gunnarsdóttir, Daníel Helgi Gunnarsson, Hrafnhildur Thoroddsen. ✝ Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUNNLAUGUR BRIEM PÁLSSON verkfræðingur, Bröttutungu 1, Kópavogi, sem lést á heimili sínu föstudaginn 2. mars, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 9. mars kl. 13.00. Þeir sem vilja minnast hans láti Hjartavernd njóta þess. Inga Ingibjörg Guðmundsdóttir, Páll Gunnlaugsson, Anna Gyða Gunnlaugsdóttir, Jóhanna Gunnlaugsdóttir, Colm M. McGinley, Edda Þórðardóttir Karlson, Logi, Inga Hlíf, Edda, Marín Ingibjörg og Iðunn. Morgunblaðið birtir minning- argreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Neðst á forsíðu mbl.is má finna upplýsingar um inn- sendingarmáta og skilafrest. Einnig má smella á Morgunblaðs- lógóið efst í hægra horninu og velja viðeigandi lið. Skilafrestur | Sé óskað eftir birt- ingu á útfarardegi þarf greinin að hafa borist á hádegi tveimur virk- um dögum fyrr (á föstudegi ef út- för er á mánudegi eða þriðju- degi). Þar sem pláss er takmarkað get- ur birting dregist, jafnvel þótt grein hafi borist innan skilafrests. Lengd | Hámarkslengd minning- argreina er 3.000 slög. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda stutta kveðju, Hinstu kveðju, 5-15 línur. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem aðstandendur senda inn. Þar kemur fram hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og hvenær út- förin fer fram. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.