Morgunblaðið - 06.03.2012, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 06.03.2012, Blaðsíða 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 2012 Dansleikhúsverkið ÚPS!er lokaverk þríleiks semÍslenska hreyfi-þróunarsamsteypan vann út frá verkum Shakespeares. Fyrsta verk seríunnar nefndist Shake me og var það unnið út frá harmleikjunum, því næst kom verkið Kandíland sem var unnið út frá konungaverkunum. ÚPS! er síðasti þáttur raðarinnar þar sem gamanleikir Shakespeares eru helsta uppsprettan. Flytjendur eru Hannes Óli Ágústsson, Katrín Gunnarsdóttir, Melkorka Sigríður og Ragnheiður Bjarnarson. Leik- stjóri er Víkingur Kristjánsson og Ásgerður G. Gunnarsdóttir sá um dramatúrgíu. Allir flytjendur verksins eru menntaðir dansarar nema Hannes Óli sem er menntað- ur leikari og stóð hann sig einkar vel í dansatriðum sýningarinnar. Grín og gaman er meginundir- staða verksins sem er í raun einn stór brandari frá upphafi til enda. Orðið úps vísar til mistaka en fyr- irfram ákveðin mistök og klaufa- skapur eru gegnumgangandi. Þátt- takendur verksins gera stólpagrín að sjálfum sér og um leið sam- félaginu í heild. Klámsögur, menn- ingarvitar, prumpandi ballerínur, mannlegur beiskleiki, svik og prettir eru meðal þess sem Hrey- fiþróunarsamsteypan setur fram í verkinu á hnyttinn og skemmti- legan hátt. Mikil tilgerð er í verk- inu og á köflum fer brandarinn yf- ir strikið, en tilgerðin er þó nauðsynleg fyrir hugmyndafræði verksins. Kaflaskiptingar voru miklar og erfitt var að ímynda sér hvaða vitleysa kæmi næst. Nokkrir kaflar sýningarinnar minntu einna helst á uppistand, þar sem einn meðlimur hópsins sagði grínsögur með líkama og orðum. Það er einkar skemmtilegur og vel út- færður kafli í verkinu þar sem menningarvitinn færir rök fyrir dansinum sem listformi og því ber að hrósa sérstaklega hversu flytj- endurnir voru djarfir við að gera grín að sjálfum sér. Skökk leikmynd og trúðslegir búningar Tinnu Ottesen og Helgu Rósar V. Hannam voru vel útfærð- ir og hæfðu verkinu einkar vel. Gísli Galdur Þorgeirsson sá um hljóðmynd verksins sem var virki- lega vel unnin. Tónlistin var sam- bræðingur þekktra poppslagara og nýrra tóna. Langar þagnir gerðu það að verkum að tónlistin gegndi hlutverki stemningsgjafa og fékk áhorfendur til þess að dilla sér á milli hlátraskalla. Verkið ÚPS! er grín frá upphafi til enda og er ekki ætlað við- kvæmum sálum og fýlupokum. Grín frá upphafi til enda Grín og gaman „… erfitt var að ímynda sér hvaða vitleysa kæmi næst.“ Dansleikhúsverkið ÚPS! bbbnn Íslenska hreyfiþróunarsamsteypan sýnir dansleikhúsverkið ÚPS! MARGRÉT ÁSKELSDÓTTIR HÖNNUN „Við erum himinlifandi yfir því hvernig tókst til og vonumst til að þetta styðji við ímynd okkar sem framsækinnar hljómsveitar,“ segir Sigurður Nordal, framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands, þegar hann er spurður út í viðbrögðin við Tectonics-tónlistarhátíðinni sem lauk á laugardag. „Viðbrögðin hafa verið mjög góð og ég tel að okkur hafi tekist að fara alveg nýjar leiðir,“ segir hann. Blaðamaður hefur haft tal af fjölda fólks sem sótti fjölbreytilega tón- leika á þessum þremur dögum og var afar hrifið af framkvæmdinni sem og einstökum uppákomum. „Mikill og strangur undirbún- ingur lá að baki en mér heyrist allir vera sammála um að frábærlega hafi tekist til,“ segir Sigurður. „Við vor- um að fara inn á nýjar brautir, ekki bara fyrir okkur, heldur líka að mörgu leyti við að reyna á hver þol- mörk sinfóníuhljómsveitar eru. Allir sem komu að þessu virðast hafa not- ið þess að taka þátt.“ Sigurður segir ætlunina hafa verið að tengja Sinfóníuhljómsveitina inn í þá grósku sem er í íslensku tónlist- arlífi og einnig að setja nýja íslenska tónlist, og eldri eins og í tilviki verka eftir Magnús Blöndal Jóhannsson, inn í alþjóðlegt samhengi. „Annað markmið var að ná til ungra tónlistaráhugamanna sem hlusta á allskyns áhugaverða tónlist. Einnig var leikið á mörk tónlistar og myndlistar, rýmislistar, og það höfð- aði greinilega til margra sem hafa víðtækan listrænan áhuga.“ Markmiðið er að fara aftur af stað með Tectonics-hátíð á næsta ári og að hún verði fastur liður á næstu ár- um. efi@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Ný nálgun Sinfóníuhljómsveitin æfir fyrir Tectonics í Norðurljósum. Nýjar leiðir farnar á Tectonics  Ánægja með hvernig tókst til Hljómsveitin ADHD kemur fram á tónleikum Jazzklúbbs- ins Múlans í Norræna húsinu annað kvöld og hefjast þeir klukkan 21.00. Þá leikur hún á Græna hattinum, Akureyri, daginn eftir. ADHD er skipuð bræðrunum Óskari og Ómari Guðjónssonum ásamt Davíð Þór Jónssyni og Magnúsi Trygvasyni Elíassen. Munu þeir leika glænýtt efni ásamt tónlist af áður útgefnum diskum. Þess má geta að síðasti diskur þeirra, ADHD2, hlaut nokkrar til- nefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna og hefur hlotið lofsamlega dóma gagnrýnenda. Tónlist ADHD leikur glænýtt efni Hljómsveitin ADHD. Á hádegistónleikum í Hafn- arborg í dag, þriðjudag, flytja þau Ágúst Ólafsson barí- tónsöngvari og Antonía Hevesi píanóleikari efnisskrá sem sam- anstendur af serenöðum og mansöngvum. Tónleikarnir hefjast klukkan 12.00 og standa í um hálfa klukkustund. Í tilkynningu segir að á tón- leikunum einbeiti Ágúst, sem er einn okkar kunnustu söngvara, sér að pörunarhljóðum mannskepnunnar, nánar til- tekið karldýrsins og flytji nokkur dæmi um sere- nöður eða mansöngva úr heimi klassískrar tónlist- ar, meðal annars í hlutverki Don Juans. Tónlist Flytja serenöður og mansöngva Ágúst Ólafsson Ljósmyndasýning Einars Jóns- sonar, Flandur um París, var opnuð í Eiðisskeri, sal Bóka- safns Seltjarnarness, í gær. Á sýningunni beinir Einar, sem er blaðamaður og ljós- myndari, linsunni að fjölbreyttu mannlífi á götum og torgum Parísarborgar. Flestar mynd- irnar tók Einar þegar hann dvaldi í borginni við Signu vet- urinn 2004-2005. Sýningin stendur til 30. mars og er opin á af- greiðslutíma safnsins, mánudaga til fimmtudaga kl. 10-19 og föstudaga kl. 10-17. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Ljósmyndun Flandur Einars um Parísarborg Ferðamenn við Palais de Chaillot. Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Ég ætla að fjalla um hvernig minn- ingar fólks varðveitast, hvernig fólk man liðna tíð og hvaða leiðir það hef- ur til að minnast þeirra, en það er í gegnum þessar svokölluðu sjálfs- bókmenntir sem eru sjálfsævisögur, endurminningarit, samtalsbækur, dagbækur og bréf,“ segir Sigurður Gylfi Magnússon sagnfræðingur. Sigurður flytur í dag erindi sem hann nefnir Að lifa í minningunni - stigmögnun sjálfstjáningar í Þjóð- minjasafninu milli kl. 12:05-13:00, en erindið er hluti af hádegisfundaröð Sagnfræðingafélags Íslands þar sem minningar eru til sérstakrar skoðunar. „Yfirskrift erindisins vísar til þess að formið á sjálfsbókmenntunum breytist frá einum tíma til annars, en ég ætla að rekja þessa stigmögn- un í fyrirlestri mínum. Þannig eru sjálfsævisögur 19. aldar manna allt öðruvísi en endurminningarit sam- tímafólks. Í dag er mun yngra fólk að skrifa auk þess sem miðlarnir eru aðrir,“ segir Sigurður og bendir á að nútímafólk vinni til dæmis með minningar sínar í stafrænu formi á Facebook og bloggsíðum. Ekki ein saga sem öllu ræður „Það má segja að ég hafi nánast allan minn starfsferil unnið með minningar fólks, sem birtast í því sem við getum kallað persónulegar heimildir. Ég hef þannig sérhæft mig í rannsóknum á einkaskjölum fólks þar sem einstaklingurinn er settur í forgrunn,“ segir Sigurður og rifjar upp að árið 2004 hafi hann í samstarfi við nemendur sína tekið saman skrá yfir allar sjálfsævisögur, endurminningarit og samtalsbækur sem gefnar höfðu verið út hérlendis frá upphafi vega og til ársins 2004 og reyndust þær alls vera 1089 tals- ins. „Ég hef unnið heilmikið með þennan gagnagrunn í rannsóknum mínum,“ segir Sigurður, en hann gegnir rannsóknarstöðu dr. Krist- jáns Eldjárns við Þjóðminjasafnið. Sigurður bendir á að framan af hafi sagnfræðingar verið tregir til að nýta sér við rannsóknir persónu- legar minningar fólks nema í mjög afmörkuðum tilgangi, þar sem þær þóttu of einstaklingsbundnar og sjónarhornið ekki nógu hlutlægt. „Á síðari árum hefur orðið grundvall- arbreyting á hugmyndum fræði- manna um stöðu slíkra minninga í vísindarannsóknum. Þessar heim- ildir hafa þannig öðlast meira gildi eftir því sem nær dregur samtím- anum. Það er ekki lengur ein saga og eitt sjónarhorn sem öllu ræður, heldur fjölmörg sjónarhorn,“ segir Sigurður og bendir á að sjónarhorn ýmissa minnihlutahópa hafi í gegn- um tíðina yfirleitt ekki ratað inn í opinberar heimildar heldur í einka- skjöl. „Hérlendis eru handritasöfn stútfull af persónulegum heimildum og fræðimenn hafa neyðst til þess að leita í þessar heimildir af því að krafan um nýtt sjónarhorn hefur verið svo sterk, t.d. á síðustu þrem- ur áratugum. Vandinn við notkun þessara heimilda er að það er svo mikil vinna að fara í gegnum þær,“ segir Sigurður og bendir á að varð- veittar séu dagbækur sem haldnar hafi verið í áratugi og fylli marga hillumetra. Sjálfsbókmenntir taka breytingum í tímans rás  Minningar til skoðunar hjá sagnfræðingum Morgunblaðið/Sigurgeir S. Gullnáma „Hérlendis eru handritasöfn stútfull af persónulegum heimildum,“ segir Sigurður Gylfi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.