Morgunblaðið - 06.03.2012, Page 33

Morgunblaðið - 06.03.2012, Page 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 2012 Vilhjálmur Andri Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Leik- og söngkonan Kristjana Skúla- dóttir hefur frá sokkabandsárum sín- um verið aðdáandi tónlistar stríðs- áranna. „Vera Lynn var oft sungin í sturtunni og ég hef alltaf verið hrifin af tónlistinni sem kom til landsins á árum seinni heimsstyrjaldarinnar,“ segir Kristjana sem verður með þrenna tónleika um söngkonur stríðs- áranna í Reykjavík, á Flúðum og Hvolsvelli. „Það verða flutt lög sem voru vin- sæl í síðari heimsstyrjöld með Mar- lene Dietrich, Veru Lynn, Edith Piaf og fleiri söngkonum sem gerðu garð- inn frægan á þessum örlagaríka tíma í mannkynssögunni. Þetta verður hvort tveggja söngur og frásögn um afrek þessara kvenna á stríðsárunum.“ Ásamt Kristjönu verða Vignir Þór Stefánsson á píanó, Gunnar Hrafns- son á bassa og Matthías Hemstock á trommur. „Hljómsveitin hefur enn ekki fengið neitt nafn en það mætti kalla þetta Hersveitina sem fer um landið að syngja og skemmta fólki.“ Hetjurnar heima fyrir Sjaldan í sögu mannkynsins hefur jafn mikið verið undir og í síðari heimsstyrjöldinni. Bretar stóðu um tíma einir gegn ógn alræðis og eyði- leggingarmætti þriðja ríkisins. Á með- an ungir menn börðust og létu lífið fyrir frjálst þjóðskipulag börðu lista- menn, og þá ekki síst ungar söng- konur, kjark og þor í breska þjóðarsál. „Þegar ég fór að kynna mér betur þátt tónlistar og lista á þessum tíma komst ég að því að það voru ríkisstofn- anir bæði í Bretlandi og Bandaríkj- unum sem sáu um að útvega bæði her- mönnum og borgurum andlegt fóður í þeirri von að efla baráttuþrekið. Lista- fólk landanna var fengið til liðs við þessa starfsemi og þar voru nokkrar söngkonur sem þóttu sérstaklega áhrifaríkar. Það má segja að þær hafi verið á hliðarlínunni á vígvellinum og hvatt liðið áfram. Það hefur verið mik- ilvægt að berja kjark í stríðshrjáða þjóð eins og Breta með tónlist sem gat tekið huga fólks frá stríðinu, þó ekki væri nema um stundarsakir.“ Innrásin á Ísland Ísland var ekki útundan í tónlistar- lífi stríðsáranna og hingað til lands fluttu breskir og bandarískir hermenn með sér tónlist og menningu sem var landanum ókunn. „Það flæddi ný og spennandi tónlist inn í landið með her- námsliðinu en bæjarbúar Reykjavíkur og landsmenn almennt börðust marg- ir hverjir af mikilli heift gegn þessari frumskógartónlist sem ærði unga fólkið. Það vakti líka mikla hneykslan þegar íslensk stúlka steig á svið og flutti þessa tónlist með tilheyrandi dilli en það var Hallbjörg Bjarnadóttir.“ Kristjana mun fara stutt yfir sögu og þróun íslenskrar tónlistar á þessum tíma og segja frá viðbrögðum bæj- arbúa við þessum útlendu áhrifum. Fyrstu tónleikar hennar verða í Iðnó 9. mars. Tónlistin og hetjurn- ar heima fyrir  Tónleikar um söngkonur stríðsáranna verða í Iðnó á föstudaginn Klassísk Söngur stríðsáranna er löngu orðinn klassískur og mun Kristjana Skúladóttir gera lögum frá þeim tíma góð skil á tónleikum um næstu helgi. Bíólistinn 2.-4. mars 2012 Nr. Var síðast Vikur á listaKvikmynd Svartur á Leik Journey 2: The Mysterious Island TheWoman In Black This Means War A Few Best Men Ghost Rider: Spirit of Vengeance 3D Safe House Un monstre à Paris (Skrímsli í París) Alvin og íkornarnir 3 Beauty And The Beast 3D Ný 1 Ný 3 5 2 6 7 10 8 1 2 1 3 3 2 4 4 12 3 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Íslenska stórmyndin Svartur á leik sló öllum Hollywood-myndum helg- arinnar við og fóru 8.543 ein- staklingar að sjá myndina . Alls fóru 3.333 á stórmyndina Journey 2: The Mysterious Island með þeim Dwayne Johnson og Michael Caine sem er í öðru sæti aðsóknarlista helgarinnar. Svartur á leik fjallar um undirheima Reykjavíkur og kynslóðaskiptin sem urðu um alda- mótin. Í þriðja sæti aðsóknarlistans er hryllingsmyndin The Woman In Black eftir James Watkins. Í mynd- inni sem fjallar um draug konu sem hrellir íbúa í litlu þorpi leikur m.a. Daniel Radcliffe sem er líklega þekktastur fyrir hlutverk sitt sem hinn ungi Harry Potter. Gaman- og spennumyndin This Means War fellur niður um eitt sæti og situr í fjórða sæti listans en hún hefur ver- ið á listanum í 3 vikur. Af topp- myndum listans fellur mynd Nicol- as Cage, Ghost Rider: Spirit of Vengeance 3D, mest og fer úr 2. sæti listans í það sjötta en hún kom ný inn á listann fyrir viku og er framhald af ævintýri og spennu söguhetjunnar Johnny Blaze sem gerði samning við djöfulinn og vinnur hans verk. Bíóaðsókn helgarinnar Íslensk stórmynd á toppi listans Stórmynd Svartur á leik fer vel af stað og hafa fáar íslenskar kvikmyndir náð eins miklum hæðum á frumsýningarhelgi sinni. Kjartan Þorbjörnsson, Golli, var verðlaunaður fyrir myndröð ársins þegar Blaðamannaverðlaun Blaða- mannafélagsins voru afhent í Gerð- arsafni á laugardaginn. Samhliða af- hendingunni var árleg sýning Blaðaljósmyndarafélags Íslands á bestu myndum ársins 2011 opnuð en aðrir ljósmyndarar sem voru verð- launaðir voru Eyþór Árnason (um- hverfismynd ársins og í flokknum „daglegt líf“), Kristinn Magnússon (íþróttamynd ársins og tímarita- mynd ársins), Rakel Ósk Sigurð- ardóttir (portrettmynd ársins), Daníel Rúnarsson (fréttamynd árs- ins sem var og valin mynd ársins). Í myndröð Golla er fylgst með baráttu ungs drengs, Gunnars Hrafn Sveinssonar, og fjölskyldu hans við hvítblæði. Í umsögn dóm- nefndar segir m.a.: „Myndröðin er sérlega sterk og sýnir allt litróf til- finninga; sorg, gleði, áhyggjur, von, umhyggju og ást …“ Golli segist mjög ánægður með viðurkenninguna en þetta verkefni sé enn í gangi og hafi nú verið í rúm- lega tvö ár. „Það er enn verið að fylgjast með drengnum og ég þar af leiðandi líka. Það mátti bara senda inn átta mynd- ir þannig að þetta er bara örlítið brot af því sem ég hef verið að gera. Ég reyndi að vera eins sannur og ég gæti og notaði t.d. ekki flass, skar ekki myndirnar o.s.frv.. Þetta ferli hefur eðlilega tekið á tilfinningalega, ég hafði aldrei hitt drenginn áður en í gegnum þetta hefur orðið til mikill og fallegur vinskapur á milli fjöl- skyldu hans og minnar. Það var á köflum erfitt að vera inni í þessu og undarlegt að hafa upplifað erfiðan dag á sjúkrahúsinu, koma svo heim og vera ánægður með myndirnar. Þessu fylgdi því viss tilfinningaleg togstreita.“ arnart@mbl.is Verkefni sem tók á  Bestu blaðaljósmyndir ársins sýndar í Gerðarsafni  Kjartan Þorbjörnsson, Golli, á myndröð ársins Ljósmynd/Golli Nánd Signý Gunnarsdóttir, móðir Gunnars eða Krumma, vakir yfir afkvæminu. FT FBL ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJU DAGSTI LBOÐ MBL DV TOPPMYNDIN Á ÍSLANDI YFIR 10.000 MANNS Á 5 DÖGUM! Þ.Þ., FRÉTTATÍMINN H.V.A., FRÉTTABLAÐIÐ SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%NÁNAR Á MIÐI.ISGLERAUGU SELD SÉR 5% SVARTUR Á LEIK KL. 5.40 - 8 - 10.20 16 SVARTUR Á LEIK LÚXUS KL. 5.40 - 8 - 10.20 16 TÖFRATENINGURINN KL. 3.40 L HAYWIRE KL. 5.50 - 8 16 GHOST RIDER 3D ÓTEXTUÐ KL. 5.50 - 8 - 10.15 12 THIS MEANS WAR KL. 8 - 10.15 14 STAR WARS EPISODE 1 3D ÓTEXTUÐ KL. 5 10 SAFE HOUSE KL. 10.10 16 SKRÍMSLI Í PARÍS 3D KL. 3.40 L ALVIN OG ÍKORNARNIR 3 KL. 3.40 L BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS SVARTHÖFÐI.IS FRÉTTABLAÐIÐ SVARTUR Á LEIK KL. 6 - 8 - 10 16 / THIS MEANS WAR KL. 6 14 GHOST RIDER 2 3D ÓTEXTUÐ KL. 10 12 / HAYWIRE KL. 8 16 SVARTUR Á LEIK KL. 5.40 - 8 - 10.20 16 TÖFRATENINGURINN KL. 6 L GHOST RIDER 3D ÓTEXTUÐ KL. 8 12 THIS MEANS WAR KL. 8 - 10.15 14 STAR WARS EPISODE 1 3D ÓTEXTUÐ KL. 10.15 10 THE DESCENDANTS KL. 5.30 L LISTAMAÐURINN KL. 6 - 8 - 10 L FRÁBÆR FJÖLSKYLDUMYND MEÐ ÍSLENSKU TALI

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.