Morgunblaðið - 26.03.2012, Blaðsíða 1
M Á N U D A G U R 2 6. M A R S 2 0 1 2
Stofnað 1913 72. tölublað 100. árgangur
VAR SPURNING UM
KARLMENNSKUNA
EÐA SJÁLFT LÍFIÐ
BRUMIN
ÞRÚTNA
EYSTRA
ÆSKAN ER
ÖLDUNGIS
YNDISLEG
BLÍÐUR VETUR 12 MÚSÍKTILRAUNIR 34-37BLÖÐRUHÁLSKRABBI 10
Einmuna blíða var við Mývatn á laugardaginn og mátti þá
aldrei þessu vant sjá menn dorga á vatninu.
Þeir sátu þar á skörinni Gylfi Yngvason og Sigurður Mar-
teinn og nutu stundarinnar, þó litlar sögur fari af veiðinni.
Það er vissulega ævintýralegt um að litast á veiðistaðnum við
ísröndina. Staðurinn heitir við Geilarauga skammt norður frá
Höfða. Það sér í Hrútey og fjær á Vindbelgjarfjall. Það eru fá-
ir sem gefa sér tíma til þess núorðið að fara að dorga á Mý-
vatni. Til margra ára hefur lítið sem ekkert veiðst þó setið
hafi verið á skörinni. Þó veiddist fallegur silungur sem gladdi
veiðimenn á bleikjuveiðitímabilinu sem varði í tvær vikur
framan af mars.
Ævintýralegur veiðistaður við ísröndina
Morgunblaðið/Birkir Fanndal
Hafinn er und-
irbúningur að því
að breyta DC-3
flugvélinni Páli
Sveinssyni í far-
þegavél en
Þristavinafélagið
sér um rekstur
vélarinnar sem
var um árabil
notuð til farþega-
flugs hjá Flug-
félagi Íslands og
síðan til áburðarflugs. Þetta myndi
auka notagildið og hjálpa til við
reksturinn en núna þarf að fá styrkt-
araðila fyrir hvert flug. Norrænu
þristavinafélögin reka öll DC-3 flug-
vélar sem farþegavélar og afla
tekna til rekstrarins með því að
bjóða útsýnisflug. »2
Þristinum verði
breytt í farþegavél
Vélin Páll Sveins-
son var áður Land-
græðsluvél.
Stjórnendur Matfugls ehf. gagn-
rýna harðlega frumvarp um breyt-
ingar á tollkvótum vegna innflutn-
ings búvara og segja stuðningskerfi
landbúnaðarins umbylt á einni nóttu
án þess að rekstraraðilar fái hæfi-
legan aðlögunartíma eða þeim sé
bættur skaðinn. Neytendasamtökin
segja brýnt að innlendum af-
urðastöðvum verði ekki úthlutaður
kvóti. Samtök verslunar og þjón-
ustu segja frumvarpið hafa veru-
lega skaðleg áhrif á innflytjendur,
neytendur og samkeppni. »18
Hörð gagnrýni úr
ólíkum áttum
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Friðrik J. Arngrímsson, fram-
kvæmdastjóri Landssambands ís-
lenskra útvegsmanna, telur áform um
leigupott í nýja kvótafrumvarpinu
munu skaða sjávarútveginn.
„Eins og fleiri hugmyndir sem
komið hafa fram í umræðum um
endurskoðun fiskveiðistjórnarkerfis-
ins mun þetta leiða til þess að íslensk-
ur sjávarútvegur verður óhagkvæm-
ari.
Með því er verið að búa til hóp
leiguliða sem vita ekkert um sína
framtíð. Þeir vita ekki hvaða heimildir
þeir fá til að veiða eða á hvaða verði.
Þessar útgerðir hafa engan rekstrar-
grundvöll og það hefur sýnt sig í
gegnum tíðina í allt of mörgum til-
vikum að þeir aðilar sem eru kvóta-
lausir og hafa leigt til sín aflaheimildir
hafa ekki gert með réttum hætti upp
við sjómenn.“
Ólína Þorvarðardóttir, þingmaður
Samfylkingar, staðfestir að leigupotti
frumvarpsins sé ætlað að opna fyrir
nýliðun í greininni. En samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins er mark-
miðið að potturinn verði ekki undir
20.000 þorskígildistonnum.
Ríkið fengi minni tekjur
Einnig hefur komið fram að hækka
eigi veiðigjald verulega og segir Frið-
rik þær hugmyndir varhugaverðar.
„Það er alveg ljóst að ef farið verð-
ur út í að hækka veiðigjaldið verulega
frá því sem nú er mun það hafa gríð-
arlegar afleiðingar. Það þýðir að
fyrirtækin geta ekki fjárfest. Þau
drabbast niður. Við yrðum að lækka
laun og annan kostnað og ríkissjóður
situr uppi með minni tekjur en ella og
við yrðum með veikari sjávarútveg.“
„Skattlagning á landsbyggðina“
Bergur Kristinsson, formaður
Skipstjóra- og stýrimannafélagsins
Verðanda í Vestmannaeyjum, varar
eindregið við hækkun veiðigjalds.
„Þetta er að mínu mati landsbyggð-
arskattur. Þetta er ekkert annað. Ef
það á að sérskatta landsbyggðina þá
endar það með hryllingi. Við getum
ekki endurnýjað skipin okkar og við
getum ekki gert eitt eða neitt. Veiði-
gjaldið er skattlagning á landsbyggð-
ina,“ segir Bergur sem varar líka við
leigupottaleiðinni. „Ef ríkið ætlar að
fara að taka að sér leigumiðlun með
kvóta hefur barátta okkar verkalýðs-
samtaka gegn bruðli og sóun verið til
einskis. Ég vil nefna sem dæmi að við
töpuðum gríðarlega miklu á strand-
veiðum. Þær leiddu til fjórðungsverð-
lækkunar á þorski.“
Potturinn býr til
„hóp leiguliða“
Framkvæmdastjóri LÍU varar við leigupottaleiðinni
Miðað við minnst 20.000 tonna pott í nýju kvótafrumvarpi
Breytingar Nýja kvótafrumvarpið
verður kynnt opinberlega í dag.
MForræðið frá útgerð »4
Dr. Stefanía Óskarsdóttir, lektor í
stjórnmálafræði, segir Alþingi setja
ofan með því að spyrja almenning í
þjóðaratkvæðagreiðslu um það
hvort þingmenn megi leggja fram
frumvarp til breytinga á stjórnar-
skrá. Hún leggur til að fyrri spurn-
ingunni í þingsályktunartillögunni
verði sleppt og að fremur verði
fjölgað efnislegum spurningum, sé
það vilji þingsins að þjóðin aðstoði
við frumvarpssmíðina.
Stefaníu virðist sem meirihlutinn
efist um umboð sitt til að sinna
stjórnarskrárbundnum störfum og
vill að hugtök um „þjóðareign“ og
„auðlind“ verði skilgreind áður en
þjóðin verði spurð. »6
Morgunblaðið/Golli
Skoðanaskipti Tekist á um málið.
Gagnrýn-
ir þingið
Segir Alþingi setja
ofan með tillögunni