Morgunblaðið - 26.03.2012, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 26.03.2012, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. MARS 2012 SVIÐSLJÓS Ingvar P. Guðbjörnsson ipg@mbl.is „Mér finnst þessi spurning fela það í sér að Alþingi sé að spyrja almenn- ing um leyfi fyrir því að fá að vinna betur með tillögur stjórnlagaráðs og leggja fram frumvarp,“ segir dr. Stefanía Óskarsdóttir, lektor í stjórnmálafræði við Háskóla Ís- lands, um tillögur meirihluta stjórn- skipunar- og eftirlitsnefndar Al- þingis um að fram fari þjóðaratkvæðagreiðsla um stjórn- arskrána samhliða forsetakosning- um í sumar. „Mér finnst Alþingi setja niður við að leggja svona spurningar fyrir fólk vegna þess að samkvæmt stjórnarskrá þá fer Alþingi með lög- gjafarvaldið og þarf ekki að spyrja um leyfi fyrir því,“ segir Stefanía. Vill sleppa fyrri spurningunni „Mér finnst betri leið að sleppa þessari fyrri spurningu og leggja frekar einhverjar almennar spurn- ingar fyrir, ef punkturinn er sá að leita til þjóðarinnar um hvernig eigi að vinna þetta frumvarp.“ Stefanía segir að verið sé að setja málið í einhvern búning lýðræðis. Meirihluti nefndarinnar „hefur gengist við því að þeir sérfræðingar sem hafa lagt mat á þetta hingað til, sem flestir eru á því að það þurfi að vinna þessar tillögur betur, hafi rétt fyrir sér,“ segir Stefanía og bætir við: „Þess vegna er ekki spurt hvort fólk sé samþykkt tillögu stjórnlaga- ráðs. Heldur er verið að spyrja: Ertu samþykkur því að Alþingi vinni betur tillögurnar og leggi svo fram frumvarp?“ Stefanía segir að það sé hrópandi að engar spurningar séu um for- setaembættið. Hún segir jafnframt vekja athygli að ekkert sé spurt um 67. grein, en Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hefur gert at- hugasemdir við að ekki sé spurt um þau mál og segist ekki að óbreyttu styðja frumvarpið nema spurningu um þá grein verði bætt við. Í grein- inni er tekið fyrir að hægt verði að bera upp mál á borð við Icesave- málið, í þjóðaratkvæðagreiðslu. Þar segir: „Á grundvelli þeirra er hvorki hægt að krefjast atkvæða- greiðslu um fjárlög, fjáraukalög, lög sem sett eru til að framfylgja þjóð- réttarskuldbindingum.“ „Maður spyr af hverju vinna þeir ekki frumvarp og leggja svo fyrir okkur,“ segir Stefanía. Morgunblaðið náði tali af Bjarna Benediktssyni og spurði hann út í ummæli hans frá því í gær um að það ætti að þjóðnýta allar auðlindir. „Það er enginn áskilnaður gerður í þessari spurningu um að einhverjar auðlindir séu í einkaeign og fyrst það er ekki gert þá er ekki hægt að skilja spurninguna öðruvísi en að það sé verið að spyrja fólk að því hvort að þjóðnýta eigi þær,“ sagði Bjarni og bætti við: „Öðruvísi verða ekki allar eignir í þjóðareign.“ Stefanía segir að það þurfi að skilgreina betur þessi hugtök um auðlind og þjóðareign. „Ertu að tala um bújarðir. Ertu að tala um sum- arbústaðarland sem fólk hefur keypt fyrir 30 árum og ræktað sinn skóg og ætlar að fara að höggva,“ sagði Stefanía og spurði hvort fólk gæti þá komið og sagt að þetta væri þjóðarskógur. Meirihluti efast um umboð sitt „Auðvitað lýsir þessi nálgun við- horfi þessa stjórnarmeirihluta til sjálfs sín,“ segir Stefanía um þá leið að ætla að spyrja þjóðina hvort þingmenn megi leggja fram frum- varp á Alþingi. „Nefndin telur sig ekki hafa neitt umboð til að fjalla um þessar tillög- ur stjórnlagaráðs. Hún telur að hún þurfi að fá grænt ljós hjá almenn- ingi um hvort hún megi gera eitt- hvað við þessar tillögur eða ekki. Það er sérstakt í ljósi þess að stjórnlagaráðið var valið með 30 at- kvæðum (þingmanna) sem stóðu á bak við þetta stjórnlagaráð. En stjórnarmeirihlutinn telur sig hafa veikt umboð til að breyta tillögum stjórnlagaráðs, en það er eiginlega öfugt finnst manni,“ segir Stefanía. Morgunblaðið/Sigurgeir S. Stjórnskipunarlög Stjórnlagaráð skilaði tillögum sínum til Alþingis í fyrra. Stjórnskipunarnefnd vill nú að þjóðin ákveði hvort nota eigi tillögurnar. Segir Alþingi setja niður  Dr. Stefanía Óskarsdóttir segir meirihlutann virðast efast um umboð sitt  Vill að hugtökin um „þjóðareign“ og „auðlind“ verði skilgreind vel fyrst „Við verðum sem þjóð að hafa stjórnarskrá sem er stjórnarskrá okkar allra og hún getur ekki verið stjórnar- skrá meirihluta gegn minni- hluta,“ sagði Árni Páll Árnason, þingmaður Samfylkinarinnar, í þættinum Silfri Egils í gær í um- ræðum meðal þingmanna um stjórn- arskrá Íslands. Árni Páll sagði að stjórnarskráin væri „sáttmáli okkar allra, ekki bara sumra og mikilvægt að okkur takist að skapa sem mesta sátt um hana“. Hann sagðist hafa áhyggjur af þeirri heift sem einkenndi orðræð- una um stjórnarskrána og hversu hatrammar fylkingar væru orðnar. „Almennt séð er það auðvitað ekki gott að blanda mörgum þáttum sam- an þegar verið er að leita álits í þjóð- aratkvæaðgreiðslum,“ sagði Árni Páll og leitaði eftir víðtækri sátt um hvaða spurningar yrðu lagðar fram. Stjórnar- skráin er okkar allra  Hefur áhyggjur af orðræðunni nú Árni Páll Árnason „Þetta getur aldrei orðið ann- að en ráðgefandi þjóðaratkvæða- greiðsla og það er vegna þess að okkar stjórn- arskrá kveður þar á um,“ sagði Álfheiður Inga- dóttir, varafor- maður stjórn- skipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis, í Silfri Egils í gær þar sem rætt var um tillögu um þjóðar- atkvæðagreiðsluna í sumar og spurt hvað yrði ef ekki tækist að klára málið í þinginu í vikunni í samræmi við lög um þjóðaratkvæðagreiðslur. „Það skiptir engu máli þó það drag- ist ef það tekst ekki, þá höldum við bara þjóðaratkvæðagreiðslu ein- hverntíma seinna,“ sagði Álfheiður og vísaði til ágústmánaðar í því sam- hengi. ipg@mbl.is Atkvæða- greiðsla gæti orðið í ágúst Álfheiður Ingadóttir „Mér finnst það mjög sérkennilegt og raunverulega er það svo að öll þessi ár sem við höfum setið í rík- isstjórn, þessi þrjú ár, hafa það alltaf verið sjálfstæðismenn sem hafa brugðið fæti fyrir það að við höfum getað þokast eitthvað áfram í þessu stjórnarskrármáli og það vita það allir sem vilja vita að þingið hefur verið ófært um að leysa þetta mál sjálft í marga ára- tugi,“ sagði Jóhanna Sigurð- ardóttir for- sætisráðherra um málið eftir ríkis- stjórnarfund á föstudag. Hún segir ríkisstjórnina hafa einsett sér að þjóðin fái nýja stjórn- arskrá á kjörtímabilinu. Þjóðin fái nýja stjórnarskrá SJÁLFSTÆÐISMENN BREGÐA ALLTAF FÆTI FYRIR MÁLIÐ Jóhanna Sigurðardóttir Tenerife Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Akureyri • Sími 461 1099 • www.heimsferdir.is Frábær vorferð fyrir eldri borgara 21. apríl í 24 nætur Frábært verð 209.900 á mann í tvíbýli með allt innifalið í studio íbúð á Villa Adeje Beach. Nansý Davíðsdóttir, 10 ára, leiddi b-sveit Rimaskóla á Íslandsmóti grunnskólasveita í skák, sem náði þeim einstæða árangri að vinna silfurverðlaun. Mikill fjöldi fylgdist jafnan með skákum Nansýjar, enda spennan rafmögnuð. Hér glímir hún við Birki Karl Sigurðarson, fyrirliða Salaskóla. Birkir hafði betur eftir mikla bar- áttu. Í síðustu umferðinni tryggði Nansý b-sveitinni silfrið með glæsilegum sigri. Ljósmynd/Hrafn Jökulsson Rafmögnuð spenna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.