Morgunblaðið - 26.03.2012, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 26.03.2012, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. MARS 2012 Verslun Tunguhálsi 10 Opið mán.-fim. 8:00-17:30 fös. 8:00-17:00 Sjóuð vörumerki www.kemi.is Skoðaðu nýju heimasíðuna okkar Margra ára farsæl þjónusta Söngleikurinn Hver er ég? í flutningi unglinga í 8.-10. bekk í Hlíðaskóla var frumsýndur um síð- ustu helgi fyrir fullu húsi áhorfenda. Þótti sýn- ingin, sem fjallar um undirheimana og ógn fíkn- arinnar fyrir ungt fólk, hafa takist vel og ríkti hátíðarstemning í salnum. Anna Flosadóttir, kennari við skólann, leikstýrir sýningunni en hún hefur um áraraðir unnið ötullega að því að kynna unglingum í skólanum listir og menningu. Sjötta og jafnframt síðasta sýningin fer fram næstkom- andi þriðjudag klukkan 19.30 og er athygli vakin á því að þessi sýning er táknmálstúlkuð. Söngleikur um ógn fíknarinnar fyrir ungt fólk settur upp í Hlíðaskóla Morgunblaðið/Ómar Unglingar syngja um undirheima SVIÐSLJÓS Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Það er verið að tala um að skipta fiskveiðistjórnunarkerfinu í tvo hluta. Í fyrsta lagi nýtingarleyfin, þ.e. samninga eða leyfi sem er út- hlutað til kvótahafa nú þegar. Í öðru lagi verður opinn almennur leigu- markaður við hliðina á því kerfi með aflaheimildir og um hann fari öll við- skipti með kvóta. Sá pottur á að mæta jafnræðiskröfunni sem mann- réttindanefnd Sameinuðu þjóðanna gagnrýndi að við værum ekki að mæta í núverandi kerfi,“ segir Ólína Þorvarðardóttir, einn þriggja full- trúa Samfylkingar í atvinnuvega- nefnd, um meginstefin í nýju kvóta- frumvarpi sem verður kynnt í dag. „Leigupotturinn opnar möguleika fyrir nýliða á að komast inn í grein- ina og hafa sitt atvinnufrelsi. Þetta er í grundvallaratriðum málið. Síðan til hliðar við þennan opna leigupott er gert ráð fyrir byggðakvóta, strandveiðum, línuívilnun o.fl. en það skerðir ekki leigupottinn. Að því gefnu að leigupotturinn verði nógu stór til þess að standa undir nafni sem opinn markaður með aflaheimildir á grundvelli al- mennra leikreglna. Á það legg ég gríðarþunga áherslu,“ segir Ólína sem segir aðspurð að ætlunin sé að auka jafnræði í greininni. Potturinn standi undir nafni „Það hafa verið skiptar skoðanir um það hversu stór leigupotturinn þurfi að vera en ef upphafsstaða hans verður ekki undir 20.000 þorsk- ígildistonnum tel ég það viðunandi til að byrja með að því gefnu að öll afla- aukning renni nánast í helminga- skiptum milli nýtingarleyfa og þessa pottar þannig að hann eigi mögu- leika á að stækka hratt og vel.“ Samkvæmt heimildum blaðsins er að því stefnt að leigupotturinn fari ekki undir 20.000 tonn og er Ólína því ekki ein um þá skoðun. Ólína telur frumvarpið munu hafa jákvæð áhrif á greinina. „Við gætum með þessu séð fram á mun heilbrigð- ara rekstrarumhverfi í sjávarútvegi, umhverfi þar sem eignarhald þjóð- arinnar á auðlindinni er ótvírætt og forræði aflaheimildanna er ekki lengur í höndum aðila sem fengu út- hlutað gjafakvóta fyrir þrjátíu árum. Forræðið verður á hendi hins op- inbera, ríkisins fyrir hönd þjóðarinn- ar. Kvótahafar munu halda sínum rétti til fiskveiða á grundvelli tíma- bundinna nýtingarleyfa gegn sann- gjörnu gjaldi. En sá möguleiki er nánast tekinn í burtu að þeir sem fram til þessa hafa fénýtt aflaheim- ildirnar og grætt jafnvel meira á því að leigja þær frá sér en veiða fiskinn, geri það hér eftir. Hugmyndin er að leiguframsalið verði takmarkað við 20-25% innan ársins og að menn ávinni sér réttinn til að leigja frá sér með veiðum. Með lögunum er líka opnuð gátt fyrir þá sem ekki hafa komist inn í kerfið og hafa verið leiguliðar fram að þessu. Þá er gert ráð fyrir því að öll við- skipti með aflaheimildir fari um kvótaþing, sem er til mikilla bóta.“ Telur 20 ár of skamman tíma Fram hefur komið að miðað sé við 20 ára nýtingarrétt í frumvarpinu. Friðrik J. Arngrímsson, fram- kvæmdastjóri Landssambands ís- lenskra útvegsmanna, segir að ef rétt reynist sé þetta of naumur tími. Í orkunni sé rætt um 30-65 ár. „Við höfum almennt talið að út- gerðin eigi að hafa að minnsta kosti jafnlangan nýtingartíma og orku- fyrirtækin. Útgerðin er búin að fjár- festa mikið í greininni. Hún er búin að vinna inn aflaheimildir fyrir Ís- land með veiðum í deilistofnum og stofnum utan lögsögunnar. Það eru því engin rök fyrir því að hafa þann tíma skemmri. Þvert á móti.“ Forræðið frá útgerð til ríkisins  Stefnt að því að leigupotturinn í nýja kvótafrumvarpinu verði ekki undir 20.000 þorskígildistonnum  Leiguframsal verður takmarkað  Framkvæmdastjóri LÍU telur 20 ára nýtingarrétt of skamman Ólína Þorvarðardóttir Friðrik Arngrímsson Björg frá Rifi, björgunarbátur Slysavarnafélags Íslands, var köll- uð út á ellefta tímanum í gærmorgun vegna vélarbilunar í Glaði SH frá Ólafsvík. Glaður var á leið til veiða í gærmorgun þegar vélarbilun varð, að sögn Magnús Emanúelssonar, skip- stjóra á Björg. Glaður var þá staddur 17 mílur norðaustur af Ólafsvík. Ekkert amaði að skipverjunum tveimur í áhöfn Glaðs. Björg tók Glað í tog til Ólafsvíkur og tók ferðin um tvo tíma, en gott veður var á mið- unum. Glaður SH dreginn vélarvana að landi Kafarar frá slökkviliði höf- uðborgarsvæðisins og lögreglu leituðu að manni sem talið var að hefði farið í höfnina við Aust- urbakka í fyrrinótt. Voru björgunarsveitir kallaðar út og sigldu þær meðfram ströndinni í leit að manninum. Skv. upp- lýsingum frá slökkviliðinu kom tilkynning um að maður hefði væntanlega hent sér í höfnina skammt frá Hörpu um þrjúleyt- ið. Mikill viðbúnaður var þar sem maðurinn hafði hótað þessu við félaga sinn og horfið síðan. Leit var hætt um fjögurleytið þegar farsími mannsins var mið- aður út og maðurinn fannst heill á húfi. Mikil leit að manni í Reykjavíkurhöfn Áætlað er að umfang flugstarfsemi á Keflavíkurflugvelli slái öll fyrri met á komandi sumri. Aukningin var 19% síðasta sumar en það stefnir í að hún verði 8-9% í ár, að sögn Friðþórs Ey- dal, talsmanns Isavia. Veruleg aukn- ing verður í leiðakerfum flugrekenda sem aldrei hafa haft jafnmarga áfangastaði í áætlunar- og leiguflugi til og frá landinu. Icelandair er samt sem áður stærsta nafnið í þessum hópi með um 70% af umferðinni að sögn Friðþórs. Síðastliðið sumar voru 18-20 far- þegaflugvélar afgreiddar á háanna- tíma að morgni og síðdegis flesta daga vikunnar. Samkvæmt áætlun á komandi sumri munu 23 farþega- flugvélar verða afgreiddar yfir há- annatíma að morgni og síðdegis þeg- ar álagið er hvað mest. Búist er við að um 15 þúsund farþegar fari um Flugstöð Leifs Eiríkssonar á dag þegar mest verður. Á næstu vikum verður ráðist í end- urbætur á flugstöðinni til þess að anna umferðinni. Þar er stærsti lið- urinn að gera nýjan inngang í norð- urbyggingu flugstöðvarinnar fyrir farþega sem fá afgreiðslu á stæðum fjarri flugstöðinni en ekki er pláss fyrir allar flugvélar við landganga á háannatímum. „Þetta hefur ekki ver- ið gert mikið hér en nauðsynlegt er að bregðast við aukinni umferð með þessum hætti,“ segir Friðþór en enn- fremur verða afköst í vopnaleit aukin og sjálfsinnritunarstöðvum fjölgað. Annað metsumar  Ráðist í endurbætur á Flugstöð Leifs Eiríkssonar til að mæta fjöldanum Eftirfarandi flugfélög annast áætlunar- og leiguflug á Kefla- víkurflugvelli í sumar: Air Berlin, Avion Express (WOW Air), Air Greenland, Austrian Airlines, Delta, Lufthansa, Easyjet, Edelweiss Air, Germanwings, Holidays – Czech Airlines (Iceland Ex- press), Icelandair, Niki Luft- fahrt, Norwegian, Primera Air, SAS, Transavia.com France og Travel Service. Sautján flug- félög í sumar LEIGU- OG ÁÆTLUNARFLUG

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.