Morgunblaðið - 26.03.2012, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. MARS 2012
live.is
Lífeyrissjóður verzlunarmanna | Kringlunni 7, 103 Reykjavík | Sími 580 4000 | skrifstofa@live.is
Ársfundur Lífeyrissjóðs verzlunarmanna
verður haldinn þriðjudaginn 27. mars
kl. 18 á Grand Hótel Reykjavík.
DAGSKRÁ FUNDARINS:
» Venjuleg ársfundarstörf
» Önnur mál
Sjóðfélagar og lífeyrisþegar sjóðsins eiga rétt til setu á
ársfundinum. Fundargögn verða afhent á fundarstað.
Reykjavík, 10. febrúar 2012
Stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna ÍMY
N
D
U
N
A
R
A
F
L
/
LV
Ársfundur 2012
Gunnar Rögnvaldsson telur aðákalli um „þjóðarsátt“ hafi
loks verið svarað með því að
„rúmlega 82 prósent landsmanna
eru ekki ánægð með störf Jó-
hönnu Sigurðardóttur forsætisráð-
herra.
Og 77 prósentlandsmanna
eru óánægð með
störf Steingríms J.
Sigfússonar, sem er
umboðslaus um-
sækjandi inn í Evr-
ópusambandið. Fullkomlega um-
boðslaus þingmaður og
flokksforingi í því máli.
Sátt hefur einnig náðst meðalþjóðarinnar um Icesave-málið.
Því 98 prósent höfnuðu ráðstjórn-
arríkisvaldsbeitingu Jóhönnu,
Steingríms og félaga í því máli.
Þjóðarsáttin í því máli var staðfest
með tvöföldu sleggjuhöggi þjóð-
arinnar yfir hendur þessa fólks.
Síðan kom hæstiréttur og ógiltiverknað ríkisstjórnarinnar í
stjórnarskrármálefnum lýðveld-
isins. En dómi hans sópaði þetta
fólk bara undir teppið. Þetta er
hrikalegt. Svívirðilegt.
Af hverju er þá þessi ríkisstjórn
hér enn?
Með hvaða leyfi kjósenda og íhverra nafni stendur um-
sókn Íslands inn í Evrópusam-
bandið? Þjóðin hefur ekki veitt
ríkisstjórninni neitt umboð fyrir
henni. Því fer fjarri. Þingmenn
sækja umboð sitt til kjósenda.
Þetta er ekki öfugt, nema í sovét-
ríki.
Út með þessa sovésku ríkis-stjórn og út með umsókn
hennar inn í Evrópusambandið.
Þjóðarsátt er um ekkert minna
en það.“
Gunnar
Rögnvaldsson
Þjóðarsátt innan
seilingar
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 25.3., kl. 18.00
Reykjavík 9 skýjað
Bolungarvík 8 skýjað
Akureyri 11 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. 9 alskýjað
Vestmannaeyjar 8 léttskýjað
Nuuk -2 þoka
Þórshöfn 10 skýjað
Ósló 12 heiðskírt
Kaupmannahöfn 11 heiðskírt
Stokkhólmur 8 heiðskírt
Helsinki 2 skýjað
Lúxemborg 20 heiðskírt
Brussel 17 heiðskírt
Dublin 16 heiðskírt
Glasgow 17 heiðskírt
London 11 heiðskírt
París 21 heiðskírt
Amsterdam 15 heiðskírt
Hamborg 15 heiðskírt
Berlín 15 heiðskírt
Vín 20 léttskýjað
Moskva -2 snjókoma
Algarve 18 heiðskírt
Madríd 22 heiðskírt
Barcelona 17 léttskýjað
Mallorca 17 léttskýjað
Róm 12 þrumuveður
Aþena 17 skýjað
Winnipeg -3 skýjað
Montreal 5 alskýjað
New York 8 alskýjað
Chicago 18 léttskýjað
Orlando 25 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
26. mars Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 7:05 20:02
ÍSAFJÖRÐUR 7:08 20:10
SIGLUFJÖRÐUR 6:51 19:53
DJÚPIVOGUR 6:34 19:32
Tæplega 150 bátar eru byrjaðir á
grásleppuveiðum. Það er talsverð
aukning frá síðasta ári þegar 90
bátar voru byrjaðir, en fjöldinn slær
þó ekki við vertíðinni 2010 þegar 159
bátar voru byrjaðir veiðar á þessum
tíma.
Á grásleppuvertíðinni 2010 stund-
uðu alls 349 bátar veiðar og í fyrra
var metfjöldi eða 369. Búast má við
smávægilegri fækkun báta á vertíð-
inni nú þar sem valtími til nýtingar
þeirra 50 veiðidaga sem vera má að
veiðum, hefur verið styttur, segir á
smabatar.is
Nú er í fyrsta skipti skylt að koma
með alla grásleppuna að landi. Störf
við verkun, frystingu og pökkun fyr-
ir markaði í Kína skapar því fleiri
störf en áður. aij@mbl.is
150 bátar
byrjaðir á
grásleppu
Morgunblaðið/Kristján
Nánast engar líkur eru taldar á því
að Danir ráði við að opna aðildar-
viðræður Evrópusambandsins við
Íslendinga um sjávarútvegsmál.
Þetta segir Jón Bjarnason, þing-
maður Vinstri grænna og fyrrv.
sjávarútvegs- og landbúnaðarráð-
herra, á heimasíðu sinni. Danir fara
með formennsku í ESB þar til í
júnílok á þessu ári og höfðu lýst
áhuga sínum á að opna viðræður.
Jón bendir á að danska ríkis-
stjórnin hafi mjög tæpan meirihluta
á þingi og hún falli ef Færeyingar
og Grænlendingar hætti stuðningi
við hana.
Færeyski þingmaðurinn Sjurður
Skaale hefur sagt opinberlega við
fjölmiðla að verði
Færeyingar
knúnir til samn-
inga um makríl-
veiðar með
þvingunum af
hálfu ESB muni
Færeyingar
hætta stuðningi
við stjórnina
skrifar Jón.
Það séu ekki aðeins Íslendingar
sem hafi mætt óbilgirni og hótunum
frá ESB vegna makrílveiðanna
heldur hafi Færeyingum jafnframt
verið hótað víðtækum viðskipta-
banni vegna makrílveiða þeirra að
sögn Jóns.
„Danir eru milli steins og sleggju
í makríldeilunni heimafyrir og því
nokkuð ljóst að ekki verður opnað á
raunverulega samninga við Íslend-
inga í sjávarútvegsmálum undir
ESB-formennsku Dana eins og lof-
að hefur verið,“ skrifar Jón Bjarna-
son.
Danir á milli steins og sleggju
Segir Dani ekki ráða við að opna
viðræður ESB um sjávarútvegsmál
Jón Bjarnason