Morgunblaðið - 26.03.2012, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. MARS 2012
Stórhöfða 21 | sími 545 5500 | flis.is
Flísar framtíðarinnar
gæði og glæsileiki á góðu verði
Sérfræðingar í gleri
… og okkur er nánast ekkert ómögulegt
EINANGRUNARGLER
SANDBLÁSIÐ GLER
SÓLVARNARGLER
SPEGLAR
HERT GLER:
Í STURTUKLEFA
Í HANDRIÐ
Í SKJÓLVEGGI
Smiðjuvegi 7 - 200 Kópavogi - Sími: 54 54 300
Opnunartími: 08:00 - 17:00 alla virka daga
www.ispan.is - ispan@ispan.is
CE-VOTTUN ER
OKKAR GÆÐAMERKI
Engum þeirra
bandarísku her-
manna sem tóku
þátt í loftárás
NATO sem
grandaði 24 pak-
istönskum her-
mönnum í nóv-
ember verður
refsað fyrir hana
samkvæmt
ákvörðun banda-
ríska hersins. Atvikið hefur skaðað
samskipti Pakistans og Bandaríkj-
anna og torveldað starf NATO í
Afganistan.
Niðurstaða bandarískrar rann-
sóknar í desember var að bæði pak-
istönsku og bandarísku hermenn-
irnir hefðu borið ábyrgð á
skotbardaganum. Það var hins veg-
ar tekið fram að þeir pakistönsku
hefðu skotið fyrst frá tveimur
landamærastöðvum sem voru ekki
merktar inn á kort NATO. Þeir hafi
haldið skothríðinni áfram jafnvel
eftir að bandarísku hermennirnir
hefðu varað þá við að þeir væru að
skjóta á bandamenn.
Pakistönsk stjórnvöld höfnuðu
þessari niðurstöðu og kenndu
bandarísku hermönnunum aðallega
um það sem gerðist. Í kjöfarið var
önnur rannsókn gerð og var nið-
urstaða hennar sú að Bandaríkja-
mennirnir hefðu skotið í sjálfsvörn.
Ekki bæri því að refsa þeim vegna
atviksins. kjartan@mbl.is
Ekki refsað fyrir
dauða hermanna
NATO mótmælt í
Pakistan.
PAKISTAN
Útlit er fyrir að sósíalistar haldi
völdum í Andalúsíu á Spáni þrátt
fyrir fyrsta kosningasigur hins
hægrisinnaða Þjóðarflokks í hér-
aðinu í kosningum þar í gær. Sósíal-
istar hafa verið við völd í héraðinu í
þrjátíu ár en Þjóðarflokknum hafði
verið spáð meirihluta þar. Það
gekk þó ekki eftir. Atvinnuleysið í
héraðinu er það mesta á Spáni, eða
31%. Líklegt er talið að sósíalistar
myndi stjórn með Sameinuðu
vinstri (IU) sem er í lykilstöðu eftir
kosningarnar. kjartan@mbl.is
SPÁNN
Sósíalistar halda
líklega völdum
Í framtíðinni væri hægt að nota hóp
af gervihnöttum með sólarknúnum
leysigeislum til þess að minnka loft-
steina sem stefna á jörðina. Þetta er
hugmynd verkfræðinga við Strath-
clyde-háskóla í Glasgow sem þeir
kynntu í síðasta mánuði.
„Þetta er vænlegri kostur en eitt
stórt geimskip. Kerfið okkar lagar
sig að aðstæðum. Hægt væri að
bæta við gervihnöttum fyrir stærri
loftsteina,“ segir dr. Massimiliano
Vasile um hugmyndina.
Leysitæknin er enn tiltölulega
skammt á veg komin en Vasile seg-
ist engu að síður trúaður á að hægt
sé að leysa tæknileg vandamál við
hana. kjartan@mbl.is
SKOTLAND
Gervihnettir gegn
loftsteinum
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Friðarumleitanir Kofis Annans, sér-
legs fulltrúa Sameinuðu þjóðanna
og Arababandalagsins í málefnum
Sýrlands, eru síðasta tækifæri Sýr-
lendinga til að afstýra langdregnu
og blóðugu borgarastríði. Þetta
sagði Dmitrí Medvedev, forseti
Rússlands, eftir fund hans með
Annan í Moskvu í gær.
Medvedev lýsti yfir fullum stuðn-
ingi við starf Annans og hvatti hann
til að vinna bæði með sýrlenskum
stjórnvöldum og stjórnarandstöð-
unni til þess að binda enda á ofbeld-
ið í landinu sem staðið hefur yfir í
rúmt ár.
Sex skrefa áætlun
Rússar hafa tvisvar beitt neitun-
arvaldi sínu í öryggisráði SÞ til þess
að stöðva ályktanir um Sýrland en í
síðustu viku samþykktu þeir yfirlýs-
ingu SÞ um sendiför Annans.
Annan hefur lagt fram friðaráætl-
un í sex skrefum sem gerir ráð fyrir
að stjórnarherinn hætti umsvifa-
laust að beita þungavopnum á þétt-
býlisstaði. Þá vill hann að uppreisn-
armenn láti af árásum.
„Sýrland hefur tækifæri til að
vinna með mér í þessu málamiðl-
unarferli til að binda enda á átökin,
koma mannúðaraðstoð til þeirra
sem hana þurfa og koma af stað
pólitísku ferli,“ sagði Annan í
Moskvu. Hann fer næst til Kína en
þarlend stjórnvöld hafa einnig stutt
sýrlensk stjórnvöld á vettvangi SÞ.
Fjöldi manns drepinn
Stjórnarherinn lét sprengjum
rigna yfir borgina Homs og 30
manns, þar af 18 óbreyttir borg-
arar, voru drepnir í ofbeldi um allt
Sýrland í gær að því er aðgerða-
sinnar og mannréttindasamtök
segja.
Að sögn samtakanna Eftirlits-
stöðvar mannréttinda í Sýrlandi
(Syrian Observatory for Human
Rights) féllu fimm manns í árás-
unum í og við Homs, þar af eitt ung-
barn og ung telpa. Þá saka sam-
tökin stjórnarhermenn um að nota
óbreytta borgara sem mannlega
skildi í gagnárásum sínum gegn
uppreisnarmönnum í Idlib-héraði.
Reuters
Viðræður Dmitrí Medvedev og Kofi Annan takast í hendur í Moskvu. Annan er þar til að afla stuðnings Rússa til að
koma á friði í Sýrlandi en þeir hafa hingað til stutt stjórn Bashars al-Assads og beitt til þess neitunarvaldi sínu í SÞ.
Síðasta tækifærið til að
afstýra blóðugu stríði
Fjöldi óbreyttra borgara féll í árásum hersins í Sýrlandi
Blóði drifin helgi
» Að minnsta kosti 28
óbreyttir borgarar voru
drepnir á laugardag að sögn
Eftirlitsstöðva mannréttinda í
Sýrlandi.
» Ólíkir hópar sem barist
hafa gegn ríkisstjórn Bashars
al-Assads tilkynntu um
helgina að þeir myndu sam-
eina krafta sína í hernaðar-
aðgerðum.