Morgunblaðið - 26.03.2012, Side 11
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Bros Lífið brosir við Jóhannesi eftir að hann sigraðist á krabbameini í blöðruhálskirtli.
Fylgdist með ferð blóðsins
Jóhannes byrjaði að mynda áð-
ur en hann greindist og fylgdist í
mynd með beinaskanna, sneið-
myndatöku og fleira sem fylgir
rannsókn. Eins fékk hann að fylgj-
ast óvenju vel með meðferðinni.
Hann fékk t.d. að skoða blóðsýni úr
sér og sjá hvernig krabbameinið
réðst á frumur líkamans. Einnig
fékk hann að fylgja blóðinu eftir
þar sem það fer inn í skilvindur og
sjá aflesturinn.
„Ég vildi sjá óvininn því ósýni-
legur óvinur er dálítið erfiður óvin-
ur. Mér finnst betra að hafa stjórn
á hlutunum og þetta var mín aðferð
til þess,“ segir Jóhannes sem fylgd-
ist vel með sjálfum sér, skráði
vandlega niður lyfja- og vítamíninn-
töku, blóðþrýsting, þyngd, púls og
fleira á meðan á meðferð stóð. Jó-
hannes kúventi einnig mataræði
sínu og skipti yfir í hráfæði. Hann
sleppti kjöti, fiski og víni og segir
blaðamanni hvernig hann hélt
kveðjustund með rauðvínsflöskunni
áður en grænmetisneyslan tók við.
En með tók hann einnig vítamín til
að fá örugglega nægilega mikið af
bætiefnum.
Enginn slaufugaur
Eftir mikla aðgerð dvaldi Jó-
hannes nokkra daga á spítalanum
en hélt eftir það til hvíldar í Dúbaí
þar sem sonur hans er búsettur.
Þar kviknaði hugmyndin að Bláa
naglanum þegar Jóhannes hitti fyr-
ir Emily, starfsmann Estée Lau-
der, en fyrirtækið átti frumkvæðið
að Bleiku slaufunni, aþjóðlegu ár-
veknisátaki um brjóstakrabbamein.
„Ég sá mig ekki fyrir mér sem
slaufugaur svo þegar ég kom heim
fór ég beint upp í Húsasmiðju. Þar
náði ég mér í kassa af sex tommu
nöglum og spreyjaði þá bláa. Þann-
ig varð Blái naglinn til og þeir sem
kaupa einn slíkan verða stuðnings-
naglar,“ segir Jóhannes.
Til styrktar tækjakaupum
Myndin hefur þegar vakið at-
hygli lækna bæði hér og erlendis.
Ingi R. Ingason framleiðandi
og Jóhannes Kr. Kristjánsson
fréttamaður tóku við myndefninu
frá Jóhannesi og tóku viðtöl við
hann og fjölskylduna. Úr mynd-
efni hans og viðtölunum varð til
45 mínútna heimildarmynd en í
myndinni er teiknimyndakafli
eftir Gunnar Karlsson sem
Krabbameinsfélagið styrkti.
„Það var dálítið erfitt í
fyrstu að gera þessa mynd en
ég er sallarólegur vegna
frumsýningarinnar. Svona
nokkuð hefur fólk varla séð
áður en ég vildi þó ekki
stuða fólk heldur einfaldlega
deila reynslu minni. Þessi
sjúkdómur er svo mikið
feimnismál en ég sýni t.d. alla flór-
una af stinningarlyfjum sem ég gat
valið um eftir aðgerðina og bindin
sem ég þurfti að vera með í bux-
unum fyrst á eftir. Nokkuð sem
karlmenn þurfa alla jafna ekki að
gera enda brosti ég bara í fyrstu.
Svo sá ég batann í klósettskálinni
og myndaði alltaf morgunbununa
þar til hún náði eðlilegum lit. Það
var kannski erfiðara fyrir konuna
mína og syni að koma fram í mynd-
inni, en þau sáu hvað ég var með
sérstakt efni í höndunum og veittu
mér mikinn stuðning,“ segir Jó-
hannes sem hefur í dag náð fullum
bata og segist vera í jákvæðum gír
að vinna í sínum málum og takast á
við eftirköst aðgerðarinnar.
„Í október þegar vakin er at-
hygli á brjóstakrabbameini er allt
lýst upp í bleikum lit en í Mottu-
mars-mánuðinum, sem vissulega er
verðugt verkefni, er allt slökkt.
Þetta sýnir kannski ólíkan hugs-
unarhátt karla sem enn eru í
Þyrnirósarsvefni og vantar al-
menna vitundarvakningu,“ segir
Jóhannes.
ins munu söfnin bjóða ýmist upp á
viðburði, útstillingar eða annað. Til
að taka þátt í ljósmyndasamkeppn-
inni skal senda mynd á netfangið
ingibjorg.osp.ottarsdottir@reykja-
vik.is fyrir 10. apríl.“ Myndirnar
birtast á facebook- og flickrsíðu
Bókasafnsdagsins. Veitt verða
verðlaun fyrir bestu myndina á
Bókasafnsdaginn.
Hvar sem er Það er hægt að lesa
allsstaðar.
Utandyra Ströndin er tilvalinn staður fyrir bóklestur og nægur tími í fríinu.
Barn Aldrei of ung til að lesa.
Ljósmynd/Margrét Lilja Sigurgeirsdóttir
Ljósmynd/Áslaug Óttarsdóttir
Ljósmynd/Auður Jónsdóttir
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. MARS 2012
Vert er að hvetja fólk til að njóta far-
andsýningar sem nú stendur yfir í
Minjasafni Austurlands á Egils-
stöðum. Farandsýning þessi heitir
Ekki snerta jörðina! Sýningin er
byggð á rannsóknaraðferð um „sam-
tímasöfnun“ og tóku 5. bekkingar
víðs vegar um landið þátt fyrir tveim-
ur árum.
Verið er að sýna það sem þessir
krakkar töldu vinsælast og yrðu
bestu sýnishornin í framtíðinni af
leikjum barna við byrjun 21. aldar.
Þetta er snertisýning og gestir á
öllum aldri og af öllum þjóðernum
eru hvattir til að prófa og leika sér.
Einnig eru önnur spil og leikir sem
má prófa ásamt fróðleik um leiki
barna áður fyrr.
Farandsýning þessi stendur í að-
eins tvær vikur í viðbót, eða til 30.
mars.
Skólahópar eru hvattir til að bóka
tíma við fyrsta tækifæri.
Sýningin er opin alla virka daga frá
klukkan 13-16.
Sjá einnig heimasíðu Minjasafns
Austurlands www.minjasafn.is og
heimasíðu rannsóknarinnar
www.thjodminjasafn.is/ekki-snerta-
jordina
Snertisýning
Gaman Frá opnun sýningarinnar.
Ekki snerta
jörðina!
Á hverju ári greinast 220 karl-
menn á Íslandi með krabba-
mein í blöðruhálskirtli. Af
þeim fjölda deyja 50 karl-
menn. Krabbamein í blöðru-
hálskirtli er algengasta
krabbamein í íslenskum karl-
mönnum. Blái naglinn er átak
til vitundarvakningar um
blöðruhálskirtilskrabbamein
og jafnframt fjáröflunarátak
til styrktar rannsóknum,
fræðslu og tækjakaupum.
Hann er hugsaður til sölu all-
an ársins hring en
naglinn
verður
sér-
innpakk-
aður með
upplýs-
ingum á
ensku. Allar
nánari upp-
lýsingar um
átakið og
myndina má
nálgast á
www.blainagl-
inn.is.
Frumsýningin
hefst klukkan
20 annað kvöld
og er aðgangur
ókeypis. Hægt er
að fá miða á
harpa.is eða
midi.is.
220 karlar
greindir á ári
BLÖÐRUHÁLSKIRTILS-
KRABBAMEIN
Íslenska ullin er einstök
Skoðaðu litaúrvalið
í næstu verslun.
Sjá sölustaði á
istex.is